Morgunblaðið - 17.12.1996, Síða 63

Morgunblaðið - 17.12.1996, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1996 63 FRETTIR ASKASLEIKIR. Askasleikir á Þjóðminjasafni GOMLU íslensku jólasveinarnir verið hefur undanfarin ár. Aska- koma í heimsókn einn af öðrum sleikir er sjötti og verður i safn- á Þjóðminjasafn íslands eins og inu í dag kl. 14. Selja merki í baráttu gegn vímuefnum Ur dagbók lögreglunnar í Reykjavík Yfirlit helgarinnar 13. - 16. des. Unglingsstúlka missti stjórn á samkvæminu FÉLAGIÐ Ungt fólk gegn vímu- efnum er að hefja sína árlegu söfn- un með sölu á barmmerkjum fé- lagsins og stendur hún frá 15.-30. desember. Sölumenn félagsins ganga í húys og verða fyrir framan helstu verslunarstaði á höfuðborgar- svæðinu. Fimmtán þeirra ökumanna, sem lögreglan þurfti að hafa afskipti af um helgina, _eru grunaðir um ölvunarakstur. í einu tilvikanna hafði ökumaður lent í umferðaró- happi áður en til hans náðist. Til- kynnt var um tæplega 40 önnur umferðaróhöpp og slys, 12 inn- brot, 11 þjófnaði, 12 eignaspjöll og 6 líkamsmeiðingar. Afskipti voru höfð af 37 einstaklingum vegna ölvunar og vista þurfti 50 í fangageymslunum, bæði vegna þess og af öðrum ástæðum. Sextán ökumenn voru kærðir fyrir of hrað- an akstur, 4 fyrir að aka gegn rauðu ljósi, 7 fyrir brot á stöðvun- arskyldu og 4 ökumenn, sem svipt- ir höfðu verið ökuréttindum, voru stöðvaðir og færðir á lögreglustöð. Þijátíu sinnum var kvartað yfir hávaða og ónæði að næturlagi, þ.a. 24 sinnum vegna hávaða innan dyra í sambýlishúsum. Fíkniefni komu við sögu í tveimur málum helgarinnar. A föstudagskvöld lögðu lög- reglumenn hald á 6 gr af amfet- amíni í íbúð við Hólmgarð. Einn var handtekinn. Aðfaranótt sunnu- dags fundust tvær E-töflur á manni, sem handtekinn var á Lækjartorgi eftir að hafa slegið mann. Þann þurfti að flytja á slysa- deild, en árásarmaðurinn var vi- staður í fangageymslunum. Nokk- uð var um að fólk meiddist er það féll í hálku. Miðborgin. Um 1.500 manns voru í miðborg- inni þegar flest var aðfaranótt laugardags. Gott veður var framan af kvöldi, en fólki fækkaði til muna þegar snjóa fór og hvessa. Lítil afskipti þurfti að hafa af fólki. Unglingar sáust ekki á svæðinu, hvorki þá nótt né aðfaranótt sunnu- dags. Þá voru um 1.800 manns þar þegar flest var. Kalt var í veðri og nokkur vindur. Fólk staldraði stutt við, enda voru pylsusölur lokaðar. Það er mat lögreglumanna að sú ráðstöfun hafi haft mikið að segja um tiltölulega gott ástand mála í miðborginni þessa helgi. Missti stjórn á samkvæminu Aðfaranótt laugardags aðstoð- uðu lögreglumenn unglingsstúlku við að ryðja heimili hennar, en hún var þar með samkvæmi, sem hún hafði misst tökin á. Fleiri höfðu gert sig heimakomna en búist hafði verið við. Enn á ný eru foreldrar hvattir til að skilja ekki börn sín eftir eftirlitslaus heima við slíkar aðstæður. Undir morgun þurfti að vísa 30 manns út úr samkvæmi í húsi við Miklubraut. Innbrot Tveir 16 ára piltar voru hand- teknir á Tjarnarstíg aðfaranótt sunnudags. Þeir höfðu farið inn í 12 bifreiðir á Seltjarnarnesi og auk þess grunaðir um að hafa brotið rúðu í leikskóla. Piltarnir voru færðir á lögreglustöð til yfir- heyrslu. Auk þessa var brotist inn í geymslu húss við Smyrilshóla, verslun við Amarbakka, bílskúr við Vífilsgötu, íbúð við Holtsgötu, bif- reiðir við Grenimel, Tryggvagötu, Hallveigarstíg, Grundarstíg og Ægisgötu og í skóla við Dalbraut. Tveir menn voru handteknir að- faranótt laugardags í Lönguhlíð eftir að sést hafði til þeirra vera að fara inn í bifreiðir við Skipholt. Fíkniefnaeftirlit Á síðustu tveimur mánuðum hafa lögreglumenn haft afskipti af 125 einstaklingum vegna fíkni- efnamála í 78 tilvikum. Þá hafa þeir og tekið þátt í 21 húsleit og framkvæmt 36 leitir í ökutækjum. I 38 tilvikum fundust fíkniefni og áhöld til neyslu þeirra. Það sem af er árinu hefur verið lagt hald á rúmlega 36 kg af hassi, tæplega 4 kg af marijuana, 216 gr af hassolíu. 115 gr af kannabis- fræjum, 1020 kannabisplöntur, um 6 kg af amfetamíni, 808 amfeta- míntöflur, 1.530 E-töflur, tæplega eitt kg af kókaíni og 261 LSD skammt, auk 2.502 stera, 5.540 lyfjataflna og rúmlega 6.000 stk. af sveppum. Vistanir í fangageymslu Á síðasta ári höfðu lögreglu- menn skv. dagbók afskipti af 4.961 einstaklingi vegna ölvunar eingöngu. Á þau tilvik voru ritaðar 1.590 skýrslur skv. kæruskrá. Þró- unin hefur sýnt að afskiptum lög- reglu af ölvuðu fólki hefur fækkað jafnt og þétt frá árinu 1990. Þá voru afskiptin alls 7.440 og fjöldi skýrslna varðandi þau mál var þá 2.645. Vistunum vegna ölvunar í fangageymslum lögreglunnar hef- ur jafnframt fækkað á undanförn- um árum í sama hlutfalli. Á árinu 1995 þurfti að vista þar 1.457 ein- staklinga vegna ölvunar, en þeir voru 3.160 árið 1990. Heildarfjöldi vistana í fangageymslunum árið 1990 var 5.526, en 3.329 árið 1995. Af aldursskiptingu heildarfjöld- ans, þ.e. af sérhverri ástæðu til vistunar, má sjá að 16 ára og yngri voru 152 talsins árið 1990, en þeir voru 102 talsins árið 1995. Börn undir 16 ára aldri hafa ekki verið vistuð í fangageymslum lög- reglunnar nema í algerum undan- tekningartilvikum og þá í skamm- an tíma undir eftirliti. Lög banna ekki vistun barna í fangageymsl- unum, en vinnureglur lögreglu kveða á um að það skuli ekki gert nema í neyðartilvikum. Lögreglan vekur athygli fólks á að fara varlega í meðferð flugelda og blysa um áramótin. Fólk er hvatt til að gæta hófs í áfengis- neyslu um jól og áramót. Jólapottur Hjálpræðis- hersins á Laugavegi 25 HIN árlega jólasöfnun Hjálpræðis- hersins á íslandi er hafin. Eins og undanfarna áratugi mun Hjálp- ræðisherinn leitast við að styðja og styrkja þá sem minna mega sín í þjóðfélaginu. Þeir sem eiga leið um Lauga- veginn nú fyrir jólin eiga þess kost að láta peninga af hendi rakna en söfnunarkassi Hjálpræð- ishersins „Jólapotturinn" er sem fyrr staðsettur fyrir framan leik- fangaverslunina Liverpool sem nú er á Laugavegi 25. Þeim fer sí- fellt fjölgandi sem til Hjálpræðis- hersins leita og þörfin nú er brýnni en áður, segir í frétt frá Hjálpræð- ishemum. -----♦ ♦ ♦-- Rætt um EES- samninginn og íslensk stjórnmál ALÞJÓÐAMÁLASTOFNUN Há- skólans og Félag stjómmálafræð- inga halda fund vegna útgáfu bók- arinnar Áfangi á Evrópuför, EES og íslensk stjórnmál. Bókin fjallar um stefnumótun flokkanna og af- stöðu þeirra til EES-samningsins en punkturinn er settur við árið 1994. Ólafur Stephensen, höfundur bókarinnar, mun kynna efni bók- arinnar og Árni Bergmann rit- stjóri ræðir um EES-málið og ís- land. Fundurinn verður haldinn í Odda, Háskóla íslands, stofu 101, á morgun, miðvikudag, og hefst kl. 17.15. ------» ♦ ♦----- Fyrirlestur um náttúrufar í Vermont FUNDUR verður haldinn í Félagi landfræðinga þriðjudaginn 17. desember og hefst hann kl. 20.30 í stofu 101 í Odda. Dr. Margaret G. Ottum mun í máli og myndum lýsa staðháttum, náttúrufari og menningu í Verm- ont-ríki í Bandaríkjunum. Vermont er eitt af smærri ríkj- um Bandaríkjanna, aðeins 25.000 ferkílómetrar og íbúar eru rúm- lega hálf milljón. Vermont fékk ríkisréttindi 1791 og er eitt af Nýja Englands ríkjunum og vin- sælt ferðamannaland. Dr. Ottum mun sérstaklega ræða umhverfis- og ferðamál í ríkinu. Félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka með sér gesti, allir velkomnir. Brettabíó í Norræna húsinu GLÆNÝ íslensk hjólabrettamynd verður frumsýnd í Norræna húsinu miðvikudagskvöldið 18. desember kl. 20.30 en myndin hefur verið í smíðum síðustu mánuði og einnig verða sýnd nýjustu snjóbretta- myndirnar frá X-treme video. íslenska rapphljómsveitin Qua- rashi tekur nokkur lög af nýút- komnum diski sínum „Switch- stance". Miðaverð er 300 kr. og miða- sala fer fram í Týnda hlekknum, Hafnarstræti 16 og KRÍM, Lauga- vegi 12. -----*—»—»----- Tónleikar á Gauknum ANNA Halldórsdóttir ásamt hljómsveit sinni og hljómsveitin Dead Sea Apple verða með tón- leika á Gauk á Stöng í kvöld, þriðjudagskvöldið 17. desember. Bæði Anna og Dead Sea Apple sendu frá sér geisladisk fyrir þessi jól og gefst fólki nú kostur á að hlýða á efni þessara hljómplatna. Anna Halldórsdóttir mun hefja tónleikana um kl. 22.30 og Dead Sea Apple mun svo taka við af henni og spila til lokunar. GENGIÐ frá fatnaði til Vilnius, Söfnuðu fatnaði handa bág'stöddum í Vilnius KIWANISFÉLAGAR úr tíu klúbbum Eddusvæðis stóðu fyrir fatasöfnun til handa bágstöddum í Vilnius í Litháen í lok nóvember- mánaðar. Ákveðið var að fara út í þetta sameiginlega verkefni þeg- ar fréttir bárust af ömurlegum fatabúnaði fanga í fangelsinu í Vilnius. Það var fráfarandi heimsforseti Kiwanishreyfingarinnar, Eyjólfur Sigurðsson, sem átti þess kost að skoða allar aðstæður í þessu fang- elsi og sjúkrahúsi þess fyrr í haust. „Þarna vantaði nánast allt til alls, hjúkrunaráhöld, hjúkrunar- vörur, legu- og aðgerðarrúm, ábreiður og fatnað. ... Heima- menn í Vilnius segja að úrbætur í málefnum fanga og margra ann- arra sem við þröngast kost búa séu ekki á forgangslista stjórn- valda,“ segir í fréttatilkynningu. Eins og fyrr segir vildu Kiwan- isfélagar á Eddusvæði leggja sitt af mörgum til hjálpar við þessar kringumstæður. Á nokkrum dög- um söfnuðust hátt í fjögur tonn af fatnaði sem nú hefur verið sendur út, áleiðis til Vilnius. í Vilnius munu kiwanisfélagar bú- settir þar taka við sendingunni og sjá um dreifingu hennar. Allur karlmanna- og hlífðarfatnaður fer til fangelsisins en annar fatnaður fer til bágstaddra í borginni. Það voru eftirtaldir klúbbar sem tóku þátt í þessari söfnun: Korri Ólafsvík, Kirkjufell Grund- arfirði, Smyrill Borgarnesi, Jöklar Borgarfirði, Þyrill Akranesi, Vífíll Reykjavík, Katla Reykjavík, Jörfi Reykjavík og Höfði Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.