Morgunblaðið - 29.10.1996, Qupperneq 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
, ■ ?/
KyöL0$íi6u
KOPAVOGSífy
Nómskeið sem byrja í nóvember:
Tölvunámskeið:
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Búa aldraðir við
kröpp kjör?
GUÐFINNA hringdi og
sagðist vera orðin leið á
þessu sífellda væli um hve
aldraðir búi við kröpp kjör.
Hún vill að gerð verði
könnun á því hve stór hluti
þeirra sé undir fátæktar-
mörkum og telur að flest
eldra fólk hafi nokkuð góð
fjárráð. Auðvitað væru
alitaf einhveijir sem væru
illa staddir, en meginþorri
aldraðra ætti nóg af pen-
ingum. Nær væri að huga
að ungu fólki sem er að
koma sér upp heimili og
þess vegna að sligast und-
im greiðslubyrði og skött-
um.
Elín góður
fréttastjóri
ÉG HEF verið mjög ánægð
með frammistöðu Elínar
Hirst sem fréttastjóra
Stöðvar 2 og er því óánægð
með uppsögn hennar. Mér
finnst þó ekki rétt, eins og
ályktað er í Velvakanda
fyrir skömmu, að héðan í
frá þurfi að taka fréttir
Stöðvar 2 með fyrirvara.
Það er vafalaust til fleira
hæfileikafólk á Stöð 2 en
Elín Hirst.
Hólmfríður Sig.
Tapað/fundið
Pels tekinn í
misgripum
SVARTUR pelsjakki var
tekinn í misgripum úr fata-
hengi í Brautarholti 30
eftir árshátíð 12. þ.m.
Annar pels var skilinn eft-
ir, en hann er eldri. Sá sem
kannast við þetta mál er
vinsamlega beðinn að
hringja í síma 554-0725.
Jóhanna.
Barnagleraugu
töpuöust
PÍNULÍTIL stelpugler-
augu, gyllt með bleikum
yijum, töpuðust í Holtsbúð
eða Asbúð sl. fimmtudag.
Finnandi er vinsamlega
beðinn að hringja í síma
565-1779.
Hringur og
vettlingur tapaðist
GULLHRINGUR með
þremur perlum og glærum
steinum tapaðist fyrir rúm-
lega viku. Einnig týndust
útpijónaðir drapplitir vettl-
ingar, líklega í Þverholti.
Finnandi er vinsamlega
beðinn að hringja í síma
552-1682. Fundarlaun.
Hanskar fundust
HANSKAPAR fannst á
gangstígnum meðfram
Hringbrautinni um kl.
10:45 miðvikudaginn 23.
október. Eigandi má vitja
hanskanna í síma 552
3736.
Ur tapaðist
GYLLT og silfurlitað kven-
mannsúr tapaðist við
Rauðalæk eða í nágrenni
12. október sl. Skilvís
finnandi er beðinn að
hringja í síma 568-9684.
Frakki tekinn í
misgripum
DÖKKBLÁR rykfrakki
með belti var tekinn í mis-
gripum á skemmtun sem
kariakórinn Stefnir hélt
fyrir aldraða í Hlégarði
sunnudaginn 20. þ.m. Far-
ið heim með annars manns
frakka í sama lit og útliti
en minna númeri. Ef rétti
eigandinn sér þessa til-
kynningu er hann vinsam-
lega beðinn að hringja í
síma 566-6222.
Úr tapaðist
KVENGULLÚR með ljósri
skífu tapaðist annað hvort
í Leikhúskjallaranum eða
þar fyrir utan, eða í Dal-
túni í Kópavogi. Finnandi
er vinsamlega beðinn að
hringja í síma 892-1111.
Peningar töpuðust
ELLEFU þúsund krónur
duttu upp úr vasa eigand-
ans í IKEA sl. fimmtudag.
Skilvís finnandi er vinsam-
lega beðinn að hringja í
síma 565-1474.
Gæludýr
Köttur í óskilum
HÖGNI, svartur og brúnn
á baki, með hvíta bringu
og rauða ól hefur gert sig
heimakominn í Drápuhlíð
1. Þeir sem þekkja kisa eru
beðnir að hringja í síma
562-8935.
SKAK
Umsjón Margcir
Pétursson
STAÐAN kom upp í síðustu
umferð á Haustmóti Taflfé-
lags Reykjavíkur. Björgvin
Víglundsson (2.280) var
með hvítt, en Jón Viktor
Gunnarsson (2.250) hafði
svart og átti leik. Hvít-
ur lék síðast 28. Re5-
g4 sem var þvingað.
28. - Rxe2+! 29. Kfl
(Auðvitað ekki 29.
Hxe2? - Hdl+ og mát-
ar) 29. - Hdl+! 30.
Kxe2 - Dxe4+ 31.
Kxdl - Dxg4 32. Kel
- De4+ 33. Kfl -
Dbl+ 34. Kg2 - Dxb2
og með tveimur peðum
jrfir í drottningaenda-
tafli er svarta staðan
auðunnin.
Þetta var eina skákin
sem Jón Viktor vann gegn
íslendingi á mótinu. Honum
farnaðist best gegn erlend-
um stórmeisturum, vann
bæði Mikhail Ivanov, Rúss-
landi, og Igor Rausis, Lett-
landi, í skemmtilegum
skákum. Teflir líklega best
þegar hann ber virðingu
fyrir andstæðingnum!
c a • i g h
SVARTUR leikur og vinnur.
Meö morgunkaffinu
*
Ast er... '
að hlusta á
flautuleik hans.
TM R*o U.S. P«L OW. — «fl rtghta rmervad
(c) 1906 Lo« AngaÍM TlmM Syndlcata
n.lWfr'
Og nú skulum við reyna
einu sinni enn, en án
klarinetts.
WORD fyrir byrjendur og kynning ó EXCEL
Matreiðslunámskeið:
Brauðbakstur
Gómsætir bauna-, pasta- og
grænmetisréttir
Konfektgerð
Jólabútasaumur
Jólaföndur úr trölladeigi
Innritun í símum
564 1527 og 456 1507
kl. 18.00-21.00
Víkveiji skrifar...
MORGUNBLAÐINU sl.
laugardag birtist kort, sem sýndi
hversu umfangsmikið sjúkraflug
bandaríska vamarliðsins var á
fimmtudag og föstudag, þegar gerð
var tilraun til þess að sækja sjúkan
japanskan sjómann langt á haf út
en tókst ekki vegna veðurs fyrri
daginn, þótt þyrlur varnarliðsins
væru komnar að skipinu. Daginn
eftir tókst að ná í hinn sjúka mann
og þá var skip hans komið mun
nær íslandi.
Það sem vakti hins vegar at-
hygli við þetta kort var einfaldlega,
að á fimmtudajf var japanska skip-
ið mun nær Irlandi og sennilega
Skotlandi einnig heldur en íslandi.
Hvers vegna voru þyrlur ekki
sendar þessa styttri leið til þess að
sækja manninn? Getur það verið,
að á Irlandi og Bretlandseyjum sé
ekki lið til taks til þess að leggja
í leiðangur af þessu tagi?
Ef sú er raunin og skýringin á
því að japanska skipið leitaði til
Islands en ekki til írlands eða Skot-
lands er Ijóst, að Björgunarsveit
vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli
er sú eina, sem getur sinnt verkefn-
um sem þessum á stórum hluta
Norður-Atlantshafs. Varla er það
viðunandi ástand.
xxx
HÚSDÝRAGARÐURINN og
Fjölskyldugarðurinn í Laug-
ardal eru til mikillar fyrirmyndar.
Þó má spyija, hvort ekki mætti
vera meiri starfsemi í Fjölskyldu-
garðinum um helgar að vetri til,
þegar vel viðrar eins og um nýliðna
helgi. Það er liðin tíð, að íslending-
ar loki sig inni eins og kostur er
um vetur. Þvert á móti hefur fólk
lært að njóta kosta landsins og
fallegs vetrarveðurs, hvort sem er
í þéttbýli eða úti um land með því
m.a. að klæða sig nógu vel.
Ungur maður, rúmlega þriggja
ára að aldri, sem vildi spila golf í
Fjölskyidugarðinum um helgina,
kom að lokuðum dyrum. Þar voru
að vísu golfbrautir úti við en hvorki
kylfur eða kúlur, sem voru ramm-
lega læstar inni og enga þjónustu
að fá. Er nauðsynlegt að loka allri
þessari starfsemi yfir veturinn?
AÐ HEFÐI þótt fáheyrt fyrir
einum til tveimur áratugum
að gera kröfur á hendur skattayfir-
völdum um betri þjónustu. En
tímarnir hafa breytzt og nú eru
ný viðhorf uppi á öllum sviðum
þjóðlífsins. Á morgunverðarfundi
Félags viðskipta- og hagfræðinga
fyrir skömmu lýstu einn af fram-
kvæmdastjórum Eimskipafélags
íslands hf. og löggiltur endurskoð-
andi þeirri skoðun, að þjónusta
skattayfirvalda væri óviðunandi.
Þeir bentu m.a. á, að í öðrum
löndum væri hægt að fá fyrirfram
úrskurð skattayfirvalda á 3-4 vik-
um, sem gæti skipt sköpum um
ákvarðanir fyrirtækja. Hér á ís-
landi gæti tekið 1-2 ár að fá kæru
til skattayfirvalda afgreidda.
Þessi krafa á hendur skattayfir-
völdum frá atvinnulífinu er einn
þáttur í gjörbreyttum viðhorfum,
sem hér hafa rutt sér til rúms.
Rökin fyrir þessum athugasemdum
eru augljós og skattayfirvöld eiga
engan annan kost en að laga sig
að þessum kröfum „markaðarins".