Morgunblaðið - 12.04.1997, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1997 m i MORGUNBLAÐIÐ
-
ÚTI AÐ BORÐA MEÐ H E RÐI Þ ÓRÐARSYNI VEÐURFRÆÐINGI
VEÐRIÐ er eins og klippt úr kennslu-
bók í veðurfræði, skýringarmynd í
kafla um góðviðri, þar sem veðurfræð-
ingurinn og blaðamaðurinn sitja á áttundu
hæð Hótel Sögu. Heiður himinn endar við
sjóndeildarhringinn hvert sem litið er og
kvöldsólin vai'par gylltum geislum sínum á
hvítleita borgina.
Þjónninn kemur, afhendir matseðlana og
hellir vatni í glösin. Hann spyr hvort sólin sé
nokkuð að angra Hörð og blaðamann. Hörð-
ur, sem snýr baki í sunnu, kveður svo ekki
vera, „enda er sólin besti vinur veðurfræðings-
ins,“ útskýrir hann. Þjónninn þarf því ekki að
draga gluggatjaldið fyrir í þetta skiptið.
TH Mexíkó í sumarP
Eftir örstutta umhugsun ákveður Hörður
að gæða sér á „Heitu andaconfit og valhnet-
um á gufusteiktu hvítlaufi" í forrétt. Sem að-
alrétt velur hann „Villiþrennu: gæs, svartfugl
og hreindýr með gráðostaböku og eplasalati".
Eftirrétturinn hljómar ekki síður girnilega:
„Heitt súkkulaðiflauel með jarðarberjum í
súkkulaðikörfu og pistasíuís". Er Hörður
mikill sælkeri? „Já, svona inni á milli. Mér
finnst mjög skemmtilegt að fara á góð veit-
ingahús, en eins og gefur að skilja leyfir starf-
ið ekki mörg slík ævintýri enda er vinnutím-
inn óreglulegur. Þar að auki er auðvitað frek-
ar dýrt að stunda fínustu staðina reglulega.“
Þjónninn kemur með forréttinn, heitt
andaconfit, og eftir stutta stund er Hörður
beðinn álits á honum. „Hann er mjög góður
og ég er ekki frá því að það sé svolítið aust-
urlenskt bragð af sósunni," segir hann.
Starmur í vatnsglasi
Hörður segist aðspurður eiga nóg af áhuga-
málum utan veðurfræðinnar. „Ég hef mjög
gaman af ferðalögum og reyni alltaf að kom-
ast til útlanda á sumrin. Seinustu árin hef ég
verið að þræða stórborgir heimsins, New
York, London og París, en ég á eftir að
ákveða hvert skal halda í sumar. Mig langar
til Mexíkó, en það á eftir að ráðast."
Blaðamaður fær sér vatnssopa og skömmu
seinna sér hann að Hörður ætlar að gera hið
sama. Þá gerir blaðamaður sér grein fyrir að
hann hafði sopið af glasi veðurfræðingsins.
Undirritaður rétt nær að stöðva Hörð áður en
skaðinn er skeður og biðst innilega afsökunar.
Hörður brosir í kampinn og lætur þetta furðu-
lega háttemi blaðamannsins ekki á sig fá.
„Sá veitingastaður sem ég held einna mest
upp á er í New York og heitir Bouley. Hann
er mjög fínn og það þýðir ekkert annað en
panta borð þar með mánaðar fyrirvara hið
Morgunblaðið/Kristinn
Skúrir
klukkustunit
Þegar íslendingar þurfa að halda uppi samræðum
og vita ekki hvað þeir eiga að segja ber veðrið
oftar en ekki á góma. Það var því auðvelt verk fyrir
Ivar Pál Jónsson að spjalla við Hörð Þórðarson
veðurfræðing einn góðviðrisdaginn á Grillinu
fyrir skömmu.
minnsta. Það er töluverðum erfiðleikum háð
að finna þennan stað, hann er við einhverja
bakgötu í miðbæ Manhattan, alveg ómerktur.
Maður gengur bara inn um dyrnar og er þá
kominn inn á einn af fínustu og dýrustu veit-
ingastöðum New York-borgar. Ef maður vill
virkilega dekra við sjálfan sig og upplifa bestu
hliðar borgarinnar á maður að prófa hann.“
Spiiar ,, Ea “_______________________
Hörður segist vera einn örfárra íslendinga
sem hafi áhuga á spilinu „Go“. „Þegar ég var
í París í fyrrasumar hitti ég á kaffihús þar
sem menn spila þetta spil, sem er mikil hug-
arleikfimi. Það er mjög vinsælt í Kína, Jap-
an og Kóreu. Reglurnar eru einfaldar, en
leikurinn getur orðið gríðarlega flókinnn og
það tekur langan tíma að ná einhvérri færni
í honum. íslenskir iðkendur þessá spils eru
mjög fáir, en við hittumst einu sinni eða
tvisvar í mánuði og spilum. Svo er líka hægt
að reyna sig á alnetinu og ég hef gert tölu-
vert að því,“ segir Hörður og fær sér bita af
villibráðinni, sem hann hælir í hástert. Hann
er greinilega hrifinn af matnum og þjónust-
unni.
Hörður segir áhuga sinn á skíðaíþróttinni
hafa haft mikið að segja þegar hann ákvað að
leggja veðurfræði fyrir sig. „Ég fór að fylgj-
ast vel með veðurspánni, aðallega á haustin,
til að vita hvenær færið leyfði skíðaiðkuri.
Það var ágætis skóli að horfa á sjónvarpsveð-
urfréttirnar enda má segja að þær séu stutt-
ar kennslustundir í veðurfræði. Svo fór mað-
ur smám saman að lesa sér til og á endanum
var það orðið þannig að maður var stundum
ósammála veðurfræðingunum. Áhuginn jókst
sem sagt smátt og smátt, uns ég ákvað að
fara í veðurfræði þegar ég var í mennta-
skóla.“ Hann segist ekki sjá eftir því, þótt nú
sé vinnuálagið með mesta móti á köflum.
/W/s vísandli spár
Margir hafa velt fyrir sér hvers vegna
stundum er munur á veðurspám eftir fjölmiðl-
um. „Það er kannski að hluta til vegna þess
að veðurspáin í Sjónvarpinu er á ábyrgð veð-
urfræðingsins sjálfs, hún er ekki veðurspá
Veðurstofunnar. Líka kannski vegna þess að
spáin á Stöð 2 gildir oftast fyrir klukkan 12
á hádegi, en í Sjónvarpinu klukkan 18. Veðr-
ið getur breyst mjög mikið á þessum sex
klukkustundum."
Hörður er hrifinn af eftirréttinum, „Heitu
súkkulaðiflaueli með jarðarberjum í
súkkulaðikörfu með pistasíuís", og gefur hon-
um háa einkunn. „Ég hef nú ekki bragðað
flauel áður, en þetta súkkulaðiflauel er svo
sannarlega frábært."
Kvöldsólin er hnigin til viðar og ekki hefur
komið dropi úr lofti þann klukkutíma sem
blaðamaður og Hörður hafa setið að snæðingi.
Því má með sanni segja að orðasambandið
„skúrir á síðustu klukkustund" eigi alls ekki
við, en nú er tími til kominn að taka lyftuna
niður á jarðhæð enda þarf Hörður að vera
mættur í vinnuna klukkan hálfátta í fyrramál-
ið. Hann kveður með virktum og þakkar fyr-
ir sig. Vonandi spáir hann sæmilegu veðri
næstu vikurnar.
Hvað er hópefli?
GYLFI ÁSMUNDSSON SÁLFRÆDINGUR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: Stundum heyrir mað-
ur um námskeið í hópefli. Hvað
er hópefli og á það eitthvað skylt
við hópmeðferð?
Svar: Hópefli (e. group dyna-
mics) er hugtak sem notað er
um þau öfl sem eru að verki í
hópum, á svipaðan hátt og sálefli
(e. psychodynamics) snýst fyrst
og fremst um þau öfl sem finna
má í sálarlífí einstaklingsins og
móta atferli hans og persónu-
leika. Hópefliskenningar skil-
greina m.a. hvað er hópur og
hvernig hópur verður til. Taka
má dæmi um fólk sem bíður á
strætisvagnabiðstöð í vonsku-
veðri að loknum vinnudegi. í
venjulegum skilningi er þetta
hópur fólks. Það er þó ekki fyrr
en strætisvagninn birtist og ekur
framhjá yfirfullur af fólki að
þetta fólk gæti orðið að eiginleg-
um hópi í sálfræðilegum skiln-
ingi um stund. Það hefur lent í
sameiginlegum vanda og hefur
sameiginlegar þarfir og mark-
mið, að komast heim. Það finnur
til samstöðu, fer að tala saman,
hefur fundið sér sameiginlegan
óvin, strætisvagnaþjónustuna eða
tillitslausa ökumenn sem aka
fram hjá og skeyta engu um
hrakið fólk í vanda. Það fer að
bera saman bækur sínar um
hvað gera skuli. Þegar vandinn
er leystur og hver fer til slns
heima, hættir þetta að vera hóp-
ur. Hópur sem ekki er varanleg-
ur um nokkurt skeið hefur lítil
áhrif á líf fólks.
Hópar eru misstórir og mis-
jafnlega varanlegir, en sterkustu
hópamir sem einstaklingur er
hluti af hafa mótandi áhrif á
þroska hans og persónuleika.
Bernskufjölskyldan er áhrifamesti
hópurinn í lífi hvers einstaklings.
Þar lærist honum að gefa og
þiggja, að takast á um ást og
umbun foreldranna eða völd inn-
an systkinahópsins. Þar lendir
hann í ákveðnum hlutverkum
sem stundum fylgja honum út í
lífið og einkenna hegðun hans í
þeim hópum sem hann verður
hluti af síðar á ævinni. Þannig
getur einn sífellt lent í forystu-
hlutverki, annar orðið sáttasemj-
ari og enn einn orðið hinn leiði-
tami, svo að dæmi séu tekin.
Hópmyndun er hvað öflugust í
bemsku og á unglingsárum. Fé-
lagarnir og skólasystkinin verða
gjarnan samstæður hópur sem
verður oft varanlegur alla ævi, ef
ekki í reynd þá í huga og minn-
ingum þeirra sem þar vom með.
Samsömun er það fyrirbæri sem
hvað mest einkennir þátttöku ein-
staklinga í hópum. Þá fmnur ein-
staklingurinn sig sem hluta af
hópnum, hugsar eins og hann,
gerir eins og hann og reynsla
hans í meðlæti og mótlæti verður
eins og hópsins. Að vera KR-ing-
ur eða Valsari snýst um það að
tilheyra sínu félagi og halda með
KR-ingur
eða Valsari?
því af lífi og sál, hvort sem menn
em á leikvellinum eða áhorfenda-
bekkjunum.
Sterkur hópur er ekki aðeins
summan af einstaklingunum sem
skipa hann. Hópurinn er sjálf-
stætt afl til góðs eða ills, sem á
sér eina sál. Hópsálarfræðin og
hópefli sérstaklega fæst við að
skilgreina þetta fyrirbæri og hag-
nýta það í þágu þeirra markmiða
sem hópurinn stefnir að. Sýnileg-
ast verður þetta afl hópsins í mú-
gæsingum þar sem einstakingnir
stjas afópnum í blindni, þótt þeir
kunni að vera hið besta og skyn-
samasta fólk hver í sínu lagi. Það
sama á við um unglingagengi,
sem t.d. fremja skyndilega til-
gangslaus skemmdarverk eða
leggja einhvem varnarlausan
skóla- eða vinnufélaga í einelti.
Foreldrarnir segja þá gjarnan að
þeirra bam hafi lent í slæmum
félagsskap. Það má til sanns veg-
ar færa. Sennilega hafa þeir allir
lent í slæmum félagsskap, sem er
þá fólgið í þessu óáþreifanlega
afli, hópnum.
Hópsálarfræðin hefur mest
fengist við rannsóknir á smærri
hópum, oftast færri en 30 manns.
Hin síðari ár hefur athyglin þó í
auknum mæli beinst að stærri
hópum, samskiptum á milli hópa
og jafnvel hvemig hópaflið kemur
fram í samskiptum þjóða og hef-
ur áhrif á alþjóðastjómmál. í
kjarasamningum takast oft á
stórar og öflugar fylkingar at-
vinnurekenda og launþega. Sam-
staða þessara hópa sldptir þar
miklu máli. A samningafundum
skapast oft sérstætt andrúmsloft,
þar sem þreifingar eru á báða
bóga og báðir reyna að höggva
skörð í fylkingu hins. Eftir langt
þóf nást síðan samningar, stund-
um eins og allt hrökkvi í liðinn á
svipstundu. Þá velta menn því
fyrir sér hvers vegna ekki tókst
að komast fyrr að svo sjálfsagðri
og fyrirsjáanlegri niðurstöðu. En
hópferlið verður að hafa sinn
gang og það getur verið mikil-
vægt fyrir þá sem í slagnum
standa að gera sér nokkra grein
fyrir því hvaða öfl era þama að
verki og hvemig má hafa áhrif á
þau. Mikilvægast er það fyrir
sáttasemjarann að vera meðvitað-
ur um hvað er að gerast, svo að
hann geti á skynsamlegan hátt
gripið inní þegar við á. Forsvars-
menn fyrirtækja og stofnana hafa
margir gert sér grein fyrir því
hvað hópandinn, samstaðan og
samsömunin við vinnustaðinn
skiptir miklu máli fyrir afköst og
velgengni fyrirtækisins, þannig að
með því að vinna fýrirtækinu vel
finnist stafsmanninum að hann sé
ekki síður að þjóna eigin þörfum
og metnaði.
Námskeið í hópefli miða að því
að gera þátttakendur meðvitaða
um hvaða öfl, oft dulin, era að
verki í hópnum, hvernig hópurinn
hefur áhrif á þá og hvernig þeir
sjálfír geta haft áhrif á gang hóp-
starfsins. Á slíkum námskeiðum
læra menn gjaman beint af
reynslunni með því að taka þátt í
hópstarfi af ýmsu tagi. Markmið-
in geta verið mismunandi, t.d. að
fá betra innsæi í sjálfan sig í
samskiptum við aðra, læra að
þekkja styrkleika sína og veik-
leika, eða að gera sér grein fyrir
ábyrgð sinni og áhrifum í hópi til
þess að efla forystu- eða stjórn-
unarhæfni sína sem best.
Langt er síðan menn fóru að
stunda hópmeðferð á fólki með
geðræn vandamál. I fyrstu var
það hagkvæmnisatriði að geta
meðhöndlað sem flesta í einu, en
ekki leið á löngu uns menn gerðu
sér grein fyrir hinu sjálfstæða
afli hópsins til að hafa áhrif á at-
ferli og líðan þátttakendanna.
Hópmeðferð af ýmsu tagi er nú
stunduð hér á landi sem erlendis.
Ekld gefst hér rúm til að fjalla
nánar um hópmeðferð að þessu
sinni og verður það að bíða um
sinn.
•Lesendiir Morgunblaðsins geta spurt
sálfræðinginn um það sem þeim liggur á
hjarta. Tekið er á tuóti spurningum á
virkum dögum milli klukkan 10 og 17 (
síma 569 1100 og bréfum eða sfmbréf-
um merkt: Vikulok, Fax 5691222.