Morgunblaðið - 18.10.1996, Blaðsíða 54
54 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Hvítlaukur
(geirlaukur)
Kristín Gestsdóttir segir að hér á árum áður
hafí hvítlaukur verið kallaður geirlaukur, sem
er mjög gott nafn og lýsir lauknum vel. Mætti
vel vekja það nafn upp að nýju.
*
LÍKLEGA þekkja allir þeir
sem koma til Miðjarðarhafs-
landanna og Suður-Frakklands
hina þrúgandi ógeðfelldu hvít-
laukslykt í almenningsvögnum og
lestum. Hvítlaukur hefur lengi
verið þýðingarmikill í matargerð
þeirra landa svo og í Austurlönd-
um Qær. En fólk þarf alls ekki
að anga af hvítlauk þótt það borði
hann ef rifin eru soðin heil eða í
sneiðum, en ekki borðuð og press-
uð hrá. Segja sumir að hvítlauks-
pressan hafi verið fundin upp til
að draga fram hina vondu hliðar
hvítlauksins, þ.e. beiskt bragð og
sterkan óþef. Mér fínnst það nú
ekki, en ég nota hvítlaukspressu
talsvert og á eina mjög fallega
úr smíðajámi sem er hreinasta
eldhúsprýði. Betra er að merja
hvítlauksgeirann í morteli eða
leggja á bretti og merja með
hnífsoddi. Alls ekki má brúna
hvítlauk, þá verður hann rammur
og mjög vondur, ekki má heldur
nota grænu blöðin sem spira
stundum upp úr lauknum. Hvít-
laukur er í mörgum geirum og
hvem geira umlykur himna sem
er fjarlægð. Ekki er gott að
geyma hvítlauk í ísskáp, en hann
má hengja á nagla neðan í hillu
eða upp á vegg á köldum stað.
Kjúklingarétturinn hér á eftir er
með mjög miklum hvítlauk (25
geimm), það bragð er þó ekki
yfírgnæfandi en gefur réttinum
mjög gott bragð. Gott er að láta
hvítlauk liggja í köldu vatni í
nokkrar mínútur áður en hann
er afhýddur.
Hvítlaukskjúklingur
3. Afhýðið lauk, hreinsið gul-
rót og sellerístöngla. Skerið gul-
rót og sellerístöngla í sneiðaren
saxið laukinn.
4. Setjið matarolíu á pönnu
og sjóðið allt grænmetið í henni
17-10 mínútur. Hafið hægan hita
og brúnið ekki. Setjið í eldfasta
skál með loki.
5. Leggið kjúklingabitana ofan
á, kreistið safa úr sítrónu og
helliðyfir. Stráið salti og pipar
yfir. Afhýðið hvítlauksgeirana og
stingið niður með kjúklingabitun-
um. Setjið lok á skálina og hreyf-
ið aldrei meðan á suðu stendur.
Sjóðið þannig í 1 klst. Fleygið
húðinni en berið réttinn fram í
skálinni.
Meðlæti: Ristað brauð og
smjör.
Hvítlaukspiklis sá, sem hér er
uppskrift að, er mjög góður með
alls konar grillkjöti og fleiri steikt-
um kjöttegundum. einnig er gott
að saxa einn til tvo hvítlauks-
geira saman við ýmiss konar
salat.
Hvítlaukspiklis
4-5 stórir hvítlaukar
'A dl hvítvínsedik
___________I dl eplasgfi________
___________2 msk. sjerri________
__________2 msk. sykur__________
'/ tsk. salt
1 litill ferskur eða þurrkaður
chilepipar
_________6 negulnoglar__________
1 tsk. piporkorn, helsthvíteða
blönduð
1 kjúklingurum 1.250 g
1 % tsk. salt
mikið af nýmöluðum pipar
2 meðalstórar gulrætur
2 meðalstórir laukar
4 selerístönglar
'/ dl matarolia
25 stórir hvítlauksgeirar
_________safi úr 1 sitrónu______
1. Hitið bakaraofn í 190 C,
blástursofn í 180 C.
2. Sundurhlutið kjúklinginn,
klippið sundur bein, takið af húð-
ina en leggið yfir í kjúklinginn í
suðunni.
__________2 lórviðarlauf_______
1 hrísla ferskt rósmorin (krvdd)
_________'/ dl motorolíg_______
1. Afhýðið hvítlauksgeirana,
sem gætu verið 40-50 stk.
2. Setjið allt nema rósmarin
og matarolíu í pott og látið sjóða
upp, setjið þá hvítlauksgeirana
með í pottinn og sjóðið við væg-
an hita í 5 mínútur. Geymið til
næsta dags.
3. Bætiðfersku rósmarini
saman við og sjóðið upp. Hellið
síðan í krukku og hellið matarol-
íu yfir. Lokið vel og geymið í
kæliskáp. Þetta geymist í um 4
vikur.
skák
Umsjón Margeir
Pétursson
Staðan kom upp í
deildakeppni Skáksam-
bands íslands
um síðustu helgi.
Áskell Örn Ká-
rason (2.245),
Skákfélagi
Akureyrar) hafði
hvítt og átti leik,
en Heimir Ás-
geirsson
(2.185), Skákfé-
lagi Hafnarfjarð-
ar, var með
svart.
Hvítur hafði
þegar fómað
drottningu fyrir
hrók og riddara,
en lét þar ekki
staðar numið:
20. Hxd5! - exd5 21.Rg5
— Dc7? (Meiri vörn var
fólgin í 21. — d4 22. Rxf7
- Hh7 23. Rg5 - Hh6
24. Bf4 — c3, þótt hvítur
standi til vinnings eftir
25. bxc3 - bxc3 27. Bf5!)
22. Bf4 - Hg8 23. Bxd5
— Hxg5 24. hxg5 — c3
HVÍTUR leikur og vinnur
25. bxc3 — bxc3 26. e6
og svartur gafst upp.
Haustmót TR. Umferð
í öllum flokkum í kvöld.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Vestur Norður Austur Suður
Hörður Jón Georg Ragnar
-- -- - 1 hjarta
2 lauf Pass Pass 2 spaðar
4 lauf 4 spaðar 5 lauf 5 spaðar
6 lauf Dobl Pass 6 spaðar
Dobl Pass Pass Pass
RAGNAR S. Halldórsson
sendi þættinum hressi-
legt skiptingarspil, sem
kom upp í rúbertubrids í
góðra vina hópi fyrir
skömmu. „Suður hefur
verið í stuði,“ segir Ragn-
ar, „en er hann í alstuði?
Nú reynir á.“ Suður gefur
og báðir eiga 60 í bút á
seinna geimi: Ragnar er
í suður og tekur upp þessi
spil:
Suður
♦ D10832
▼ ÁDG98732
♦ -
♦ -
Makker Ragnars í norð-
ur er Jón Ásbjörnsson, en
í AV em Hörður Arnþórs-
son og Georg Ólafsson.
Sagnir þróast þannig:
Norður
♦ KG932
f 4
♦ 962
♦ D764
Vestur
♦ Á
f 10
♦ ÁK1084
♦ ÁKG1083
Austur
♦ 76
f K65
♦ DG753
♦ 952
Suður
♦ D10854
f ÁDG98732
♦ -
♦ -
Hörður kom út með lauf-
ás, sem Ragnar trompaði
og spilaði spaða. Hörður
reyndi næst tígulásinn, en
hann hlaut sömu örlög og
laufásinn. Ragnar fór svo
í hjartað og gerði það gott
með tveimur trompunum.
Slétt staðið og “alstuðið
fullsannað“.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Tapað/fundið
ardal. Eigandi hringi í
síma 581-2201.
Myndavél
tapaðist
MYNDAVÉL af gerðinni
Olympus tapaðist
laugardagskvöldið 28.
september, annaðhvort á
leiðinni frá ÍR-heimilinu
að bensínstöðinni við
Skógarsel, eða í leigubíl
frá bensínstöðinni upp í
Engjahverfi í Grafar-
vogi. Filman í vélinni er
eigandanum dýrmæt.
Finnandi er vinsamlega
beðinn að hringja í síma
557-6035.
Fjallahjól
fannst
NÝTT svart fjallahjól
fannst nálægt fjöl-
skyldugarðinum í Laug-
Gæludýr
Connor-
páfagaukur
Óska eftir litlum kven-
kyns connor-páfagauki.
Upplýsingar í síma
587-0565.
Lúlli er
týndur
ÞESSI ársgamli, ógelti
högni er búinn að vera
týndur í um tvær vikur.
Hann er kallaður Lúlli.
Hann á heima í Ljós-
heimum 20. Var með
hálsól en hún getur hafa
dottið af. Þeir sem gætu
hafa orðið Lúlla varir eru
beðnir að hringja í síma
553-6047.
Með morgunkaffinu
' >
Ast er...
5
að sitja öll saman
við varðeldinn.
TM Reg U.S. PW. 0*1. — al rt^its rMarvsd
(c) 1996 Lo* Angatos TimM Syndicats
Víkveiji skrifar...
NATTSPYRNUSAMBAND
íslands er í ógöngum með
Meistarakeppni KSI. Það getur
ekki gengið að Skagamenn sem
sigra þrefalt í ár séu ekki meistar-
ar meistaranna. Þessi titill féll
Eyjamönnum í skaut á laugardag-
inn, þegar þeir unnu Skagamenn
á glerhálum Laugardalsvelli. Eyja-
menn töpuðu fyrir ÍA í úrslitaleik
bikarkeppninnar eins og menn
rekur eflaust minni til og urðu í
4. sæti í íslandsmótinu. Það er í
lagi að svona leikur fari fram, en
það lið sem vinnur alla helstu titl-
ana hlýtur að fá nafnbótina meist-
ari meistaranna án þess að þurfa
að spila um hana.
Fyrir 12 árum kom upp sama
staða. Skagamenn höfðu unnið
tvöfalt haustið 1983 og spiluðu
vorið eftir við Eyjamenn, sem
höfðu tapað í úrslitaleiknum árið
áður fyrir Skagamönnum. Eyja-
menn höfðu sigur í miklum polla-
leik á Melavelli og voru meistarar
meistaranna þótt þeir hefðu fallið
í 2. deild árið áður!
Það hefur einnig verið vand-
ræðagangur með tímasetningu
þessa leiks. Venjulega hefur hann
farið fram á vorin en hefur nú
verið fluttur fram á haustið. Af
tvennu iílu virðist vorið heppilegri
tími. Allavega er of seint að leika
um miðjan október, því á þeim
tíma er allra veðra von.
xxx
MENN hafa verið að velta
fyrir sér þeim áhrifum sem
Hvalfjarðargöngin munu hafa
þegar þau eru komin í gagnið. í
blaðinu Dagskránni var á dögun-
um velt upp nýjum fleti á þessu
máli. Sunnlendingar hafa nefni-
Iega af því áhyggjur að tilkoma
ganganna hafí í för með sér aukna
samkeppni um sumarbústaðafólk
eða svokallað helgarferðafólk.
Sunnlendingar hafa fengið
stærstan bita af þessari köku en
hætt er við að Vesturland komi
sterkt inn í myndina þegar vega-
lengdir þangað frá höfuðborginni
hafa styst um 50-60 kílómetra.
Sunnlendingar vilja ekki missa
tekjur af þessu fólki og eru farn-
ir að ræða málið. Ein hugmyndin
er að kreijast þess að vegurinn
yfir Hellisheiði verði lýstur upp.
„Eg tel að ljósastaurar eigi fullan
rétt á sér á Hellisheiðinni, það er
mikið öryggismál fyrir alla sem
þekkja það að ferðast um hana á
veturna og svo myndi það auðvit-
að styrkja markaðsstöðu Suður-
lands,“ hefur blaðið eftir Þorsteini
Pálssyni, framkvæmdastjóra KÁ
á Selfossi.
xxx
RJÁR sjónvarpsstöðvar eru
með sjónvarpsmarkaði. Fólki
eru sýndar vörurnar á skjánum
og svo getur það pantað í gegnum
póstkröfu. Nú er farið að sýna
ameríska þætti sem eru svo til-
gerðarlegir og hallærislegir að
ekki er boðið upp á verra sjón-
varpsefni að mati Víkveija. Er
þetta ekki of amerískt fyrir smekk
Islendinga?
xxx
PÓLITÍSK blöð eru á fallanda
fæti. Þó er að fínna í þeirri
flóru eitt. blað sem hefur lengi
borið af öðrum og er í háum gæða-
flokki. Þetta er blaðið Vogar, sem
sjálfstæðismenn í Kópavogi hafa
gefið út um langa hríð. Þykir Vík-
veija sérstök ástæða til að hrósa
Vogamönnum fyrir gott blað og
hvetja þá til að halda áfram á
sömu braut.