Morgunblaðið - 09.04.1997, Page 27

Morgunblaðið - 09.04.1997, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1997 27 Um fjölskyldu- ráðgjöfina Samvist Á SÍÐASTA ári var undirritaður sam- starfssamningur milli Mosfellsbæjar og Reykj avíkurborgar um sameiginlegan rekstur Qölskylduráð- gjafar. Fjölskyldur- áðgjöfin Samvist er opin fjölskyldum í sveitarfélögunum tveimur sem eru með börn á aldrinum 0-18 ára. Samningurinn gildir til tveggja ára og skulu aðilar ákveða fyrir árslok 1997 hvort um áframhald- andi rekstur verður að ræða eftir lok tilraunatímabilsins. Um þessar mundir er rúmlega hálft ár síðan byrjað var að taka á móti fyrstu fjölskyldunum í ráð- gjöf. Er því ekki úr vegi að staldra lítillega við og skoða hvernig starf- semin hefur þróast og íhuga jafn- framt þann vanda eða þau verkefni sem íslenskar íjölskyldur eru að glíma við. Þegar þetta er ritað hafa 190 ijölskyldur leitað til Samvistar, þar af 23 búsettar í Mofellsbæ. Fyrir áramót höfðu 102 fjölskyldur leitað Fjölskylduráðgjöfin er opin fjölskyldum í Mosfellsbæ og Reykjavík. Rannveig Guðmundsdóttir segir að í yfir 50% tilvika sé ráðgjafar leitað vegna unglings 12-18 ára. sér aðstoðar, þar af 9 frá Mos- fellsbæ. í þeim fjölskyldum sem leituðu fyrir áramót voru foreldrar giftir eða í sambúð í 56% tilvika en einstæðir foreldrar voru 44%. Hjá rúmlega þriðjungi foreldra í sambúð var um stjúptengsl að ræða við barn eða börn maka. En hvaða viðfangsefni eru það sem fjölskyldan leitar aðstoðar við hjá Samvist? Yfirgnæfandi meirihluti leitar vegna barns eða unglings í fjöl- skyldunni (71%). Rúmur helmingur af þessum hópi (51%) leitar vegna unglings á aldrinum 12-18 ára, 42% vegna barna á aldrinum 6-12 ára og 7% vegna barna undir 6 ára aldri. Sá vandi sem hér um ræðir er margvíslegur og birtist annað- hvort innan eða utan fjölskyldunn- ar en í sumum tilvika birtast erfið- leikarnir hjá einstaklingi bæði í innra og ytra umhverfi. Það getur verið um hegðunarerfiðleika að ræða á heimili eða í skóla, vanlíðan af ýmsu tagi sem stundum tengist breytingum á högum fjölskyldunn- ar eða að unglingurinn er í upp- reisn gegn siðum og reglum heimil- is eða umhverfis. Sameiginlegt þessum foreldrum er að þeir hafa áhyggjur af velferð barna sinna en finna stundum til öryggisleysis og vanmáttar í hlutverki sínu sem for- eldrar. í öðrum tilvikum (27%) telja for- eldrar að vandinn sé fyrst og fremst þeirra á milli. Þá er annars vegar hægt að tala um hjónabands- eða sambúðarerfiðleika og hins vegar ósamkomulag um börnin hvort sem foreldrar búa saman eða ekki. (At- hugið að allar prósentutölur eru miðaðar við þann fjölda sem leitað hafði til Samvistar fyrir áramót.) Þá er einnig nokkuð um að fjölskyldur leiti til Samvistar í þörf fyrir stuðning vegna langvarandi erfiðleika eða áfalla s.s. veikinda, missis af e-u tagi o.fl. þess háttar og hefur sá hópur farið vaxandi. Hjá Samvist starfa 5 sérfræðingar, allir með langa reynslu af meðferðarstörfum, þar með talið fjölskyldu- vinnu og fjölskyldu- meðferð. Lögð hefur verið áhersla á að gera þjónustuna eins að- gengilega almenningi og kostur er en gert er ráð fyrir að fólk leiti milliliðalaust til Sam- vistar og panti tíma. Gjaldið fyrir viðtalið er 700 kr. en 300 kr. fyrir lífeyrisþega og atvinnulausa. Mikilvægt er að hafa í huga þegar fólk leitar sér hjálpar að sér- hver fjölskylda er einstök í sinni röð. Engar tvær fjölskyldur eru nákvæmlega eins. Við erum ólík útfrá svo mörgum forsendum. Saga hvers og eins er mismunandi. Fólk hefur ólíka afstöðu til forfeðranna og formæðranna, tengsl okkar við upprunafjölskylduna (sú ijölskylda sem við fæddumst í) birtast með margvíslegum hætti og við notum ýmsar leiðir til að skapa eða við- halda siðum og venjum og sinna þeim verkefnum sem fjölskyldulífið krefst af okkur. Brýnt er að leggja áherslu á þá styrkleika sem er að finna innan hverrar fjölskyldu og hjálpa fólki við að leysa þá úr læð- ingi. Þrátt fyrir innri styrkleika og veikleika fjölskyldunnar hefur hún á öllum tímum verið háð hinum ytri öflum þjóðfélagsins og er þá átt við stefnur og markmið stjórn- valda hvetju sinni og annarra sem hafa bein áhrif á afkomu og öryggi fjölskyldnanna. Óhætt er að full- yrða að fjölskyldan hafi aldrei sem nú verið jafnháð hinum ytri öflum sem hafa yfirtekið mörg þeirra hlutverka sem hún sinnti áður fyrr. Stærstu hlutverkin eru að sjálf- sögðu menntunin og atvinnan en stjórn og skipulag þessara mikil- vægu þátta í lífi fólks er í höndum aðila utan fjölskyldunnar. En veigamesta hlutverkið er þó enn í höndum fjölskyldunnar og verður þar áfram nema að fjölskylduform- ið sem slíkt leysist upp. Er þá átt við þann þátt sem snýr að andlegri og líkamlegri velferð heimilis- manna en heimilið þarf að vera griðastaður þar sem slík næring er gefin og þegin. Með öðrum orð- um sá þáttur sem eflir tilfinninga- þroska manneskjunnar og hefur mikil áhrif á hvernig lífshlaup hennar verður. Mikilvægi stjórn- valda felst í því að skapa með stefnu sinni í fjölskyldumálum þá umgjörð að fjölskyldan geti sem best sinnt þessu mikilvæga hlut- verki. í hinu mikla umróti og örum breytingum síðustu áratuga hefur fjölskyldan þurft að glíma' við að aðlagast, oft við erfiðar félagslegar aðstæður. Jafnframt hefur hún verið einangruð í þeirri merkingu að samfélagið hefur ekki sem skyldi boðið upp á aðstöðu þar sem fjöl- skyldan getur rætt um líf sitt og möguleika á breytinum þegar róð- urinn verður þungur. Fjölskyldu- ráðgjöfin Samvist er m.a. hugsuð sem vettvangur til að mæta þessari þörf. Höfundur er félagsráðgjafi og forstöðumaður Samvistar. Rannveig Guðmundsdóttir Af túlkunum skuluð þér þekkja þá OHUGNANLEGUR atburður átti sér stað hér á landi um miðjan marsmánuð og vakti athygli landsmanna. Sá atburður sem um ræðir gerðist á barnaheimili í Hafnarfirði er ófag- lærður starfsmaður á barnaheimilinu setti límband fyrir munn 2 ára drengs. Þetta átti aldrei að gerast en gerðist engu að síður og menn setti hljóða að svona skyldi gerast inn- an veggja barnaheimil- is. Ég ætla ekki að gera þennan atburð að umtalsefni í grein minni heldur tengja hann við annan atburð sem einhvers staðar djúpt niðri er tengd- ur þessum atburði. Það sem mig langar að gera að umtalsefni er túlkaþjónusta heyrn- arlausra. í bytjun september á síð- asta ári sendi félagsmálaráðherra Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra (skammst. SHH) bréf þess efnis að ekki yrði um fram- hald á styrkveitingu til túlkaþjón- ustu SHH á vegum félagsmálaráðu- neytisins að ræða. Menn setti hljóða. Þetta hafði gerst og það í jafnmiklu velferðarþjóðfélagi og ísland er. Með þessari ákvörðun er límt fyrir munn og hendur heyrnarlausra og tjáning- arfrelsi okkar þar með skert, þannig að við eigum ekki einu sinni mögu- leika á að beijast fyrir réttindum okkar. Það var óhugnanlegur atburður og stendur enn, ekki aðeins örfáar sekúndur/mínútur eins og hjá litla drengnum. Við höfum límbandið enn. Við heyrnarlausir einstaklingar getum ekki sinnt þörfum okkar í daglegu lífi og missum þar af leið- andi brot af okkar daglega lífs- mynstri. Við getum til dæmis ekki farið í læknis- eða sérfræðingsheim- sóknir fyrir okkur sjálf eða bömin okkar, ekki farið í viðtal vegna at- vinnuumsóknar, ekki farið á fyrir- lestra á vegum foreldrafélags leik- skóla og grunnskóla barna okkar, ekki farið til sálfræðings, ekki keypt bíl eða fasteign eða gert aðra stórsamn- inga eða sinnt áhuga- og tómstundamálum okkar eða menningar- lífi og hvorki notið sam- félagslegra réttinda okkar eða rækt skyldur okkar við samfélagið þegar réttur okkar til túlkaþjónustu er hvergi tryggður. Til þess að geta gert ofantalið verðum við að nota túlk og vera þar með full- gildir þátttakendur í ís- lensku samfélagi. Einhvers staðar inni á skrifstofu félagsmálaráðherra liggur fyrir nefndarálit með tillögum að lausn þess máls. Nefndarálit þetta er sam- ið af fulltrúm þriggja ráðuneyta, þ.e. félags-, heilbrigðis- og mennta- mála, og fulltrúum heymarlausra Með þessari ákvörðun var, segir Sigurlín Margrét Sigurðar- dóttir, límt fyrir munn heyrnarlausra. hins vegar. Nefndarálit þetta sem félagsmálaráðherra var afhent 9. apríl 1996 er það gott, að það myndi sóma sér vel í hvaða velferðarsamfé- lagi sem við íslendingar erum hreyk- in af að hafa, eða reynum eftir fremsta megni að gera ísland að mesta velferðarsamfélagi og viljum passa upp á að enginn verði útundan í því samfélagi. Heyrnarlausir á íslandi eru því miður strandaðir hvað varðar sam- skipti. Ríkisstjórnin og aðrir tengdir þessu í æðstu embættum landsins vita af þessu máli, en allir halda þeir að sér höndum og vísa hver á annan. Að minnsta kosti hefur ekk- ert gerst þegar þetta er skrifað. Hversu margir hafa strandað? Jú, það eru um 300-350 manns sem hafa strandað, allt heyrnarlausir, heyrnarskertir og daufblindir ein- staklingar. Þessir einstaklingar tala táknmál. Að tala táknmál er ekki á færi hvers manns hér á landi, því verðum við að hafa túlk/rit- túlk,/daufblindratúlk til að geta tjáð okkur á réttan hátt, komið máli okkar til skila, fengið þær upplýs- ingar sem okkur vanhagar um og haft áhrif. Við getum ekki gert þetta nema að hafa túlk með. Þessu strandi verður að bjarga og félags- málaráðherra getur það, sennilega í samvinnu við aðra. SHH heyrir undir menntamála- ráðuneyti samkvæmt lögum. Menntamálaráðuneytið leggur fram kr. 6.000.000 til skólatúlkunar. Fé- lagsmálaráðuneytið lagði á síðasta ári fram kr. 2.000.000 til túlkaþjón- ustunnar. Nú er ekki um meiri pen- inga að ræða frá félagsmálaráðu- neyti. Það er ekki aðalmálið undir hvaða ráðuneyti stofnunin heyrir. Hvernig væri það nú ef stofnunin tilheyrði félagsmálaráðuneyti og fengi ekkert fýrir skólatúlkun frá menntamálaráðuneyti? Árni Gunn- arsson, aðstoðarmaður félagsmála- ráðherra, sagði í viðtali við frétta- mann RUV að ef við í Félagi heyrn- arlausra samþykktum flutning SHH undir félagsmálaráðuneytið væru þeir tilbúnir að borga túlkaþjón- ustuna. Svar okkar við þessu er að við lifum öll í einu samfélagi og munum alltaf þurfa á túlkaþjónustu að halda vegna þátta sem heyra undir öll ráðuneytin. Ég, sem heyrnarlaus einstakling- ur, bið því félagsmálaráðherra að skapa okkur skilyrði til þess að lifa eðlilegu lffi, án límbands og strands. Ég vona að hann geti tekið sér stund og lesið umrætt nefndarálit með opnum huga og komist að jákvæðri niðurstöðu, sem allir geta unað sátt- ir við og snúið sér að sínum daglegu þörfum og skyldum lífs síns. Höfundur er ritari í Félagi heymarlausra og í stjórn Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra. Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Húsaleigubætur fyrir Kópavogsbúa FRÁ því greiðsla húsaleigubóta hófst hér á landi hefur mikil ágreiningur verið milli ríkis og sveitarfélaga um fyrirkomulag á greiðslu þeirra. Ríkis- stjórnin ákvað einhliða að bætur yrðu greidd- ar að hluta af ríkissjóði og að hluta af sveit- arfélögum og hefur ekki viljað breyta þess- ari ákvörðun þrátt fyr- ir að áskoranir hafi komið um það frá fjöl- mörgum sveitarfélög- um. Mesti ágalli nú- verandi laga er að þessar bætur eru takmarkaðar við eignarhald á því húsnæði sem til leigu er og nær því ekki til þeirra sem helst þurfa á þessum bótum að halda. Greiðsla húsaleigubóta í Kópavogi Á fundi fulltrúaráðs Sambands ísl. sveitarfélaga 21. og 22. mars sl. voru kynntar tillögur að nýju fyrirkomulagi á greiðslu húsaleigu- bóta og gerði fulltrúaráð sambands- ins tillögur um nýtt fyrirkomulag þar sem bætur skyldu ná til alls húsnæðis óháð eignahaldi. Formað- ur sambandsins, Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson, gerði ágæta grein fyrir þessum til- lögum í Morgunblaðinu sl. laugardag. Með því fyrirkomulagi, sem Sambandi ísl. sveit- arfélaga leggur til, er komið til móts við þær athugasemdir sem þau sveitarfélög hafa gert, sem ekki greiða húsa- leigubætur, þar á með- ai Kópavogsbæ. Bæjarstjórn Kópa- vogs hefur margsinnis ályktað um að núver- andi fyrirkomulag sé ekki viðunandi, m.a. vegna þess að lagðar séu skyldur á sveitarfélög, en þeim ekki mætt með viðunandi tekju- stofnum á móti. Með nýjum tillög- um er hinsvegar komið til móts við þessa gagnrýni okkar Kópa- vogsbúa. I framhaldi af 53. fundi fulltrúa- ráðs Sambands ísl. sveitarfélaga hef ég lagt fram tillögu í bæjar- stjórn Kópavogs um að frá 1. jan- úar 1998 verði greiddar húsaleigu- bætur í Kópavogi. Ég tel þetta rétt- lætismál fyrir þá fjölmörgu sem þurfa á þessum bótum að halda og bæjarstjórn Kópavogs sé ekki stætt á því að taka ekki upp húsaleigu- bætur. Bragi Michaelsson Samskipti ríkis og sveitarfélaga Þetta mál sem hér er til umræðu leiðir hugann að samskiptum ríkis og sveitarfélaga og ekki síst ný- legri tillögu ríkisstjórnarinnar um að sveitarfélög komi að lækkun skatta í tengslum við gerð þeirra kjarasamninga sem nú er verið að ganga frá. í sjálfu sér er ekkert að því að sveitarfélög gæti að því hvar setja eigi mörk skattlagningar eða innheimtu þjónustugjalda, en slíkar fyrirskipanir eða tillögur eiga hins- vegar ekki að koma frá ríkisfórn. Fjárhagslegt sjálfstæði sveitarfé- Margsinnis hefur verið ályktað, segir Bragi Michaelsson að núverandi fyrirkomulag sé óviðunandi. laga er nauðsynlegt og má ekki skerða með sífelldum ákvörðunum eða lagasetningu að tilstuðlan ríkis- stjórnar. Það er mikilvægt að skörp skil séu þar á milli og einnig svig- rúm fyrir sveitarstjórnir til þess að taka sjálfstæðar ákvarðanir. Þegar ákvörðun um álögur á íbúa sveitar- félaga er tekin geta verið fyrir hendi þær aðstæður að íbúar séu sáttir við hærri álögur tímabundið, ef sveitarstjórn er að leysa verkefni sem íbúar leggja áherslu á. Höfundur er bæjarfulltrúi í Kópavogi og formaður skóianefndar Kópavogs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.