Morgunblaðið - 04.12.1996, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 1996 19
ERLENT
Reuter
STÚDENTAR í Rangoon veifa fána í mótmælunum á mánudag.
Lögregla sagðist hafa handtekið nokkur hundruð þeirra í gær
en aðgerðimar eru þær öflugustu sem stjórnarandstæðingar
hafa efnt til í nokkur ár.
Stúdentamótmæli í Búrma
Suu Kyi biður
um stuðning
Bangkok, Höfðaborg. Reuter.
UM 2.000 stúdentar í Rangoon
efndu til mótmæla gegn herforingja-
stjóminni í Búrma í gær og á mánu-
dag og kröfðust þess að lögreglu-
menn, sem þeir sögðu hafa misþyrmt
nokkrum stúdentum, yrði refsað.
Tveir lögreglumannanna vom
dæmdir í tveggja ára fangelsi en
stúdentar telja dómana óeðlilega
væga. Krafist var lýðræðisumbóta
og sumir bám mynd af frelsihetj-
unni Aung San, föður nóbelshafans
Aung San Suu Kyi sem er leiðtogi
, stjómarandstöðunnar.
Suu Kyi ræddi í gær í síma við
framkvæmdastjóra samveldis Bret-
lands og fyrrverandi breskra ný-
lendna. Sagði hún að sér hefði verið
bannað að fara frá heimili sínu frá
því á mánudag, settir hefðu verið
upp vegatálmar í grennd við húsið
til að koma í veg fyrir alla umferð.
Hún hvatti þjóðir heims til að veita
sér og flokki sínum siðferðislegan
stuðning. Flokkurinn fékk öflugan
meirihluta í síðustu fijálsu kosning-
um sem haldnar vom í Búrma.
Mótmælin hófust á lóð Tæknihá-
skólans en snemma morguns á
þriðjudag fóru stúdentarnir út á
göturnar með spjöld sín og fána.
Erlendur átjórnarerindreki sagði
það hafa komið á óvart hve margir
hefðu verið í göngunni og taldi
hann að þeir hefðu komið öryggis-
sveitum á óvart. Líklegt væri að
herforingjastjómin hikaði við að
leggja til atlögu gegn stúdentunum
vegna sívaxandi gagnrýni á al-
þjóðavettvangi á framferði hennar
í mannréttindamálum. Bandankja-
stjórn hefur gengið einna lengst í
þeim efnum og þar að auki sagt
að stjómin héldi hlífisskildi yfir
fíkniefnasölum.
Heimildarmenn sögðu að gagn-
rýni á stefnu stjórnarinnar hefði
verið meira áberandi í mótmælun-
um nú en í aðgerðum í október
þegar handtöku áðurnefndra stúd-
enta, er tekið höfðu þátt í slagsmál-
um á veitingahúsi, var andmælt.
Stúdentar voru framarlega í
flokki þeirra er stóðu fyrir miklu
andófi 1988 er bælt var niður af
mikilli hörku.
Eiturefnaárásin í Tókýó
Einn af höfuðpaur-
unum handtekinn
Tókýó. Reuter.
MAÐUR, sem grunaður er um að
hafa tekið þátt í eiturefnaárás á
járnbrautarfarþega í Tókýó í fyrra,
var handtekinn í gær í Okinawa-
umdæmi, að sögn japönsku lögregl-
unnar. Hann er einnig grunaður um
aðild að annarri eiturárás tveim
árum fyrr og morði á ríkislögreglu-
stjóra Japans.
„Ég er þreyttur núna,“ sagði
maðurinn, Yasuo Hayashi, er hann
var handtekinn á smáeyju skammt
frá Okinawa. Myndir af honum
hafa verið á opinberum stöðum um
langt skeið, enn er leitað karls og
konu sem sögð eru hafa tekið þátt
í árásinni í fyrra.
Hayashi er 38 ára gamall og
félagi í sértrúarsöfnuðinum Aum
Shinri. Leiðtogi safnaðarins, Shoko
Asahara, er nú fyrir rétti og er
sakaður um að hafa skipað fýrir
um árásirnar. Hann er nær blindur,
og hefur öðru hveiju truflað réttar-
höldin með hrópum og köllum en
tjáir sig að öðru leyti lítið.
Notað var sarin-gas í árásunum
og fórust 12 manns í fyrra auk
þess sem þúsundir manna veiktust.
Hayashi var liðsmaður sérsveita
Aum Shinri og sérstakur útsendari
Asahara, ferðaðist m.a. til Norður-
Kóreu á vegum leiðtogans og keypti
vopn í Rússlandi, að sögn fjölmiðia.
Hann er grunaður um að hafa tek-
ið þátt í að myrða yfírmann ríkislög-
reglunnar, Takaji Kunimatsu, í
mars 1995.
Vitundarvígsla manns og sólar
Dulfræði fyrir þá sem leita.
Fæst í versl. BETRA LÍF í Kringlunni 4-6
Námskeið og leshringar.
Ahugamenn um Þróunarheimspeki
IJósthóIf4124 124 Reykjavík Fax 587 9777 Slmi 557 9763
Þjarmað að yfirmanni rússneska landhersins
Yikið frá tímabundið
Moskvu. Reuter.
TALSMAÐUR Borís Jeltsíns Rúss-
landsforseta, Sergej Yastrz-
hembskíj, sakaði varnarmálaráðu-
neytið um klúður varðandi stöðu
Vladímírs Semjonovs hershöfðingja
og sagði, að honum hefði verið vik-
ið tímabundið úr starfi yfirmanns
rússneska landhersins en hann hefði
ekki verið settur af.
Yastrzhembskíj sagði að vamar-
málaráðuneytið hefði þjófstartað er
það fullyrti að Jeltsín hefði undirrit-
að tilskipun um brottvikningu Semj-
jonovs, hann hefði einungis sam-
þykkt þá ósk ígors Rodíonovs, varn-
armálaráðherra, að Semjonov yrði
vikið tímabundið úr starfi. Forsetinn
hefði neitað að undirrita tilskipunina
fyrr en sérstök forsetanefnd hefði
fjallað um ásakanir á hendur hon-
um.
Vamarmálaráðuneytið lýsti því
yfír sl. föstudag, að Semjonov hefði
verið settur af „vegna framferðis,
sem væri ósamrýmanlegt stöðu hans
og græfí undan orðstí heraflans."
Semjonov sagði við Interfax-
fréttastofuna í gær, að hann hefði
engar útskýringar fengið á ákvörð-
un Rodíonovs, sern hefði tjáð sér,
að ótilgreind viðskiptamál eiginkonu
sinnar væm ástæðan. Hún starfar
hjá rússneska þyrluframleiðandan-
um Rosvertol. Semjonov sagði þá
ástæðu, sem ráðuneytið tilgreindi,
ótæka með öllu. I samtali við blaðið
Ízvestía sagðist hann myndu leita
réttar síns fyrir dómstólum.
Semjonov var settur yfirmaður
landhersins í júlí sl. að tillögu Alex-
anders Lebeds, þáverandi yfirmanns
rússneska öryggisráðsins.
Ferðatæki m/geíslaspilara
AZ 8052
Casio-hljómborð
ML 2
HársnyrOr
HS 015
Uvarpsvekjaraklukka
RM 5080
Hárblásaii 1650 w
HP 4362
Supertech-vekiaraklukka
AC 2300
PHIUPS
SA0TO
Kr l&i.U^tU stgr
lafmagnsrakvél m/hleðslu
x HQ 4850
SÆTÚNI 8 SÍMI 569 1500
Umboðsmenn um land allt.