Morgunblaðið - 20.02.1997, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
VERIÐ
Sveinn Sveinbjörnsson fiskifræðingnr
„Japansloðnan“
fór í bræðslu að
hluta til í sumar
FRYSTING loðnu á Japansmarkað
hefur gersamlega brugðist á þessari
vertíð, sökum mikillar smáloðnu í
afla. Miklar vonir voru bundnar við
vertíðina enda loðnustofninn sjaldan
verið stærri. Menn leita nú skýringa
á lágu hlutfalli stóru loðnunnar í
hrygningargöngunni og telja margir
að góð veiði á eldri árgöngum loðn-
unnar síðastliðið sumar hafi haft
áhrif á stærðarsamsetningu hennar
nú. Skiptar skoðanir eru þó um þetta
meðal loðnuskipstjóra.
Loðnuvertíðin síðasta sumar gekk
mjög vel, alls veiddust tæp 500 þús-
und tonn og fór loðnan að mestu í
bræðslu. Loðnan sem fékkst í sumar
þótti mjög væn og er það álit margra
að þar hafi verið veidd uppistaðan
af stóru ioðnunni sem menn vonuð-
ust til að fá í vetur og frysta á Jap-
ansmarkað. Ljóst er að hér hafa
menn orðið af miklum verðmætum.
Hluti fjögurra ára loðnunnar
veiddur í sumar
Sveinn Sveinbjörnsson, fiskifræð-
ingur á Hafrannsóknarstofnun, segir
að líklega hafi hluti af stóru loðn-
unni verið veiddur í sumar og farið
í bræðslu. Það sé ekki hægt að úti-
loka að þegar sumarveiðar gangi vel
sé loðnan sem gangi til hrygningar
heldur smærri. Sveinn segist hins-
vegar ekki hafa skoðað sýni frá því
í sumar með þetta atriði sérstaklega
í huga. „ Sumarveiðar hafa verið
mjög litlar síðustu ár. Ég hef ekki
skoðað samband á milli hlutfalls
stórrar loðnu í hrygningargöngu í
janúar og febrúar annarsvegar og
hversu miklar sumarveiðarnar hafa
verið hinsvegar. En loðnan sem
fékkst í sumar var stór og falleg að
sögn loðnuskipstjóra. Sjálfsagt hefur
þá verið veiddur hluti af þeirri loðnu
sem hefði skilað sér tii hrygningar
í vetur og þar af leiðandi er hún
ekki eins áberandi í aflanum núna
og þegar sumarveiðarnar hafa verið
minni,“ segir Sveinn.
Sveinn segir að hér sé um að
ræða hluta af íjögurra ára loðnu og
stærsta hlutann af þriggja ára loðn-
unni. „Uppistaðan í sumarveiðunum
er tveggja og þriggja ára loðna.
Loðnan er sögð eiga afmæli um ára-
mót þannig að núna er talað um
þessa loðnu sem þriggja og fjögurra
ára, sem hefur verið uppistaðan í
þeim afla sem vanalega er frystur á
Japansmarkað. Stærsta loðnan í
þessum árgöngum hefði því átt að
skila sér aftur inn á grunnið í byijun
febrúar," segir Sveinn.
Raddir hafa verið uppi um að
banna loðnuveiðar á ákveðnum tíma-
bilum til að hlutfall stórrar loðnu í
aflanum verði meira á þeim tíma sem
hún er hvað verðmætust. Sveinn
segir að þegar stofninn sé stór og
kvótaúthlutun leyfi miklar veiðar,
séu engin fiskifræðileg rök fyrir
veiðibanni. Stofninn sé sterkur og
hafi verið skynsamlega nýttur fram
að þessu. „Þar yrðu að iiggja fyrir
einhverskonar hagfræðileg rök.
Magn heilfrystrar hrygnu sem fer á
Japansmarkað er hlutfallslega mjög
lítið af heildarkvóta. Núna var geta
ráð fyrir að frysta um 40 þúsund
tonn á Japansmarkað en á sum-
arveiðunum voru veidd tæplega 800
þúsund tonn, þar af var langmestur
hlutinn veiddur af okkur íslending-
um. Hefði þessi loðna ekki verið
veidd í sumar þá hefði hún ekki
komið á land. Afkastageta flotans
og verksmiðja á þessum stutta tíma
eftir áramót, ræður ekki við þetta
magn. Því hefði þessi loðna að mest-
um hluta gengið sína hefðbundnu
slóð, hrygnt og síðan drepist," segir
Sveinn.
Vorveiðarnar gætu haft áhrif
„Það eru margar kenningar á lofti
þessa dagana," sagði Guðmundur
Sveinbjörnsson, skipstjóri á Sighvati
Bjarnasyni VE, þegar Morgunblaðið
innti hann álits. „Það getur verið
að sumarveiðarnar hafi haft einhver
áhrif á stærð hrygningarloðnunnar.
Loðnan sem fékkst norður í hafi í
sumar var væn og gæti þess vegna
hafa verið þessi fjögurra ára loðna
sem menn vilja fá meira af núna.
En það getur líka allt eins hafa ver-
ið hængur, því að á sumrin eru
hængurinn og hrygnan alveg eins.
Eins er það spurning hvort veiðar
við Snæfellsnes í fyrravor hafi haft
áhrif. Þá var veidd loðna sem lifði
af hrygninguna og er að koma fjög-
urra ára gömul upp í hrygningu
núna og er mjög væn. Það er vissu-
lega mjög litið hlutfall af loðnunni
sem lifír af hrygninguna, en það er
einnig mjög lítið af heildarveiðinni
sem er fryst á Japansmarkað, aðeins
um 30-40 þúsund tonn af milljón,"
sagði Guðmundur.
Loðnan gæti verið að aféta sig
„Ég fellst ekki á þá skýringu að
stóra loðnan hafi verið veidd í sum-
ar,“ segir Grétar Rögnvarsson, skip-
stjóri á Jóni Kjartanssyni SU. „Sum-
arið 1991 var góð loðnuveiði og þá
fékkst Iíka stór loðna. Loðnan sem
gekk upp að landinu þá um veturinn
var einnig mjög góð. Við fengum
mjög stóra og fallega loðnu vestur
á Hala í nóvember síðastliðnum,
þannig að hún hefur ekki klárast í
sumar. Auk þess fengum við stóra
loðnu í flottroll í Rósagarðinum í
janúar. Það er miklu sennilegri skýr-
ing að loðnan hafí blandast smærri
loðnu. Mér fínnst heldur ekki ólíkleg
sú skýring að loðnustofninn sé svo
mikið stærri en gert er ráð fyrir að
hann sé farinn að aféta sig,“ segir
Grétar. Grétar telur ekki rétt að
banna veiðar á ákveðnum árstímum
til að freista þess að fá stærri loðnu
í hrygningargönguna. „Við ættum
frekar að einbeita okkar að því að
klára þá kvóta sem við höfum. Það
stefnir allt í það að við brennum
inni með hann núna eins og fyrri
daginn," segir Grétar.
Mikið af loðnu
brætt á Eskifirði
ALLS hefur verið tekið á móti 40
þúsund tonnum af loðnu í bræðslu
hjá Hraðfrystihúsi Eskifjarðar frá
áramótum og þegar er búið að frysta
um 3.500 tonn, bæði á Rússlands-
og Japansmarkað.
Aðalsteinn Jónsson, forstjóri HE,
segir að þó að frystingin á Japans-
markað hafí farið fyrir ofan garð og
neðan á þessari vertíð, hafi það ekki
mjög mikil áhrif á rekstur fyrirtækis-
ins.
„Við bræðum þessa loðnu og verð á
mjöli og lýsi er mjög hagstætt þessa
dagana. Þannig að þetta er langt frá
því að vera tapaður peningur. Auk
þess höfum við fryst mikið af loðnu
á Rússlandsmarkað og það er ekki
mikill verðmunur á þeirri loðnu og
smáloðnunni sem Japanir kaupa. Það
hefur komið fyrir áður að loðnan
hefur verið smá á þessum tíma en
það kemur önnur vertíð á eftir þess-
ari. Þannig hefur það alltaf verið,“
segir Aðalsteinn.
Reuter
HUBBLE-sjónaukinn svífur upp úr viðgerðarlest
geimferjunnar Discovery í gærmorgun.
Hubble í
endumýj-
un lífdaga
Houston. Reuter.
GEIMFARAR á bandarísku
geimfeijunni Discovery luku í
gærmorgun endurbótum á
Hubble-stjörnusjónaukanum og
slepptu honum aftur á braut um
jörðu, 15 kílómetrum hærra en
hann var áður.
Endurbæturnar voru sagðar
hafa gengið að óskum en alls
voru geimfararnir utan ferjunn-
ar í 33 klukkustundir við að
skipta um og endurbæta tækja-
búnað sjónaukans. Kostnaður-
inn nemur 350 milljónum doll-
ara og er þá ekki tekið tillit til
kostnaðar við geimskot ferjunn-
ar.
Þar sem Hubble hefur gengið
í endurnýjun lífdaga á sjónauk-
inn að geta tekið mun betri
myndir af óravíddum geimsins
en áður. Bíða vísindamenn á
jörðu niðri spenntir eftir niður-
stöðunum. Við tekur stilling og
endurforritun tækjabúnaðarins
frá jörðu og er gert ráð fyrir
að sjónaukinn starfi með eðli-
Iegum hætti eftir 3-4 vikur.
Búist er við að fyrstu myndirnar
berist frá Hubble eftir um 10
vikur.
Gert var ráð fyrir fjórum
geimgöngum vegna endurbót-
anna á Hubble en þeirri fimmtu
varð að bæta við til þess að
gera við skemmdir á silfurhjúp
sjónaukans sem endurvarpar
sólarljósi og ver hann hita-
skemmdum. Til þess að ráða
fram úr því gripu geimfararnir
það sem hendi var næst; umbúð-
ir, rafmagnsvír og fallhlífar-
streng.
Næsta viðhaldsferð til Hubble
er ráðgerð eftir tvö ár og með
reglulegu viðhaldi er búist við
að sjónaukinn verði í fullri notk-
un a.m.k. til ársins 2005. Disco-
very er væntanleg til jarðar á
morgun, föstudag, og mun
lenda í myrkri í Flórída.
Norska dómsmálaráðuneytið
Innlimun Schengen í
ESB ekki vandamál
NORSKA dómsmálaráðuneytið er
hlynnt því að halda áfram vega-
bréfasamstarfi við aðildarríki
Schengen-samkomulagsins þótt svo
fari að það verði innlimað í stofn-
sáttmála Evrópusambandsins.
Aftenposten hefur eftir Oystein
Mæland, aðstoðarráðherra í dóms-
málaráðuneytinu, að Noregur hafi
hagsmuni af samstarfi við ESB um
sameiginlegt landamæraeftirlit og
baráttu gegn glæpum. Þetta eigi
við burtséð frá því hvort núverandi
milliríkjasamstarf í Schengen flytj-
ist á vettvang ESB og ekki skipti
heldur öllu máli í hvaða formi sam-
starfíð verði innlimað í sambandið.
Ummæli Mælands þykja til
marks um öllu jákvæðari afstöðu
en fram hefur komið hjá Bjorn
Tore Godal utanríkisráðherra, sem
hefur sagt að yrði Schengen inn-
limað í ESB myndi það hafa í för
með sér vandamál og hugsanlega
breyta afstöðu Noregs til sam-
starfsins.
Aftenposten hefur eftir diplómöt-
um i Brussel að það verði æ lík-
legra að Sehengen-samkomulagið
verði hluti af stofnsáttmála ESB,
þótt enn séu ýmis ljón í veginum.
Fari svo, sé fullur vilji til að halda
áfram samstarfi við Island og Nor-
eg.
Boðin samvinna
við Europol
Frá því var greint í Stavanger
Aftenblad fyrir skömmu að Noregi
hefði verið boðið samstarf við |
Europol, Iögreglusamvinnustofnun .
Evrópu, í tengslum við væntanlega '
aðild að Schengen-samkomulaginu. í
Blaðið hefur eftir Willy Bruggeman,
næstráðanda í höfuðstöðvum
Europol í Haag, að ESB geti ekki
barizt gegn skipulagðri glæpastarf-
semi í Norður-Évrópu án samstarfs
við Noreg. Búast megi við að norsku
lögreglunni verði boðið að hafa
tengiliði í höfuðstöðvum stofnunar-
innar og vinna með starfsliði Europ- |
ol í ákveðnum málum.
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð-
herra segir að aðild íslands að p
Schengen muni hafa í för með sér
einhvers konar lögreglusamvinnu
við aðildarríki ESB, en ekki hafi
verið ákveðið í hvaða formi hún
verði. Hann segir að samstarf við
Europol sé einn þeirra kosta, sem
þurfí að skoða, en ennþá hafi ekk-
ert verið ákveðið í þeim efnum.
Samþykkja vítur á fram-
kvæmdastjómina og Breta
Strassborg. Reuter.
ÞRIR framkvæmdastjórnarmenn
Evrópusambandsins, þau Emma
Boninon, sem fer m.a. með neyt-
endamál, Jacques Santer forseti
framkvæmdasljórnannnar og
Franz Fischler, sem fer með
landbúnaðarmál, silja undir
skömmum þingmanna á Evrópu-
þinginu í fyrradag. Þingið sam-
þykkti í gær vítur á fram-
kvæmdastjórnina og brezk
stjórnvöld fyrir meðferð þeirra
á kúariðumálinu með 422 at-
kvæðum gegn 49, en 48 þing-
menn sátu hjá.
í þingsályktuninni, sem hlaut
samþykki, gagnrýnir þingið
„framkomul brezku ríkisstjórn-
arinnar og meðferð hennar á
kúariðumálinu og harmar að
landbúnaðarráðherra Bretlands
hafi neitað að bera vitni fyrir
[þing]nefndinni.“
Jafnframt er skorað á fram-
kvæmdastjórnina að grípa þegar
í stað til aðgerða til að tryggja
að neytendum stafi ekki ógn af
sjúkdómum á borð við kúariðu.
Ella er framkvæmdasljórninni
hótað vantrausti, sem hefði í för
með sér að hún yrði að segja af
sér í heilu lagi.
Bundnar eru vonir við væntan-
legar aðgerðir framkvæmda-
stjórnarinnar í heilbrigðismál-
um, sem Bonino á að stýra. Land-
búnaðardeild framkvæmda-
stjórnarinnar, sem Fischler stýr-
ir, þykir hins vegar hafa farið
illa út úr kúariðumálinu.
í
I
\
I
í
i