Morgunblaðið - 09.04.1997, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Kæra til sýslumanns vegna efnis
bréfs lögmanns til sýslumanns
Verktakiá
Hellu telur sig
þiófkenndan
Morgunblaðið/Ásdís
FULLTRÚAR sveitarfélaga, stofnana, félagasamtaka og einstaklingar sátu stofnfundinn og gerð-
ust fjölmargir stofnfélagar.
Ný samtök um gróðurvernd í landnámi Ingólfs
Lífrænn úrgangur verði
notaður til að auka frjósemi
BERGUR Sveinbjörnsson, verktaki
á Hellu og félagi í Flugbjörgunar-
sveitinni á Hellu, hefur ákveðið að
kæra Steingrím Þormóðsson, lög-
mann Ólafs Þórarinssonar, bónda
á Háfi, til sýslumannsins á Hvols-
velli. Hann telur lögmanninn þjóf-
kenna sig í bréfi til sýslumanns,
en vitnað var til efnis bréfsins í
sjónvarpsfréttum.
í bréfi sem lögmaðurinn ritaði
sýslumanni 4. apríl segir að um-
bjóðanda lögmannsins, Ólafi Þór-
arinssyni, hafi sviðið sárt sá mikli
stuldur sem viðgengist hafi á þeim
varningi, sem á land hefur rekið
frá Víkartindi og hvorki skipseig-
andi né farmflytjandi sjálfur hafa
gert tilkall til. „Hafa þar farið
fremstir í flokki björgunarsveitar-
menn, lið í kringum heilbrigðisfull-
trúann, og síðan ýmsir bændur úr
nágrenninu og ferðamenn,“ segir
í bréfi lögmannsins til sýslumanns
en efni þess hefur verið birt í f|öl-
miðlum.
Aðdróttun um
yfirhylmingu
Bergur Sveinbjörnsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að hann
teldi þessi ummæli þjófkenningu í
sinn garð og um sig þegar hann
hefði verið að vinna störf sín sem
verktaki á vegum Heilbrigðiseftir-
lits Suðurlands og fyrir Skipatækni
við að hreinsa upp eiturefni frá
skipinu og úr farmi skipsins.
„Ég var að vinna fyrir Heil-
brigðiseftirlitið og Skipatækni og
vinnuflokkur minn getur ekki legið
undir þessu,“ sagði Bergur. Hann
sagðist hafa unnið á vegum og
undir eftirliti lögreglu og tollgæslu
og teldi að með þessum orðum
væri jafnframt dróttað að þeim
aðilum um að hylma yfir glæpinn.
Sími 555-1500
Kópavogur
Foldarsmári
Glæsilegt ca 140 fm nýlegt raðhús á
einni hæð. Áhv. ca 5,5 millj. Verð 12,9
millj.
Garðabær
Stórás
Gott ca 200 fm einbhús auk 30 fm
bílsk. Mögul. á tveimur íb. Ekkert áhv.
Skipti möguleg á 3ja herb. íb.
Skipholt
Góð ósamþ. einstaklíb. ca 48 fm í fjölb.
Verð 2,7 millj.
Leirubakki
Góð 4ra herb. íb. ca 90 fm á 3. hæö.
Fráb. útsýni. Verð 6,6 millj.
Hafnarfiörður
Gunnarssund
Til sölu er góð 3ja herb. íb. á jarðh.
Breiðvangur
Mjög góð 5 herb. ca 112 fm íb. á
2. hæð. Laus fljótl. Verð 8,4 millj.
Álfaskeið
Einbýlishús á tveimur hæðum með
hálfum kj., samtals 204 fm. Mikið
endurn. Ath. skipti á lítilli íb.
Reykjavíkurvegur
Glæsileg 2ja herb. ib. á 3. hæð. Lítið
áhv. Verð 4,3 millj.
Fasteignasala,
Strandgötu 25, Hfj.
Árni Grétar Finnsson, hrl.
stefán Bj. Gunnlaugsson, hdl.
Kærir fyrir sína hönd
og síns vinnuflokks
Hann kvaðst vilja að fram færi
rannsókn á sannleiksgildi ummæl-
anna í bréfi lögmannsins til þess
að unnt yrði að hreinsa hann af
þessum áburði. „Það er ekki hægt
að sitja undir þessu, það verður
að fást botn í þetta,“ sagði Bergur.
Bergur sagðist einn standa að
kærunni fyrir sína hönd og 5
manna vinnuflokks síns. Hann
sagði að í gær hefði verið unnið
að kærubréfi og yrði það sent til
sýslumanns.
í sjónvarpsfréttum í fyrrakvöld
var sagt að starfsmenn Heilbrigð-
iseftirlits Suðurlands hefðu einnig
> hyggju að stefna lögmanninum
fyrir meiðyrði. Matthías Garðars-
son, forstöðumaður Heilbrigðis-
eftirlits Suðurlands, bar þá frétt
til baka í samtali við Morgunblað-
ið.
Eyðum ekki tíma
í slíkt grín
„Ég held að við látum kyrrt
liggja og eyðum ekki tíma í slíkt
grín,“ sagði Matthías. „En við vilj-
um lýsa stuðningi við þessar björg-
unarsveitir. Það sem þær hafa ver-
ið að gera er að forða hættulegum
efnum, eiturefnum og efnum til
lyfjagerðar, af staðnum og koma
þeim í hús. Ef það er þjófnaður
er sýslumaður þjófsnautur og
vörslumaður þýfis.“
Hann sagði að frá fyrsta degi
hefðu björgunaraðilar og starfs-
menn Heilbrigðiseftirlits unnið
hörðum höndum í vondu veðri og
brimi við að afstýra slysum með
því að fjarlægja eiturefni. Allt það
sem lagt hefði verið hald á væri
skráð.
SAMDRÁTTUR í mjólkursölu
vegna verkfalls Dagbrúnarmanna
hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík
í mars nam tæplega 1,5 milljónum
lítra og að teknu tilliti til aukinnar
sölu hjá Mjólkurbúi Flóamanna á
verkfallstímanum er áætlað að
sölusamdrátturinn í mars nemi
1,2-1,3 milljónum lítra. Að sögn
Guðbjöms Árnasonar, fram-
kvæmdastjóra Landssambands
kúabænda, nemur tap bænda
vegna þessa um 70 milljónum
króna.
Guðbjörn segir bændur óttast
að verkfall Dagsbrúnarmanna
muni hafa varanleg áhrif í för með
sér þar sem teikn séu á lofti um
að margir hafi dregið úr mjólkur-
GRÓÐUR fyrir fólk í landnámi
Ingólfs er nafn samtaka sem
stofnuð voru í gær til að vinna
að stöðvun á gróður- og jarð-
vegseyðingu. Er hugmyndin að
ná samstöðu einstaklinga, fé-
lagasamtaka og sveitarfélaga
um vinnu og fjármagn til að
endurheimta glötuð landgæði. Á
meðal annars að nota mómold,
gras og húsdýraáburð sem fell-
ur til og er fargað í dag auk
þess sem keyptar verða plöntur
til gróðursetningar.
Á stofnfundi samtakanna í
gær gerði Ingvi Þorsteinsson
náttúrufræðingur, einn þeirra
sem að undirbúningi hafa staðið,
grein fyrir ástandi á gróðurfari
í landnámi Ingólfs sem tekur til
Reykjaness, að Ölfusá, norður
að Þingvallavatni og í Botnsdal.
Sagði hann mikla jarðvegseyð-
ingu víða á þessu svæði, það
væri eitt hið verst farna á land-
inu og gróðurfar væri fátæklegt
og víða hreinar eyðimerkur.
neyslu í kjölfar verkfallsins og snú-
ið sér að öðrum drykkjarvörum.
Segir hann að bændur og forystu-
menn afurðastöðva í mjólkuriðnaði
muni óska eftir viðræðum við for-
ystu verkalýðshreyfingarinnar um
afleiðingar verkfallsins fyrir bænd-
ur.
„Við erum ósáttir við þetta því
við vitum að Mjólkursamsalan er
að gera vel við sitt starfsfólk og
við viljum skýringar á því af hveiju
þetta fyrirtæki var eitt dregið út
úr á þennan hátt. Þarna er um
afurðir bænda að ræða og þetta
kemur mest niður á tekjum þeirra,
en þeir hafa fórnað allra manna
mest og eru tekjulægsta stéttin í
dag,“ sagði Guðbjörn.
Þannig væri 25 til 30 ferkíló-
metra eyðimörk á Miðnesheiði
sem blasti við augum þeirra 800
þúsunda manna sem færu árlega
þjá garði á leið í flug eða úr.
Bæri gróðurfar merki um alda-
langa búsetu. Ýmislegt hefði þó
verið gert af hálfu sveitarfélaga
og þeirra mörgu félaga sem slík-
um málum sinntu, plantað hefði
verið um 20 milljónum plantna
á síðustu áratugum. Landnám
Ingólfs er um þrjú þúsund fer-
kílómetrar eða um 3% af landinu
en þar búa nærri 180 þúsund
manns.
Fimm milljónir trjáplantna
Yngvi Þorsteinsson lagði
áherslu á að hér þyrftu menn
að standa saman og ætlunin
væri að hugsa stórt í þessum
málum. Byrja yrði á að byggja
upp frjósemi jarðvegsins. Hug-
myndin væri að nota þau lífrænu
efni sem féllu til og væru allt
að 70 þúsund tonnum árlega sem
FYRIR nokkru kom út nýr bæklingur
á vegum forsetaembættisins þar sem
kynntar eru ljósmyndir og veggspjöld
af forseta íslands og forsetahjónun-
um og var bæklingnum m.a. dreift
til sendiráða íslands á erlendri
grundu.
Að sögn Kornelíusar Sigmunds-
sonar forsetaritara hefur áður verið
hægt að kaupa ljósmyndir af forseta
lýðveldisins, en það er nýjung að
gefinn sé út bæklingur til kynningar
á forsetanum. Hann segir ennfremur
að það hafi verið ráðist í gerð bækl-
inganna vegna þeirra hagræðingar
sem því fylgir að hafa sýnishom fyr-
ir augfum þegar verið er að velja
myndir.
Ljósmyndirnar eru til í ýmsum
stærðum og hægt að sérpanta þær
á skrifstofu forseta íslands á Sóleyj-
argötunni eða hjá Sigurgeiri Sigur-
í dag væri fargað og dreifa þeim
á þessu svæði. Væri verðmæti
þessa kringum 100 milljónir
króna. Valdimar Jóhannesson,
sem einnig hefur staðið að
undirbúningnum, sagði að ætl-
unin væri að afla fjár til að kosta :
dreifinguna og í framhaldi af
því plöntun á allt að 5 milljónum '
trjáplantna árlega. Kvaðst hann
sannfærður um að takast mætti
að ná 50 til 60 milljónum króna
árlega og trúlega mun meira
fjármagni. Sagði hann nauðsyn-
legt að menn sameinuðust um
aðgerðir á svæðinu hverju sinni
sem tekið yrði skipulega fyrir.
í ályktun sem samþykkt var
á stofnfundinum segir að við
hvers konar landgræðsluað- j
gerðir á vegum samtakanna
skuli tekið tillit til náttúrufars,
helstu búsvæða plantna og dýra
og vistkerfa, náttúruminja og
þjóðminja og að meta skuli um-
hverfisáhrif stórra ræktunar
áætlana.
jónssyni ljósmyndara á Hverfísgöt-
unni. Veggspjöldin er hins vegar
hægt að nálgast á skrifstofu forseta
Islands og eru þau fáanleg í einni
stærð og án endurgjalds. Kornelíus j
segir að forsetaembættið hafí kostað k
myndatökurnar af forsetahjónunum, i
eins og venjan hafi verið áður, en I
viðkomandi ljósmyndari fái allan
hagnað af sölu myndanna.
Að sögn Sigurgeirs hefur ekki
mikið borist af pöntunum á ljósmynd-
unum, en Kornelíus segir að eitthvað
hafi verið um það að sendiráð íslands
hafi falast eftir veggspjöldunum.
Ljósmynd af forseta Islands í stærð
10 sinnum 15, kostar 2.998 krónur, |
en aliar myndirnar eru límdar á þykk- ;
an pappa. Ljósmynd í stærð 18 sinn- I
um 24 kostar 4.700 krónur, og ljós- I
mynd í stærð 27 sinnum 35 kostar
7.900 krónur.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN ehf
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR S51-154Q. 552-1700. FAX 562-0540
%
VANTAR
Leitum að 100-130 fm sérbýli eða sérhæð með eða án
bílskúrs innan Elliðaá fyrir traustan kaupanda.
Góðar greiðslur í boði.
%
=#
Austurgata - Hafnarfirði
Til sölu 5 herb. íbúð, 150 fm á tveim hæður í timburhúsi
á góðum stað. 24 fm geymsla. Verð 7,8 millj.
Árni Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10, sími 555 0764.
Verkfall Dagsbrúnar hjá Mjólkursamsöluimi
Bændur óttast áhrifin
Kynning’arbæklingnr
um forsetamyndir