Morgunblaðið - 18.10.1996, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Greiðslumark í mjólk aukið um
200.000 lítra á Eyjafjarðarsvæðinu
V erðmætaaukning
á svæðinu um 12,5
milljónir króna
Morgunblaðið/Kristján
Stórmeistarar á ferð
um landsbyggðina
GREIÐSLUMARK í mjólk jókst um
eina milljón lítra á landinu á verð-
lagsárinu sem hófst 1. september
sl. samanborið við síðasta verðlags-
ár. Á félagssvæði Mjólkursamlags
KEA nemur þessi aukning um 1%,
eða um 200 þúsundum lítrum.
Kakómjólkurdrykkur
á markað
Verðmætaaukning á Eyjafjarð-
arsvæðinu vegna aukins greiðslu-
marks er í krónum talið um 12,5
milljónir. Þetta kemur fram í Fregn-
um, fréttabréfi KEA, og þar segir
Hólmgeir Karlsson, framleiðslu-
stjóri Mjólkursamlagsins, að bænd-
ur verði ekki í vandræðum með að
auka framleiðsluna sem nemur
þessum 200 þúsund lítrum, enda
hafi margir framleitt umfram
*
Anor-
rænni slóð
TORBEN Rasmussen, forstöðumað-
ur Norræna hússins, flytur stutt
erindi við opnun sýningarinnar Á
norrænni slóð í Deiglunni laugardag-
inn 19. október kl. 16.
Á norrænni slóð fjallar um sögu
Norðurlandanna, hugmyndir um
norræna menningu og norræna vit-
und. Henni er ætlað að fá fólk til
að hugleiða það hvort Norðurlönd
séu í raun ein heild og hvort hið
norræna hafi einhverja þýðingu í
þeirra huga og þar með áhrif á hug-
myndir þess um lífið og tilveruna.
Sýningin stendur til 3. nóvember
og er opin daglega frá kl. 14 til 18.
Minjasafnið á Akureyri, Amts-
bókasafnið á Akureyri og Norræna
félagið á Akureyri standa að sýning-
unni.
NORRÆN upplýsingaskrifstofa
hefur verið opnuð á Akureyri, hún
er til húsa að Glerárgötu 26, jarð-
hæð, og veitir Valgerður Hrólfs-
dóttir skrifstofunni forstöðu. Skrif-
stofan er opin frá kl. 9-12 alla virka
daga.
Hún er rekin með styrk frá Akur-
eyrarbæ og öðrum sveitarfélögum
á Norðurlandi og fjárframlagi frá
Norrænu ráðherranefndinni og
Sambandi norrænu félaganna í
Osló.
Valgerður sagði að veittar yrðu
upplýsingar um norrænt samstarf
á skrifstofunni, en einnig væri ætl-
unin að kynna norrænt samstarf á
þjónustusvæði hennar, sem er
Norðurland, og einnig að styrkja
samstarf skóla, menningarstofnana
og félaga á Norðurlöndum jafn-
framt því að koma á nýjum tengsl-
um milli norrænna stofnana og fé-
laga. Einnig býðst einstaklingum
og fyrirtækjum aðstoð við ýmiss
konar verkefni og þjónustu er Norð-
urlöndin varðar. „Eg vona að íbúar
á Norðurlandi sem eru frá öðrum
Norðurlöndum en íslandi komi við
greiðslumark á nýliðnu verðlagsári.
Framleiðsla Mjólkursamlags
KEA það sem af er árinu er mjög
álíka og undanfarin ár. Þó hefur
framleiðsla jógúrts nú alveg lagst
af vegna samnings Mjólkursamlags
KEA og Mjólkursamsölunnar þar
að lútandi. I staðinn selur Mjólkur-
samiag KEA skyr á höfuðborgar-
svæðinu og framleiðir Kvarg til
frekari vinnslu í ijómaost og Létt
og laggott í Mjólkurbúi Flóamanna.
Nýjung á þessu ári hjá Mjólkur-
samlagi KEÁ er Kóki kaidi, kakó-
mjólkurdrykkur sem seldur hefur
verið í matvöruverslunum KEA á
undanförnum mánuðum til reynslu.
Viðbrögðin hafa verið góð og þessa
dagana er verið að markaðssetja
drykkinn í nýjum eins lítra umbúð-
SAMHERJI hf. hefur keypt 49%
hlut í útgerðarfyrirtækinu Onward
Fishing Company. Fyrirtækið er
skráð í Hull á Englandi en er rek-
ið frá Aberdeen í Skotlandi. Fyrir-
tækið á fjóra ferskfisktogara sem
hafa veiðiheimildir í Barentshafi,
við Svalbarða, í Norðursjó, við ír-
land, Færeyjar, ísland, Grænland
og Kanada.
Fyrirhugað er að í framtíðinni
reki fyrirtækið áfram ferskfisktog-
ara og einnig frystitogara þar sem
aflinn verður unninn um borð.
á skrifstofunni þegar þeir eiga leið
um,“ sagði Valgerður.
Á norrænum slóðum
Á morgun, laugardag, verður
opnuð sýningin Á norrænum slóð-
um í Deiglunni í Kaupvangsstræti.
HELGI Ólafsson, stórmeistari og
skólastjóri Skákskóla Islands, og
Hannes Hlífar Stefánsson stór-
meistari eru á ferð um landið, að
kynna skákíþróttina í framhalds-
skólum og tefla þar fjöltefli. Helgi
hefur séð um fyrirlestrana en
Hannes Hlífar hefur staðið við
taflborðin, siðast í gær í Mennta-
skólanum á Akureyri þar sem um
30 nemendur tefldu við hann.
Fjórir togarar
sem hafa veiði-
heimildir víða um
norðurhöf
Onward Fishing er rótgróið fyrir-
tæki í sjávarútvegi í Bretlandi. Það
var stofnað árið 1901 en hefur síð-
ustu ár verið í meirihlutaeign Terry
Taylor og fjölskyldu hans. Terry
Um er að ræða farandsýningu á
vegum Nordliv, síðast var hún í
Glaumbæ í Skagafirði en fer til
Húsavíkur þegar henni lýkur á
Akureyri í byrjun nóvember. Sýn-
ingin fjalla um sögu Norðurland-
anna, hugmyndir um norræna
Helgi tók við stöðu skólastjóra
Skákskólans í ágúst sl. og í sam-
tali við Morgunblaðið sagðist
hann strax hafa haft áhuga á að
rækta tengslin við landsbyggð-
ina. Hann sagðist hafa gaman af
þessu ferðalagi, sem hófst í Vest-
mannaeyjum og stendur yfir í um
hálfan mánuð. Frá Akureyri
héldu þeir félagar yfir í Þingeyj-
arsýslu.
mun starfa áfram sem fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins.
Samheiji hefur unnið að því að
efla starfsemina erlendis þar sem
fyrst og fremst hefur verið horft
til nálægra landa. Seagold Ltd.,
fyrirtækið sem Samheiji stofnaði
sl. vor í Hull, ásamt Deutsche Fisc-
fang Union í Cuxhaven, Framheija
í Færeyjum og Gústaf Baldvinssyni
framkvæmdastjóra, mun annast
sölu- og markaðsmál á ferskum
og frystum fiski frá Onward Fish-
ing.
menningu og norræna vitund. Val-
gerður sagði að sýningin ætti að
höfða tii framhaldsskólanema og
þá vænti hún þess að nemendur í
grunnskólum sem væru að læra um
Norðurlönd ættu að hafa gagn af
sýningunni.
Lestrarkeppni
Þá er Valgérður einnig að kynna
norræna lestrarkeppni sem haldin
er að frumkvæði Nordbok, en hún
er fyrir grunnskólanemendur og
keppa bekkjardeildir sem ein heild.
Keppnin stendur frá 4. til 17. nóv-
ember hæstkomandi, en markmið
hennar er að efla almennan lestr-
aráhuga nemenda á skemmtilegan
hátt, auka áhuga þeirra á lestri
bókmennta og hvetja þá til að velja
úr hinum mikla úrvali góðra Norð-
urlandabókmennta.
Nemendum bekkjanna er ætlað
að lesa eins mikið og þeir komast
yfir af norrænum bókmenntum,
vinna úr efninu og túlka það. Þá
gerir deildin sameinilega veggspjald
þar sem niðurstöðurnar eru birtar.
Skipti-
nemasam-
tök funda
AFS skiptinemasamtökin á ís-
landi efna til fundar á veitinga-
húsinu Fiðlaranum við Skipa-
götu 14 á Akureyri næstkom-
andi sunnudag kl. 15.
Tilefni fundarins er að auka
tengsl við félagsmenn úti á
landi en stjórn AFS hefur á
þessu ári unnið markvisst að
endurvakningu deilda á lands-
byggðinni.^
AFS á Islandi hefur starfað
að nemendaskiptum hér á landi
í nær flóra áratugi og er mark-
mið samtakanna að auka kynni
og skilning á milli þjóða heims.
Á fundinn mæta m.a. for-
maður AFS á íslandi, Kristinn
Guðjónsson, Hans Henttinen,
framkvæmdastjóri, og sjálf-
boðaliðar samtakanna. í boði
verða léttar veitingar og eru
allir sem áhuga hafa á starf-
semi AFS boðnir velkomnir.
Námskeið
fyrir starfs-
fólk skemmti-
staða
SÝSLUMANNSEMBÆTTIÐ á
Akureyri stendur fyrir nám-
skeiði fyrir dyraverði og annað
starfsfólk skemmtistaða, á
mánudags-, þriðjudags- og mið-
vikudagskvöld í næstu viku, á
veitingastaðnum Odd-vitanum.
Á námskeiðinu verður komið
víða við, farið yfir lög og reglu-
gerðir um veitingahús, áfengi
og skemmtistaði, réttindi og
skyldur starfsfólks, viðbrögð
við sjúkdómum, skyndihjálp,
brunavarnir, samskipti við lög-
reglu, handtökur, vímuefni,
skoðun skilríkja og margt fleira.
Þátttaka tilkynnist til Þor-
steins Péturssonar, sími
462-9600, fax 462-7135 fyrir
21. október, Námskeiðsgjaldið
er 700 krónur.
Stórdans-
leikur í
Sjallanum
HUÓMSVEITIN Brimkló með
Björgvin Halldórsson i farar-
broddi verður með stórdansleik
í Sjallanum á Akureyri í kvöld,
föstudagskvöld. Siggi Hall mun
einnig mæta á staðinn og töfra
fram sælkerarétti ásamt mat-
reiðslumönnum hússins. Gunn-
laugur Helgason verður í diskó-
búrinu, dagskrárgerðarfólk
Bylgjunnar verður á Akureyri
á föstudag og laugardag með
beinar útsendingar frá höfuð-
stað Norðurlands.
Aftur „Neð-
anjarðar“
VEGNA mikillar aðsóknar mun
Kvikmyndaklúbbur Akureyrar
(KVAK) sýna myndina „Neðan-
jarðar“ (Underground) aftur í
nk. sunnudag kl. 17.00 í Borg-
arbíói.
Myndin er eftir Emir
Kusturica (Arizona Dream) og
fjallar um síðustu 50 árin í sögu
heimalands hans, Júgóslavíu.
Allir eru velkomnir.
Messa
LAUFÁSPRESTAKALL:
Guðsþjónusta í Grenivíkur-
kirkju næstkomandi sunnudag
20. október kl. 14. Fermingar-
börn mæti í kirkjuna kl. 13.
Kyrrðar- og fyrirbænastund í
Svalbarðskirkju sunnudags-
kvöld, 20. október kl. 21.
um.
Samherji hf. enn í landvimiingum erlendis
Kaupir hlut í bresku
sjávarútvegsfyrirtæki
Norræn upplýsingaskrifstofa opnuð á Akureyri með styrk frá Norrænu ráðherranefndinni
Sýning í Deiglunni og lestrar-
keppni grunnskóla á döfinni
Morgunblaðið/Kristján
VALGERÐUR Hrólfsdóttir, forstöðuðmaður Norrænu upplýs-
ingaskrifstofunnar á Akureyri.