Morgunblaðið - 22.03.1997, Side 50
50 LAUGARDAGUR 22. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Ferdinand
Smáfólk
WWAT DO VOU TMlNK, MARCIE?
I BR0U6HT A BANANA IN CA5E
THEV TEACH U5 HOU) TO MAKE
BANANA CREAM PIE TODAT..
'■ 1"V s UUE DÖNT/ IaíE HAVE I DON'T? C00KIN6 Vv CLA55E5, flf 5U66E5TI0N TIME, MA'AM..LET'5 F0R6ET THE MATH, AND CONCENTRATE ON BANANA CREAM PlE..
§| jj
TOURE 0ECOMINS
INCREA5IN6LT
WEIRD, 5IR..
Hvað finnst þér, Magga? Eg kom
með banana ef okkur skyldi
verða kennt að búa til banana-
rjómaböku í dag...
Vlð höfum Höfum
ekki mat- við það
reiðslutíma, ekki?
herra...
Uppástungutími,
kennari... gleymum
reikningnum og ein-
beitum okkur að ban-
anarjómaböku ...
Þú verður stöðugt
skrýtnari og skrýtn-
ari, herra ...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Mannréttindi eru
án landamæra
Frá íslandsdeild Amnesty
Intemational:
MANNRÉTTINDASAMTÖKIN Am-
nesty International hrintu á miðviku-
dag af stað alþjóðlegu átaki til varn-
ar réttindum flóttafólks. í heiminum
eru meira en 15 milljónir karla,
kvenna og barna
flóttamenn, þar
að auki eru 20
milljónir á flótta
innan eigin landa-
mæra, vegna þess
að fólkið hefur
neyðst til að yfir-
gefa heimili sin.
Fjölmennasti
hópur flóttafólks er konur og börn.
Konur eru í hættu, fyrir flótta, með-
an á flótta stendur og eftir að þær
hafa komist yfir landamæri. Nauðg-
anir eru notaðar í auknum mæli til
að pynda og ógna konum og hrekja
þær á flótta. Mannréttindasamtökin
Amnesty International hafa upplýs-
ingar um mörg óhugnanleg dæmi
um slíkt ofbeldi gagnvart konum t.d.
frá Afganistan, Rúanda og fyrrum
Júgóslavíu.
Mannréttindabrot eru ástæða þess
að fólk tekur sig upp frá heimilum
sínum og flýr. Á meðan að mannrétt-
indabrot, sem neyða fólk til flótta
eru liðin, mun fjöldi flóttafólks halda
áfram að aukast á næstu árum.
Nýlegt dæmi eru átökin sem hafa
átt sér stað í Albaníu að und-
anförnu. Amnesty Intemational
hvetur allar ríkisstjórnir til að upp-
fylla skyldur sínar gagnvart flótta-
fólki frá Albaníu.
Samtökin hafa miklar áhyggjur
af afskipta- og virðingarleysi ríkis-
stjóma gagnvart réttindum flótta-
fólks; ríkisstjórnir reyna í síauknum
mæli að hindra að fólk sem er að
flýja ofsóknir fái tækifæri til að nýta
rétt sinn til að sækja um hæli og fá
þá vernd sem þeim ber. Aðgerðir
ríkisstjorna til að koma í veg fyrir
móttöku flóttafólks hafa í för með
sér að fjöldi fólks fær aldrei tæki-
færi til að komast undan pyndingum,
morðhótunum og öðrum ofsóknum
og æ fleiri eru sendir aftur heim,
þar sem þeirra bíður oft fangelsun
eða opinn dauðinn.
Konu frá Saír tókst að flýja úr
fangelsi hersins, þar sem hún hafði
sætt pyndingum og komst til Svíþjóð-
ar þar sem hún sótti um hæli. Sænsk
yfirvöld neituðu henni um hæli á þeim
forsendum að Saír-herinn lúti ekki
stjórn forseta landsins og þess vegna
teljist pyndingar, framkvæmdar af
hermönnum, ekki til ofsókna af hálfu
ríkisvaldsins. Konan var send aftur
til Saír og eru örlög hennar ókunn.
Árið 1951 samþykkti allsheijar-
þing Sameinuðu þjóðanna sáttmála
um réttindi flóttafólks. í samning-
unum er að fínna ákvæði sem bannar
endursendingu flóttafólks: „Ekkert
aðildarríki skal vísa flóttamanni brott
eða endursenda hann á nokkum hátt
til landamæra ríkis, þar sem h'fí hans
eða frelsi myndi vera ógnað vegna
kynþáttar hans, trúarbragða, þjóð-
emis, aðildar í sérstökum félagsmála-
flokkum eða stjórnmálaskoðana."
Þrátt lýrir þetta skýra ákvæði er
fjöldi ríkisstjórna sem hundsar bann-
ið og endursendir flóttafólk til landa
þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað.
Ríkisstjórnir stóðu að gerð þessa
sáttmála og ber því skylda til að
framfylgja honum í einu og öllu.
Með hinum auknu hömlum sem rík-
isstjórnir setja flóttafólki til að sækja
um hæli, eru þær að hæða og spotta
eigin ákvarðanir og skuldbindingar.
Ríkisstjómir hafa rétt til að gæta
landamæra sinna, en á sama tíma
hafa þær engan rétt til að neita
flóttafólki um réttláta málsmeðferð
á hælisumsóknum.
Frá því í nóvember á síðasta ári
hefur fjöldi flóttafólks frá Rúanda
og Búrundi verið sendur heim án
þess að öryggi fólksins hafi verið
tryggt. Þetta fólk hefur ekki notið
þeirrar verndar sem alþjóðsamband-
inu ber að veita því. Amnesty Intern-
ational leggur áherslu á að þegar
flóttafólki er vísað heim aftur beri
að tryggja að það njóti fullrar mann-
réttindaverndar.
Samtökin hvetja allar ríkisstjórnir
heims til að uppfýlla skyldur sínar
gagnvart flóttafólki. Þeim ber að
styðja starfsemi flóttamannastofn-
unar Sameinuðu þjóðanna og ann-
arra alþjóðlegra stofnana sem vinna
að vernd flóttafólks.
Ríkisstjórnir verða að upplýsa al-
menning um að flóttafólk þarfnast
verndar. Það er ekki að misnota rétt
sinn. Flóttafólk er ekki innflytjend-
ur. Flóttafólk er einstaklingar sem
af ástæðuríkum ótta við að verða
ofsóttir vegna kynþáttar, trú-
arbragða, þjóðernis, aðildar að sér-
stökum félagsmálaflokkum eða
stjórnmálaskoðana og getur ekki eða
vill ekki vegna slíks ótta dvalist í
heimalandi sínu.
í 14. gr. Mannréttindayfirlýsingar
Sameinuðu þjóðanna segir: „Rétt skal
mönnum vera að leita og njóta grið-
lands erlendis gegn ofsóknum." Starf
Amnesty International í þágu flótta-
manna byggir á ofangreindri grein
mannréttindayfirlýsingarinnar svo og
flóttamannasáttmálanum frá 1951
og öðrum alþjóðasamþykktum sem
varða réttindi flóttamanna. Amnesty
Intemational hefur lagt áherslu á að
mál hvers einstaklings sem sækir um
hæli sé ítarlega rannsakað, því hvetja
samtökin allar ríkisstjómir til að
framfylgja vissum meginreglum um
móttöku flóttamanna. Þær em nauð-
synlegar til að fyrirbyggja að flótta-
fólk, sem raunverulega á á hættu að
sæta mannréttindabrotum í heima-
landi sínu, sé sent til baka. Tillögur
Amnesty Intemational em byggðar
á alþjóðasamþykktum og fjalla um
þörf allra, sem leita hælis á málefna-
legri og réttlári meðferð.
íslensk löggjöf er ekki í fullu sam-
ræmi við alþjóðasamþykktir sem Is-
lendingar eru aðilar að, því hvetur
íslandsdeild Amnesty International
íslensk stjórnvöld til þess að löggjöf-
in verði endurskoðuð og lagabreyt-
ingar endurspegli þær meginreglur
um vernd flóttamanna sem við höf-
um gert að skyldu okkar að fram-
fylgja með því að gerast aðilar að
alþjóðasáttmálum.
AMNESTY INTERNATIONAL,
Hafnarstræti 15, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.