Morgunblaðið - 04.12.1996, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 1996 23
________________________________________LISTiR
Guðný Guðmundsdóttir og SÍ frumflylja Fiðlukonsert Brittens
„Við vitum
hvað við g‘etum“
GUÐNÝ Guðmundsdóttir fiðluleikari
og Sinfóníuhljómsveit íslands munu
flytja Fiðlukonsert Benjamins Britt-
ens í fyrsta sinn á tónleikum hér á
landi í Háskólabíói annað kvöld kl.
20.00. Ber flutninginn upp á tuttugu
ára dánarafmæli tónskáldsins, sem
andaðist 4. desember 1976. Á efnis-
skrá verða jafnframt Harmaforleik-
urinn eftir Brahms og Sjöunda sin-
fónía Beethovens, en við stjórnvölinn
verður Sidney Harth frá Bandaríkj-
unum.
Guðný segir það ekki koma á
óvart að Fiðlukonsert Brittens hafi
ekki í annan tíma prýtt efnisskrá
Sinfóníuhljómsveitar íslands. Urm-
ull af góðum tónverkum sé til, auk
þess sem hljómsveitin sé eina sinf-
óníuhljómsveitin í fullri stærð hér á
landi. „Fyrir vikið erum við ennþá
að frumflytja öndvegisverk frá þess-
ari öld. Þá þykir mér alltaf meira
gaman að spila og kynna verk sem
ekki eru sífellt í brennidepli."
Þegar Britten samdi konsertinn
árið 1939 voru blikur á lofti í heimin-
um. Borgarastyijöldin á Spáni hafði
haft djúpstæð áhrif á tónskáldið sem
var mikill friðarsinni og heimsstyij-
öldin síðari var á næstu grösum.
Segir Guðný þessa andrúms gæta í
tónsmíð hans. „Verkið er mjög djúpt
og fallegt og spænsku áhrifín eru
augljós, sérstaklega í fyrsta þættin-
um. Hröðustu og erfiðustu kaflarnir
eru um miðbik konsertsins en honum
lýkur á mjög hægum og harmónísk-
um þætti, sem er mjög óvenjulegt,
en mörgum konsertum iýkur með
miklum látum.“
Guðný kveðst í fyrsta sinn hafa
heyrt Fiðlukonsert Brittens fluttan í
útvarpi í Lundúnum fyrir um aldar-
fjórðungi og heillast þegar í stað. „Ég
heyrði hins vegar að verkið var ansi
erfitt, þannig að ég lagði það til hlið-
ar í huganum. Þegar ég fór síðan
að velta fyrir mér hvaða verk ég
ætti að flytja með Sinfóníuhljómsveit
íslands í vetur mundi ég eftir því.“
Gott svigrúm til æfinga
Guðný hefur haft gott svigrúm
til æfinga, þar sem tónleikarnir voru
settir á fyrir rúmu ári. Undirbjó hún
sig meðal annars með þeim hætti
að flytja konsertinn nokkrum sinn-
um á landsbyggðinni í haust við
undirleik Delana Thomson píanóleik-
ara.
22 ár eru síðan Guðný tók við
stöðu konsertmeistara Sinfóníu-
hljómsveitar íslands. Segir hún
margt hafa breyst á þeim tíma —
flest til batnaðar. „Hljómsveitin var
góð þegar ég gekk til liðs við hana
árið 1974 en er orðin miklu betri í
dag. Kröfurnar sem við gerum til
okkar eru mun meiri, enda vitum
við hvað við getum, svo sem við
höfum sannað á tónleikum á er-
lendri grundu. Það er í raun óhætt
að segja að allir leggist á eitt til að
vinna vel og ná árangri. Þá er liðs-
andinn í hljómsveitinni mjög góður
miðað við margar hljómsveitir sem
ég þekki til erlendis."
Að áliti Guðnýjar hefur tónlistar-
kennslu jafnframt fleygt fram á ís-
landi og margfalt fleiri tónlistar-
menn haldi nú utan til framhalds-
náms en áður. Það verði því æ erfið-
ara að komast að hjá Sinfóníuhljóm-
sveit íslands enda losni fáar stöður.
Samhliða starfi sínu sem konsert-
meistari og kennari við Tónlistar-
skólann í Reykjavík hefur Guðný
alla tíð verið afkastamikill einleik-
ari, ekki síst erlendis. Er hún til að
mynda nýkomin frá Hong Kong þar
sem hún flutti tvo konserta á tvenn-
um tónleikum. Þá hefur henni verið
boðið að leika Fiðlukonsert Brittens
í Puerto Rico í apríl á næsta ári.
„Það er nauðsynlegt fyrir konsert-
meistara, sem þarf alltaf að vera í
einleikaraformi, að fara sem víðast
og leika einleik. Með þeim hætti
víkkar hann sjóndeildarhringinn og
kemur ferskari til baka. Sama gildir
um hljómsveitina í heild sinni.“
í fremstu röð
Hljómsveitarstjórinn Sidney
Harth stjórnar nú tónleikum í fyrsta
sinn á Islandi. Hefur hann verið í
fremstu röð fíðluleikara í Bandaríkj-
unum í hartnær hálfa öld og meðal
annars verið konsertmeistari við
margar af fremstu hljómsveitum
landsins, svo sem fílharmóníuhljóm-
sveitirnar í New York og Los Angel-
es. Hin síðari ár hefur hann látið æ
meira til sín taka sem hljómsveitar-
stjóri og er nú við stjórnvölinn hjá
N atal-fílharmóníuhljómsveitinni í
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
GUÐNÝ Guðmundsdóttir segir að Sinfóníuhljómsveit íslands hafi
verið góð þegar hún gekk til liðs við hana árið 1974 — en í dag
sé hún mun betri.
Durban í Suður-Afríku, auk þess að
gegna prófessorsstöðu í fíðluleik við
Yale-háskóla.
Guðný lýkur lofsorði á Harth, sem
hún lagði mikla áherslu á að fá til
liðs við hljómsveitina fyrir þessa tón-
leika, en þau kenndu meðal annars
saman á námskeiði í Bandaríkjunum
fyrir fáeinum árum. „Svo vel vildi
til að hann var laus, en það getur
verið mikilvægt að hafa hljóm-
sveitarstjóra sem jafnframt er fiðlu-
leikari þegar maður er að flytja verk
á borð við Fiðlukonsert Brittens í
fyrsta sinn. Þar fyrir utan þekkja
fáir hljómsveitarstjórar verkið."
Eftir Johannes Brahms liggja
tveir forleikir, Háskólaforleikurinn
og Harmaforleikurinn. Voru þeir
báðir samdir árið 1880. Talið er að
sá síðamefndi hafi verið saminn í
tilefni af uppfærslu Burgtheater í
Vínarborg á Faust ertir Goethe og
þótti hann í fyrstu vera fremur óað-
gengilegt tónverk. Nú er öldin önnur
og Harmaforleikurinn álitinn einn
af merkustu forleikjum rómantíska
tímans.
Sinfóníuhljómsveit íslands hefur
tekið fá tónverk oftar upp á sína
arma en Sjöundu sinfóníu Ludwigs
van Beethovens sem hún leikur nú
í átjánda sinn á tónleikum. Verkið
hefur reyndar víðar fengið góðar
undirtektir, en ævisöguritari Beetho-
vens og náinn vinur, Anton Schindl-
er, sagði að frumflutningur þess
árið 1813 hafi verið „eitt af stærstu
augnablikum í lífi tónskáldsins,
augnablikið þar sem allir, að undan-
skildum fáeinum sérfróðum, voru
sammála um að honum skyldi veitt-
ur lárviðarsveigurinn".
Síðar hafa fjölmargir tónjöfrar
lýst skoðun sinni á sinfóníunni, eins
og Berlioz, sem sagði hana vera stór-
brotið tónaljóð sem óhugsandi væri
að fá leið á. Þá kallaði Wagner hana
„upphafningu dansins“. Segir sagan
að í hrifningu sinni yfír verkinu hafi
hann freistað þess að dansa það frá
upphafi til enda.
Höfunda-
smiðjan
heldur upp
á afmæli
ÞANN 5. desember næstkomandi
verða liðin 200 ár frá því að fyrsta
íslenska leikverkið var flutt á sviði.
Af því tilefni efnir Höfundasmiðjan
til dagskrár á „Leynibarnum" í kjall-
ara Borgarleikhússins. Þar munu
leikarar LR flytja örleikrit og brot
úr stærri verkum eftir nokkra félaga
Höfundasmiðjunnar.
Eftirtaldir höfundar koma við
sögu á fimmtudagskvöld; Anton
Helgi Jónsson, Ármann Guðmunds-
son, Benóný Ægisson, Bergljót Arn-
alds, Bragi Ólafsson, Elísabet Jök-
ulsdóttir, Ingibjörg Hjartardóttir,
Kristján Hreinsson, Jónína Leósdótt-
ir, Linda Vilhjálmsdóttir, Súsanna
Svavarsdóttir, Sævar Sigurgeirsson,
Valgeir Skagfjörð og Þorgeir
Tryggvason.
Hlín Agnarsdóttir hefur umsjón
með dagskránni, sem hefst kl. 20.30.
Aðgangseyrir er kr. 500.
-----»♦ ♦-----
Lesið úr
nýútkomnum
verkum
í KVÖLD, miðvikudagskvöld kl.
10.30-22, munu þau Kristján B.
Jónsson, Helgi Ingólfsson, Jóhanna
Kristjónsdóttir og Ólafur Gunnars-
son lesa úr nýútkomnum verkum
sínum hjá Ömmu í Réttarholti, Þing-
holtsstræti 5.
Blað allra landsmanna!
SW®r0iraii#Xsil>ih
- kjarni málsins!
Vandaður BALENO WAGON 4WD fyrir aðeins 1.580.000,-kr.
BALENO WAGON með framhjóladrifi aðeins 1.450.000,- hr.
MEÐ: aflmikilli 16 ventla vél • toppgrind • vindkljúf með
hemlaljósi • þjófavörn • hæðarstiliing á ökumannssæti •
öryggisloftpúðum fyrir ökumann og rarþega í framsæti •
vökvastýri • upphituðum framsætum • samlæsingum •
veltistýri • rafdrifnum rúðuvindum • rafstýrðum
útispeglum • tvískiptu aftursætisbaki • útvarpi/segulbandi
með 4 hátölurum • styrktarbitum í hurðum • skolsprautum
fyrir framljós • samlitum stuðurum.
Geturðu gert betri bílakaup?
SUZUKIBILAR HF
Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
Sími 568 51 00.