Morgunblaðið - 22.03.1997, Page 17

Morgunblaðið - 22.03.1997, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARZ 1997 17 URVERIMU Alexander Abramov, forsljóri IJTRF í Kamtsjatka Möguleikar á áframhaldandi samstarfi við IS ALEXANDER Abramov, fram- kvæmdastj óri sj ávarútvegsfyrir- tækisins UTRF á Kamtsjatka á Rússlandi, segir breytt efnahags- lög í Rússlandi vera meginástæðu þess að fyrirtækið sagði fyrirvara- laust upg samstarfssamningi sín- um við íslenskar sjávarafurðir í vikunni. Hann segir að breyta verði ýmsum forsendum sam- starfsins eigi það að halda áfram. Þá segir Abramov að komið hafi upp hegðunarvandamál hjá ein- stökum starfsmönnum ÍS í Rúss- landi. í samtali við Morgunblaðið vildi Abramov ekki útlista nánar þær lagabreytingar sem um væri að ræða, en sagði þær einkum snúa að nýjum lögum um gjaldeyrisvið- skipti í Rússlandi. Hann sagði að vissulega hefði komið upp ágrein- ingsatriði í samstarfi fyrirtækj- anna tveggja en þau hefði ekki orðið til þess að upp úr samstarf- inu slitnaði enda hafi þeim farið fækkandi síðustu misseri. Samstarf á grundvelli rússneskra laga Hverjir eru möguleikar á áfram- haldandi samstarfi UTRF við ÍS? „Við erum tilbúnir að halda áfram samstarfi við ÍS en á grund- velli rússneskra laga. Allir samn- ingar sem gerðir hafa verið á milli fyrirtækjanna kveða á um að allur ágreiningur sem upp kann að koma verði leystur samkvæmt þýskum lögum. Þetta er í raun fáránlegt, en kannski má segja að okkur hafi yfirsést þetta atriði samnings- ins og sökin liggi því okkar megin. Islendingar hafa sín eigin lög, Rússar hafa sín en einhverra hluta vegna verðum við að leysa deilu- mál okkar samkvæmt þýskum lög- um.“ ítrekuð drykkjulæti Ennfremur sagði Abramov að kvartað hefði verið vegna hegðun- ar einstakra starfsmanna IS á Kamtsjatka. „Til dæmis bað lög- reglan mig að eiga orð við íslend- ingana vegna þess að þeir stóðu ítrekað fyrir drykkjulátum um miðjar nætur. Auk þess voru nokkrir þeirra staðnir að ölvun við akstur. En það hafði ekkert að segja um samstarf okkar við ÍS. Það var gott að mörgu leyti. Ég vil að það komi skýrt fram að við höfum ekkert við IS að sakast og viljum alls ekki varpa neinum skugga á þeirra starfsemi. Öll vandamál sem upp hafa komið stafa af breytingum á rússneskri löggjöf. Hvað varðar hegðunar- vandamál einstakra starfsmanna vil ég segja að slík vandamál eru alltaf til staðar,“ sagði Abramov. Misstu tvo togara UTRF missti tvo togara sína á síðasta ári vegna skulda en Abramov segir að það hafi ekki haft nein áhrif á samstarf fyrir- tælganna. „Ég tek það skýrt fram að IS hafi ekkert með það að gera að við misstum þessi skip. Það var alfarið á ábyrgð UTRF. Báðir tog- ararnir voru smíðaðir í Kristian- sund í Noregi og áttum við að greiða um 2 milljónir dollara ár- lega fyrir hvort skip um sig. En þar sem rekstur togaranna gekk ekki nógu vel gátum við ekki greitt þessar upphæðir. Af þeim sökum voru togararnir kyrrsettir þar sem þeir voru í viðgerð í Kína. IS átti þar engan þátt að máli, þvert á móti gerðu þeir allt sem í valdi þeirra stóð til að halda skipunum,“ sagði Alexander Abramov. Fiskistofa úthlut- ar síldveiðileyfum Umsóknarfrestur til 10. apríl ÞORSTEINN Pálsson, sjávarút- vegsráðherra, hefur gefið út reglu- gerð um stjóm veiða úr norsk- íslenska síldarstofninum fyrir árið 1997. Veiðarnar verða háðar sér- stöku leyfi Fiskistofu og skal að- eins veita þeim skipum leyfi sem hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni í fiskveiðilandhelgi Islands. Missi skip leyfi til veiða í atvinnuskyni innan lögsögunnar, fellur jafn- framt úr gildi leyfi þess til síld- veiða. Umsóknarfrestur um leyfi til síldveiða er til 10. apríl, en heim- ilt er að hefja veiðarnar 3. maí. Leyfin taka til veiða á síld í lög- sögu íslands, Færeyja, Jan Mayen pg á alþjóðlega hafsvæðinu milli íslands og Noregs. Þá er heimilt að veiða allt að tíu þús. lestir af síld innan lögsögu Noregs. Aðeins er heimilt að stunda síldveiðar með nót í lögsögu Færeyja. íslendingar fá 233 þús. lestir Þeim skipum, sem fá leyfi til síldveiða, er heimilt að veiða 233 þúsund lestir af síld úr norsk- íslenska síldarstofninum. Þegar Fiskistofa áætlar að leyfilegt heildarveiðimagn sé að nást fellir hún öll leyfi til síldveiða úr gildi með tilkynningu í útvarpi eða til strandstöðva. Veiðar eftir að leyfi eru felld úr gildi varða viðurlögum auk upptöku andvirðis ólögmæts afla. Skipstjórum síldarskipa er skylt að tilkynna til Fiskistofu um áætl- að aflamagn um leið og skip held- ur til lands með síldarafla og enn- fremur um löndunarstað, hvenær skipið kemur að landi og hvar afl- inn er fenginn. Þá skal skipstjóri kl. 8-10 að morgni tilkynna til Fiskistofu um staðsetningu skips og komi þar fram hvort skipið er á leið á miðin eða í höfn eða sé á miðunum. Sömuleiðis skal tilkynna um aflamagn um borð sé skip á landleið eða á miðunum. Óheimilt er að landa óvigtuðum afla um borð í flutningaskip eða önnur veiðiskip. Heimilt er þó skip- um, sem leyfi hafa til síldveiða og slíkar veiðar stunda að miðla afla milli sín í því skyni að koma í veg fyrir að síld sé sleppt dauðri úr nótum. ERLENT Tóbaksfyrirtæki viðurkennir skaðsemi reykinga Mikið áfall fyrir tóbaksiðnaðinn New York, London. Reuter. SÚ ÁKVÖRÐUN bandaríska tób- aksfyrirtækisins Liggett Group að viðurkenna að sígarettur séu vana- bindandi og geti valdið krabba- meini mun hafa víðtækar afleiðing- ar fyrir tóbaksiðnaðinn í Banda- ríkjunum ogEvrópu, að sögn lag- asérfræðinga í gær. Ligget Group undirritaði í fyrra- kvöld samning við 22 ríki Banda- ríkjanna, sem hafa höfðað mál gegn tóbaksfyrirtækjunum og krafist þess að þau greiði milljarða dala vegna kostnaðar ríkjanna af sjúkdómum, sem raktir eru til reykinga. Samningurinn er mikið áfall fyrir bandarísku tóbaksfyrir- tækin sem eyða 375 milljónum dala, jafnvirði rúmra 26 milljarða króna, á ári í málaferlin. Ligget Group er fyrsta tóbaks- fyrirtækið sem fellst á slíkan samning og það skuldbatt sig til að greiða ríkjunum 15,5 milljónir dala, rúman milljarð króna, og 2,5% af hagnaði sínum fyrir skatta næstu 25 árin. Fyrirtækið Iofaði ennfremur að setja viðvörun á vindlingapakkana um að nikótín sé vanabindandi. Það samþykkti að afhenda lögfræðingum ríkjanna þúsundir gagna, sem gætu komið tóbaksfyrirtækjunum í vanda í málaferlunum, og aðstoða við túlk- un þeirra. Þá hyggst forstjóri fyrir- tækisins lýsa því yfir opinberlega að sígarettur séu vanabindandi og að við markaðssetninguna hafi tób- aksfyrirtækin lagt sig í framkróka við að ná til unglinga, allt niður að 14 ára aldri. „Upphafið að endinum á lygasamsærinu“ Grant Woods, æðsti lögfræði- legi embættismaður Arizona, sagði að samningurinn væri „upp- hafið að endinum á þessu lyga- samsæri gegn hinu opinbera af hálfu bandarísku tóbaksfyrirtækj- anna“. Fyrirtækin hafa neitað öll- um ásökunum um að þau hafi vit- að um skaðsemi reykinga og for- stjórar stærstu fyrirtækjanna héldu því fram við yfirheyrslur á Bandaríkjaþingi að nikótín væri ekki vanabindandi. Tóbaksfyrirtækin hafa tryggt bráðabirgðalögbann, sem hindrar að Ligget geti lagt fram gögn sem fyrirtækið á með öðrum. Nokkur fyrirtækjanna, þeirra á meðal BAT og Philip Morris, hafa gefið út varfæmar yfirlýsingar um að þau hyggist íhuga tilboð um samninga við ríkin. Sýnir „mátt lögfræðinganna" Læknar, sem fréttastofan Reut- er hafði samband við í London, sögðust hafa vitað árum saman að reykingar gætu valdið krabba- meini og hjartasjúkdómum og nik- Reuter VEGGSPJALD í herferð gegn reykingum í Hollandi. Ný rannsókn hefur leitt í ljós að hlutfall hollenskra táninga sem reykja sé nú 25% og hafi aukist úr 19,5% á fimm árum. ótín sé jafn vanabindandi og heró- ín eða kókaín. Breski lögfræðingurinn Martyn Day sagði að samningur Liggett gæti valdið flóðbylgju nýrra mála- ferla gegn tóbaksfyrirtækjunum. Day-er lögfræðingur 23 Breta sem hafa fengið lungnakrabbamein og höfðað mál gegn tveimur tóbaks- fyrirtækjum. „Tóbaksfyrirtækin beggja vegna Atlantshafsins hafa á yfir- borðinu neitað að viðurkenna að tóbak sé skaðlegt og vanabind- andi,“ sagði Day. „Sú staðreynd að Liggett viðurkennir nú opinber- lega að þetta sé ekki rétt breytir miklu fyrir okkur í þessu máli.“ Gæti greitt fyrir málshöfðunum einstaklinga Julian Fulbrook, lagasérfræðing- ur við London School of Ec- onomics, sagði að samningur Lig- get markaði tímamót og gæti greitt fyrir því að einstaklingar höfðuðu mál gegn tóbaksfýrirtækjunum í Bandaríkjunum, ekki aðeins ríkin. SIGARETTUREYKINGAR I HEIMINUM Fimmti stærsti tóbaksframleiðandi Bandaríkjanna, Liggett Group, viðurkenndi á fimmtudag að reykingar væru ávanabindandi Rúmlega 850 milljónir reykingamanna reykja 5,4 billjónir vindlinga á ári, eða 19 á dag, samkvæmt nýlegri markaðsrannsókn. Miðausturlönd 172,8 Asíu- og Kyrrahafslönd 2.770,2 Sígarettusala eftir heims- hlutum árið 1995 (í milljörðum) Austur-Evrópa 702 Aætluð meðalvindlinga- neysla fullorðinna eftir heimshlutum 1994 Asía 1.308 Austur-Evrópa 2.064 Norður-Ameríka 2.354 Vestur-Evrópa 1.966 Skattará tóbak nema sem svarar 9.100 milljörðum króna á ári og eru rúm 3% af öllum sköttum í heiminum Heimild: Samlök tóbaksframleiöenda (TMA) og World Tobacco Forystumaður repúblikana í vanda Krafðist kosningaframlags Washington. Reuter. BANDARÍSKUR fulltrúi pakist- önsku ríkisstjórnarinnar kvartaði undan því síðasta sumar að repú- blikaninn Dan Burton, sem nú veit- ir forystu rannsókn fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á söfnunaraðferð- um demókrata fyrir síðustu kosn- ingar, hefði reynt að knýja sig til að reiða fram kosningaframlög. Bandaríska dagblaðið The Wash- ington Post hafði í gær eftir fulltrú- anum, Mark Siegel, að Burton hefði komið að máli við sig snemma á liðnu ári og beðið sig um að láta „að minnsta kosti fimm þúsund dollara" (um 350 þúsund krónur) af hendi rakna til baráttu þing- mannsins fyrir endurkjöri. Þegar Siegel hefði ekki getað orðið við þessari ósk hefði Burton haft samband við þáverandi sendi- herra Pakistans í Washington og kvartað. Síðar hefði þingmaðurinn hótað að tryggja það að enginn af hans vinum eða starfssystkinum veittu Siegel og samstarfsmönnum hans fyrirgreiðslu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.