Morgunblaðið - 18.10.1996, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ
I DAG
FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996 55
Árnað heilla
Q AÁRA afmæli. í dag,
OV/föstudaginn 18.
október, er áttræður Garð-
ar Sigjónsson, skipstjóri,
Hraunbæ 114, Reykjavík.
Eiginkona hans er Guð-
finna Bjarnadóttir.
Ljósmyndastofan Svipmyndir
brúðkaup. Gefin voru
saman 10. ágúst í Veginum
af Hafliða Kristinssyni
Marí Linda Jóhannsdóttir
og Reynir Friðriksson.
Heimili þeirra er í Þjótt-
useli 6, Reykjavík.
Ljósmyndastofa Sigriðar Bachmann
BRÚÐKAUP. Gefín voru
saman 24. ágúst í Grafar-
vogskirkju af sr. Sigurði
Árnasyni Hafdís Guðveigs-
dóttir og Magnús H.
Guðnason. Heimili þeirra
er í Gullengi 29, Reykjavík.
Ljósmyndastofan Svipmyndir
BRÚÐKAUP. Gefín voru
saman 10. ágúst í Laugar-
neskirkju af sr. Árna Bergi
Sigurbjörnssyni Gróa Frið-
jónsdóttir og Sigurður
Sveinsson. Heimili þeirra
er í Safamýri 56, Reykjavík.
Ljósmyndastofan Svipmyndir
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 11. ágúst í Dóm-
kirkjunni af sr. Braga Frið-
rikssyni Harpa Pálmadótt-
ir og Sigurður Örn Gunn-
arsson. Heimili þeirra er á
Freyjugötu 25, Reykjavík.
Ljósmyndastofa Sigriðar Bachmann
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 10. ágúst í Grafar-
vogskirkju _ af sr. Sigurði
Árnasyni Ása Hrönn Ás-
björnsdóttir og Þorsteinn
R. Guðjónsson. Heimili
þeirra er í Vallarhúsum 37,
Ljósmyndastofan Svipmyndir
BRÚÐKAUP. Gefín voru
saman 4. ágúst í Bakka-
gerðiskirkju, Borgarfirði
eystri af sr. Áma Bergi
Sigurbjörnssyni Guðbjörg
Oddsdóttir og Sigurður
Arnar Jónsson. Heimili
þeirra er í Sigtúni 45.
Farsi
o'- ÁB L"
I
1
tr-cS~|
UAIÍbLASS/cöOi
b^Univofsal^PreœS^ndiMte^
E-fb'r cí> hafa- kennt /. bejck ebiisfn&L
í ZS’ár tekur Macfnus prófiessor sér firc
um s tundarscdcJr.
Ljósmyndastúdió Halla Einarsd.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 10. ágúst í í Landa-
kirkju, Vestmannaeyjum,
af sr. Karli Sigurbjömssyni
Kolbrún Guðnadóttir og
Guðmundur Valgeirsson.
Heimili þeirra er á Nýja-
bæjarbraut 86, Vest-
mannaeyjum.
HÖGNIHREKKVÍSI
STJÖRNUSPÁ
cftir franccs Drakc
VOG
Afmælisbam dagsins: Þú
færð snemma áhuga á
mannúðarmálum og nýtur
mikilla vinsælda.
Hrútur
(21.mars- 19.apríl)
Auðvelt er fyrir þig að ná
hagstæðum samningum í dag
og einhugur ríkir hjá ástvin-
um. I kvöld væri við hæfi að
heimsækja gamla vini.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þér tekst að fá fjárhagsstuðn-
ing till að Ijúka verkefni, sem
þú hefur mikinn áhuga á.
Með einbeitingu og dugnaði
nærð þú árar.gri.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þótt það sé ekki þér að skapi
þarftu í dag að standa við
gamalt loforð. Svo ættir þú
að íhuga að skreppa í helgar-
ferð með ástvini.
Krabbi
(21. júní — 22. júlQ Hlfé
Láttu ekki góðar fréttir af
fjármálunum leiða till óþarfa
eyðslu í dag. Þér gengur vel
í vinnunni og í kvöld bíður þín
vinafundur.
Ljón
(23. júlí — 22. ágúst)
Taktu enga skyndiákvörðun
um fjármálin i dag. Hlustaðu
á góð ráð vinar. Fjölskyldan
er í fyrirrúmi heima þegar
kvöldar.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þú átt góðan fund með ráða-
mönnum í vinnunni og ert að
íhuga að skreppa í ferðalag.
Ástvinir hafa skyldum að
gegna heima í kvöld.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú þarft að einbeita þér að
því að ljúka skyldustörfunum
snemma í dag svo þú getir
slakað á í vinahópi f kvöld
eins og ráðgert var.
Sporödreki
(23. okt. - 21. nóvember) 9K0
Þú lýkur því sem gera þarf í
vinnunni snemma og ferð að
skipuleggja komandi helgi.
Gamall vinur hefur góðar
fréttir að færa.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember) áto
Það er betra að ganga hægt
um gleðinnar dyr í vinafagn-
aði kvöldsins og hugsa um
heilsuna. Þú hefur verk að
vinna á morgun.
Steingeit
(22. des. - 19.janúar)
Verkefni, sem setið hefur á
hakanum þarfnast afgreiðslu
í dag. Með einbeitingu tekst
þér að leysa það og hlýtur
umbun fyrir.
Vatnsberi
(20. janúar — 18. febrúar) dk
Varastu tiíhneigingu til að slá
slöku við í vinnunni í dag, þvt
þú sérð eftir því síðar. 1 kvöld
ættir þú að hvila þig heima.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þér berst spennandi boð í
samkvæmi í dag, sem þú
ættir að þiggja. Þú kemur vel
fyrir þig orði og nýtur mikilla
vinsælda.
Stjömuspána á ad lesa sem dœgra-
dvöl. Spár af þessu tagi byggjast
ekki á traustum grunni visindalegra
stadreynda.
Morgunblaðið/Stefán
FRÁ Opna Hornafjarðarmótinu sem haldið var á dögunum.
BRIPS
Umsjón Arnór G.
RaJJnnrsson
Opna Hornafjarðarmótið
í tvímenningi
FYRIR nokkru fór fram á Hótel
Höfn sjötta Opna Hornafjarðarmót-
ið í tvímenningi. Til leiks mættu
alls 36 pör, 20 pör að sunnan, 7
að austan og 9 pör úr Homafirði.
Að sögn Sveins Rúnars Eiríks-
sonar, sem verið hefur keppnisstjóri
á öllum mótunum sex, var þetta
þokkalega sterkt mót. Keppendur
voru almennt mjög ánægðir með
framkvæmd mótsins og sögðu að
það batnaði ár frá ári. Þeir sem
komið hafa einu sinni virðast gjarn-
an sækjast eftir því að koma aftur.
Jón Hjaltason er einn þeirra spilara
sem greinilega er sáttur við móts-
staðinn því hann var að spila hér í
fimmta sinn. Sagði hann að hér
væri indælt að hvíla sig, gaman að
spila og ekki spillti náttúrufegurðin.
í sama streng tók Guðlaugur R.
Jóhannsson sem er að spila hér í
annað sinn.
Verðlaunin á þessu móti þykja
góð, 150 þúsund fyrir 1. sætið, 100
þúsund fyrir 2. sætið og 50 þúsund
fyrir 3. sætið. Þegar upp var staðið
var röð þriggja efstu para þessi: í
fyrsta sæti voru þeir Gylfí Baldurs-
son og Jón Hjaltason, í öðru sæti
voru Hermann Lárusson og Erlend-
ur Jónsson og þeir Guðjón Bragason
og Vignir Hauksson í þriðja sæti.
Með lækkandi sól skríða brisspil-
arar í hús og draga fram sagna-
bakkana.
Vetrarstaf Bridsfélags Homa-
fjarðar hófst með þessu móti en nú
stendur yfir þriggja kvölda hrað-
sveitakeppni. Framundan er svo
þátttaka í tvímenningi austur á
landi.
Bridsfélag Selfoss
og nágrennis
Þriggja kvölda Suðurgarðs-baró-
meter lauk fimmtudaginn 10. októ-
ber sl. með sigri Auðuns og Guð-
mundar. Tólf pör spiluðu í mótinu
og röð efstu para varð þessi:
Auðunn Hermannss. - Guðm. Theodórss. 40
Kristján M. Gunnarss. - Helgi G. Helgas. 37
Guðjón Einarss. - Bjöm Snorras. 31
Næsta mót félagsins er hrað-
sveitakeppni, sem verður nú spiluð
með nýju formi. Pömm verður rað-
að í sveitir skv. styrkleikaröð, þ.a.
sterkari pör lendi með veikari í
sveit. Er þetta gert til að auka
spennuna í mótinu. Gamlir meðlim-
ir félagsins em hvattir til að taka
Amerískar fléttimottur.
OViRKA
m Mörkinni 3. s. 5687477.
fram spilin að nýju og mæta. Allir
velkomnir.
Minningarmótið um Einar Þor-
finnsson verður spilað laugardaginn
19. október nk. og spilað verður í
sal Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Alls taka 38 pör þátt í mótinu.
Spilarar era beðnir um að mæta
tímanlega en spilamennska hefst
kl. 9.30 stundvíslega.
Bridsfélag Sauðárkróks
Mánudaginn 14. október var spil-
að síðara kvöldið í keppninni „van-
ir-óvanir“. Röð efstu para var eftir-
farandi:
Júlíus Skúlas. - Stefán Skarphéðinss. 203
SkúliJónsson-EyjólfurSigurðsson 185
Elín Sæmundsdóttir - Jón Om Berndsen 175
Samanlögð niðurstaða beggja
kvöldanna var:
Júlíus Skúlas. - Stefán Sk./Bjarki Tr. 352
Halldór Sigfúss. - Bjami R. Brynjólfss. 316
Ingvar Jóns. - Ásbjöm Bjömss./Benedikt 307
Næsta mánudagskvöld verður
spilaður eins kvölds tvímenningur.
Föstudagsbrids BSÍ
Það er ljóst að föstudagskvöldin -*•
eru að verða með vinsælli spila-
kvöldum hér á höfuðborgarsvæð-
inu, ef marka má þátttökuna und-
anfarið. Fólk kann greinilega vel
að meta þá nýjung, að efna til svei-
takeppni að lokinni tvímennings-
spilamennsku. Líklega er þetta
form komið til að vera, því and-
rúmsloftið er sérlega létt og
skemmtilegt í Þönglabakkanum á
föstudagskvöldum. 11. október var
spilaður eins kvölds tölvureiknaður
Mitchell-tvímenningur með for-
gefnum spilum. 28 pör spiluðu 9
umferðir með spilum á milli para.
Meðalskor var 216 og efstu pör
urðu:
NS: *
Hrafnh. Skúladóttir - Jörandur Þórðarson 274
HlynurGarðarsson-BemharðBogason 270
EggertBergsson-AndrésÞórarinsson 256
AV:
Halldór Þorvaldss. — Baldur Bjartmarsson 248
ÞorsteinnKristmundss.-GuðniIngvarsson 245
ValdimarElíasson—SigurðurKarlsson 237
Að tvímenningnum loknum var
að venju spiluð sveitakeppni með
útsláttarformþ 6 spila leikir. 8 sveit-
ir spiluðu. Urslitaleikinn spiluðu
sveitir Kristins Karlssonar (Krist-
inn, Friðrik Jónsson, Ómar Óskars-
son og Rúnar Hauksson) og Sér-
sveitin (María Ásmundsdóttir,
Steindór Ingimundarson, Baldur
Bjartmarsson og Halldór Þorvalds-
son). Leiknum lauk með sigri Sér- "
sveitarinnar, 14-2. Kunnuglegar
lokatölur, eða hvað?