Morgunblaðið - 12.04.1997, Page 46
46 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
HALLGRIMUR
TRYGGVASON
+ Hallgrímur Tryggvason
fæddist á Akureyri 16. maí
1936. Hann lést 1. apríl á Land-
spítalanum í Reykjavík og fór
útför hans fram frá Fossvogs-
kirkju 9. apríl.
Með Hallgrími Tryggvasyni, eða
Hadda eins og flestir þekktu hann,
er genginn ljúfur drengur. Ég
kynntist Hadda ekki að ráði fyrr
en ég var kominn yfír tvítugt, og
þá fyrst og fremst á léttu nótunum.
Hann var að eðlisfari léttur í lund,
með gott skopskyn og átti afar
auðvelt með að blanda geði við
aðra, enda vinsæll meðal starfsfé-
laga sinna, hvar sem hann vann,
síðar í lífinu.
En það er ekki fyrr en Haddi
flytur til Reykjavíkur, að ég kynn-
ist honum sem fagmanni og í raun
hans innra manni. í fagi hans, sem
prentari, fór saman góð fagþekk-
ing, verklagni og útsjónarsemi,
enda maðurinn listrænn að eðlisfari
með mjög næmt auga fyrir formi
og útliti. Þessir eiginleikar nýttust
honum vel, þegar hann síðar á
ævinni fór að sinna ljósmyndun sem
áhugamáli. Hann vann einnig sigra,
sem hönnuður félagsmerkja og
kápusíðna Það var bæði gaman og
fróðlegt að fylgjast með því, hve
vel hann vann úr hugmyndum, þeg-
ar um uppsetningu á auglýsingum
var að ræða. Hann sá oft um slíka
vinnu fyrir mig, og aldrei brást
það, að hann fann leiðina til að
gera efnið áberandi, án þess að
eyða miklu plássi í það. En þó svo
hann hefði bæði þekkinguna og
reynsluna, þá sagði hann ekki:
Svona skulum við hafa þetta, held-
ur: „Er þetta ekki betra svona?“
Þetta lýsir raunar persónu
Hadda hvað best. Aldrei að troð-
ast. Aldrei að upphefja sig á ann-
ars kostnað. Ég minnist þess held-
ur ekki, að við höfum nokkurn
tíman þrefað um eitt eða neitt.
Haddi var einfaldlega ekki sú
manngerð sem þrefaði. Hann gat
að sjálfsögðu staðið á sínu, en jafn-
vel þá tókst honum að haga orðum
sínum þannig, að þau egndu ekki
upp viðmælendur hans. Haddi var
ekki flókinn persónuleiki. Hann
sinnti vinnu sinni af fagmennsku
og samviskusemi, meðan heilsan
leyfði, en frístundum sínum kaus
hann að eyða við lestur, tónlist eða
sem gleðigjafi með vinum sínum
pg starfsfélögum og eiga margir
íslendingar ríkulegar minningar
úr þeim geiranum, því Haddi var
alltaf hrókur alls fagnaðar og ör-
látur veitandi. Því miður lék
fölskvalaust traust hanns til
manna, hann stundum grátt í lífs-
ins ólgusjó. En nú, þegar ég í hug-
anum fer yfir samtöl okkar um
slík mál, þá situr það enn ríkt í
mér, að aldrei skyldi hann bera
neinum manni illa söguna. Þannig
var Haddi, gjörsneyddur illgirni og
öfund.
En hann átti enn eftir að bergja
á hinum beiska bikar, því síðustu
æviárin lifði hann í skugga skertrar
heilsu, af völdum heilablóðfalls. En
þar kom enn í gegn hans ljúfa geð,
því hann tók öllu mótlæti af æðru-
leysi og beiskjulaust, sáttur við guð
sinn og menn. Og Guð líknaði sér
yfír hann með því að senda honum
engil, sem skyldi létta honum byrði
hans. Ólöf sinnti hlutverkinu af að-
dáunarverðri alúð, ást og kærleika.
Haddi minn, nú að leiðarlokum
þökkum við Kristín þér hnökralausa
vináttu, einlægni og gleðistundir,
sem við munum varðveita í minn-
ingunni.
Elsku Ólöf, við vottum þér og
fjölskyldunni innilega hluttekningu.
Kolbeinn Pétursson.
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
DALVl KURBKDLI
Dalvíkurskóli
Laus ertil umsóknar staða aðstoðarskólastjóra
og kennarastöður í eftirtöldum greinum:
Raungreinum á unglingastigi, hannyrðum,
tónmennt og almennri bekkjarkennslu.
í skólanum eru um 280 nemendur í 1 .-10.
bekk.
Við auglýsum eftir metnaðarfullu og áhuga-
sömu fólki sem vill vinna með okkur að þróun-
ar- og uppbyggingarstarfi. Starfsfólki skólans
gefst kostur á að sækja námskeið innanlands
og utan. í skólanum ríkir góður starfsandi,
starfsaðstaða er góð og vel ertekið á móti nýju
starfsfólki.
Umsóknarfresturtil 21. apríl.
Upplýsingar um stöðurnar, húsnæði
o.fl. gefur skólastjóri í símum 466 1380 (81)
og 4661162.
BORGARBYGGÐ
Leikskólakennarar
athugið
Starf leikskólastjóra við leikskólann Klettaborg,
Borgarnesi, er laus til umsóknar. Um er að
ræða 3ja deilda leikskóla í fallegu umhverfi.
Upplýsingar um starfið gefur leikskólastjóri
í síma 437 1425.
Umsóknir, þar sem tilgreind er menntun og
fyrri störf, sendist til undirritaðrar bæjarskrif-
stofu Borgarbyggðar, Borgarbraut 11, Borgar-
nesi, fyrir 1. maí nk.
Félagsmálastjóri.
BYGG6
BYGGINGAFÉLAG GYLFA & GUNNARS
Múrarar óskast
Vantar múrara sem vanir eru steiningu. Mikil
vinna framundan. Einnig hefðbundið múrverk.
Upplýsingar hjá Gylfa í símum 893 4627 og
562 2991.
UPPBOQ
Uppboð á bifreiðum
verður haldið (dag, laugardaginn 12. april, á Eldshöfða 4, athafna-
svaeði Vöku hf,, og hefst það kl. 13.30.
Sýslumaðurinn I Reykjavfk.
Stangaveiðimenn athugið
Nýtt námskeið í fluguköstum hefst í Laugar-
dalshöllinni 16. apríl kl. 20.00 síðdegis.
Kennt verður 16., 17., 18., 21. og 22. apríl.
Við leggjumtil stangir.
K.K.R. og kastnefndirnar.
TILKYNNINGAR
Gagnfræðingar
Ingimarsskólans 1947
Samkomu vegna 50 ára afmælisins er
frestað til 4. október 1997.
Níumannanefndin.
Jörð til sölu
Jörðin Bali{ Djúpárhreppi, Rangárvallasýslu,
ertil sölu. Ajörðinni hefurverið stunduð kart-
öflurækt. Góðargeymslurfyrirgarðávexti eru
á jörðinni. Öll tæki og áhöld geta fylgt.
Upplýsingar í síma 555 1672 eða 897 3172.
Handverksmarkaður
verður á Garðatorgi, Garðabæ, laugardaginn
12. apríl og sunnudaginn 13. apríl frá kl. 10—18.
Milli 40 og 50 listamenn sýna og selja muni sína.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarbraut 36, Höfn,
sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Flatey 1, Hornafjarðarbæ, þingl. eig. Ólafur Þorleifur Óskarsson,
gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Höfn, 17. aprfl 1997 kl 13.30.
Hagatún 7, þingl. eig. Runólfur Jónatan Hauksson og Árný Jóhanns-
dóttir, gerðarbeiðendur Byggsjóður ríkisins, húsbréfadeild og sýslu-
maðurinn á Höfn, 17. aprfl 1997 kl. 13.20.
Hæðagarður 10, Hornafjarðarbæ, þingl. eig. Margrét Herdís Einars-
dóttir, gerðarbeiðendur sýslumaðurinn á Höfn og íslandsbanki hf.,
17. apríl 1997 kl. 13.50.
Hæðagarður 2, þingl. eig. Bragi Hermann Gunnarsson, gerðarbeiðand
Byggingasjóður ríklsins, 17. apríl 1997 kl. 15.20.
Jöklasel, veitingahús á leigulóð í landi Kálfafells, þingl. eig. Jöklaferöii
hf„ gerðarbeiðandi Innheimtustofnun sveitarfélaga, 17. aprfl 1997
kl. 15.30.
Sauðanes, Hornafjarðarbæ, þingl. eig. Jarðasjóður rikisins og Kristinn
Pótursson, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður Austurlands og Stofnlána-
deild landbúnaðarins, 17. apríl 1997 kl. 15.00.
Smárabraut 19, þingl. eig. Jón Haukur Hauksson, gerðarbeiðandur
Bætir hf. og sýslumaðurinn á Höfn, 17. apríl 1997, kl. 14.40.
Sýslumaðurinn á Höfn,
11. april 1997.
Raðhús í Fossvogi
fullbúið af húsgögnum og heimilistækjum er
til leigu í ca 2 ár.
Tilboð óskast lögð inn á afgreiðslu Mbl. fyrir
18. apríl, merkt: „Fossvogur — 563".
BQDI
HÚSNÆBI
FUIMOIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur Gigtarfélags
íslands 1997
Aðalfundur Gigtarfélags íslands verður haldinn
í dag, laugardaginn 2. apríl 1997, kl. 14.00 á
Grand Hótel Reykjavík við Sigtún.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa heldur
Júlíus Valsson gigtarlæknir fræðsluerindi
um beinþynningu.
Gigtarfélag íslands.
Aðalfundur
félagsins íslenskrar grafíkur verður haldinn
í húsakynnumfélagsins íTryggvagötu 15,
Reykjavík, þriðjudaginn 22. apríl kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Inntaka nýrra félaga.
Upplýsingar og eyðublöð vegna inntöku nýrra
félaga fást á skrifstofu SÍM, Hverfisgötu 12.
Stjórnin.
SMÁAUGLÝSIIMGAR
FÉLAGSLÍF
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SÍMI 568-2533
Sunnudagur 13. aprfl kl. 13:
Afmnlisganga 1. ferð
Valhúsahœð — Suðurnes
(um 2 klst. fjölskylduganga).
Brottför frá Mörkinni 6 og BS(,
austanmagin. Verð 200 kr. og
frítt f. 15 ára og yngri með full-
orðnum. Einnig hægt að koma i
hópinn hjá Seltjarnarneskirkju
við Valhúsahæð. Gönguleiðin
liggur frá elstu hringsjá Ferðafé-
lagsins á Vaihúsahæð, hjá Nes-
stofu og út að strandlengju Suð-
urnes á Seltjarnarnesi.
Fyrsta afmælisganga af mörg-
um í tilefni 70 ára afmælis Ferða-
félags íslands. Fyrsti áfangi af 6 í
raðgöngu frá Seltjarnarnesi um
göngustíga upp í Heiðmörk.
Verið með frá byrjun, safnið fjór-
um afmælisferðamiðum, gangið
i Ferðafélagið og fáið fimmtu
ferðina fría. Afmælisgangan er
tileinkuð fyrstu Seltjarnarnesför
Ferðafélagsins 13. apríl árið
1936.
Kl. 10.30 Marardalur—Lltla
kaffistofan, skfðaganga.
Fararstjóri: Páll Ólafsson.
Verð 1.200 kr. Brottför frá BSÍ,
austanmegin, og Mörkinni 6.
Dalvegi 24, Kópavogi
Almenn samkoma í dag kl. 14.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagsferð 13. aprfl
kl. 10.30:
Á útilegumannaslóðum.
Útilegumannahellir v/Eldvörp.
Netslóð:
http://www.centrum.is/utivist
BAHÁ’Í
OPIÐ HÚS
Laugardagskvöld kl. 20:30
Frjálsar umræður
um
ungt fólk og
framtíðina
Kaffl og veltlngar
Álfabakka 12, 2. hœð
simi 567 0344
DULSPEKI
Námskeið — Lffseugað
Lífsaugað heldur námskeið í
heilun. Farið verður í gegnum
þætti eins og heilun með litum
og tónlist. Hugleiðsla verður
einnig tekin fyrir. Þetta er til að
kynnast þér og þfnum innra
manni. Einn þáttur að betra
markmiði.
Tímasetning 19.-20. apríl kl. 10-16
báða dagana. Verð kr. 3.500.
Hægt er að fó keyptan heitan
mat, verð kr. 1.300. Staðsetning á
Suðurlandsbraut 46, 3. hæð, bláu
húsin.
Kennari verður Þórhallur Guð-
mundsson, miðill.
Upplýsingar í slma 553 4488 frá
mánudegi.