Morgunblaðið - 29.10.1996, Síða 1
92 SÍÐUR B/C
247. TBL. 84. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Bandarísk lög gegn
Kúbu-viðskiptum
ESB snýst
til vamar
Brussel. Reuter.
SAMKOMULAG tókst í gær á fundi
utanríkisráðherra Evrópusam-
bandsins (ESB) um að grípa til
gagnaðgerða vegna svonefndra
Helms-Burton laga sem Bandaríkin
hafa sett til að refsa fyrirtækjum
er eiga viðskipti við Kúbu. Banda-
ríkjastjórn andmælti strax í gær
aðgerðunum, sagði að Evrópumenn
ættu að reyna að stuðla að mann-
réttindum á Kúbu.
Danska stjórnin hafði hótað að
beita neitunarvaldi til að hindra
mótleik ESB 'og bar því við að ver-
ið væri að samþykkja aðgerðir sem
merktu of mikið valdaafsal til sam-
bandsins í utanríkismálum. Tókst
loks að finna málamiðlun um orða-
lag sem hún gat sætt sig við.
Samþykkt var að banna evrópsk-
um fyrirtækjum og einstaklingum
að hlíta bandarísku lögunum, enn-
fremur að leyfa þeim að svara
málshöfðunum á grundvelli Helms-
Burton laganna með gagnsókn.
Heimildarmenn segja að verið sé
að kanna hvort hægt verði að úti-
loka Bandaríkjamenn er reyna að
nýta sér lögin umdeildu frá öllum
viðskiptum í ríkjum ESB. Samband-
ið hefur einnig kært lögin hjá
Heimsviðskiptastofnuninni (WTO).
Samning-afundum
um Hebron slitið
Jerúsalem. Reuter.
ÞRIGGJA vikna tilraunir Banda-
ríkjamanna til að knýja fram sam-
komulag um brottflutning ísra-
elskra hermanna frá borginni Hebr-
on á Vesturbakkanum fóru út um
þúfur í gær og ísraelar og Palest-
ínumenn kenndu hvorir öðrum um.
Dennis Ross, sendimaður Banda-
ríkjastjórnar í Miðausturlöndum,
kvaðst ætla að halda aftur til Wash-
ington eftir árangurslausan nætur-
fund samningamanna. „Við höfum
náð verulegum árangri á síðustu
þremur vikum,“ sagði í yfirlýsingu
frá Ross, sem bætti hins vegar við
að ekki hefði enn tekist að jafna
ágreininginn.
Yasser Arafat, leiðtogi sjálf-
stjórnarsvæða Palestínumanna,
hélt í gær í þriggja daga ferð til
Evrópu. Hann hitti Thorbjorn Jag-
land, forsætisráðherra Noregs, í
Ósló í gær og sagði að.ekkert væri
hæft í ásökunum ísraela um að
Palestínumenn vildu draga viðræð-
urnar um Hebron á langinn.
Palestínumenn saka stjórn Net-
anyahus um að setja of ströng
skilyrði fyrir brottflutningi herliðs-
ins. Þeir segja að deilan snúist fyrst
og fremst um þá kröfu ísraela að
THORBJ0RN Jagland og Yasser Arafat í Ósló i gær
Reuter
Nýtt lands-
lag kannað
NOKKRIR vísindamenn og
fréttamenn lentu í þyrlu á
ísbrúninni við gíg eldstöðv-
anna á Vatnajökli í gær, þyrl-
an og leiðangursmenn eru
neðst til vinstri á myndinni.
Flugmaðurinn, Jón K.
Björnsson, flaug niður að
rótum nýja fjallsins en ákvað
að lenda ekki í sandfjörunni,
sem sést efst til hægri, vegna
erfiðra aðstæðna. Hann taldi
óvíst að fullhlaðin þyrlan
hefði afl til að komast aftur
upp.
■ Gígurinn er/29
þeir geti handtekið meinta hryðju-
verkamenn í þeim borgarhlutum,
sem yrðu undir stjórn Palestínu-
manna.
Talsmenn Netanyahus saka hins
vegar Arafat um að reyna að draga
viðræðurnar á langinn í von um að
samningsstaða Palestínumanna
batni eftir forsetakosningarnar í
Bandaríkjunum 5. nóvember. Bill
Clinton forseti gæti þá lagt fastar
að ísraelum að leiða deiluna til lykta
án þess að hætta á að missa at-
kvæði bandarískra gyðinga.
■ Vill auka áhrif/19
Fundum Jeltsíns aflýst
Moskvu. Reuter.
LÆKNAR Borís Jeltsíns Rúss-
landsforseta hafa aflýst öllum fund-
um forsetans í næstu viku til að
hafa tíma til rannsókna vegna fyrir-
hugaðrar hjartaaðgerðar, að sögn
talsmanns forsetans í gær.
Jeltsín hefur öðru hveiju átt
stutta fundi með helstu ráðherrum
og nánustu ráðgjöfum sínum und-
anfarnar vikur en hann dvelst nú á
heilsuhæli í Barvíkha, skammt frá
Moskvu. Forsetinn hefur falið Víkt-
or Tsjernomýrdín forsætisráðherra
sum af skyldustörfum embættisins.
Ivan Rybkín, sem tók við yfir-
stjórn öryggismála og stjórn friðar-
viðræðna í Tsjetsjníju af Alexander
Lebed, sagði í gær að Tsjernomýrd-
ín myndi að líkindum heimsækja
Tsjetsjníju á næstunni.
■ Korzhakov rekinn/17