Morgunblaðið - 12.04.1997, Síða 15

Morgunblaðið - 12.04.1997, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1997 15 Fjarhönnun hf. skráð á hlutabréfamarkaði vestanhafs Samningar við stórfyr- irtæki í burðarliðnum HUGBÚNAÐARFYRIRTÆKIÐ Fjarhönnun stefnir að skráningu á hlutabréfamarkaði í New York eða Toronto á næsta eða þarnæsta ári. Þrjár gerðir af hugbúnaði fyrirtækis- ins, flugumferðarbúnaðurinn Flug- vakinn, viðhaldshugbúnaðurinn Verkvakinn og ASK-gagnabankinn, hafa hlotið góðar viðtökur banda- rískra stórfyrirtækja að sögn for- ráðamanna fyrirtækisins. Nokkrir samningar hafa verið gerðir og fleiri eru í burðarliðnum. Fjarhönnun hf. sér um þróun hug- búnaðarins og er að auki móðurfyrir- tæki nokkurra markaðsfyrirtækja í Bandaríkjunum, Bretlandi og Kanada. Fyrirtæki Fjarhönnunar í New York heitir High Speed Inform- ation (HSI) og hefur það borið hit- ann og þungann af markaðssetning- unni fram til þessa. Joe Agoglia, forstjóri HSI, telur að hugbúnaður Fjarhönnunar eigi afar mikla möguleika á bandarískum markaði enda hafi hann nú þegar sannað sig á fjölmörgum sölusýning- um og prófunum á vegum fyrir- tækja og opinberra aðila. Nú þegar hafi náðst samningar við mörg af stærstu fyrirtækjum Bandaríkjanna um sölu og uppsetningu á búnaðin- um. Flugvakinn, sem er hugbúnaður fyrir flugumferðarstjóra, var þróað- ur í samvinnu við Flugmálastjórn íslands. Um er að ræða rafrænan gagnabanka sem inniheldur m.a. texta, kort og gröf. Nú þegar hefur búnaðurinn verið seldur til banda- ríska hátæknifyrirtækisins Lock- heed Martin og er nú unnið að upp- setningu hans á nokkrum flugum- ferðarstjórnarstöðvum og flugturn- um þar vestra. Að sögn Agoglia hafa bandarísk og kanadísk flug- málayfirvöld sýnt búnaðinum mikinn áhuga og eru með hann til skoðunar. ASK-hugbúnaðurinn (Automatic Service Kiosk) er hugbúnaður sem veitir almenningi aðgang að gagna- bönkum á einfaldan hátt. Hérlendis hefur búnaðurinn t.d. verið settur upp í flughöfnum og umferðarmið- stöðvum og eru upplýsingar sýndar á skjá með valmyndum. Agoglia segir að samið hafi verið við AVIS bílaleiguna um að hún taki að sér markaðssetningu á ASK-búnaðinum til 22 þúsund hótela. Þijú hótel hafa ákveðið að taka búnaðinn í notkun. Viðhaldshugbúnaðurinn Verkvak- inn gerir framleiðslufyrirtækjum kleift að fylgjast á myndrænan hátt með framleiðsluferli og viðhaldsþöt'f tækja. Búnaðurinn hefur verið seldur víða hérlendis og er m.a. notaður hjá Vífilfelli, KEA og Samhetja. í Bandaríkjunum hefur hann verið seldur til nokkurra stórra fyrirtækja. Stóðst ströngustu kröfur Gupnlaugur Jósefsson og Magnús Ingi Óskarsson, framkvæmdastjórar Fjarhönnunar, segjast ánægðir með hvað hugbúnaður fyrirtækisins hafi vakið mikla athygli vestan hafs og að hann hafi staðist ströngustu kröf- ur stórfyrirtækjanna. Þegar hafi verið samið við fimm fyrirtæki og viðræður standi yfir við fleiri. Þeir segja að í kjölfar mikils áhuga hafi verið leitað eftir kaupum á HSI í Bandaríkjunum en Fjarhönnun á 80% í fyrirtækinu. Fyrirtækin sem um ræðir eru Science Applications International Corp. (SAIC) UNISYS Corp. og Thermo Information Soluti- ons. „Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort HSI verður selt en þess má geta að í könnunarvið- ræðum við fulltrúa SAIC kom fram að þeir teldu fyrirtækið vera 5,5 Morgunblaðið/Þorkell JOSEPH R. Agoglia, forstjóri High Speed Information Inc., dótturfyr- irtækis Fjarhönnunar hf. í Bandaríkjunum, og Ronald J. Terpak, ráðgjafi hjá fyrirtækinu á fundi þar sem áform fyrirtækjanna voru kynnt fyrir íslenskum fagfjárfestum. milljóna dollara [385 milljónir króna] virði. Nú standa yfir viðræður við Thermo Information Solutions um hugsanlega sölu. í söluviðræðum leggjum við áherslu á að við séum í þeirri stöðu að velja okkur sem sterkastan kaupanda eða samstarfs- aðila. Slíkt er afar mikilvægt með framtíðarútbreiðslu í huga.“ Gunnlaugur og Magnús segja að ákveðið hafi verið að Fjarhönnun muni fara á almennan hlutabréfa- markað í Bandaríkjunum eða Kanada á næsta ári eða þarnæsta. Helst komi til greina að skrá fyrir- tækið á NASDAQ hlutabréfamark- aðnum í Toronto í Kanada eða á hlutabréfamarkaðnum í New York (NYSE). Fulltrúar fyrirtækisins hafi nú þegar átt fundi með hugsan- legum samstarfsaðilum í hópi verð- bréfafyrirtækja í þessum borgum. Fjarhönnun hefur enn fremur ákveðið að ráðast í hlutafjárútboð vegna þessara fyrirhuguðu aðgerða. „Markmiðið er að styrkja eiginfjár- og lausafjárstöðu fyrirtækisins, standa straum af kostnaði við undir- búning hlutafjárútboðs erlendis og að styrkja hluthafasamsetningu fé- lagsins með innkomu fagfjárfesta. Við höfum nú þegar kvatt slíka fjár- festa til viðræðna og hafa viðtökur þeirra verið mjög góðar. Um er að ræða 60 milljóna króna hlutafjárút- boð og nemur sú upphæð um 20-25% af markaðsvirði Fjarhönn- unar.“ Tangihf.úrá^nin9ii Tölur frá 1995 eiga aðeins við um rekstur móðurfélagsins Samstæða Móðurfélag Rekstrarreikningur Miiijónir króna 1996 1995 Rekstrartekjur 1.155,1 642,2 iRekstrargjöld í1.002.8) (585.1) Hagnaður fyrir afskriftir og fjárm.liði 152,3 57,1 Afskriftir (108,3) (63,5) Hreinn fjármagnskostnaður án verðbr.tekna (66,2) (45,0) iReiknaðar tekjur vegna verðl.breytlnga 18.1 13.3 Hagnaður (tap) af reglulegri starfsemi (4,0) (38,1) Aðrír iiðír (0,2) 40.3 Hagnaður (tap) (4,2) 2,2 Veltufé frá rekstri Milljónir króna 77,0 11,6 Heildareignir skv. efnahagsreikningi 1.632,4 1.242,0 Eigið fé skv. efnahagsreikningi 557,2 335,4 Þar af hiutafé 498,3 302,0 Afkoma Tanga hf. íjárnum á sl. ári TAP af reglulegri starfsemi Tanga hf. og dótturfélaga á Vopnafirði nam 4 milljónum króna á árinu 1996 sem er um 0,34% af veltu. Til samanburð- ar varð um 38 milljóna tap af reglu- legri starfsemi móðurféiagsins á ár- inu 1995. Að teknu tilliti til óreglu- legra liða varð tap félagsins 4,2 milljónir, en 2,2 milljóna hagnaður varð á móðurfélaginu 1995. Töluverð uppstokkun var gerð á rekstri Tanga á árinu 1996. Fyrir- tækið keypti 60% hlut í sérstöku hlutafélagi um loðnuskipið Sunnu- berg eftir loðnuvertíðina á síðasta ári, og um haustið eignaðist Tangi skipið alfarið. Þá jók Tangi hlut sinn í fiskimjölsverksmiðjunni Lóni úr 25% í 83% síðastliðið vor. Rekstrartekjur samstæðunnar námu alls 1.155 milljónum á sl. ári, en rekstrartekjur móðurfélagsins voru 642 milljónir árið 1995. Fram kemur í frétt frá Tanga að afkoman á síðasta ári sé í samræmi við rekstraráætlanir að því undan- skyldu að reiknaðar tekjur vegna verðlagsbreytinga miðist nú við neysluverðsvísitölu í stað byggingar- vísitölu áður. Ef tekjufærsla vegna verðbreytinga hefði verið miðuð við byggingarvísitölu hefði niðurstaðan orðið 25 milljóna hagnaður. Tangi fór ekki varhluta af miklum erfiðieikum í hefðbundinni botnfisk- vinnslu á síðasta ári og var verulegt tap af þeim hluta rekstrarins. Hins vegar var verulegur uppgangur í veiðum og vinnslu á loðnu og síld og afkoman af þeim hluta mjög góð. Tangi gerir út togarana Bretting og Eyvind Vopna auk nótaskipsins Sunnubergs. Þá rekur fyrirtækið fiystihús og dótturfélagið Lón rekur fiskimjölsverksmiðju, eins og fyrr segir. Mikil áherslubreyting hefur orðið í rekstri Tanga hf., þar sem vægi veiða og vinnslu á loðnu og síld hef- ur aukist verulega. Fyrirtækið hefur tekið í notkun sjálfvirkan frystibúnað sem stóreykur frystigetu á loðnu og síld og afkastageta loðnuverksmiðj- unnat' hefur verið aukin úr 350 tonn- um á sólarhring í 500 tonn. Gert er ráð fyrir að þessar breyttu áherslur skili sér verulega í bættum rekstri á árinu 1997. Á nýafstaðinni loðnuveitíð tók fyr- irtækið á móti ríflega 30 þúsund tonnum af loðnu. Þar af fóru rúm 3 þúsund tonn í frystingu fyrir Rúss- landsmarkað, en til samanburðar kornu 17.700 tonn af loðnu á land á vertíðinni 1996. Aðalfundur Tanga verður haldinn föstudaginn 18. apríl nk. á Vopna- firði og hefst kl. 17. Domino’s Pizza í Reykja- vík með mesta sölu VEITINGASTAÐUR Domino’s Pizza í Reykjavík var söluhæsti pítsastaðurinn innan keðjunnar á síðasta ári. Seldi staðurinn alls 165.000 pítsur í fyrra fyrir 138.717.206 krónur eða tvær millj- ónit' dollara, samkvæmt fréttatil- kynningu Domino’s Pizza. Á sérstakri hátið Domino’s Pizza í Nashville, Tennessee, fyrir skömmu voru verðlaun veitt, meðal annars söluhæsta pítsastaðnum, verzlunarstjóra ársins og bezta pítsusendlinum. í tilkynningu Domino’s segir að pítsustaður Domino’s Pizza í Reykjavík hafi verið meðal þeirra staða fyrirtækisins sem haft staðið sig bezt síðan hann var opnaður í október 1993 og sett met fyrstu vikuna eftir að hann var opnaður. Fjórir pítsustaðir Domino’s Pizza á íslandi eru í eigu Futura Inc. Söluhæsti staðurinn í Bandaríkj- unum et' í Camp LeJune í Jackson- ville, Norður-Karólínu, og voru pítsur að andvirði tæplega tvær milljónir dollara sendar landgöngu- liðum þar. Fyrirtækið rekur rúm- lega 5,600 staði í Bandaríkjunum og á 54 alþjóðlegum mörkuðum og seldi fyrirtækið fyrir andvirði 2,8 milljarða dollara í fyrra. SÍÐUSTU ÐAGAR ÚTSÖLUNKAR Húsgögn í öll herbergi hússins á stórlækkuðu verði Verðdæmi: 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. Hillusamstæða Falkan, hvít Verð áður 96.500 Verð nú 49.000. Höfðagafl og náttborð Rattan, hvítt og brúnt Verð áður 45.000 Verð nú 24.500. Sófasett, tau 3-2-1 Verð áður 190.000 Verð nú 80.000. Barnarúm, 90x200 hvítt, án dýnu, m/rúmfatageymslu og hillum Verð áður 17.200 Verð nú 7.000. Sófaborð (3 í setti) með glerpl. og gylltum/krómuðum fótum, Verð áður 41.000 Verð nú 19.000. Rúm, hvítt úr málmi, 140x200 sm, án dýnu Verð áður 33.200 Verð nú 15.000. Eldhússtólar beyki CS/211 Verð áður 7.100 Verð nú 5.500. Borðstofustólar CS/278 Sófaborð frá kr. 2.500. Verð áður 9.900 Verð nú 5.900. Komðu og gerðu góðkaup. TM - HÚSGÖGN SíSumúla 30 - Sími 568 6822 Opið laugardaga frá kl 10-16 og sunnudaga frá kl. 14-16.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.