Morgunblaðið - 18.10.1996, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 18.10.1996, Qupperneq 36
36 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Pl'CflS & SCHMITT Hensel & Mortensen ’^ímincUa ast þannig hjá áhættu á ákæru? d) Er það siðferðilega rétt að lýsa einn á sig fullri ábyrgð á rekstri og stjórn almenningshlutafélags? Hvað með tillit til fjölskyldu og vandamanna? e) Er það siðferðilega rétt mat og eðlilegt í þjóðfélaginu, að einn maður eigi að missa allt sitt, er hlutafélag fjölda aðila verður gjald- þrota; félagsform, sem samkvæmt lögum takmarkar ábyrgð sína við framlagt hlutafé? Hveiju máli skipt- ir eignaraðild hans að fyrirtækinu? f) Var það siðferðilega rangt af mér að fá fjölskyldu mína til þess að samþykkja að hlutafélag hennar VJGB tæki á sig stórar skuldbind- ingar vegna ófara þeirra fyrirtækja, sem ég hafði verið í forsvari fyrir um árabil? Hvers áttu þau að gjalda? Hafa stórfyrirtæki hér á landi al- mennt tekið á sig skuldir systur-, móður-eða dótturfyrirtækja þegar þau hafa orðið gjaldþrota? g) Er það siðferðilega rétt og sæmandi af blöðum og blaða- og fréttamönnum að birta staðlausa stafi, falsanir og söguburð án þess að kanna staðreyndir mála áður? h) Er það siðferðilega rétt í svo- kallaðri gúrkutíð fjölmiðla hreinlega að búa til sögur og gera þær að fréttum og leita síðan leiða til þess að gera þær að raunveruleika, eins og m.a. virðist vera tilfellið hjá -S.dór á DV ? Ég gæti varpað fram enn frekari spurningum um þessi málefni, en læt hér staðar numið. Að mínu mati er hætt við að nánari skoðun leiði til þess að ýmsu gijóti, mér ætlað, hafí verið kastað úr gler- húsi. Það hryggir mig óneitanlega að hafa þurft að búa við slíkan ómældan óhróður og ósannindi, sem hér hefur verið lýst, ekki síst vegna ættingja og vina og ennfremur þeirra ótöldu, sem ekkert til mál- anna þekkja. Það er ennfremur eink- ar dapurlegt til þess að hugsa, að fyrir þessum ósköpum hefur öll málefnaleg umræða vikið. Andstæð- ingar mínir, hvar í flokki sem er, hafa eytt öllum sínum kröftum í að reyna að koma sem þyngstum högg- um á mig og gleymt málefnunum í atganginum. Er hin augljósa stað- reynd, að núverandi meirihluta í Hafnarfirði hefur, þrátt fyrir gjörn- ingaveður í báðum flokkum, tekist að ná tökum á stjórnun bæjarins og er sífellt að miða málum áleiðis, ef til vill þyrnir í augum einhverra, sem töldu hlutina henta sér betur eins og áður var? Ég hef setið lengi undir ómálefna- legi'i umræðu, upplognum sökum og fáránlegum tilgátum um allskon- ar siðspillingu. Þegar fólk utan Ilafnarfjarðar, sem lítið þekkir til, hefur ítrekað haft samband við mig og ekki getað orða bundist, fannst mér, að ég yrði að gera nokkra brag- arbót og láta frá mér heyra og Ieggja jafnframt þeim íjölmiðli, sem vildi birta fyrir mig skrifin, til við- eigandi staðfestingar á því, sem ég hef fram fært. Það hefi ég gert, þannig að eftirmál þessarar greinar, ef einhver verða, eru eingöngu við mig. Með kveðju, Höfundur er verkfræðingur, fyrrverandi forsljóri og núverandi bæjarfulltrúi. Ærumeiðingum og ósannindum svarað Pólitík og siðferði Siðferðisspurningar Itrekað hefur verið íjallað um sið- ferði, pólitískt siðferði, siðferðis- kennd og siðferðilega ábyrgð í tengslum við umijöllun um málefni mín. Sjálfsagt sýnist mönnum sitt- hvað um það og enginn er dómari í eigin sök. Því er þó ekki að leyna, að umtalið og umfjöllunin að undan- förnu hefur vakið upp margar spurningar í mínum huga. Þykir mér við hæfi, að ég hugsi nokkuð upphátt um þessi mál. a) Er siðferðilega rétt að reyna til þrautar að halda fyrirtæki lif- andi, þegar um er að tefla vinnu og lífsviðurværi hundruða manna og lífslíkur fyrirtækisins verulegar, ef verkefni á næsta leiti gengur upp, eða ber að gefast strax upp, þegar erfiðleikarnir beija uppá? Skiptir einhveiju máli að opinberir aðilar, svo sem sýslumaður og fleiri, virðast hafa sömu trú þar til nokkr- um dögum fyrir innsiglun? (Ella hefðu þeir tæpast veitt umbeðna fresti.) b) Er það siðferðilega rétt í fjár- hagserfiðleikum fyrirtækis að virða jafnræðisregluna og mismuna ekki lánardrottnum.? c) Er það siðferðilega rétt að greiða helst hinu opinbera og lífeyr- issjóðum og stéttarfélögum og kom- Kápur, ullarjakkar og úlpur I glæsilegu úrvali í ÞESSARI þriðju og síðustu grein minni með ofangreindum titli held ég áfram með leiðréttingar á rangfærslum. Umfangsmikið fyrirtæki á nýkeyptri hæð Ritað hefur verið í blöð, að ég reki umfangsmikið fyrirtæki í ný- keyptri heilli hæð í Kaupfélagshús- inu við Strandgötu. Hið rétta er, að Verkfræðiþjónusta JGB, sem tel- ur sem starfsmenn aðeins undirrit- aðan og 2 barna hans að hluta, leig- ir hluta 3ju hæðar hússins við Strandgötu 28 af lífeyrissjóðnum Framsýn og hefur nýverið framlengt leigusamning. Ritað hefur verið um ótalda reikninga VJGB á Hafnar- ijarðarbæ vegna framkvæmda í Miðbæ. Hið rétta er, að samkvæmt tillögu Björns Amasonar fyrrver- andi bæjarverkfræðings, sem séð hefur um eftirlit með þætti bæjarins í framkvæmdum við húsið, var sam- ið við VJGB vegna þekkingar minnar á verkefninu, sem fyrrver- andi formanns miðbæjamefndar, um að leysa hann af um nokkurt skeið vegna dvalar hans erlendis. Fyrir þessi störf var gerður einn reikningur á sömu forsendum og reikningar frá verkfræðistofu Björns. Það er eini reikningurinn, sem gerður hefur verið bæjarsjóði fyrir verkfræðistörf undirritaðs frá því unnið var að heildarhönnun gatna bæjarins fyrir tæpum tveimur áratugum. Biti af kökunni Fullyrt er „að það þyki ekki síður undar- legt að verktakafyrir- tæki í Hafnarfirði fái varla nokkurt verkefni á vegum bæjarins nema „Verkfræðiskrif- stofa Jóhanns G. Berg- þórssonar“ fái bita af kökunni." VJGB hefur ekki komið nálægt að- stoð eða tilboðsgerð við eitt einasta verktaka- fyrirtæki í Hafnarfirði vegna framkvæmda fyrir Hafnarljarðarbæ. Þá hefur verið full sam- staða í bæjarráði við ákvörðun um verktaka í verkútboðum utan einu sinni, en þá var fulltrúi Alþýðu- bandalagsins á móti en allir fuiltrú- ar Sjálfstæðisflokks og Alþýðu- flokks með. Beggja megin borðs Ég hef verið ásakaður um að sitja beggja megin borðs t.d. hvað varðar verkútboð bæjarins og þá vísað til þátttöku Hagtaks hf. í Straumsvík- urframkvæmdum. Hér er enn farið með rangt mál. Fyrst skal þess get- ið, að forval á verktökum í Straums- víkurhöfn var unnið undir stjóm hafnarstjómar af verkfræðiráðgjöf- um úr Reykjavík, með samþykki Isal. Rétt er að geta þess, að núver- andi meirihluti bæjarstjórnar hefur ekki meirihluta í hafnarstjórn. Lægstbjóðandi í fram- kvæmdirnar, JVJ hf., valdi sér síðan Hagtak hf. sem undirverktaka í sérhæfð verkefni við verkið. Sú tilhögun var samþykkt í hafnar- stjórn, sem verður að samþykkja alla und- irverktaka og kom ekki til umljöllunar í bæjar- stjórn. Fjölskylda mín á eins og áður segir óbeint 25% aðild að Hagtaki hf., en á ekki fulltrúa í stjórn þess. Jóhann G. Tap Hafnar- Bergþórsson fjarðarbæjar Eitt af því sem ítrekað hefur ver- ið tíundað í útvarpi og blöðum er að hvert mannsbarn í Hafnarfirði muni þurfa að greiða verulega íjár- muni vegna gjaldþrots HK og meintra Ijárglæfra undirritaðs. Nefndar hafa verið frá 3.000 kr. pr. íbúa uppí 6.000 kr. pr. íbúa. Miðað við 17.800 íbúa er hér um að ræða 53,4 -106,8 milljónir króna. Þessar fullyrðingar eru gjörsamlega útí hött. Ég fuilyrði að Bæjarsjóður Hafnarfjarðar hafi ekki tapað neinu á viðskiptum við HK eða við önnur fyrirtæki sem ég hef stýrt. Hvað HK varðar þá vom ekki gerð loka- uppgjör vegna verka, sem unnin voru fyrir Hafnarfjarðarbæ síðustu mánuðina. Þá komst héraðsdómur Reykjaness að þeirri niðurstöðu, að bæjarsjóður hafi vanefnt samninga Ég fullyrði að Bæjar- sjóður Hafnarfjarðar hafí ekki tapað neinu á viðskiptum við HK eða við önnur fyrirtæki sem ég hef stýrt, seg-ir Jóhann G. Bergþórs- son, í síðustu grein sinni af þremur. við fyrirtækið og beri því að greiða þriðja aðila bætur vegna þess. Ég tel að hefðu öll viðskipti aðilanna verið gerð eðlilega upp hefði fyrir- tækið átt inni hjá bænum en ekki öfugt. Magnúsarnir hafa báðir lýst því yfir opinberlega, að þeir hafi hafnað öllum viðræðum um upp- gjör, ég vek athygli á öllum viðræð- um um uppgjör, en ekki kröfunum sjálfum. Auk þess hafa verið lögð fram í bæjarráði, og ekki mótmælt, gögn sem sýna að fyrirtækin Hag- virki og HK unnu verk fyrir bæjar- sjóð á um 170 milljóna króna lægra verði en næstu tilboð námu eða um 10.000 kr. pr. íbúa í bænum, svo notuð sé sama viðmiðun og sumir hafa kosið að nota. Þá hafa fyrir- tækin veitt hundruðum Hafnfirð- inga vinnu um allt land í yfir 15 ár og skapað ómældar tekjur í bæj- arsjóð. Nettódagar í Sl $ fullum gangi Mikill af sláttur af undirfatnaði og náttfötum Si NSfTB Laugavegi 30 • S. 563 4335
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.