Morgunblaðið - 17.12.1996, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1996
i
i
i
I
I
I
I
I
I
AÐENDAR GREINAR
sem lagður var af útlendum þjálfur-
um þó svo tvö félaganna hafl skipt
um þjálfara. Við hjá SH hugsum
með hlýhug til þess Grettistaks sem
lyft var hér undanfarin fimm ár
af Klaus og leituðum því að manni
sem var fær um að taka við. Sá
er Breti, virðist skila sínu og við
erum ánægð, foreldrar og sund-
menn.
Undirtektir
Og þá kem ég að tilefni þessarar
greinar sem er OL 1996 og OL
2000. Guðmundur segir nefnilega
réttilega að undirbúningur fyrir
Atlanta hafi farið of seint af stað
og að ekki sé farið að meta það
sem þar gerðist.
Það er rétt en það er fleira.
Þegar þessi orð eru skrifuð hefur
ekki verið gert upp við sundmenn-
ina þrjá af hálfu Olympíunefndar.
Formaður Ólympíunefndar hefur
þó haldið öðru fram og jafnframt
lofaði hann því, á þingi ÍSÍ fyrir
framan m.a. formann SSÍ, að upp-
gjörið myndi eiga sér stað í nóvem-
ber. Nú á að fara að undirbúa OL
2000 og þá er fyrst horft á þre-
menningana sem fóru tii Atlanta
og stóðu sig vel miðað við þá
reynslu sem þar var að baki. Oll
settu þau fjölda íslandsmeta í að-
draganda leikanna þó svo þau
bættu sig ekki þar. Þau syntu líka
aðeins í einni grein hvert og það
var aldrei nema eitt tækifæri. Öll
stóðu þau sig vel miðað við það
sem á undan var gengið.
En eru ekki fleiri í sjónmáli? Ég
nefndi þessa tíu til fimmtán hér
að ofan. Á ekkert að horfa á það
fólk og skoða? Þar er á ferð efnivið-
ur sem á a.m.k. tvenna Ólympíu-
leika framundan, s.s. eins og Hall-
dóra Þorgeirsdóttir Ægi, nýkjörinn
Norðurlandameistari unglinga í
100 m bringusundi, eða Örn Amar-
son SH, sem var of ungur til að
fara á Norðurlandameistaramót
unglinga en fer á Evrópumeistara-
mótið í Rostock og keppir þar í
karlaflokki. Mun fleiri nöfn má
nefna. Þessa krakka þarf að und-
irbúa ef þau eiga að geta keppt í
úrslitum á ÓL. Þau þurfa að fá
hvatningu og að keppa á öllum EM
og HM þangað til árið 2000 rennur
upp. Þeir sem búa sunnan og norð-
an Reykjavíkur þurfa t.d. að fá
aðstöðu í lauginni hjá Guðmundi
eða Laugardalnum. Og nú reynir á
þjálfaragengi eins og Röggu og
Edda í Keflavík, þrælreynd og sam-
hent. En einnig á Brian og Þurí í
Firðinum, Arnór í Mosó, Magga á
Selfossi, Sillu á Skaganum og
Steindór í Njarðvík svo einhveijir
séu nefndir. Á þeim öllum hvílir
mikil ábyrgð.
Að lokum
Þá er það rétt hjá Guðmundi
að skólakerfið þarf að taka við sér
gagnvart þessum krökkum. Það
er snautlegt að afreksíþróttafólk
skuli ekki metið að verðleikum í
skólastarfi. Líklega er of mikið af
antisportistum í skólunum og það
er áhyggjuefni. Um flest annað í
grein hans er gott eitt að segja
og ég hvet forystuna hjá ÍSÍ, OL
og SSÍ til að lúslesa hana og fara
eftir, því eftir höfðinu dansa lim-
irnir. Þá helst sá góði skriður sem
sundið hefur nú náð framyfir árið
2000, en fer ekki aftur halloka
eins og það gerði í upphafi þessa
áratugar. Þegar allt kemur til alls
þá hefur raunverulegum árangri
verið náð á ný og það á eftir að
batna - nema við klúðrum því.
Því þarf ekki spurningarmerki fyr-
ir aftan fyrirsögn Guðmundar
heldur upphrópunarmerki: Á góð-
um skriði!
Höfundur er formaður Sundfélags
Hafnarfjarðar.
NÝTT NÝTT NÝTT NÝTT NÝTT i
£ r •> x | /1' <
hnrniiimkni H
J= ruiuui icii jnuii Z
FACF 3
£ STOCKHOLM
2 =l
t
£
=l
£ -<>
£ Férðvrí tr list §
Förðunarskóli FACE tekur =i
Þ til starfa þann 9. janúar '97.
Kynning verður á starfsemi 3
förðunarskólans í versluninni FACE, Kringlunni, dagana 20., 21. og
£ 22. desember nk. milli kl. 2-7. -C'
Bæklingar á staðnum. =i
t Allar nánari upplýsingar og skráning ;z:
£ ísíma 588 7677.
d
NÝTT NÝTT NÝTT NÝTT NÝTT|
SKIÐI, STAFIR, SKOR OG BINDINGAR
Allt í einum pakka sem sérfræðingar Skátabúðarinnar hafa valið í
eftir mismunandi þörfum hinna ýmsu aldurshópa.
Þú getur einnig valið í þinn eigin pakka og fengið 10% afslátt.
Fyrir litlu krakkana
Heildarverð 16.990 kr.
pakkaafsláttur 1.700 kr.
Pakkaverð 15.290 kr.*
Fyrir stóru krakkana
Heildarverð 21.060 kr.
lafsláttur 2.106 kr.
Pakkaverð 18.954 kr.*
Fyrir fullorðna fólkið
Heildarverð 25.100 kr.
lafsláttur 2.510 kr
Pakkaverð 22.590 kr.*
Gönguskíði
fyrir spræku krakkana
Heildartærð 13.445 kr.
pakkaafsláttur 1.345 kr.
Pakkaverð 12.100 kr.*
Gönguskíði
fyrir fullorðna fólkið
Heildarverð 18.595 kr.
lafsláttur 1.860 kr.
Þakkaverð 16.735 kr.*
Staðgreitt