Morgunblaðið - 09.04.1997, Page 16

Morgunblaðið - 09.04.1997, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTl Velta Skagstrendings hf. dróst saman um alls 11% á síðastliðnu ári Hagnaðurinn minnkaði um helming Skagstrendingur hf Úr reikningum ársins 1996 Rekstrarreikningur Míiijónír króna 1996 1995 Breyting Rekstrartekjur 1.364,6 1.554,5 -11,6% Rekstrargjöld 1.160.1 1.268,4 -8.6% Hagnaður fyrir afskriftir 204,6 276,2 -25,9% Afskriftir (121,6) (185,6) -34,5% Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöid) (59.01 (25,4) +132.5% Hagnaður (tap) af reglulegri starfsemi 24,0 65,1 -63,2% Aðrar tekjur og gjöld 19,5 18,2 +7,1% Hagnaður (tap) fyrir skatta 43,5 83,3 -47,8% Hagnaður (tap) ársins 40,1 80,5 -50,2% Efnahagsreikningur 31. des.: 1996 1995 I Eionir: I Milljónir króna Veltufjármunir 694,6 493,7 +40,7% Fastafjármunir 1.714,1 1.259,1 +36,1% Eignir samtals 2.408,7 1.752,7 +37,4% I Skuidir on einið fé: I MiHjónir króna Skammtímaskuldir 642,3 443,9 +44,7% Langtímaskuldir 1.163,2 811,0 +43,4% Eigiðfé 603,3 497,9 +21,2% Þar af hlutafé 261.3 278.6 -6.2% Skuldir og eigið fé samtals 2.408.7 1.752,7 +37.4% Sjóðstreymi 1996 1995 Veltufé frá rekstri Milljónir króna 92,6 183,3 -49,5% HAGNAÐUR Skagstrendings hf. nam 40,1 milljón króna á síðasta ári. Áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir 45 milljóna króna hagnaði og er útkoman því fímm milljónum króna lakari en ráðgert var. Velta fyrirtækisins dróst saman um 11,6% á árinu og nam 1.365 milljón- um króna. Hagnaður fyrir Ijármagnsliði er minni en áætlað var, sérstaklega vegna minni afla í úthafsveiðum og mikilla verðlækkana á pillaðri rækju að því er kemur fram í frétt frá fyrirtækinu. Útkoma ijár- magnsliða var þó hagstæðari en reiknað var með og óreglulegar tekjur vógu lakari rekstrarútkomu að mestu upp. Árið 1996 einkenndist af mikilli áherslu á úthafsveiðar og veruleg- um framkvæmdum sem fyrirfram var vitað að kæmu niður á afkomu félagsins á árinu. Þá reiknar fyrir- tækið með auknum hagnaði á árinu og næstu árum. Á síðasta ári tók Skagstrending- ur tvö frystiskip í notkun og hófu þau veiðar eftir umfangsmiklar endurbætui'. Rækjufrystitogarinn Helga Björg HU 7 hóf veiðar í lok janúar og var aðallega á veiðum á Flæmska hattinum. Flaka- og heil- frystitogarinn Arnar HU 1 hóf veið- ar í lok maí. Þriðji frystitogari fé- lagsins, Örvar HÚ 21, var gerður út mestallt árið. í fyrra keypti Skagstrendingur hf. allt hlutafé Hólaness. Voru fé- lögin sameinuð í nóvember og gerð upp í einu lagi um áramótin. Rækju- verksmiðja Hólaness hf. var lokuð vegna endurbyggingar og stækkun- ar frá júlí til september. Nú er unn- ið að því að ljúka framkvæmdum við hráefnismóttöku og frystiklefa. Eftir þessar endurbætur verður verksmiðjan ein af hinum fullkomn- ustu á landinu að sögn forráða- manna fyrirtækisins. Orvar verður seldur í janúar náðist samkomulag við eigendur Fiskiðjunnar Dvergasteins hf. um sameiningu félaganna og hyggst hið sameinaða félag hasla sér völl í vinnslu á síld og loðnu á Seyðisfirði. Með kaupunum á Hóla- nesi og Dvergasteini jók félagið veiðiheimildir sínar um 1.075 þorskígildistonn og eru þau þá sam- tals orðin 7.400 tonn í íslenskri lög- sögu. Einnig eignaðist félagið um 2,9% hlut í Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna með þessum kaupum. Skagstrendingur hf. hyggst selja frystitogarann Órvar á árinu og einnig mun frystihús Hólaness verða úrelt af Þróunarsjóði. Fyrir- tækið ráðgerir að söluverð nemi samtals um 450 milljónum króna og að söluhagnaður verði ekki und- ir 250 milljónum. Ekki er ráðgert að kaupa annað skip í stað Örvars. Morgunfundur hjá VÍ Stærri og færri verslanir SÉRMERKJAVÖRUM í matvöru- verslunum á eftir að fjölga verulega á næstu árum í Evrópu. Fákeppni mun aukast á matvörumarkaði þar sem stórar matvöruverslanakeðjur eiga eftir að stækka enn frekar á kostnað lítilla versiana. Samfara þessu eiga matavöruverslanir eftir auka úi-val á annarri vöru en mat- vælum þannig að neytendur geti keypt inn á einum stað. Þetta kom meðal annars fram í erindi dr. Johns Dawsons, prófessors við Háskólann í Edinborg, á morgun- fundi Verslunarráðs Islands í gær. Dawson segist telja að hlutur sérmerkjavöru í verslunum eigi eft- ir að verða um 30% af vöruúrvali og -sölu verslana á næstu árum og því eigi ábyrgð á gæðum vör- unnar eftir að færast frá framleið- endum til smásala þar sem hún sé seld undir hans vörumerki. Auk Johns Dawsons, sem hefur starfað sem ráðgjafi nokkurra af helstu verslunarkeðjum Englands og Spánar, voru Höskuldur Ásgeirs- son, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs íslenskra sjávaraf- urða, og Sigurður Jónsson, fram- kvæmdastjóri Kaupmannasamtaka íslands, framsögumenn á fundinum þar sem íjallað var um þróun í dreif- ingu og smásölu matvæla. Japanir vilja hlut í evrópsku sjónvarpi Tókýó. Reuter. MATSUSHITA fyrirtækið í Jap- an kveðst hafa hert á tilraunum til að hagnast á möguleikum stafræns sjónvarps með því að fara að dæmi Sony og eignast hlut í evrópsku sjónvarpi. Matsushita kveðst eiga í við- ræðum við mörg evrópsk sjón- varpsfyrirtæki um hugsanlegan eignarhlut, þar á meðal brezka gervihnattasjónvarpið BSkyB, sem News Corp íjölmiðlafyrir- tæki Rupert Murdochs stofnaði. „Við ræðum við alla um að- ild,“ sagði Seinosuke Kuraku, yfirmaður Evrópudeildar fyrir- tækisins. „BSkyB gæti komið til greina." Kuraku sagði að Matsushita leitaði samstarfsaðila á öllum svæðum sjónvarpsmarkaðarins í Evrópu. Matsushita er meðal annars þekkt fyrir vörumerki sitt, Panasonic, og hefur aðallega áhuga á að selja heimiium varn- ing sinn. Þjónustuáætlun Grænland Næstu viðkomur Royal Arctic Line í Reykjavík verða sem hér segir: Skip Frá Reykjavík Koma Nuuk Koma Sisimiut l\luka Arctica 710 14. apríl 19. apríl 18. apríl Arina Arctica 714 27. maí 31. maí 6. júní Arina Arctica 719 30. júní 4. júlí 8. júlí Arina Arctica 722 1. ágúst 5. ágúst 19. ágúst Allar nánari upplýsingar s.s. um komutíma til annarra hafna veitir Eimskip, utanlandsdeild, sími 525 7215. EIMSKIP ROYAL ARCTIC^ LINEA/s Aburðarverksmiðjan hf. boðin til sölu í opnu útboði Ríkið vill selja öll hlutabréfin í einu RÍKISSJÓÐUR hefur auglýst Áburðarverksmiðjuna hf. til sölu í opnu útboði. Bjóðendum gefst kostur á að gera tilboð í öll hlutabréf verk- smiðjunnar eða i minnihluta þeirra. Nafnverð hlutabréfanna er einn milljarður króna. Yfirlýst markmið ríkisins með sölunni er að hætta afskiptum af áburðarframleiðslu og dreifingu með því að selja öll hluta- bréfin í verksmiðjunni. Söluskilmálar eru þeir að óskað er eftir bundnum tilboðum og án Frakkar snupra Breta ímáli Thom- son-CSF París. Reuter. FRAKKAR hafa sagt að þeir muni ekki leyfa General Electric (GEC) í Bretiandi að bjóða í 58% hlut franska ríkisins í hergagna- og raf- eindatæknifyrirtækið Thomson- CSF af öryggisástæðum. GEC gaf til kynna að fyrirtækið hefði ekki gefizt upp og ætti í við- ræðr.m við tvö frönsk fyrirtæki, sem fá að bjóða í Thomson-CSF-Lagard- ere Groupe og Alcatel Alsthom. Franska fjármáiaráðuneytið seg- ir það stríða gegn þjóðarhagsmun- um að selja erlendu fyrirtæki meira en 50% hlutabréfa í Thomson-CSF og því sé tilboð GEC ekki gilt. Sérfræðingar í London segja að ólíklegt hafi verið talið að tilboð GEC í franskt fyrirtæki yrði leyft. Þeir telja að með samvinnu við franska aðila kunni GEC að eignast hlut í Thomson-CSF. fyrirvara í hlutabréfin. Bjóðendum gefst kostur á að gera tilboð í öll hlutabréf verksmiðjunnar eða í minnihluta þeirra. Framkvæmda- nefnd um einkavæðingu annast söl- una fyrir hönd ríkisins og hefur sam- ið við verðbréfafyrirtækið Handsal hf. um undirbúning og umsjón með sölunni. Ríkissjóður áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum eða taka hvaða gilda tilboði sem er. Frestur til að skila inn tilboðum í verksmiðjuna rennur út hinn 30. maí næstkomandi en þá verða tilboð opnuð að viðstöddum bjóðendum. Greiðslu- og afhendingardagur er 20. júní og kveðið er á um stað- greiðslu kaupverðsins. Skarphéðinn Steinarsson, ritari framkvæmdanefndar um einkavæð- ingu, segir að skilmálarnir séu mið- aðir við það að annaðhvort verði öll verksmiðjan seld í þessari lotu eða þá einungis minnihlutinn í henni. „Helst vill ríkið selja hana alla en ef ekki berast viðunandi tilboð kem- ur til greina að selja minnihlutann í henni til að byrja með. Ríkið vill hins vegar ekki vera minnihlutaeig- andi þannig að ef tilboð berast um kaup á meirihluta í verksmiðjunni verða þau ekki tekin gild. Það er ómögulegt að spá nokkru um það hvert kaupverðið verður en nú þegar hafa nokkrir aðilar sýnt málinu áhuga, bæði innlendir og erlendir. Starfsemi verksmiðjunnar er með þeim hætti að það er talið heppi- legra að sterkir og samhentir aðilar taki við rekstri hennar en t.d. al- menningshlutafélag með mjög dreifða eignaraðild." Miklir möguleikar Á síðastliðnum árum hafa nokkrar umræður átt sér stað um það hvort Áburðarverksmiðjan eigi heima í Áburðarverksmiðjan Rekstrarafkoma 1992-1996 Milljónir króna 63 1995 1996 1992 1993 1994 Grafarvogi eða hvort flytja eigi hana eitthvert annað eða jafnvel leggja hana niður. Skarphéðinn segir að engin óvissa ríki um starfsemina enda hafi verksmiðjan lóðarleigu- samning til ársins 2019. „Fram- leiðslan er vistvæn og við hana er ýtrustu skilyrðum um mengunar- varnir og öryggi fullnægt. Það eru engu að síður miklir möguleikar fyr- ir hendi um að styrkja reksturinn með því að fara í aðra starfsemi og þar er staðsetningin styrkur." Núverandi starfsvið fyrirtækisins er rekstur áburðarverksmiðju og annarrar efnavinnslu, innflutningur, sala á innlendum og erlendum mark- aði, dreifing og framleiðsla á áburð- arefnum og skyld starfsemi. Velta fyrirtækisins í fyrra nam 1.100 milljónum króna. Eigið fé var tæpar 1.800 milljónir um síðustu áramót og eignir námu 2.030 millj- ónum. Starfsmenn fyrirtækisins eru um eitt hundrað talsins. TAP 57

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.