Morgunblaðið - 31.05.1997, Page 1

Morgunblaðið - 31.05.1997, Page 1
96 SIÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 120. TBL. 85. ÁRG. LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Fundur utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins í Portúgal Yfírvöldum í Bosníu settir úrslitakostir Sintra, Portúgal. Reuter. Reuter FRA fyrsta fundi Evrópu-Atlantshafssamvinnuráðsins sem haldin n var í Sintra í Portúgal í gær. Aðildarríki Atlantshafsbandalagsins og 27 Evr-ópuríki til viðbótar eiga aðild að ráðinu. Svíum í nöp við áfengt gos Stokkhólmi. Reuter. SÆNSK stjórnvöld eru afar áhyggjufull vegna aukinna vinsælda áfengra gosdrykkja og lýstu því yfir í gær að þau myndu hvetja önnur aðildarríki Evrópusambandsins (ESB) til að tvöfalda álögur á drykkina til að draga úr sölunni. Það sem Svíar eru fyrst og íremst ósáttir við eru söluaðferðirnar, sem þeir segja fyrst og fremst beinast að börnum og unglingum. Margo Wallström félagsmálaráðherra sagði Svía myndu leggja það til að álögur á áfengu gosdrykkina yrðu hinar sömu og á sterk vín. Nú eru drykkirnir í sama gjaldflokki og bjór og léttvín. Nái þessi breyting fram að ganga, tvöfaldast verð þeirra í Svíþjóð. Þá kvaðst Wallström myndu leggja það til að bann yrði sett við auglýsingum á drykkjunum sem höfðuðu til barna og unglinga. Helst vildi hún fá algert auglýsingabann og að drykkimir hyrfu með öllu úr hillum áfengisverslana. BANDARIKJAMENN og fleiri vestræn ríki skipuðu ráðamönnum í Bosníu í gær að framfylgja ákvæð- um Dayton-samkomulagsins að fullu og sögðu þá ella eiga yfir höfði sér refsiaðgerðir. Þetta er hvassasta gagnrýni ríkj- anna á framkvæmd friðarsáttmál- ans frá þvi hann var undirritaður í Dayton í Bandaríkjunum fyrir einu og hálfu ári. Refsiaðgerðimar, sem hótað er, voru taldar upp í lokayfir- lýsingu fundar friðarráðsins, sem stofnað var samkvæmt ákvæðum Dayton-samkomulagisins, í Sintra í Portúgal. Þar sagði meðal annars að þeim, sem umgengjust menn, sem hefðu verið ákærðir fyrir stríðsglæpi, yrði synjað um vega- bréfsáritanir og sveitarfélög, sem veittu þeim vinnu, svipt fjárhagsað- stoð verði friðarsamkomulagið ekki virt. Yfirvöldum í Bosníu er skipað að grípa til áðgerða til gera umbætur í lögum um eignarrétt, samþykkja lög um ríkisborgararétt, endur- skipuleggja lögregluna og afhenda þá, sem hafa verið kærðir fyrir að fremja stríðsglæpi. Deilt um stækkun Utanríkisráðherrar Atlantshafs- bandalagsins (NATO) hittust á fundinum í Portúgal í gær og fyrra- dag, en þar voru einnig saman- komnir ráðherrar frá 27 Evrópu- ríkjum til viðbótar i tilefni af stofn- un Evrópu-Atlantshafssamvinnu- ráðsins. Þau ríki, sem gera sér vonir um að verða boðin innganga í NATO, beittu miklum þrýstingi á fundinum i Portúgal. Rúmenar og Slóvenar gengu hvað harðast fram, enda er nú komin upp deila innan NATO, aðeins fjórum dögum eftir að samstarfssamningur Rússa og bandalagsins var undirritaður í París, um hvort hleypa eigi inn þremur eða fimm ríkjum frá Aust- ur- eða Mið-Evrópu. Níu riki lýstu yfir því á hádegis- verðarfundi utanrikisráðherranna á fimmtudag að þeir vildu að fimm ríkjum yrði boðin innganga. Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra ís- lands, og Madeleine Albright, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, voru hins vegar ein um að færa rök að því að aðeins ætti að hleypa inn þremur nýjum ríkjum. „Eg lýsti mjög eindregnum skoð- unum á fundinum um það að stækk- unin yrði sem minnst þannig að þremur ríkjum yrði boðin aðild, hugsanlega fjórum,“ sagði Halldór í samtali við Morgunblaðið í gær. ■ Níu aðildarríki/24 Jeltsín friðmæl- ist við Ukraínu Kíev. Reuter. BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, fór til Kíev í gær til að undirrita vináttusamning Rússa og Ukraínu- manna og binda enda á „kalt stríð“ slavnesku þjóðanna, eins og margir fréttaskýrendur hafa lýst stirðum samskiptum þeirra á síðustu árum. Aður en Jeltsín hélt í ferðina lof- aði hann þvi að Rússar myndu verja Úkraínu ef hættuástand skapaðist án þess að útskýra það nánar. Volodymyr Horbulin, æðsti embættismaður öryggismála í Úkraínu, sagði hins vegar að Úkra- ínumenn hefðu aldrei óskað eftir slíkri vernd af hálfu Rússa. Margir stjórnmálamenn í Kíev líta á Rússa sem ógnun við sjálf- stæði Úkraínu frekar en slavneska bræðraþjóð. Úkraínumenn hafa reynt að losna undan aldagömlum yfirráðum Rússa og leitað eftir ör- yggistryggingum frá Atlantshafs- bandalaginu. Rússar óttast að Úkraína sæki jafnvel um aðild að bandalaginu en Horbulin sagði að af því yrði ekki á næstu árum. Erfiðasta heimsókn Jeltsíns Jeltsín kvaðst viss um að vin- áttusamningurinn yrði undirritað- ur í dag á fundi hans með Leoníd Kútsjma, forseta Úkraínu. Gengið var frá samningnum fyrir tveimur árum en Jeltsín hefur a.m.k. sex sinnum frestað því að fara til Úkra- ínu til að undirrita hann vegna heilsubrests og deilna ríkjanna um skiptingu Svartahafsflotans. TalsmaðurJeltsíns lýsti ferðinni til Úkraínu sem erfiðustu heim- sókn Jeltsíns og mikilvægasta framtaki hans í utanríkismálum á árinu. Reuter ÚKRAÍNSKAR stúlkur færa Borís Jeltsín, forseta Rússlands, brauð og salt að gjöf við komu hans til flugvallarins í Kíev í gær. Hefð er fyrir því að færa gestum slíka gjöf í Úkraínu. Reuter BANDARISKIR hermenn fylgja erlendum borgurum að þyrlu, sem flutti þá frá Freetown í Sierra Leone um borð í bandarískt herskip við strönd landsins í gær. '■ M Nígeríumenn senda hermenn og vopn til Sierra Leone Ihlutun undirbúin Freetown. Reuter. BANDARÍSKIR hermenn fluttu í gær 900 erienda borgara frá Sierra Leone með þyrlum þótt forsprakkar valdai-ánsins þar á sunnudag hefðu bannað allt flug innan lofthelgi landsins. Stjómvöld í Nígeríu sendu fleiri hermenn og hergögn til Sierra Leone og búist er við að hersveitir frá Vestur-Afríkuríkjunum grípi til hemaðaraðgerða um helgina til að yrði beitt og hvatti til þess að málið yrði leyst með friðsamlegum hætti. Stjórnarerindrekar sögðu að leiðtogar uppreisnarmanna, er börðust við stjórnarherinn í borg- arastyrjöldinni í Sierra Leone, hefðu gengið til liðs við valdaræn- ingjana. Þeir hefðu hafnað hvers konar viðræðum um að Kabbah tæki aftur við völdunum. koma Ahmad Tejan Kabbah, forseta landsins, aftur til valda. Leiðtogar Vestur-Afríkuríkja hafa samþykkt að styðja hernaðar íhlutun undir forystu Nígeríu- manna í Sierra Leone. Ákveðið var að láta ekki til skarar skríða fyrr en brottflutningi erlendra borgara lyki. Bandaríkjastjórn kvaðst í gærkvöldi vera andvíg því að valdi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.