Morgunblaðið - 29.10.1996, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Kaup Vátryggingafélagsins á fyrirtækjum Skandia á íslandi
Fyrstir á spam-
aðarmarkaðinn
Morgunblaðið/Golli
HILMAR Pálsson sljórnarformaður í ræðustóli og Axel Gíslason,
forstjóri VÍS, kynna kaupin á Skandia á blaðamannafundi í gær.
Forstjóri VÍS telur að
þeir möguleikar sem fé-
lagið fær til sóknar inn
á fjármálamarkaðinn
með kaupum á fyrir-
tækjum Skandia séu allt
eins mikilvægir og hag-
ræðing í kjölfar samein-
ingar trygginganna.
MEÐ kaupum á Ej árfestingarfélag-
inu Skandia hf. og fyrirhuguðu sam-
starfi við Skandia í Svíþjóð um sölu
og markaðssetningu á nýjum sparn-
aðarformum er Vátryggingafélag
íslands hf. að færa sig lengra inn á
fjármálamarkaðinn, inn á nýtt svið
sem hingað til hefur verið nær inn-
lánsþjónustu banka og sparisjóða en
tryggingastarfsemi. Forstjóri VÍS
telur þennan þátt samningsins við
Skandia ekki síður mikilvægan en
kaupin á tryggingastarfsemi sænska
félagsins hér á landi.
Fyrst rætt fyrir ári
Á þriðja tímanum í fyrrinótt und-
irrituðu fulltrúar Vátryggingafélags
íslands hf. (VÍS) og Líftryggingafé-
lags íslands hf. (LÍFÍS) samkomulag
við Försákringsaktiebolaget Skandia
í Svíþjóð um kaup á öllu hlutafé í
þremur fyrirtækjum sænska trygg-
ingafélagsins hér á landi, það er í
Vátryggingafélaginu Skandia hf.,
Líftryggingafélaginu Skandia hf. og
Fjárfestingarfélaginu Skandia hf.
VÍS kynnti kaupin á blaðamanna-
fundi í gær.
Axel Gíslason, forstjóri VÍS, segir
að fyrstu viðræður um þessa hug-
mynd hafí farið fram fyrir liðlega
einu ári, þá að frumkvæði VIS.
Hann segir að, samningar hafi staðið
yfir frá því í lok síðasta árs að ákveð-
ið var að skoða málið af alvöru. Á
samningstímanum hefur ýmislegt
gengið á samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins, eins og gjarnan vill
verða í slíkum samningum, og flest
stærri tryggingafélögin og fjármála-
fyrirtæki hafa sýnt áhuga á að
kaupa allar eða hluta af þessum
eignum, ekki síst Fjárfestingarfélag-
ið. Það félag hefur verið rekið með
hagnaði á meðan tryggingaþáttur-
inn hefur lengst af verið rekinn með
tapi, eins og áður hefur komið fram,
enda félagið verið í verulegri sókn
á markaðnum og sænska félagið
þurft að leggja fram verulega íjár-
muni til að tryggja stöðu íslenska
félagsins. Sænska félagið vildi hins
vegar ekki selja hluta starfseminnar
hér á landi, viðhorf þess var sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
að vera annaðhvort af fullum krafti
inni á markaðnum eða hætta alveg
afskiptum af honum. Hið síðar-
nefnda varð niðurstaðan að loknum
samningum við VÍS. „Okkur stóð
ekki til boða að kaupa og ég held
að aðrir aðilar hafí frekar verið
nefndir þar til sögunnar," segir Ólaf-
ur B. Thors forstjóri Sjóvár-
Almennra trygginga hf.
Kaupverð ekki gefið upp
Samningalotan sem leiddi til und-
irritunar samkomulagsins í fyrrinótt
hófst á fímmtudagsmorgun eftir
komu fulltrúa Skandia til landsins.
Af hálfu VÍS og LÍFÍS leiddu Axel
Gíslason forstjóri og Hilmar Pálsson
stjórnarformaður viðræðurnar en
Per Bjorgás og Helena Nilson voru
fulltrúar sænska tryggingafélagsins.
Samkomulag var gert um það
milli aðila að gefa kaupverð ekki
upp. Hilmar Pálsson segir að ekki
sé einfalt mál að segja frá kaupverð-
inu á þessu stigi málsins, að baki
þess liggi flóknir útreikningar meðal
annars um stöðu sjóða og yfirtöku
skulda og ábyrgða. Samningarnir
voru gerðir með fyrirvara um sam-
þykki stjórna félaganna. Stjórn VÍS
samþykkti fyrir sitt leyti í gær og
Svíarnir fóru út til að afla samþykk-
is af hálfu síns félags. Mun það
hafa tekist í gærkvöldi og von er á
tilkynningu frá Skandia um staðfest-
ingu þess í dag. Samkomulagið var
kynnt starfsfólki VÍS og íslensku
Skandia-félaganna síðdegis í gær.
43-45% markaðshlutdeild
Gert er ráð fyrir því að VÍS yfír-
taki rekstur félaganna um mánaða-
mót. VÍS ætlar að reka Fjárfesting-
arfélagið Skandia hf. í óbreyttu
formi og I sjálfstæðu félagi enda
segir Axel Gíslason að það félag
standi vel og sé rekið með hagnaði.
Hins vegar verður rekstur Vátrygg-
ingafélagsins Skandia sameinaður
VIS og rekstur Líftryggingafélags-
ins Skandia verður með sama hætti
sameinaður Líftryggingafélagi ís-
lands. Hilmar segir að gert sé ráð
fyrir að sameining tryggingastofna
félaganna fari fram um áramót, að
loknum nauðsynlegum undirbúningi.
Hilmar segir að VÍS muni auka
starfsemi sína og fá dreifðari áhættu
með kaupunum á tryggingafélögum
Skandia hér á landi. Með því muni
rekstur félagsins verða hagkvæmari.
VÍS hefur verið með 37-38% hlut-
deild á tryggingamarkaðnum, að
sögn Arnar Gústafssonar, fram-
kvæmdastjóra hjá VlS, og Skandia
6-7%. Saman verða þessi félög því
með 43-45% markaðshlutdeild, ef
VÍS beldur öllum viðskiptavinum
Skandia. Örn bendir þó jafnframt á
að þessar tölur geti breyst, meðal
annars vegna nýrrar samkeppni í
bílatryggingum.
Þeir sem eru með gildar trygging-
ar hjá Skandia munu halda öllum
sínum réttindum þar til trygginga-
stofnamir verða sameinaðir og fá
þá tryggingu hjá VÍS, kjósi þeir
ekki að leita annað. Skandia hefur
í sumum tilvikum boðið lægri iðgjöld
en hin tryggingafélögin en jafnframt
átt erfitt með að láta iðgjöld standa
undir öllum kostnaði og tilleggi I
bótasjóði. Hilmar Pálsson segist
engu geta svarað um það hvort eða
hvemig iðgjöld þessa fólks muni
breytast. VIS muni þurfa að endur-
meta áhættuna og ákvarða iðgjöld
út frá því.
Skandia hefur haft um 40 starfs-
menn og segir Hilmar ljóst að við
sameiningu félaganna verði röskun
hjá því fólki sem vinnur við trygging-
arnar en stefnt sé að endurráðningu
einhverra úr þeim hópi.
Ólafur B. Thors, forstjóri Sjóvár-
Almennra trygginga, segir að sala
Skandia á íslenska rekstrinum sýni
að hann hafí ekki gengið hjá Svíun-
um. Þeir hafí boðið verulega lægri
iðgjöld en hér voru á markaðnum
og nú væri komið í ljós að ekki gengi
að borga með rekstrinum til lengd-
ar. Segir Ólafur að þessi niðurstaða
gæti verið lærdómsrík fyrir aðra
erlenda aðila sem vildu fara inn á
markaðinn með því að bjóða óraun-
hæf iðgjöld og játaði því að með
þessum orðum væri hann að vísa til
FÍB-tryggingar.
Nýtt sparnaðarform
Á blaðamannafundi VÍS í gær
vöktu forystumenn félagsins athygli
á því að á undanfömum árum hefði
orðið mikil þróun í Evrópu á sviði
vátrygginga og fjármálaþjónustu og
hefðu fyrirtæki verið að hasla sér
völl á nýjum vettvangi og aðlaga
stajfsemi sína breyttu umhverfí.
„VÍS gerir sér glögga grein fyrir
þessum breytingum og nauðsyn þess
að veita viðskiptamönnum sínum
sem víðtækasta vátrygginga- og
fjármálaþjónustu. Með kaupum VÍS
á ofangreindum félögum er því stig-
ið stórt skref í þá átt að veita hinum
stóra hópi viðskiptamanna félag-
anna allra mun víðtækari þjónustu
en áður hefur verið mögulegt,“ seg-
ir í fréttatilkynningu. í tengslum við
þetta hefur verið ákveðið að VÍS og
sænska Skandia heíji samvinnu um
sölu og markaðssetningu á margs
konar spamaðarformum. Hér er um
að ræða einkaréttarsamning, sam-
kvæmt upplýsingum Axels.
VÍS er ekki síst með í huga lífeyr-
issparnað. Erlend tryggingafélög
hafa verið að bjóða slíka þjónustu
en VÍS er fyrsta íslenska trygginga-
félagið sem fer inn á spamaðar-
markaðinn. Axel bendir á að þetta
svið sé tengt tiyggingasviðinu, starf-
semin snúist um fjárhagslegt öryggi
fólks. „Okkar trú er að þessa sé
þörf, ekki síst hafi unga fólkið þörf
á að leggja fyrir til seinni tíma. Þó
lífeyrissjóðakerfið sé gott dugar það
fólki ekki eitt og sér,“ segir Axel.
Umrætt sparnaðarform er í þróun
og hefur ekki verið kynnt. Örn Gúst-
afsson segir að það muni innihalda
ýmsa þætti sem þekktir séu hér á
markaðnum, bæði langtímasparnað
og tryggingaþætti, en fólki muni
gefast kostur á að raða þeim saman
á margvíslegan hátt, eftir því hvaða
áhættu það vilji taka.
Axel Gíslason segist vona að sam-
starfíð _við Skandia í Svíþjóð muni
gera VÍS kleift að fara af krafti út
á þetta svið og veita nýja þjónustu
sem hann telur þörf fyrir hér á landi.
Engar reglur til
um miðun farsíma
VIÐ leitina að ijúpnaveiðimönnunum
tveimur í síðustu viku var GSM-sími
í bíl þeirra miðaður út til að auðvelda
leitina.
Þetta er í fyrsta sinn sem slíkri
tækni er beitt á íslandi. Að sögn
Ólafs Indriðasonar, yfirtæknifræð-
ings hjá farsímadeild Pósts og síma
eru engar skriflegar reglur til um
hvenær megi miða út farsíma.
„Aðalreglan er sú að dómsúr-
skurðar sé krafíst. Þetta orsakar
truflanir í kerfínu hjá okkur og því
gerum við þetta ekki nema mikið
liggi við. Þama var greinilega bráð
lífshætta á ferðinni, mennirnir hefðu
getað verið að krókna úr kulda. Komi
svona tilfelli upp aftur hikum við
ekki. í öðrum tilvikum, til dæmis ef
lögreglan væri að leita að einhveij-
um, þyrftum við dómsúrskurð.“
Staðsetninguna er aðeins hægt að
miða út fyrir GSM-síma, ekki síma
í NMT-kerfínu, og aðeins ef kveikt
er á símanum og hann innan notkun-
arsvæðis. Nákvæmnin er mismikil
eftir því á hvaða sendisvæði hann
er. í tilfelii ijúpnaveiðimannanna var
notast við tvo senda, athugað hveijir
þeirra næðu sambandi og útilokunar-
aðferð beitt til að staðsetja símann.
Ólafur Indriðason segir að nánast
ómögulegt sé fyrir aðra en Póst og
síma og miða út farsíma. „Með her
manns og fullt af radíómælitækjum
á tíma þegar lítið væri um önnur
símtöl væri það hugsanlega hægt,
en það er nánast útilokað." Beiðni
um miðunina barst um klukkan tvö
aðfaranótt fimmtudags og tveir
starfsmenn Pósts og síma unnu um
nóttina að því að staðsetja símann.
Það tókst skömmu eftir hádegi á
fimmtudag en um svipað leyti bárust
boð frá leitarmönnum um að bíllinn
væri fundinn.
Andlát
EINAR
SIGURJÓNSSON
EINAR Siguijónsson,
skipstjóri og fyrrver-
andi forseti Slysavarna-
félags íslands, lést
sunnudaginn 27. októ-
ber sl., 66 ára að aldri.
Einar fæddist í Hafn-
arfírði 2. apríl 1930,
sonur Siguijóns Einars-
sonar, sem var lands-
kunnur skipstjóri á
sinni tíð, og Rannveigar
Vigfúsdóttur. Foreldrar
hans létu bæði málefni
Slysavarnafélags ís-
lands mikið til sín taka.
Einar fór ungur á sjó
og árið 1951 lauk hann
hinu meira fiskimannaprófi frá
Stýrimannaskólanum í Reykjavík og
var eftir það á togurum, um alllangt
skeið skipstjóri.
Árið 1968 urðu þau kaflaskil í
ævi Einars að hann gerðist starfs-
maður Álversins í Straumsvík, sem
tók til starfa 1969, en
Einar fór fyrst til náms
og kynningar í Sviss.
Einar starfaði í álverinu
til ársins 1996.
Stórum hluta frítíma
síns helgaði Einar
starfi innan _ Slysa-
varnafélags íslands,
bæði í Hafnarfirði og í
þágu heildarsamtak-
anna. Einar var m.a.
formaður Slysavarna-
deildarinnar Fiska-
kletts í yfír 20 ár og í
stjórn Slysavarnafé-
lagsins samfellt í 32 ár,
síðustu 4 árin sem for-
seti félagsins.
Einar var kvæntur Jóhönnu
Brynjólfsdóttur. Þau hjón voru mjög
samhent og hefur Jóhanna einnig
starfað ötullega að málefnum Slysa-
varnafélagsins. Einar lætur eftir sig
tvö uppkomin börn.
Andlát
PÉTUR
PÉTURSSON
Pétur Pétursson, fyrr-
verandi alþingismaður
og forstjóri, lést sunnu-
daginn 27. október, 75
ára að aldri.
Pétur var fæddur í
Mýrdal í Kolbeins-
staðahreppi 21. ágúst
1921. Hann stundaði
nám við Héraðsskólann
á Laugarvatni 1939-41
og ári síðar lauk hann
prófi í Samvinnuskól-
anum.
Eftir nám var Pétur
skrifstofustjóri Lands-
smiðjunnar í Reykjavík
1947-56. Hann var forstjóri Inn-
flutningsskrifstofunnar 1956-59 og
forstjóri Innkaupastofnunar ríkisins
1959-66.
Pétur var framkvæmdastjóri Kís-
iliðjunnar við Mývatn 1966-67 en á
árunum 1968-73 var hann forstjóri
Álafoss. Hann var starfsmannastjóri
Sigölduvirkjunar 1974-76 og for-
stjóri Norðurstjörnunnar í Hafn-
arfirði 1976-81. Þá var hann full-
trúi i Framkvæmdastofnun ríkisins
1981-85. Á síðustu árum vann Pét-
ur að ýmsum verkefnum hjá Inn-
kaupastofnun ríkisins og sat m.a. í
bílanefnd. Pétur átti sæti í ýmsum
nefndum og stjórnum.
Pétur hóf afskipti af
stjórnmálum ungur og
gekk i samtök ungra
Alþýðuflokksmanna.
Hann tók sæti í mið-
stjórn Alþýðuflokksins
árið 1950 og var for-
maður Alþýðuflokksfé-
lags Reykjavíkur
1959-63. Pétur var
fyrst kjörinn alþingis-
maður fyrir Snæfells-
sýslu og sat á þingi
kjörtímabilið 1956-59.
Síðar var hann kjörinn
þingmaður Norður-
landskjördæmis vestra og sat á þingi
1971-74.
Pétur var virkur í félagsstörfum
og var áratugum saman félagi í
Rotarý-hreyfingunni. Þá var hann
einnig virkur í Oddfellow-reglunni.
Frá 1972 var Pétur aðalræðismaður
fyrir Lúxemborg.
Eftirlifandi kona Péturs er
Hrefna Guðmundsdóttir. Þau eign-
uðust fjögur börn, Guðmund Ágúst,
Ingibjörgu, Pétur og Guðrúnu. Pétur
eignaðist tvo syni í fyrra hjóna-
bandi, Magnús og Pétur Óla. Tvö
stjúpbörn Péturs eru Kolbrún og
Erla Sveinsdætur.
)
I
I
>
i
\
l
I
I
I
I
I
I
i
I
1
r
i