Morgunblaðið - 29.10.1996, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1996 41
MINNINGAR
ORRIMÖLLER
EINARSSON
+ Orri Möller Einarsson
fæddist í Reykjavík 13. maí
1976. Hann lést á Landspítalan-
um 17. október síðastliðinn og
fór útför hans fram frá Akur-
eyrarkirkju 28. október.
Drottinn vakir, Drottinn vakir
daga’ og nætur yfir þér.
Blíðlynd eins og bezta móðir
ber hann þig í faðmi sér.
Allir þótti þér aðrir bregðist,
aldrei hann á burtu fer.
Drottinn elskar, - Drottinn vakir
daga’ og nætur yfir þér.
Þegar æviröðull rennur,
rökkvar fyrir sjónum þér,
hræðstu eigi, hel er fortjald,
hinum megin birtan er.
Höndin, sem þig hingað leiddi,
himins til þig aftur ber.
Drottinn elskar, - drottinn vakir
daga’ og nætur yfir þér.
(Sig. Kr. Pétursson.)
Elsku Sússý, þú hefur verið svo
dugleg og staðið með elsku
dréngnum þínum í þessari baráttu.
Það er svo sárt að þurfa að sjá á
eftir einkabarni sínu, hann sem
var orðinn svo stór og karlmann-
legur og þú varst alltaf svo stolt
af honurri.
Einar minn, síðustu mánuðirnir
hafa verið þér erfiðir, þú varst svo
duglegur að vera hjá Orra þínum
þegar hann var fyrir sunnan á
Landspítalanum og tengslin milli
ykkar voru orðin svo sterk.
Við kveðjum þig, elsku Orri,
með söknuði og trega í hjarta og
biðjum góðan Guð að styrkja for-
eldra þína og ástvini.
Guð geymi þig.
Alma og Birgir.
Elsku Orri okkar.
Nú er þessari erfíðu baráttu
lokið. Þú barðist vel, varst alltaf
mjög sterkur og reyndir að láta
þennan illvíga sjúkdóm hafa sem
minnst áhrif á þig. Við erum viss
um að þú ert kominn á betri stað,
og þér líður nú vel.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér
þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi
og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Við viljum votta foreldrum, ætt-
ingjum og vinum okkar dýpstu
samúð, megi guð styrkja ykkur í
sorginni.
4. G, Menntaskólanum
á Akureyri.
Það er oft sagt að þeir sem
guðirnir elska deyi ungir, sem á
svo sannarlega við um hann Orra
okkar. Það er erfitt að þurfa að
kveðja slíkan vin svó snemma, sem
ætíð hefur verið okkur við hlið.
Orri var svo lífsglaður og kátur
og vildi alltaf taka þátt í öllu sem
var að gerast og þá helst fá að
stjórnast með í hlutunum sem
honum fórst líka vel úr hendi.
Hann var mjög mikil félagsvera
og leið alltaf vel í góðra vina hópi.
Hann var góður og traustur vinur
og þó að orðin séu fá er hugsunin
mun meiri.
Elsku Orri, við viljum þakka
fyrir okkar yndislegu samveru-
stundir og munum ætíð minnast
þín í hug og hjarta.
Þungur er harmur, þú ert horfinn, vinur,
þöglar við horfum yfir djúpið kalda.
Brotinn er vængur, burtu ungur hlynur,
bitur þau sköp er slíku sári valda.
Elsku Sússý og Einar, megi Guð
og góðir hlutir styrkja ykkur í
ykkar djúpu sorg.
Regína og Eydís Elva.
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt,
að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld-
ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa,
öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu-
kerfin Word og Wordperfect eru einnig
auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til
blaðsins í bréfasíma 5691115, eða á netfang
þess þess Mbl@centrum.is en nánari upp-
lýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það
eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari
ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínu-
bil og hæfilega linuleng — eða 2.200 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skirnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Þökkum hlýjar kvefijur og vinsemd við
andlát og útför
TORFA HJARTARSONAR
fyrrv. tollstjóra
og sáttasemjara ríkisins.
Hjörtur Torfason, Nanna Þorláksdóttir,
Ragnheiður Torfadóttir, Þórhallur Vilmundarson,
Helga Sóley Torfadóttir,
Róbert M. Kajioka,
Halla Thorlacius, Sveinbjörn Þorkelsson.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við frá-
fall og útför föður okkar, tengdaföður,
afa, langafa og langalangafa,
ÚLFARS KARLSSONAR.
Guðrún Eva Úlfarsdóttir,
Karl Úlfarsson,
Ágústa Edwald, Jón O. Edwald,
Steindór Úlfarsson, Sigríður Jóna Jónsdóttir,
Ásgeir Þáll Úlfarsson,
Margrét Alda Úlfarsdóttir, Guðbjartur Gunnarsson,
Emelfa Dóra Petersen, Vagner Petersen,
barnabörn, barnabarnabörn,
barnabarnabarnabörn.
Skipamiðlunin, Síðumúla 33
Höfum á skrá sóknarbáta:
Flugfisk 22f lína, handfæri. Flugfisk 22f hand-
færi, einn með öllu. Trébát framb. lína, hand-
færi og grásleppa.
Aflahámarksbátar:
Skel 80 m. 40 tonnum. Færeyingur m.
13 tonnum. Sómi 860 m. 109 tonnum.
Aflamark:
Bátar af öllum stærðum og gerðum.
Höfum kaupanda að 150-200 tonna afla-
marksskipi. Vegna mikillar eftirspurnar vant-
ar allar gerðir skipa og báta á skrá.
Skipamiðlunin,
Síðumúla 33, sími 568 3330.
Sölustjórar: Eggert Jóhannesson,
Friðrik Ottósson.
Lögfræðingur: Erling Óskarsson.
Framhaldsuppboð
Neöangreint lausafé verður boðið upp á framhaldsuppboði fyrir utan
skrifstofu sýslumansins á Hólmavík á Hafnarbraut 25, Hólmavík,
miðvikudaginn 6. nóvember 1996 kl. 14.00 að kröfu tollstjórans í
Reykjavík:
Bifreiðin I-2570, fast númer FY-641, Toyota Hi-Lux árg. 1980.
Greiðsla við hamarshögg. Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla
nema með samþykki sýslumanns.
Sýslumaðurinn á Hólmavik,
Ólafur Þ. Hauksson.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Til leigu
verslunarhúsnæði
á Norðurbrún 2, Reykjavík, 60 fm brúttó.
Er við hliðina á nýrri Ellefu-ellefu verslun.
Hentart.d. sem blómabúð - ísbúð - fisk-
búð - filmuframköllun - vídeóleiga.
Upplýsingar í síma 557 3131 eða 893 0731.
Verslunarhúsnæði óskast
í miðbæ Reykjavíkur eða verslunarkjarna,
ca 30-60 fm.
Upplýsingar í síma 897 1784.
TIL SÖLU
Fyrirtækjasala Hóls kynnir nú
til sölu:
Heildverslun - innflutn-
ingur (18012)
Um er að ræða þekkt fyrirtæki á sviði innflutn-
ings á eldhústækjum og búnaði fyrir hótel,
veitingahús og matvælaframleiðslu, einnig
húsgagnainnflutningur. Fyrirtækið er með
mikla viðskiptavild hérlendis og erlendis.
Upplýsingar eru gefnar á skrifstofu fyrir-
Skipholti50b f«Is im“
Jörðin Þórustaðir í
Vatnsleysustrandarhreppi
Til sölu er jörðin Þórustaðir í Vatnsleysu-
strandarhreppi sem er að hálfu í eigu þrota-
bús Silfurlax hf.
Jörðin er landmikil og nær frá sjó og upp að
Keili. Á henni er nýlegt 160 fm einbýlishús
og gömul útihús, m.a. fjós, hlaða, skemma
og lítið fiskverkunarhús.
Til greina kemur að selja eingöngu 50% eign-
arhlut þrotabúsins eða jörðina alla.
Skiptastjóri þrotabús Silfurlax hf. gefur nán-
ari upplýsingar í síma 554 5200.
ÁSGEIR MAGNÚSSON HDL
LÖGMANNSSTOFA
HAMRABORG 10 • 200 KÓPAVOGUR
SlMI 554 5200 • FAX 554 3916
/singar
FÉLAGSLÍF
□ Edda 5996102919 l 1 Atkv.
□ Hlín 5996102919 VI 1 Frl.
BibUuskólinn
við Hoítaveg
Á gömlum síðum
Biblíunnar
Næstu fjögur mánudagskvöld
verður námskeiö um seinni hluta
spádómsbókar Jesaja. Skúli
Svavarsson, kristniboði, skoðar,
les valda kafla og svarar ýmsum
spurningum um þennan merka
hluta Gamla testamentisins.
Skráning í síma 588 8899 til
1. nóvember.
Námskeiðsgjald er 1.200 kr.
V
Frá Sálarrannsóknarfélagi
íslands
Breski umbreyt-
ingamiðlillinn
Diane Elliot hefur
hafið störf hjá fé-
laginu. Diane býð-
ur upp á umbreyt-
ingafundi fyrir
hópa og einka-
fundi i lestri og Tarrot eða lestri
og áruteikningu. Að þessu sinni
verður Diane hér í aðeins 2 vik-
ur. Þeim, sem hafa áhuga á að
hitta hana, er bent á panta tíma
sem fyrst.
Allar upplýsingar og bókanir i
síma 551 8130 milli kl. 10 og 12
og 14 og 17 alla virka daga og
á skrifstofunni ( Garðastræti 8.
SFÍ.
AD KFUK,
Holtavegi.
Gildi bænarinnar í starfi KFUK
og mikilvægi fyrirbæ'nar í kristnu
samfélagi. Elísabet Haraldsdótt-
ir, Sigrún Gísladóttir og Svein-
björg Arnmundsdóttir hugleiða
efni fundarins.
Allar konur velkomnar.
Nýbýlavegi 30, Kópavogi,
gengið inn Dalbrekkumegin
Hugleiðsluferð
út í náttúruna undir
stjórn og leiðsögn Krist-
ínar Þorsteinsdóttur.
i kvöld mun Kristín Þorsteins-
dóttir bjóða upp á hóphug-
leiðsluferð út í nátturuna ef veð-
ur leyfir. Farið verður með rútu
rétt út fyrir bæjarmörkin og sett-
ur upp bálköstur og hugleitt
undir berum himni við varðeld.
Skilyrði er að stilla sé og stjörnu-
bjart - ef svoleiðis veður verður
ekki fellur ferðin niður. Þeir sem
hafa áhuga mæti í Sjálfefli, Ný-
býlavegsmegin eigi síöar en kl.
20 vel klæddir og með teppi og
hvað sem þeir sem telja sig
þarfnast til að vera hlýtt. Þeir
sem treysta sér ekki til að sitja
á jörðinni komi með stóla með
sér. Áætluð heimkoma er milli
kl. 23 og 24. Verð kr. 1.000.
Allir velkomnir.
- kjami málsins!