Morgunblaðið - 29.10.1996, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1996 23
Morgunblaðið/Þorkell
FRÁ sýningnnni í Sneglu.
Listíðahús
LIST OG HÖNNUN
Snegla
AFMÆLISSÝNING
Arnfríður Lára Guðnadóttir, Björk
Magnúsd. Elín Guðmundsd. Erna
Guðmarsd. Helga Pálína Bryiyólfsd.
Hrafnhildur Sigurðard. Ingiríður
Óðinsd. Ingunn Erna Stefánsd. Jóna
S. Jónsd., Jóna Thors. Sigríður Erla
Guðmundsd. Sonja Hákansen. Vil-
borg Guðjónsd. Þuríður Dan Jóns-
dóttir. Opið virkadagafrá 12-18.
Laugardaga 10-14. Til 3 nóvember.
Aðgangur ókeypis.
UNDARLEGT að það skuli standa
konur á bak við flest virk listíðahús
borgarinnar, sem færir heim sanninn
um að meiri félagshyggju sé að sækja
í þeirra raðir en karlpeningsins sem
hefur ekki feitan gölt að flá. Erum
við hér sér á báti því yfirleitt eru
það listafélög karla og kvenna sem
sjá um slíka listmiðlun ytra og
kannski er einnig rannsóknarefni hve
íslenzkir karlar leita lítið á vettvang
listíða nú um stundir. Konur búa svo
ótvírætt yfir mun meiri metnaði hag-
sýni og hörku á markaðsvettvangi
en karlar sem virðast bíða eftir allri
efnislegri virkt heima fyrir eða á
kaffihúsum. Og þótt margur þeirra
sé í fullri vinnu mun svo einnig með
konurnar, svo afsökun hafa þeir
næsta litla.
Það virðist nokkur þörf á slíkum
listíðahúsum, og meiri en margur
bjóst við, því að nú hefur Listhúsið
Snegla starfað í fimm ár og minnir
á tilveru sína með samsýningu í hin-
um takmörkuðu en vistlegu húsa-
kynnum að Grettisgötu 7. Þrátt fyrir
lítið rými liggur drjúgt úrval listmuna
frammi auk minni myndverka og er
fjölbreytnin með ólíkindum. Þannig
samanstanda verkin á sýningunni af
steinleir, silki, blandaðri tækni, flau-
eli, pappír, þæfðri ull, steinieir og
áli, jarðleir, krossviði og pappír, sag-
brenndum jarðleir og hrosshári, stáli
og steinsteypu. Er hér bæði um
kunnugleg formtilbrigði að ræða sem
önnur sem koma nokkuð á óvart.
Staðurinn er hins vegar síður fallinn
til slíkra samsýninga, þar sem rýmið
leyfir ekki meira en eitt verk eftir
hvern þátttakanda og þau njóta sín
svo misvel. En þetta er þó þokkafull
sýning og ber að taka ofan fyrir
konunum og óska þeim velfamaðar
næstu fimm, og þó heldur fimmtíu
árin.
L i s t a ko t
SILKI/GRAFÍK
Hrönn Vilhelmsdóttir, Gunnhildur
Ólafsdóttir. Opið virka daga frá
12-18. Laugardaga 10-16 til 10
októbar. Aðgangur ókeypis.
Listakot að Laugavegi 70, er af
líkum meiði og Snegla, framkvæmda-
aðilar þó mun yngri, af nýrri ár-
göngum úr skóla, og starfsemin í
mótun. Rýmið er öllu meira og á tveim
hæðum, auk þess sem staðsetningin
er vænlegri, trúlega um leið kostnað-
arsamari, svo hér er stórhugur að
baki. Hins vegar er nokkur og eðlileg-
ur byijendabragur á uppsetningu þess
sem þar er til sýnis að jafnaði og
getur verið dálítið erfítt að henda
reiður á því. Sérsýningamar takmark-
aðar og varla þess eðlis að tilefni sé
að rýna sérstaklega í þær en fylgst
verður vel með athafnaseminni og
skriffærin ydduð er þörf gerist. Ný-
lega sýndi Hrönn Vilhelmsdóttir
nokkra silkitrefla í listhominu á efri
hæðinni og komst þokkalega frá
bljúgum pataldri með ýmsar þrykkað-
ferðir þar sem mýkt og yndisþokki
réðu stefnunni. Um þessar mundir
sýnir þar Gunnhildur Ólafsdóttir
nokkrar tréristur sem byggjast á
landsminnum ýmiss konar, og er
nokkuð þungt svipmót yfír þeim. Eins
og gerist nú um mundir er minni
áhersla lögð á blæbrigðaríkdóm hinna
hvössu eggjáma, sjálfan skurðinn og
margvíslega eiginleika efnisins heldur
en sjálft þrykkið. í báðum tilvikum
mættu listakonurnar leitast við að
færast meira í fang og leggja meiri
áhersluþunga í vinnubrögðin.
Upp skal kjöl klífa ...
Bragi Ásgeirsson
Guðmund Jónsson og Þorgeir Guð-
laugsson. Sagt er frá hestamótum
sumarsins í máli og myndum: Fjórð-
ungsmóti á Suðurlandi, íslandsmóti
í Mosfellsbæ og Norðurlandamóti í
Stokkhólmi.
Alveg einstakur er flokkur smá-
bóka sem nýtur vinsælda. Nú koma
út Alveg einstakur afi, Alveg ein-
stakur eiginmaður og Alveg einstök
ást.
íslensk knattspyrna 1996 er
sextánda bókin í bókaflokki um ís-
lenska knattspyrnu. I nýjum flokki
lítilla matreiðslubóka koma ítölsk
matreiðsla, Kínverskar uppskriftir,
Mexíkósk matseld og Pastaupp-
skriftir. Stóra pastabókin er eftir
Judith Ferguson.
Stafir og skuggaverur
Á lausu er ný unglingabók eftir
þá Smára Frey og Tómas Gunnar,
höfunda bókanna Blautir kossar
og Ufsilon. Jói Jóns, Kiddý Munda
og dularfullu skuggaverurnar birt-
ast í nýrri barnabók Kristjáns Jóns-
sonar.
Stafakarlarnir er fyrsta bók
Bergljótar Arnalds ætluð börnum
sem vilja læra að þekkja stafina. í
bókinni eru spurningar og léttir
leikir fyrir börn, til dæmis hefur
stafurinn „ð“ falið sig á síðum bók-
arinnar og börn geta spreytt sig á
að finna hann.
Margar þýddar barna- og ungl-
ingabækur koma að venju frá
Skjaldborg. Besta skólaár allra tíma
er eftir Barböru Robinson; Einu
sinni var eftir Stefan Gemmel og
Marie-José Sacre; Fuglafít — Upp
á eigin spýtur eða með öðrum eftir
Camillu Gryski; Játningar Berts,
Fleiri athuganir Berts og Enn fleiri
athuganir Berts eftir Anders
Jacobsson og Sören Olsson; Frank
og Jói: Leyndardómur hellanna eft-
ir Franklin W. Dixon; Benjamín
lærir á klukku; Kim og horfni fjár-
sjóðurinn eftir Jens K. Holm;
Kvennnagullið Svanur eftir höfunda
Bert-bókanna; ný Nancy-bók,
Myndastyttan hvíslandi eftir Car-
olyn Keene; föndurbók um hárflétt-
ur; Leyndarmái Baldurs eftir Jakob
Wegelius; Maja, hvað er ferðalag?
eftir Regine Schindler og Sita
Jucker; Litli drekinn — Sögur úr
höllinni eftir Heather Amery og
Stephen Cartwright og loks Stóra
ævintýrabókin — Einu sinni var,
með sígildum ævintýnim á borð við
Aladdín og Stígvélaða köttinn.
Á vængjum
dragspílsíns
TÓNLIST
íslcnska óperan
HARMÓNÍKUTÓNLEIKAR
Verk eftir ýmsa höfunda, þil m. flytj-
andann. Renzo Ruggieri, liarmóníka,
MIDI-tónraða o.fl. ísiensku
óperunni, miðvikudaginn
23. október kl. 20.30.
ÞAÐ VAR enginn meðalæringi
austan af landi sem þandi dragspil-
ið á velsóttum tónleikum á vegum
Harmóníkuunnenda á miðvikudags-
kvöldið var. Þó að undirrituðum séu
belgtónmenntir nánast lokuð bók,
þá varð strax í upphafi ljóst, að hér
var enginn venjulegur nikkari á
ferð. Áður en nokkur gat sagt dúdd-
elí-dei, afhjúpaði hinn þrítugi signor
Ruggieri innlifun og tilfinningadýpt
sem menn tengja sjaldan við hvæs-
andi ímynd þessa háreysta alþýðu-
hljóðfæris; tilfinningaþrunga sem
gömbusnillingurinn St. Colombe í
Allir heimsins morgnar hefði verið
fullsæmdur af.
Erfitt yrði að hólfa viðfangsefn-
in, hvað þá útfærslu þeirra, af í
snyrtilega merktum tóngreinahólf-
um. Ætli þau hafi ekki verið alls
staðar og hvergi. Hvorki var þó
um hreinræktaða framsækna nútí-
matónlist að ræða eins og hjá El-
legaard, né um yfirfærslu á semb-
altónsmíðum Bachs eins og hjá
Gesualdo, landa Ruggieris, er
heimsótti okkur fyrir allmörgum
árum með sérsmíðaða hnappan-
ikku meðferðis og lék tónrétt upp
úr sjálfu Gamla testamentinu, Vel-
tempraða hljómborðinu.
Framtíð og löngu liðin fortíð
fengu að mestu að vera í friði að
þessu sinni. Þess í stað voru reifuð
nokkur sígræn vinsæl lög frá okkar
öld og (einkum) latneskumælandi
hluta hans, eins og Acquarello Cu-
bani, Ólífublóm, tangóinn sígildi La
Cumparsita, Mazurca Celebre, Bes-
ame Mucho, La Czardas og Breið-
vangsdillan All of Me. Þjófótti
skjórinn hans Rossinis var eina
klassíska innslagið, en þess utan
voru tónsmíðar eftir flytjandannn
sjálfan - Fly, Fly Redbird, Carnav-
al, Tarantella, Cinema og Puzzle -
auk verks eftir stjórnanda “Jazz
Big Band“ sveitarinnar, Peppino
Principe, er nefnist „Fantasia in
LA“, en í þeirri sveit mun Renzo
Ruggieri hafa starfað undanfarin
fjögur ár sem harmóníkuleikari.
Þess gætti og í túlkun hans, er var
að stórum hluta mótuð af spuna
jassins og nýjum tangó Piazzollas,
án þess þó að missa alfarið sjónar
af gömlu evrópsku nikkarahefðinni,
klisjum hennar og skrautblómum,
sem í hálfiokuðum félagsheimi
harmóníkuiðkenda liggur við að
mætti bera saman við hefðir forna
þýzka meistarasöngsins. Ruggieri
læddist hægt inn í hjörtu áheyrenda
með íbyggnu rúbatói og gífurlega
víðri dýnamík, en áður en lauk lá
salurinn að fótum hans. í lokin,
þegar hann tók hvern standarðinn
á fætur öðrum sem aukalög með
tilþrifum er eflaust sendu ítrekaðan
aðdáunar- og öfundarfiðring niður
mjóhrygg tónleikagesta, virtist
lyklaborð hljóðfærisins hérumbil
komið að því að skíðloga undan
fljúgandi fíngrafiminni.
Þó var tækniöryggi Ruggieros
ekki algjört, eða nær væri kannski
að segja, að hann hikaði ekki við
að taka áhættu, eins og stöku sinni
heyrðist, þegar gandreiðin kostaði
eina og eina smáskeinu. En fyrir
áheyrendur er slíkur línudans oftast
stórum skemmtilegri en kalt og
yfirvegað spil, þar sem minna er
lagt í sölurnar. Sömuleiðis var óhjá-
kvæmilega nokkur gervibragur af
sumum „MIDI“-atriðunum, þar sem
rafeindatæknin (ef það var þá ekki
beinlínis gamaldags segulband)
lagði nikkaranum til undirleik pían-
ós, bassa og tromma, svo í versta
falli gat minnt á einmenningshljóm-
sveit fyrir krár og afmælisveizlur á
tilboðsverði. Á hinn bóginn voru
„sándin“ úr hljóðboxinu oft mjög
skemmtilega valin og virkjuð á
bringuorgelið.
Sem fyrr sagði var tónlistin
blendin að gerð og mætti kannski
að sumu leyti kenna við útlenda
hugtakið „crossover"; tónlist er
smokrar sér milli ólíkra og misal-
varlegra greina, en líka tónlist sem
í góðum höndum getur búið yfir
bæði afþreyingu og músíkölsku inn-
taki.
Tónsmíðar Ruggieros voru ekki
sízt dæmi um þetta. Þó að arfleifð-
in frá kvikmyndatónjöfrunum
Morricone og Nino Rota hafi stund-
um svifið bak við tjöldin, auðvitað
einkum í hinni kostulegu „syrpu“
Cinema, mátti einnig heyra áhrif
úr jassi, klassík og jafnvel þjóðlög-
um (eins og í hinni seiðandi frum-
smíð Ruggieris, Tarantella), sem
ásamt eitilsnarpri útfærslu og and-
stæðuríkum leik hins unga ítalska
snillings tryggði, að engum leiddist
þetta kvöld.
Ríkarður Ö. Pálsson
http://www.rvk.is/
á Internetinu
Gail flísar
:U rrr i\n
1: llí
Stórhöraa 17, við Gullinbrú,
sími 567 4844
stjórnbúnaður
Þú finnur f
varla betri jj
lausn. i
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SIMI 562 4260
Pantaðu
barnamynda-
tökuna tíman-
lega fyrir jólin
Ljósmyndastofan Mynd
sími 565 4207
Ljósmyndastofa Kópavogs,
sími 554 3020.
3 Ódýrari
URTE PENSIL
Propolis - Sólhattur
Virkni þeirra þekkja flestir
en saman er árangurinn enn
betri. Auk þess 4 steinefnaríkar
jurtir sem eru styrkjandi og
stuðla að betri líðan.
Onnur heilsuefni
frá NaturDrogeriet:
BIO-SILICA
Gott fyrir hárið,
neglurnar, hcinin,
bandvefi og yngir
húðina.
JÁRN i melassa
og sojaolíu
virkar vel.
SKALLIN PLUS
vinur magans,
hreinsandi og
grennandi.
Náttúruefni sem
v. bætir meltinguna.
Skallin hjálpar
Fæst hjá: Árbæjar Apóteki, Breiðholts Apóteki,
Grafanogs Apóteki, Laugavcgs Apðteki,
Kópavogs Apóteki, Mosfells Apóteki, Apóteki
Suðurnesja, Hraunbcrgs Apóteki, Blómavali,
Fjarðarkaupum, Heilsuhúsinu, Kringlunni og
Skólavörðustíg, Heilsuhorninu, Akurevri,
Heilsuvali, versl. lloilt og gott, Skagaströnd,
Heilsukofanum, Akranesi, Ingólfsapóteki og
Sjúkranuddstofu Silju.
BÍÓ-SELEN UMB..SÍMI 557 6610