Morgunblaðið - 29.10.1996, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
IMEYTEIMDUR
ÚR VERIIMU
Hvað kosta nýir hjólbarðar og að setja þá á felgur og undir bílinn?
Sólut) dekk Michelin Riken Ýmsar teq. Ýmsar teq. Skipting, umfelgun,
Efra venð = ónegldir hjólb. Neðra verð = negldir hjólb Stærð: 155/ 13 Stærð: 185/70/ 14 Stærð: 155/ 13 Stærð: 185/70/ 14 Stærð: 155/ 13 Stærð: 185/70/ 14 Stærð: Stærð: 155/ 185/70/ 13 14 Stærð: Stærð: 155/ 185/70/ 13 14 & jafnvægisstilling Fólksb. Sendib.
Barðinn hf^T" Skútuvogi2 3.B60 4.760 4.774 5.874 6.180 7.350 8.687 9.857 4.100 5.544" 5.200 6.844 - >Hankook 2.970 3.900
Bílabúð Benna, dekkjav/ Vagnhöfda 23 4.590 6.230' 5.718 7.858 - > Kléber 3.024 4.140
BæjardekkO Langatanga 1a, Mosf.b. 3.660 4.840 4.774 5.954 6.180 7.360 8.687 9.867 4.545 5.725 6.395 7.575 4.840 6.660" 6.020 7.840 ^ >Kuhmo 3.330 4.392
Dekkið 2> Reykjav.vegi56, Hf. 3.660 4.940 4.775 6.055 6.180 7.460 8.195 9.475 4.545 5.825 6.395 7.675 3.100 4.170
Dekkjahúsið 1> Skeifunni 11 3.600 4.800 4.700 5.900 6.100 7.300 8.600 9.800 3.400 4.000
E.R. þjónustan 3> Kleppsmýrarvegi 3.350 4.300 4.350 5.300 6.721 7.671 8.687 9.638 4.545 5.495 6.395 7.345 2.900 3.836
GMÞ Hummer umb. ehf/ Fosshálsi 21 3.571 4.571 4.750 5.750 6.050 7.050 8.550 9.550 2.900 4.080
Garðadekk 1> Goöatúni 4-6, Garðab. 3.660 4.760 4.774 5.874 6.180 7.350 8.687 9.857 4.100 5.544' 5.200 6.644 - >Hankook 2.970 3.960
Gúmmívinnustofan 4> Skipholti 35 3.660 4.940 4.774 6.054 6.179 7.459 8.687 9.967 3.420 4.319
Hjá Krissa 5> Skeifunni 5 3.300 4.150 4.250 5.100 2.800
Hjólbarðav. Klöpp 1> Vegmúla 4 8.650 4.630 4.720 5.700 3.980 4.775: * Laramie 2.800 3.600
Hjólbarðav. Nesdekk^ Suðurströnd 4, Seltj.n. 4.990 6.566" 6.118 7.694' > Kléber 3.024 4.140
Hjólbarðav. Sigurjóns D Hátúni 2a 3.660 4.880 4.774 5.974 6.180 7.380 8.687 8.887 4.545 5.745 6.395 7.595 5.G63 "gís 7.656 6.863 S2- 8.856 4.980 6.872 é- 6.180 8.072 £ 3.150 4.800
Hjólb.viðg. Hafnarfj.6! Drangahrauni 1, Hf. 3.650 4.630 4.720 6.000 5.760 -jjg 8.150 7.040 10.430 6.880 -gS 8.760 7.660 <S §10.040 3.200 4.357
Hjólb.viðg. SandtakO Dalshrauni 1. Hf. 3.466 4.666 4.475 5.675 6.721 7.380 9.185 9.887 4.990 d>= 7.240 6.190 8.440 4.832 5.576 S2 5.532 6.776-2 3.200 4.320
Hjólb.viðg. Vesfurbæjar’ Ægisslðu 102 8.660 4.860 4.770 5.970 6.180 7.380 8.685 9.885 6.720 9.185: - Alpin 3.168 3.960
Hjðlbarðahöllin 1> Fellsmúla24 8.080 4.260 4.080 5.260 4.840 6.660' 6.020 7.840 - >Kuhmo 3.060 4.032
HjólbarðastöðinÚ Bíldshöfða 8 3.590 4.770 4.710 5.880 6.100 7.280 8.580 8.750 4.750 8.580' 5.890 7.750 - >Kuhmo 3.100 4.400
Hjólbaröaviðgerðir7/ Smiðjuvegi 26, Kóp. 3.645 4.845 4.720 5.920 6.170 7.870 8.680 9.880 4.545 5.745 6.395 7.595 3.240 4.410
Hjólbarðaþjón. Hjalta^ Hjallahrauni 4, Hf. 8.660 4.810 4.774 6.024 6.180 7.430 8.687 9.937 5.663 7.656 6.913 8.906 4.980 é- 6.230 =2 3.240 3.600
Hjólbarðaþjónustan 9> Tryggvagötu 15 3.466 4.566 4.475 5.575 4.890 7.240' 6.090 8.340 - >Firestone 3.200 4.200
Höfðadekk hf.O Tangarhöfða 15 3.660 4.910 4.770 6.020 6.180 7.380 8.680 9.880 4.870 5.570 6.150 7.350 3.350 4.250
íslandsdekk 10> Dugguvogi10 3.466 4.466 4.475 5.475 4.990 7.240' 5.980 8.240 - >Firestone 2.600 3.200
N.K. Svanehf.O Skeifunni 5 3.660 4.560 4.774 5.674 2.800
Sólning 1> Smiðjuvegi 32-34, Kóp. 3.650 4.930 4.720 6.000 6.760 -g-g 8.150 7.040 «5 “■ 9.430 6.380 -if 8.760 7.660 <3810.040 3.460 4.536
VDO-Borgardekk6! Borgartúni 36 3.466 4.516 4.475 5.525 4.990 6.040 7.240 8.290 3.000 4.080
VDO-hjólbarðaverkst. Suðurlandsbraut 16 3.270 4.220 4.229 5.179 4.491 Fire- 5.441 stone 2.800 3.600
Vaka hf. 1> Eldshöfða 6 3.650 4.650 4.720 5.720 6.721 7.721 8.687 8.687 4.784 6.566' 5.794 7.566 J >Kléber 2.800 3.740
1) 10% stadgr.afsl. afhjúlb. 2) 10% st.gr.afsl. afhjólb. og eldri borgarar 20% afsl. afvinnu 3) 10% st.gr.afsl. athjúlb., 5% af kortavidsk. 4) 10% st.gr.afsl. ogeldri
borgarar 15%afsl. afhjólb. 5) 8% st.gr.afsl. afhjólb. 6)10% afsl. afhjólb. 7) 10% st.gr.afsi. af hjólb.og eldri borgarar og öryrkjar fá 15%afsl. afhjólb. ogvinnu
8) 5% st.gr.afsl.af hjólb. 9) 15% st.gr.afsl. af sóluðumhjólb.og 10%afkortaviðsk., 10%staögr.afsl. af nýjum hjólb. og 5% alkortaviðsk.
Vetrarhjólbarðar undir bílinn
33% verðmunur á vinnu
við hj ólbar ðaskiptingu
NÝLEGA gerði starfsfólk Sam-
keppnisstofnunar verðkönnun á
ónegldum og negldum hjólbörðum.
60% verðmunur reyndist á dýrustu
og ódýrustu sóluðum dekkjum af
stærð 155/13. Ódýrust voru sóluðu
dekkin af þessari stærð á 3.080
krónur og þau dýrustu á 4.940
krónur.
Þá var 33% verðmunur á ódýr-
ustu og dýrustu skiptingu, umfelg-
un og jafnvægisstillingu fólksbíla.
Ódýrust reyndist þjónustan hjá ís-
landsdekki í Dugguvogi á 2.600
krónur en dýrust hjá Sólningu hf á
Smiðjuvegi á 3.460 krónur.
Að sögn Kristínar Færseth hjá
Samkeppnisstofnun var kostnaður
við að skipta um hjólbarða á fólks-
bílum og sendiferðabílum að meðal-
tali svipaður og í fýrra og sama
má segja um meðalverð á sóluðum
hjólbörðum. Meðalverð á nýjum
Michelin-hjólbörðum hefur hækkað
lítillega. Hún segir að í töflu sé
kostnaður við skiptingu miðaður við
staðgreiðslu en hjá nokkrum er
kostnaðurinn sá sami hvort sem
greitt er með greiðslukorti eða stað-
greitt. Verð á hjólbörðum miðast í
flestum tilvikum við staðgreiðsluaf-
slátt af uppgefnu verði eins og fram
kemur í athugasemdum í töflu.
Nýtt
Nabisco
mat-
I slenskir dagar
á Norðurlandi
í gær, mánudag, hófust íslenskir
dagar á Norðurlandi. í verslunum
þar eru nú kynningar og tilboð á
íslenskum vörum. Fyrirtækin sem
taka þátt í íslenskum dögum á Norð-
urlandi skipta tugum og eru á
Blönduósi, Skagaströnd og Hvamms-
tanga. Einnig eru fyrirtæki á Laug-
arbakka með kynningar, í Víðihlíð,
á Sauðárkróki og Siglufirði. A Akur-
eyri eru einnig fyrirtæki með íslenska
daga, á Dalvík og á Húsavík.
vorur
HAFINN hefur verið inn-
flutningur á ýmsum vörum
undir matvörumerkinu Nab-
isco. Þegar eru komnar á
markað nokkrar kextegundir
frá fyrirtækinu eins og krem-
kex, súkkulaðibitakex,
súkkulaðikexhringir og mar-
íukex. í fréttabréfi frá inn-
flytjanda, Rolf Johansen &
Company,, bætast við fleiri
tegundir á næstu vikum.
Afmælisaf-
sláttur af
snyrtingn
SNYRTISTOFAN Eygló er tíu ára
um þessar mundir og af því tilefni
er veittur 20% staðgreiðsluafsláttur
af almennri snyrtingu fram til 11.
nóvember næstkomandi. Myndin er
tekin af starfsfólki snyrtistofunnar
en að meðaltali vinna þar sex til
átta fagmenn.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
BERGLIND Eiðsdóttir sér um að taka poka með síldarflökum
frá vélinni sem vigtar flökin og rennir þeim í pokana.
Síldarvinnslan
er hafin í Eyjum
Vinnslustöðin tekur í notkun nýja
vinnslusali og* flokkunarstöð
Vestmannaeyjum
SÍLDARVINNSLA er nú komin á
fullan skrið í Eyjum. í Vinnslustöð-
inni hafa verið gerðar miklar breyt-
ingar og nýir salir til vinnslu á síld
og loðnu voru teknir í notkun þegar
síldarvinnslan hófst nú. Vinnslu-
stöðin hefur byggt 500 fermetra
flokkunarstöð á bryggjunni norðan
við Fiskimjölsverksmiðju fyrirtæk-
isins og þar fer flokkun síldarinnar
fram um leið og henni er landað
úr bátunum. í kjallara Vinnslu-
stöðvarinnar hafa síðan verið út-
búnir þrír nýir vinnslusalir þar sem
flökun og pökkun fer fram. Salirnir
uppfylla allar ströngustu kröfur
sem gerðar eru til matvælafram-
leiðslu í dag og tækjabúnaður er
mjög fullkominn.
Frá flokkunarstöðinni fer síldin
í móttökusal þaðan sem hún fer í
vélasalinn en þar er hún ýmist flök-
uð eða hausskorin og slógdregin.
Frá vélasalnum kemur síldin á milli-
lager en frá honum fer hún síðan
inn í pökkunarsalinn. Vélar sjá um
að mata vigtar sem sjálfvirkt vigta
það magn sem fer í hvern poka sem
síðan fer í frystipönnuna. Manns-
höndin kemur því lítið nálægt hrá-
efninu á vinnsluferlinum. Samhliða
er hægt að vinna við vinnslu flaka
og heilfrystingu og var unnið á
þremur pökkunarlínum þegar Verið
leit við í Vinnslustöðinni á föstudag-
inn. Á tveimur línum var verið að
pakka flökum fyrir Póllandsmarkað
en á einni var pakkað fýrir heilfryst-
ingu.
Úrgangi dælt beint út
Ein af breytingunum sem gerðar
voru í Vinnslustöðinni um leið og
nýja vinnsluaðstaðan var byggð var
að leggja rör yfir í Fiskimjölsverk-
smiðjuna þannig að öllum úrgangi
frá vélasalnum er nú dælt beint út
í þró Fiskimjölsverksmiðjunnar en
áformað er að innan tíðar verði sett-
ur upp búnaður sem veiðir fituna
úr slógvatninu sem kemur frá véla-
salnum þannig að hægt verði að
dæla henni yfir í þró Fiskimjölsverk-
smiðjunnar. Samhliða þessum breyt-
ingum er verið að byggja við austur-
hlið Vinnslustöðvarinnar þar sem
aðalinngangur í húsið mun verða
og er kostnaður við þessar breyting-
ar áætlaður um 125 milljónir króna.
Einum farmi skipað út
í Vinnslustöðinni byijaði síldar-
vinnslan 12. október og nú þegar
hefur verið skipað út einum farmi,
500 tonnum, enda er mikil eftir-
spum eftir síldarafurðum. Gullberg
og ísleifur hafa séð um að afla
hráefnis til vinnslunnar í Vinnslu-
stöðinni og á föstudaginn var ísleif-
ur að landa um 400 tonnum sem
fengust á Héraðsflóa. Vinnsla síld-
arinnar gekk vel enda var hún stór
og falleg.
Hafa um 14.000 tonn af síld til
vinnslu
Vinnslustöðin mun hafa um
14000 tonn af síld til vinnslu á
þesari vertíð. Með breytingunum
sem gerðar hafa verið á að nást
meiri hagræðing í vinsslunni og er
vonast til að afkastaqaukning verði
á bilinu 20% til 30% en á síðustu
vertíð var algengt að um 1750 tonn
væru unnin hjá Vinnslustöðinni á
viku.
ELVA Ómarsdóttir, Ágústa Hannesdóttir, Heiða Björgvinsdóttir
og Iris Sæmundsdóttir voru að vinna við að pakka síld í heil-
frystingu.