Morgunblaðið - 22.03.1997, Page 4
4 LAUGARDAGUR 22. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Endurnýjun skipa-
kosts Gæslunnar
Deila Jökuldæla og Skútustaðahrepps um lögsögumörk undir Vatnajökli
Jökuldælir hafna miðlun-
artillögu um hreppamörk
HREPPSNEFND Jökuldalshrepps
hefur hafnað miðlunartillögu sem
starfshópur um stjórnsýslumörk á
miðhálendinu gerði í deilu Jökul-
dæla og hreppsnefndar Skútu-
staðahrepps um mörk hreppanna,
sem jafnframt eru mörk milli Norð-
ur-Múlasýslu og Suður-Þingeyjar-
sýslu.
Hreppana hefur m.a. greint á
um til hvors sveitarfélagsins há-
hitasvæðið í Kverkfjöllum kunni að
teljast og einnig mannvirki, ferða-
mannaskálar og flugbraut á svæð-
inu.
Ágreiningurinn kom upp í fyrra-
sumar þegar Skútustaðahreppur
óskaði viðræðna við Jökuldæli um
málið. Mývetningar vildu draga
línu milli sveitarfélaganna frá Fossi
í Svartá að austurbrún Kverkfjalla
en Jökuldælir vilja að mörkin fylgi
Jökulsá á Fjöllum.
Tillaga frá fulltrúum
beggja sveitarfélaga
Á fundi viðræðunefnda sveit-
arfélaganna vegna málsins í ágúst
sl. varð til málamiðlunartillaga,
sem fulltrúar beggja sveitarfélag-
anna stóðu að og felur í sér að
hinu umdeilda svæði yrði skipt svo
að segja í tvennt en meirihluti
hreppsnefndar Jökuldalshrepps
hafnaði þeirri tillögu.
í framhaldi af því var málinu
skotið til starfshóps um stjómsýslu-
mörk á miðhálendinu og sá hópur
gerði miðlunartillögu þar sem lagt
er til að miðað verði við málam-
iðlunartillöguna sem Jökuldælir
felldu með þeirri breytingu að Sig-
urðarskáli, flugbraut og næsta
svæði tilheyri Jökuldalshreppi.
Hreppsnefnd Jökuldalshrepps
felldi þá tillögu á hreppsnefndar-
fundi í vikunni og sagði Ingimar
Sigurðsson í samtali við Morgun-
blaðið að starfshópurinn mundi
hittast fljótlega eftir páska og ræða
málið en hópnum hafi enn ekki
borist afstaða Skútustaðahrepps til
málsins.
Ingimar sagði að verkefni starfs-
hópsins væri að leiða sveitarfélög
saman til að ná niðurstöðu en hóp-
urinn hefði ekki úrskurðarvald.
Hann sagði að 20-30 ágreinings-
efni um stjórnsýslumörk á miðhá-
lendinu hefðu komið á borð starfs-
hópsins. Flest hefðu leyst strax og
nokkur á grundvelli miðlunartil-
lögu. Nú hefði náðst niðurstaða í
öllum málunum nema þessu og
máli um stjórnsýslumörk Þórs-
merkur en hann kvaðst bjartsýnn
á að lausn fyndist á Þórsmerkur-
málinu. „Það væri slæmt ef þetta
yrði eina málið sem eftir stæði
þegar við ljúkum störfum," sagði
hann.
Þar sem einnig er um sýslumörk
að ræða hefur Héraðsnefnd Norð-
ur-Múlasýslu látið málið til sín taka
og ritað starfshópnum bréf þar sem
segir að engin haldbær rök hafi
verið lögð fram af hálfu S-Þingey-
inga um að rétt sé að stjórnsýslu-
lína skeri Kverkfjöll. Nefndin legg-
ur til að starfshópurinn dragi tillög-
ur sínar til baka og leggur til að
náttúruleg landamerki ráði, þ.e.
Jökulsá á Fjöllum. „Héraðsnefndin
kannast ekki við að neinn ágrein-
ingur hafi verið um það frá fomu
fari að Kverkfjöll tilheyri N-Múl
og átelur að nú skuli eiga með
(b)einu pennastriki eða á annan
hátt að flytja þau að hluta hreppa-
flutningum í aðra sýslu,“ segir í
bréfí hreppsnefndarinnar en eins
og meðfylgjandi kort ber með sér
gerir miðlunartillagan ráð fyrir því
að bein lína úr Svartá að Kverkfjöll-
um verði sveigð fram hjá mann-
virkjunum á svæðinu þannig að þau
falli Jökuldalsmegin.
Náist ekki sættir í málinu gæti
það komið til kasta dómstóla en
félagsmálaráðherra hefur, að sögn
Ingimars Sigurðssonar, nýlega
kynnt í ríkisstjórn frumvarp til
breytinga á sveitarstjórnarlögum
um úrskurðarnefnd sem skorið geti
úr ágreiningi af þessu tagi á stjórn-
sýslustigi.
ffluti
verks-
ins verði
unninn hér
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á
fundi sínum í gær tillögu Þorsteins
Pálssonar dóms- og kirkjumálaráð-
herra um að hafist verði handa við
að undirbúa hönnun og útboð á
smíði nýs varðskips fyrir Landhelg-
isgæsluna.
Ráðherra lagði tillöguna fram í
ríkisstjórn sl. þriðjudag um leið og
hann kynnti nýútkomna skýrslu
nefndar sem gert hefur heildarút-
tekt á skiparekstri Landhelgisgæsl-
unnar og tillögur um endurnýjun
skipakosts hennar. Gert er ráð fyr-
ir að smíði nýs varðskips kosti um
tvo milljarða króna.
Einhugur í ríkisstjórn
Einhugur er í ríkisstjórninni um
málið, að sögn Þorsteins. „Byrjað
verður á því að undirbúa smíðalýs-
ingu, sem er forsenda fyrir hönnun,
og gera tímaáætlun fyrir framgang
verksins. Síðan verður athugað
nánar áður en kemur að útboðinu
hvort unnt verður að tryggja að
einhver hluti verksins verði unninn
hér heima eða jafnvel allt. Verkið
er hins vegar af þeirri stærðargráðu
að það verður að bjóða það út á
Evrópska efnahagssvæðinu.“
Ráðherrann segir þetta mikil-
væga ákvörðun og stórt skref hvað
varðar uppbyggingu á skipakosti
Landhelgisgæslunnar. „Nú er búið
að endumýja þyrlukostinn mjög
myndarlega og nú hefur verið
ákveðið að stíga þetta skref, enda
æmar ástæður til þess,“ segir Þor-
steinn.
Víkartindur
Losun farms
undirbúin
BÚIÐ var að dæla um 200 tonnum
af svartolíu úr Víkartindi í gær og
lýkur losun olíu úr skipinu á sunnu-
dag. Sjö Bandaríkjamenn frá alþjóð-
legu björgunarfélagi Titan voru á
strandstað í gær, en eigendur Víkar-
tinds hafa samið við félagið um losun
á vömm úr skipinu.
Alls var 251 gámur í skipinu. 80
gámar hafa fallið útbyrðis og er því
171 gámur um borð. Þar af er vara
talin ‘mikið skemmd eða ónýt í 48.
123 gámar virðast heillegir og þurr-
ir. Stefnt er að því að losun gáma
hefjist á miðvikudag. Kranar skipsins
verða notaðir við verkið en áður þarf
að koma þeim í lóðrétta stöðu þar
sem skipið hallar mikið.
Morgunblaðið/Golli
Páska-
fríið
byijað
BÖRNIN í Fossvogsskóla eru
komin í páskafrí rétt eins og
allir aðrir grunnskólanemend-
ur landsins. Við það tækifæri
er vel við hæfi að gera sér
glaðan dag með skólafélögun-
um. í Fossvogsskóla var af
þessu tilefni haldið veglegt
furðufataball. Þangað komu
nemendur í ýmsum gervum og
mátti sjá indíána, trúða og
fleiri fígúrur.
Hollustuvernd ríkisins
um ástandið við Miklubraut
Hávaði o g loft-
mengun yfir við-
miðunarmörkum
HOLLUSTUVERND ríkisins hefur
komist að þeirri niðurstöðu í grein-
argerð um loftmengun og hávaða
við Miklubraut í Reykjavík að há-
vaði og styrkur köfnunarefnisdíox-
íðs séu yfir viðmiðunarmörkum og
að stjórnvöld hafi ekki staðið við
skuldbindingar um upplýsingagjöf
og aðgerðaráætlanir.
Umhverfisráðuneytið óskaði um-
sagnar Hollustuvemdar vegna er-
indis Guðlaugs Lárussonar, íbúa við
Miklubraut 13, sem telur að mengun
við heimili hans ógni heilsufari sínu.
Leggur Hollustuvernd til að þegar
verði sett fram áætlun um að draga
úr þessari mengun.
„Þetta er áfellisdómur yfír yfír-
völdum og nú er bara að framfylgja
honum með dómstólum ef borgaryf-
irvöld sjá ekki að sér. Þau geta
ekki annað, geta ekki setið undir
þessari niðurstöðu Hollustuvemdar
og nú verða þau að taka hendur
úr vösum,“ sagði Guðlaugur Lárus-
son sem hefur lengi átt við ýmsa
sjúkdóma að stríða og greindist á
liðnu hausti með húðkrabbamein.
Rekur hann það beint til afleiðinga
mengunar svo og öndunarfærasjúk-
dóm sinn.
Guðlaugur sagði 261 íbúa á svæð-
inu þar sem mengun væri yfir
hættumörkum. Staðhæfði hann að
á næstu 5 til 7 árum myndi stór
hópur þeirra vera kominn til með-
ferðar á sjúkrahúsi vegna krabba-
meins. Til viðmiðunar sagði hann
að rætt hefði verið um að mengun
frá álveri Colombia við Grundar-
tanga væri álíka mikil og frá 20
þúsund bílum en um Miklubraut
fara 40 þúsund bílar á dag. „Það
er því eins og hér í götunni séu tvo
álver,“ sagði Guðlaugur.
Ekki staðið við
skuldbindingar
Auk þess sem Hollustuvernd seg-
ir loftmengun og hávaða vera yfk
viðmiðunarmörkum segir hún j
greinargerð sinni að stjórnvöld hafi
hvorki staðið við skuldbindingar sín-
ar um upplýsingagjöf vegna loft-
mengunar né aðgerðaráætlanir og
leggur hún til að stofnunin ásamt
Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur sinni
umhverfísvöktun við Miklubraut í
samræmi við alþjóðlegar skuldbind-
ingar og að þegar í stað verði séð
til þess með tímasettri áætlun að
minnka verulega loft- og hávaða-
mengun á þessu svæði. Meðal að-
gerða sem stofnunin leggur til er
að þungaumferð verði takmörkuð,
ökuhraði lækkaður, hljóðtálmar
byggðir og umferðarskipulagi
breytt.