Morgunblaðið - 22.03.1997, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 22. MARZ 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Spillingarmálin efst á baugi
í bresku kosningabaráttunni
Major neitar nýj-
um ásökunum
London. Reuter.
JOHN Major, forsætisráðherra
Bretlands, neitaði í gær nýjum
ásökunum um spillingu í íhalds-
flokknum en ljóst er, að umræðan
um hana ætlar að verða flokknum
alvarlegur Þrándur í Götu í kosn-
ingabaráttunni. Virðist sem Verka-
mannaflokkurinn sé enn að auka
forskot sitt.
Dagblaðið The Guardian sagði í
gær, að íhaldsþingmaðurinn Tim
Smith hefði verið skipaður að-
stoðarráðherra í málefnum Norður-
írlands í janúar 1994 þótt hann
hefði játað fyrir fjármálastjóra
flokksins fjórum árum áður að hafa
tekið við fé frá Mohammed Al-Fay-
ed, egypskum eiganda Harrods-
verslananna, fyrir að bera upp fyr-
irspum á þingi.
Blaðið sagði, að Major hefði ver-
ið skýrt frá þessu í september 1993
en Smith lét af embætti vegna
þessa máls í október 1994. Major
sagði í gær, að fréttin í The Guar-
dian væri „hrein vitleysa" en tals-
menn Verkamannaflokksins kröfð-
ust þess, að skýrsla þingnefndar um
spillingu yrði birt fyrir kosningar
og sökuðu Major um yfirhylmingu.
Skýrslan hefur verið birt að hluta
og þar eru 15 þingmenn úr þremur
stóru flokkunum sýknaðir af allri
sök. Eftir stendur að skýra frá
rannsókn á máli 10 íhaldsþing-
manna en Sir Gordon Downey, for-
maður siðanefndar þingsins, sagði
í gær, að henni lyki ekki fyrr en í
næstu viku. Major sendi hins vegar
þingið heim í gær þótt því eigi
ekki að ljúka fyrr en 8. apríl og
getur það komið í veg fyrir, að
skýrslan verði birt opinberlega.
Major í ham
Major var í miklum ham á þingi
í gær og sakaði Tony Blair, leið-
toga Verkamannaflokksins, um
tvöfeldni. Sagði hann, að Blair
sækti fé í leynilega sjóði og hefði
ekki skýrt frá ókeypis flugferð með
Concorde-þotu. Það síðarnefnda
vísar til ferðar til Bandaríkjanna,
sem Blair fór 1986 til að beijast
gegn bandarískri lagasetningu í
skattamálum en um það var sam-
starf með þingmönnum úr öllum
flokkum. Þá réðst Major einnig
hart að Paddy Ashdown, leiðtoga
Fijálslyndra demókrata. Blair sagði
á eftir, að augljóst væri, að Major
væri að fara á taugum.
Dagblaðið The Independent birti
skoðanakönnun í gær, sem Harris-
stofnunin gerði. Samkvæmt henni
hefur Verkamannaflokkurinn 27
prósentustig umfram íhaldsflokk-
inn.
Reuter
JERRY Singirok, yfirmaður hersins í Papúa Nýju-Gíneu, á blaðamannafundi í gær þar sem hann
krafðist þess að forsætisráðherra landsins segði af sér ekki síðar en á þriðjudag vegna samnings
sljórnarinnar við erlenda málaliða, sem hann sagði ólöglegan.
Málaliðar valda mikilli ólgu í Papúa Nýju-Gíneu
Leyniþjónusta Perú
Dalai Lama
Varað
á Tævan
Fujimori hvikar hvergi
Orðrómur hefur verið á kreiki í
Lima um að Alberto Fujimori, for-
seti Perú, hefði samþykkt á fundi
með Masahiko Komura, aðstoðarut-
anríkisráðherra Japans, að láta und-
an kröfu skæruliðanna og sleppa
nokkrum félögum þeirra úr fang-
elsi. Fujimori vísaði þessu algjörlega
á bug í gær.
MRTA krefst þess að 450 félög-
um þeirra verði sleppt úr fangelsi
og leiðtogi hreyfingarinnar hefur
hafnað tilboði Fidels Castros Kúbu-
leiðtoga, sem hefur boðið skærulið-
unum hæli á Kúbu. Castro ítrekaði
tilboðið á fimmtudag og talsmaður
MRTA vildi þá ekki tjá sig um það,
sem þótti benda til þess að skærulið-
arnir gætu skipt um skoðun.
við skæru-
liðum
Lima. Reuter.
MARXÍSKA skæruliðahreyfingin
MRTA í Perú hefur sent 50 liðs-
menn til Lima í því skyni að aðstoða
tuttugu félaga sína, sem hafa hald-
ið 72 mönnum í gíslingu í rúma
þtjá mánuði, og taka hugsanlega
fleiri gísla. Þetta kemur fram í
skýrslu leyniþjónustu Perú sem send
var yfirmanni hersins.
Fréttastofan Reuter hefur fengið
skýrsluna, sem var skrifuð 21. febr-
úar. Þar kemur fram að skærulið-
arnir, sem voru sendir til Lima,
kunni að taka gísla í erlendum
sendiráðum og ýmsum opinberum
byggingum, svo sem skrifstofum
dómsmálaráðuneytisins og saksókn-
ara. Markmiðið sé að aðstoða skær-
uliðana, sem hafa haldið gíslunum
72 í bústað japanska sendiherrans
í Lima í 94 daga.
Ekki kom þar fram hvenær
skæruliðarnir hefðu verið sendir til
Lima, en fjölmiðlar í borginni sögðu
að liðsaukinn hefði komið þangað
nokkrum vikum eftir gíslatökuna
17. desember.
DALAI Lama, andlegur leiðtogi
Tíbeta, kemur í opinbera heim-
sókn til Tævans í dag og stendur
hún í sex daga. Hefur koma hans
verið kynnt mjög rækilega og
hefur hún ekki farið fram stjórn-
inni í Peking. Sakar hún þá báða,
Dalai Lama og Lee Teng-hui,
forseta Tævans, um að vera að-
skilnaðarsinna, sem vilji vinna
að sjálfstæði Tævans og Tíbets.
Ástralíuher viðbúinn
að grípa í taumana
I „m41,1 DnnÍAr
Port Moresby. Reuter.
UM 50 erlendir málaliðar, sem
stjórnvöld í Kyrrahafsríkinu Papúa
Nýju-Gíneu réðu til að kveða niður
uppreisn aðskilnaðarsinna á Bouga-
inville-eyju, voru fluttir frá Port
Moresby í gær eftir að hafa valdið
mikilli ólgu í landinu og þegið millj-
ónir dala fyrir samning sem þeir
höfðu enga burði til að uppfylla.
Hermenn, sem málaliðarnir áttu að
aðstoða, ráku þá úr Iandi og kröfð-
ust þess að forsætisráðherrann, Sir
Julius Chan, segði af sér. Ráðamenn
í nágrannaríkjunum hafa miklar
áhyggjur af þróuninni og stjórn
Astralíu sagði að her landsins væri
undir það búinn að grípa í taumana
ef ástandið versnaði.
Þetta er mesta ólgan í landinu
frá því það fékk fullt sjálfstæði árið
1975 og hún hófst á mánudag þeg-
ar yfirmaður hersins, Jerry Singi-
rok, krafðist þess að Chan forsætis-
ráðherra segði af sér vegna ráðning-
ar málaliðanna. Stjórnin vék Singi-
rok frá þegar í stað en hann hefur
hreiðrað um sig í herstöð og sagði
í gær að forsætisráðherrann yrði
að láta af embætti fyrir næsta fund
ríkisstjómarinnar á þriðjudag.
Deilan leiddi til götumótmæla
gegn Chan og æstur múgur hefur
rænt og ruplað í höfuðborginni,
Port Moresby, undanfarna daga.
Mótmælin breiddust út um landið í
gær og vopnaðir lögreglumenn
reyndu að kveða þau niður.
2,5 milljarða samningur
Málaliðarnir vom fluttir með
flugvél til Hong Kong. Þeir em flest-
ir frá Suður-Afríku og undir stjórn
fyrrverandi ofursta í breska hern-
um, Tim Spicer, sem var einn af
foringjum friðargæslusveitanna í
Bosníu.
Mennirnir voru á vegum breska
málaliðafyrirtækisins Sandline Int-
ernational, sem gerði samning við
stjórnina um að aðstoða herinn við
að bijóta uppreisnarmennina á Bo-
ugainville-eyju á bak aftur og end-
urheimta koparnámu á eyjunni, þá
þriðju stærstu í heiminum. Frétta-
menn fengu eintök af samningnum
skömmu áður en málaliðunum var
vísað úr landi og þeim var þar lýst
sem „sérstökum löggæslumönnum“
sem ættu að beijast í fremstu víg-
línu. Chan hafði þó sagt að þeir
hefðu aðeins átt að þjálfa hermenn-
ina og vera þeim til ráðgjafar.
Samkvæmt samningnum átti
stjórnin að greiða málaliðafyrirtæk-
inu 36 milljónir dala, sem svarar
2,5 milljörðum króna, fyrir verkið.
Komust aldrei til eyjunnar
Uppreisn aðskilnaðarsinnanna
hófst fyrir níu árum þegar landeig-
endur, sem kröfðust bóta vegna
námuvinnslunnar, tóku að ráðast á
rútur námuverkamanna. Námunni
var lokað vegna uppreisnarinnar
árið 1989, en hún var undir stjórn
ensk-ástralska fyrirtækisins RTZ-
CRA, stærsta námafyrirtækis
heims.
Málaliðarnir komust aldrei tii
Bougainville-eyju vegna andstöðu
hermannanna, sem þeir áttu að að-
stoða. Talið er að þeir hafi aldrei
átt nokkurn möguleika á að upp-
fylla samninginn.
Papúa Nýja-Gínea er í Breska
samveldinu og nær yfir austurhluta
Nýju-Gíneu, hluta Bismarkeyja og
norðurhluta Salómonseyja. Bretar
og Þjóðveijar skiptu með sér austur-
hluta Nýju-Gíneu árið 1884 en Ástr-
alir tóku við stjórn breska hlutans
árið 1904 og stjórnuðu þýska hlut-
anum ásamt nálægum eyjum frá
1921 í umboði Þjóðabandalagsins.
Hlutarnir tveir voru sameinaðir
1945, fengu sjálfstjórn 1973 og
urðu sjálfstætt ríki sem Papúa Nýja-
Gínea tveimur árum síðar.
Reuter
Ikveikja af ótta
við innrás
Moskvu. Reuter.
MAÐUR einn í Moskvu lagði eld
að íbúð sinni á miðvikudag og
skaut á slökkviliðsmenn, sem
hugðust leggja til atlögu við bál-
ið. Að sögn lögreglu hafði mað-
urinn talið sjálfum sér trú um
að skriðdrekar Atlantshafs-
bandalagsins væru á leið inn í
Moskvu við upphaf leiðtogafund-
arins í Helsinki.
Maðurinn, sem sagður var
vanheill á geði, lokaði sig inni í
íbúðinni í úthverfi Moskvu og
hét því að gefast ekki upp fyrir
„óvininum". Kvaðst hann vera
að nota það bragð, sem Rússar
beittu bæði þegar herir Napó-
leons gerðu innrás 1812 og herir
Þjóðveija í heimsstyijöldinni síð-
ari, að skilja eftir sig sviðna jörð.
Maðurinn reyndist vera með
ræsibyssu að vopni. Leyniskyttur
skutu hann og var hann fluttur
á sjúkrahús með skotsár.