Morgunblaðið - 22.03.1997, Page 18
18 LAUGARDAGUR 22. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Sali Berisha. Hann ætlar ekki
að segja af sér.
Krafan
um afsögn
Berisha
ítrekuð
Tirana. Reuter.
LEIÐTOGAR uppreisnarmanna í
suðurhluta Albaníu komu saman í
gær og ítrekuðu þá kröfu sína að
Sali Berish forseti segði af sér.
Þeir létu þó ekki verða af þeirri
hótun sinni að stofna forsætisráð,
sem tæki við völdum forsetans í
suðurhlutanum.
Fulltrúar 14 bæja, sem eru á
valdi uppreisnarmanna, komu sam-
an í bænum Tepelene eftir að frest-
ur, sem þeir gáfu Berisha til að
segja af sér, rann út. Forsetinn virti
frestinn að vettugi og segist ekki
segja af sér nema flokkur sinn,
Lýðræðisflokkurinn, bíði ósigur í
þingkosningunum í júní.
Bjóðast til að starfa með
þjóðsljórninni
Uppreisnarmennirnir sögðust
reiðubúnir að starfa með nýju þjóð-
stjórninni, sem á að stjórna landinu
fram yfir kosningarnar. Þeir sögð-
ust vilja taka virkan þátt í stjórn-
málaumræðunni í landinu og kröfð-
ust þess að þjóðstjómin gerði ráð-
stafanir til þess að forsetinn gæti
ekki misnotað stofnanir, svo sem
fjölmiðla ríkisins og leyniþjón-
ustuna Shik.
Baskhim Fino forsætisráðherra
hefur lagt drög að fmmvarpi um
umbætur á leyniþjónustunni, en
Lýðræðisflokkurinn gæti hindrað
samþykkt þess. Flokkurinn er með
122 þingsæti af 140 eftir kosning-
arnar í maí sem stjórnarandstaðan
sniðgekk.
Merkur sigur stjórnarandstöðunnar í kosningunum í E1 Salvador i
Skæruliðar ná árangri í
lýðræðislegum kosningum
BORGARASTYRJÖLDIN í E1 Salvador stóð í 12 ár og var sú blóðugasta í Rómönsku Ameríku.
Hvorki skæruliðar né sljórnvöld gátu hrósað sigri og afleiðingin var aðeins dauði tugþúsunda |
manna og gífurleg eyðilegging.
Fyrrverandi skæruliðar
í E1 Salvador hafa náð
að breyta hreyfingu
sinni í stjórnmálaflokk
og náð meiri árangri en
reyndist mögulegt í
krafti vopnavalds. As-
geir Sverrisson segir
frá þessum tímamótum.
SIGUR stjórnarandstöðunnar í
þing- og sveitarstjórnarkosningun-
um í Mið-Ameríkuríkinu E1 Salvad-
or er merkur áfangi á leið þessarar
sárþjáðu þjóðar í átt til lýðræðis
og samfélags laga og réttar. Þessi
árangur má einnig teljast stórmerk-
ur atburður í stjórnmálasögu þessa
heimshluta; einungis fimm ámm
eftir að skæruliðahreyfingin Frente
Farabundo Marti para la Liberacion
Nacional (FMLN) lagði niður vopn
eftir skelfilegt borgarastríð, sem
stóð í 12 ár og kostaði rúmlega
70.000 manns lífið, hefur hreyfing-
in hlotið lýðræðislegt umboð til að
vera leiðandi stjómmálaafl i land-
inu. Áhrifa þessa kann að gæta
utan þessa litla lands.
Þótt vitað væri að FMLN hefði
náð að tryggja sér umtalsvert gras-
rótarfylgi komu niðurstöður kosn-
inganna engu að síður á óvart.
Kosningaþáttakan var vissulega lít-
il, innan við 50% og það var með
tilvísun til hennar sem talsmenn
stjórnarflokksins Alianza Republic-
ana Nacionalista (Arena), skýrðu
úrslitin. „Þeir sem kusu ekki eru
stuðningsmenn okkar sem töldu
ekki ástæðu til að ganga á kjörfund
þar eð þeir töldu sigurinn vísan,“
sagði Gloria Salguero, formaður
Arena, sem er fylking hægri
manna.
Þessi skýring á vafalítið við ein-
hver rök að styðjast; fáir ef nokkr-
ir gátu ímyndað sér að í vændum
væri í þessum kosningum sá póli-
tíski landskjálfti sem nú hefur riðið
yfir E1 Salvador. Litla þátttöku má
vitanlega einnig túlka sem djúp-
stæða óánægju landsmanna með
frammistöðu stjórnarflokksins á
liðnum árum. En meira hangir á
spýtunni.
Vopnin kvödd
Á einungis fimm árum hefur
FMLN tekist að breytast úr hreyf-
ingu vinstri sinnaðra skæruliða,
sem bandarísk stjórnvöld höfðu
lengi lagt sérstakt hatur á, í stjórn-
málaflokk. Bandaríkjamenn hafa
meira að segja lýst yfir því að
árangur FMLN í kosningunum beri
vitni ánægjulegri lýðræðisþróun í
landinu. Aldrei áður í sögu Mið- og
Suður-Ameríku hafa viðlíka um-
skipti átt sér stað á svo skömmum
tíma og með svo afgerandi hætti.
Á fimm árum hefur fyrrverandi
skæruliðahreyfingu tekist að ná
völdum með lýðræðislegum hætti
og þannig náð meiri árangri en
reyndist mögulegt með vopnavaldi.
Þessi þróun hófst árið 1992 er
undirritaður var friðarsamningur
stjórnvalda og Farabundo Marti
eftir 12 ára langt og sérlega viður-
styggilegt borgarastríð. Kosningar
fóru fram 1994 og varð FMLN þá
þegar næst stærsta stjórnmálaflið
í landinu þótt mótun flokksins væri
þá enn skammt á veg komin en
stóð langt að baki Arena sem verið
hafði í stjórn frá 1991. Forseti
landsins, Ármando Calderon, sem
enn situr, kemur einnig úr röðum
hægri manna.
Stórsigrar í borgunum
Flest bendir til þess að styrkur
FMLN og Arena á þingi verði svip-
aður. FMLN vann hins vegar sigur
í bæjarstjórnarkosningunum í öllum
helstu borgum E1 Salvador, í höfuð-
borginni San Salvador, Mejicanos,
Soyapango, Ilopango, Santa Ana,
Chalatenango og Zacatecoluca. „Nú
þurfum við að sanna að við getum
stjórnað," sagði hinn nýi borgar-
stjóri San Salvador, læknirinn Hect-
or Silva, í sigurræðu sinni.
Miðjuna vantar
Þótt kosningarnar á sunnudag
geti talist stórmerkur sigur lýðræð-
isins eru enn blikur á lofti í stjórn-
málum E1 Salvador. Hina pólitísku
miðju skortir með öllu í landinu,
reginhaf er á milli sjónarmiða hægri
manna og skæruliðanna fyrrverandi
og vitanlega eru margir enn fullir
haturs eftir blóðfórnir undangeng-
inna ára. Þetta kann að vera enn
ein skýringin á því hvers vegna svo
margir ákváðu að sitja heima á kjör-
dag. Vöntun á vettvangi fyrir hina
borgaralegu miðju getur enn á ný
getið af sér spennu og óstöðugleika
og skuggi sögunnar er blóði drifinn.
Fyrstu viðbrögðin lofa hins vegar
góðu. Calderon forseti hefur óskað
FMLN til hamingju með sigurinn
og heitið því að stjórnvöld muni
leitast við að eiga gott samstarf við
óvinina fyrrverandi, sem nú ráða á )
borgar- og sveitarstjórnastiginu í j
landinu.
Þjóðarsátt?
Erfitt er að gera sér ljóst ná-
kvæmlega hveiju sigur FMLN muni
breyta í efnahagsmálum E1 Salvad-
or. Hreyfíngin hefur haft viðtekin
baráttumál vinstri manna í þessum
heimshluta á sviði efnahags-, félags- j
og dómsmála efst á stefnuskránni.
Hins vegar er ljóst að „klassísk"
baráttumál suður-amerískra skæru- )
liðahreyfinga á borð við þjóðnýtingu
jarðnæðis mun einungis geta af sér
spennu, land- og fjármagnsflótta.
Stærsta verkefni skæruliðanna fyrr-
verandi verður að stuðla að þjóðar-
einingu og sáttum nú þegar þeir
hafa lagt niður vopnin og lýst yfir
hollustu við lýðræðið. Hollast er að
stilla bjartsýninni í hóf í þessu efni j
en takist að tryggja sættir og stöð- v
ugleika mun áhrifa þessara um-
skipta gæta langt út fyrir landa- I
mæri þessa litla Mið-Ameríkuríkis.
Waigel segir að Þýzkaland verði stofnríki EMU
Ekkert verður slakað
á inntökuskilyrðum
Bonn. Reuter.
THEO Waigel, fjármálaráðherra
Þýzkalands, sagði í umræðum á
þýzka sambandsþinginu í gær að
Þýzkaland yrði á meðal stofnríkja
Efnahags- og myntbandalags Evr-
ópu (EMU) árið 1999 og að túlka
bæri skilyrði fyrir aðild að mynt-
bandalaginu þröngt.
Waigel sagði þinginu að þrátt
fyrir vaxandi atvinnuleysi myndi
ríkisstjórnin halda fjárlagahallan-
um rétt innan við 3% af landsfram-
leiðslu, eins og kveðið er á um í
Maastricht-sáttmálanum. „Þróunin
upp á síðkastið gefur mér enga
ástæðu til að breyta þeirri spá
minni,“ sagði hann.
Waigel spáði jafnframt 2,5%
hagvexti á árinu og sagði það
raunsæja spá. Fjárfestingar og
traust í atvinnulífinu færu vax-
andi. Ráðherrann sagði að starfs-
bræður hans í ráðherraráði Evrópu-
sambandsins væru sammála þessu
mati.
„Hreinar vangaveltur“ um
seinkun
Hann viðurkenndi hins vegar að
hlutfall skulda hins opinberra
myndi rjúfa 60% þakið, sem kveðið
er á um í Maastricht. Þetta væri
hins vegar vegna „óvenjulegra
ástæðna“, sem tengdust samein-
ingu Þýzkalands. Maastricht-sátt-
málinn leyfir slík frávik.
Fjármálaráðherrann sagði að
ríkisstjórnin myndi halda fast við
„beina og þrönga“ túlkun á skilyrð-
um Maastricht fyrir aðild að EMU.
Hann sagði að ummæli ýmissa
þýzkra stjórnmálamanna og hag-
fræðinga um hugsanlega seinkun
gildistöku EMU væru „hreinar
vangaveltur", að minnsta kosti þar
til niðurstöðutölur um efnahags-
þróunina á þessu ári lægju fyrir.
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar
gagnrýndu Waigel fyrir að vera
gísl eigin yfirlýsinga um þrönga
túlkun skilyrðanna. „Hvernig mun
hann komast niður úr trénu, sem
hann hefur klifrað upp í?“ spurði
Joschka Fischer, leiðtogi Græn-
ingja. Hann spáði því að Waigel
myndi „flýja á vit bókhaldsbrellna"
til að uppfylla Maastricht-skilyrðin.
Fischer hélt því fram að það, sem
lægi raunverulega að baki mál-
flutningi Waigels væri að hann vildi
reyna að koma í veg fyrir að Ítalía
og önnur Miðjarðarhafsríki yrðu
stofnríki EMU.
Slóvakar varaðir
við fríverzlunar- |
samningi við Rússa '
Bratislava. Reuter.
EVRÓPUSAMBANDIÐ hefur var-
að Slóvakíu við að hrinda í fram-
kvæmd áformum um gerð fríverzl-
unarsamnings við Rússland. Slíkt
geti torveldað_ aðild landsins að
sambandinu. Ástæðan er sú að
Rússland á ekki aðild að Heimsvið-
skiptastofnuninni, WTO.
Sir Leon Brittan, sem fer með
utanríkisviðskiptamál í fram-
kvæmdastjórn Evrópusambands-
ins, sagði í ræðu, sem hann hélt á
fundi iðnrekenda í Bratislava í
gær, að ef Slóvakía vildi halda til
streitu áformum um fríverzlunar-
samning við Rússland ættu stjórn-
völd að hafa í huga „hin truflandi
áhrif, sem slíkt gæti haft á að Sló-
vakía geti gerzt aðili að sameigin- f
legri viðskiptastefnu Evrópusam- |
bandsins vandræðalaust."
„Þar sem ESB hefur ekki sjálft I
gert fríverzlunarsamning við Rúss-
land yrði Slóvakía að rifta slíkum
samningi ef hún fengi aðild að
Evrópusambandinu," sagði Britt-
an.
Hann sagði að bæði ESB og
Rússland vildu stefna að aðild
Rússlands að WTO. Slíkt myndi ,
gera Rússlandi og Slóvakíu kleift
að setja reglur um viðskiptatengsl t
sín, í samræmi við sáttmála WTO g
og viðskiptastefnu Evrópusam- 9
bandsins.