Morgunblaðið - 09.04.1997, Side 14

Morgunblaðið - 09.04.1997, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1997 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Félag vélsleða- manna í Eyjafirði Heldur fjallamót í Nýjadal EYFIRSKIR og norðlenskir vélsleða- menna beittu sér fyrir stofnun Landssambands íslenskra vélsleða- manna, LÍV, fyrir rúmum áratug. Stofnfundurinn var haldinn í Nýja- dal við Sprengisandsleið og var mik- ið í fréttum á sínum tíma, enda brast hið versta veður á fundarmenn og lentu ýmsir í erfiðleikum þótt .allir kæmust óskaddaðir heim. Eyjafjarðardeild LÍV, þ.e. Félag vélsleðamanna í Eyjafirði, stendur nú aftur fyrir móti í Nýjadal, nánar tiltekið um næstu helgi, 11.-13. apríl. Röskur hópur manna hefur unnið að undirbúningi síðustu vikur og er nú allt tilbúið. Gert er ráð fyrir að menn mæti á staðinn á föstudagskvöld og á laugardagsmorgun verður haldið í skipulagða skoðunarferð. Stórfenglegt hverasvæði í Vonarskarði ! FROSTHÖRKUR hafa tafið byggingu Giljaskóla og er nú ljóst að ekki verður hægt að hefja þar kennslu næsta haust eins og áætlanir gerðu ráð fyrir en stefnt að því að hefja starfsemina um áramót. í nágrenni Nýjadals er margt að sjá, t.d. í Vonarskarði þar sem er stórfenglegt hverasvæði sem ekki er á allra vitorði og fáir hafa séð. Þegar komið verður til baka síðdeg- is verður kveikt upp í kolunum og um kvöidið haldin heljarmikil grill- veisla sem er innifalin í gistigjaldi. Sunnudaginn nota menn svo til að fara til byggða. Að sögn Guðmundar Hjálmars- sonar á Akureyri hefur undirbún- ingsnefndin orðið vör við mikinn áhuga á mótinu. „ Margir Húnvetn- ingar og Skagfirðingar eru þegar búnir að tilkynna þátttöku og eins er mikill áhugi í Þingeyjarsýslum. Þá treysti ég á að eyfirskir vélsleða- menn fjölmenni. Mótið er auðvitað opið öllum, sama hvar þeir búa, og vonandi sjáum við sem flesta. Nauð- synlegt er að menn tilkynni þátttöku fyrirfram svo hægt sé að áætla gisti- pláss og mat í grillveisluna." Loks má geta þess að helgina 25.-27. apríl verður haldið sams konar mót í Snæfellsskála. ------♦--------- Héraðsskjalasafnið á Akureyri Sýning á skjölum frá skátum HÉRAÐSSKJALASAFNIÐ á Akur- eyri hefur sett upp sýningu á aðföng- um frá skátafélögum á Akureyri í tilefni af 80 ára afmælis skátastarfs í bænum. Sýndar eru fundagerð- arbækur, blöð útgefin af skátum á Akureyri, gestabækur útileguskál- ana og fleira frá árunum 1919-1991. Sýningin er á 2. hæð í Brekku- götu 17, húsnæði Amtsbókasafnsins og Héraðsskjalasafnsins. Opið er mánudaga-föstudaga frá kl. 10-19 og laugardaga frá kl. 10-15. Skátar ungir sem aldnir eru sér- staklega hvattir til að skoða sýning- una, svo og annað áhugafólk um skátastarf. ------♦ ♦ ♦----- Aðalheiður sýn- ir tréskúlptúr AÐALHEIÐUR S. Eysteinsdóttir opnar sýningu í Café Karólínu laug- ardaginn 12. apríl nk. undir yfir- skriftinni „Fólk.“ Fólkið á þessari sýningu mótar Aðalheiður í tré og er þetta 5. sýningin sem hún setur upp með tréskúlptúrum. Aðalheiður útskrifaðist úr Mynd- listarskólanum á Akureyri árið 1993 og er með vinnustofu í Grófargili. Frosthörkur tefja byggingu Giljaskóla um nokkra mánuði Kennsla hefst um áramót SKÓLAHALD í Giljaskóla getur ekki hafist í haust eins og stefnt var að og ekki fyrr en í fyrsta lagi um næstu áramót. Tafir hafa orðið á verkinu vegna veðráttu síðustu mánuði, einkum hafa frosthörkur sett strik í reikninginn. Gísli Bragi Hjartarson, formaður framkvæmdanefndar, sagði að þó veturinn hefði verið stórviðralítill hefði veðráttan hentað einkar illa til byggingaframkvæmda. Nú er unnið við fyrsta áfanga skólans, sem er uppsteypa kjallara og hefur verkið dregist nokkuð vegna óhag- stæðrar veðráttu. Á föstudag verða tilboð opnuð í annan áfanga en þar er um að ræða nokkuð stórt verk- efni, en í honum felst uppsteypa á hluta af þriggja hæða skólabygg- ingu, kennslustofur verða á tveimur hæðum og verða þær tilbúnar um áramót gangi allt eftir. Þriðja hæð- in verður í þessum áfanga fokheld. Þá verður unnið við aðstöðu fyrir kennara. Áætlanir gera ráð fyrir að lokið verði við skólabygginguna árið 2001 og er heildarkostnaður um 500 milljónir króna. Morgunblaðið/Margrét Þóra Davíð Örn vann í stærð- fræðikeppni DAVÍÐ Örn Benediktsson í Síðu- skóla bar sigur úr býtum í stærð- fræðikeppni sem JC-Akureyri efndi til meðal nemenda í 9. bekk í grunnskólum á Eyjafjarðar- svæðinu. Eva Guðjónsdóttir sem einnig er í Síðuskóla varð í 2. sæti og Sigurður Stefánsson í Gagnfræðaskóla Akureyrar varð í 3. sæti. Forkeppni fór fram í skólunum á svæðinu frá Siglu- firði til Grenivíkur og komust tveir nemendur áfrain í úrslita- keppnina. Rekstur matvörudeildar Kaupfélags Eyfirðinga Afkoman betri en áætl- anir gerðu ráð fyrir AFKOMA matvörudeildar KEA á síðasta ári var mun betri en áætl- anir gerðu ráð fyrir og varð 8% söluaukning milli ára. Rekstur matvöruverslana utan Akureyrar var hins vegar erfiður en gekk þó betur í fyrra en árið 1995. Rekstri slíkrar verslunar á Grenivík undir merkjum KEA var hætt en hús- næðið leigt til áframhaldandi versl- unarreksturs. í ársskýrslu KEA fyrir síðasta ár, kemur fram að efling innkaupa- þáttarins m.a. í gegnum Samland sf. gerði það að verkum að fram- legð jókst í öllum verslunum. Eins og áður var mikil samkeppni ríkj- andi á markaðnum. Landið allt einn markaður Bent er á í ársskýrslunni að líta verði á landið allt sem einn markað og að stöðugar verðkannanir, þar sem samanburður er gerður á milli stærstu verslanakeðja á landinu og matvörudeildar KEA, sýni að matvörudeild KEA standi öðrum fyllilega jafnfætis hvað verð áhrærir, ef ekki framar. Á síðasta ári var samþykkt stefnumótun fyrir matvöruverslan- ir KEA og má gera ráð fyrir ein- hveijum breytingum á rekstrinum þótt þær séu ekki fullmótaðar. Rekstri Vöruhúss KEA var hætt á síðasta ári og húsnæðið leigt undir verslunarrekstur. Tap hafði verið á rekstrinum til fjölda ára og marg- háttaðar endurbætur og endur- skipulagning ekki skilað árangri. Ástæðan var fyrst og fremst of lítil sala og þótti stjórn KEA full- reynt með verslunarrekstur á þess- um stað. Flestar vörur sem seldar voru í Vöruhúsinu voru fluttar í aðrar deildir KEA og hefur þegar orðið veruleg söluaukning í sumum þeirra. Námskeið um markaðs- rannsóknir NÁMSKEIÐ um markaðsrann- sóknir verður haldið á vegum Endurmenntunarstofnunar Há- skóla íslands í samstarfi við Háskólann á Akureyri og At- vinnumálaskrifstofu Akureyrar næstkomandi föstudag, 11. apríl. Námskeiðið er ætlað öll- um sem starfa að markaðs- og sölumálum fyrirtækja. Notkun markaðsrannsókna hefur farið ört vaxandi á síð- ustu árum. Á námskeiðinu er lögð áhersla á helstu grundvall- aratriði markaðsrannsókna út frá hagnýtu sjónarmiði. Farið verður yfir rannsóknarferlið, túlkun niðurstaðna, helstu teg- undir markaðsrannsókna, val- kosti sem bjóðast hérlendis og helstu gildrur sem þarf að va- rast. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Skúli Gunnsteinsson fram- kvæmdastjóri ÍM Gallup. Skráning og upplýsingar fást hjá Endurmenntunarstofnun. Tólf sóttu um sviðs- stjórastarf TÓLF umsóknir bárust um starf sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs Akureyrarbæj- ar. Þeir sem sóttu um eru Arnar Sverrisson, Akureyri, Benedikt Sigut'ðarson, Akureyri, Finnur Magnús Gunnlaugsson, Kópa- skeri, Guðmundut' Þór Ás- mundsson, Akureyri, Guð- mundur Sigvaldason, Akureyri, Guðni Hreinsson, Akureyri, Ingólfur Ármannsson, Akur- eyri, Jón Einar Haraldsson, Egilsstöðum, Katrín Dóra Þor- steinsdóttir, Akureyri, Magnús Þór Ásgeirsson, Akureyri, Sturla Kristjánsson, Akureyri og Sveinn Birgir Hreinsson, Húsavík. Undir fræðslu- og frístunda- svið Akureyrarbæjar heyra leikskólamál, skólamál, menn- ingarmál og íþrótta- og tóm- stundamál. Fatasöfnun í Glerárkirkju FATASÖFNUN Hjálparstofn- unar kirkjunnar verður opin í Glerárkirkju á morgun, fimmtudag og föstudag frá kl. 10 tii 20 og á laugardag, 12. apríl frá kl. 10 til 18. Tekið er á móti hreinum og heilum fatnaði, en óskað eftir að fólk flokki fötin og merki fatapokana í samræmi við flokkun ef tök eru á. Einnig er tekið á móti góðum skórn sem bundnir eru saman. Gert er ráð fyrir að senda fötin til fyrrum Júgóslavíu, Tjetjeníu og Angóla. Æfingar hjá Kór Tónlistar- skólans ÆFINGAR eru að hefjast aftur hjá Kór Tónlistarskólans á Akureyri. Kórinn .æfir einu sinni í viku, á miðvikudags- kvöldum, frá kl. 18 til 20 á sal skólans. Næsta verkefni verður Petit Messe Sollenelle eftir Rossini sem flutt verður í vor ásamt einsöngvurum. Kórinn er opinn öllu söng^fólki. Stjórnandi er Michael Jón Clarke.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.