Morgunblaðið - 31.05.1997, Side 4

Morgunblaðið - 31.05.1997, Side 4
4 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ - FRÉTTIR INGVAR Jakobsson og Aðalsteinn Sigurgeirsson á bensínstöðinni. SÖLVEY Jósefsdóttir og Högni Sturluson. ÓLAFUR Baldursson (t.v.) og Rögnvaldur Ólafsson. Fólk á förnum vegi á Vestfjörðum hefur misjafnar skoðanir á verkfallinu Fólki veitir ekki af kaupinu - ástandið grafalvarlegt Félagar í verkalýðs- félögunum sjö á Vest- fjörðum, sem verið hafa í verkfalli, og vinnuveit- endur greiddu í gær at- kvæði um miðlunartil- lögu sáttasemjara. Jóhannes Tómasson ræddi við fólk á fömum vegi vestra og spurði það álits á þessu langa verkfalli. Ekki var laust við að nokkurrar eftir- væntingar gætti á Vestfjörðum í gær þegar kjörfundur vegna atkvæða- greiðslu um miðlunartillögu ríkis- sáttasemjara stóð þar. Fólk á förnum vegi sem blaðamaður ræddi við og var ýmist í verkfallsbaráttunni eða áhorfendur hafði skiptar skoðanir á miðlunartillögunni og verkfallsað- gerðunum og mátti skynja leiða og þreytu á sumum en ódeigan baráttu- vilja hjá öðrum. „Þetta er náttúrlega ekki björgu- legt útlit,“ sagði Björn Finnbogason vörubílstjóri þar sem hann var að þvo vörubíl sinn á bensínstöð Olíufé- lagsins. Hann er úr Djúpinu en hef- ur lengi búið á ísafirði og stundað akstur. „Ég hef verið í alls konar almennri keyrslu en hef ekki orðið alvarlega fyrir barðinu á verkfallinu þar sem fískflutningar fara nú mest fram í gámum eða á lokuðum bílum. Verkefni mín eru meira vegna bygg- ingaframkvæmda eða hafnargerðar. Þau eru svo sem ekki mikil í bili en það gæti lagast. Mér finnst hljóðið í verkafólkinu hér þannig að hæpið sé að tillagan verði samþykkt. En mér finnst fólk vera orðið þreytt, bæði þeir sem eru í verkfalli og aðr- ir. Nei, mönnum veitir ekkert af þessu kaupi en það er varla hægt að búast við að hér náist eitthvað miklu meira en annars staðar." Ekkert vit í þessu lengur Smári Ólafsson var að þvo bíl björgunarsveitarinnar sem hann er félagi í en hann starfar hjá íshúsfé- lagi ísfírðinga. „Það er ekkert vit í þessu lengur, þetta er orðið alltof langt og mér heyrist yngra fólkið vera orðið nokkuð óþolinmótt," sagði Smári og var nýkominn frá því að kjósa. Hann kvaðst í upphafi hafa verið feginn að komast í verkfall, „fínt að slaka á í viku, hálfan mán- uð,“ en 12 þúsund króna verkfalls- bætur á viku væru dálítið annað en vepjulegt kaup. „Vitanlega væri fínt að fá þessar kröfur inn í samninginn PÉTUR Guðjónsson og Rúna Esradóttir í Súðavík. ÁSGEIR Guðbjartsson. ekki hvað það væri að lifa á lág- markslaunum og verða að láta enda ná saman eins og verkafólk byggi við. „Ætli þessum mönnum þætti ekki nokkuð snúið að lifa af 100 þúsund krónum.“ Skílningur á kröfunum Finnur verslunarstjóri Magnússon í Björnsbúð sagði viðskiptin hafa minnkað, borið hefði á því fijótlega eftir að til verkfallsins kom og þó talsvert meira nú síðustu dagana. „Mér líst engan veginn á þetta ástand og þó að ég viti að menn eru bæði með og á móti þegar svona deila stendur þá finnst mér tekið að gæta þreytu hjá mörgum, bæði verk- fallsmönnum og öðrum. Menn hafa skilning á kröfunum en sjá líka að það er erfítt að semja á öðrum nótum hér en annars staðar á landinu. Ef tillagan verður felld eru menn á sama stað og þegar verkfall byrjaði og þá verða fleiri svartsýnir og þá sé ég ekki annað en að bráðabirgða- lög sé eina lausnin." Síðdegis hafði um helmingur þeirra sem atkvæðisrétt eiga í Baldri á ísafírði greitt atkvæði og svipaða sögu var að segja víðar, nálega helm- ingur hafði skilað sér með atkvæði þegar líða tók á daginn. Nálega helmingur af þeim sem greiða at- kvæði í verkalýðsfélögunum eða um FINNUR Magnússon í Björnsbúð. ÓSKAR Eliasson, kaupfélagsstjóri í Súðavík. en menn sjá að það verður allt bijál- að annars staðar á landinu ef geng- ið yrði að þeim hér. Ég vil bara fara að vinna og fá venjuleg laun,“ sagði Smári og kvaðst hafa rúmlega 200 þúsund á mánuði fyrir þokkalegan vinnudag. Mikið var um að vera á bensín- stöðinni og þar voru Ingvar Jakobs- son og Aðalsteinn Sigurgeirsson á vaktinni, á kassa og dælu. Þeir eru félagar í Baldri en starfa á undan- þágu, og sögðu viðskiptin nokkru minni en venjulegt gæti talist. „Fólk virðist eitthvað vera farið að spara við sig en við verðum hins vegar ekki mikið varir við áhrif verkfalls- ins. Þetta virðist komið út í hálf- gerða vitleysu," sögðu þeir og töldu ekki sennilegt að miðlunartillagan yrði samþykkt hjá verkalýðsfélög- unum. Dregur dilk á eftir sér „Það eru allir orðnir leiðir á þessu og ég þakka Guði fyrir að ég stend ekki í fyrirtækjarekstri núna því að ástandið er orðið grafalvarlegt," sagði Ásgeir Guðbjartsson, fyrrum skipstjóri á Guðbjörginni, sem nú er kominn í land - „eftir að konan hefur beðið í 50 ár,“ sagði hann. Hann sagði menn hafa áhyggjur af ástandinu og þeim langtímaáhrifum sem verkfallið augljóslega hefði. „Það tekur langan tíma að vinna þau áhrif upp og erfítt að koma öllu í gang á ný eftir svona langt stopp. Mér fannst nógu erfitt að þola mán- aðarstopp þegar Guðbjörgin fór í slipp, lausafjárstaðan versnaði strax. Svona langt verkfall stöðvar alla uppbyggingu og þróun sem hér hef- ur átt sér stað. Þessi áhrif koma kannski ekki fram strax en þetta á eftir að draga dilk á eftir sér og svæðið allt á eftir að fá á sig stimp- il,“ sagði Ásgeir ennfremur. „Ég sé ekki lausn á þessu, vinnu- veitendur geta ekki tekið á sig mik- ið meira en aðrir svo mér sýnist nokkuð ljóst að verkalýðsfélögin verða að draga eitthvað í land. Hundrað þúsund krónur eru ekki mikil laun en það verða bara allir að fylgjast að í þessum efnum. „Eg vona að þetta verði aldrei samþykkt," sagði Sölvey Jósefsdótt- ir sem var að versla í Björnsbúð ásamt Högna Sturlusyni en hún starfaði í 34 ár í Norðurtanganum og Högni hefur starfað til sjós og lands en þau eru úr Fljótavlk og Hornvík. Þau töldu verkafólk fylli- lega eiga skilið þær launahækkanir sem kröfur ASV hljóðuðu upp á „því verkafólk og sjómenn hafa lagt mikið á sig og hvar værum við stödd ef svo hefði ekki verið gegnum ár- in,“ og sögðu að forstjórar skildu SMÁRI Ólafsson hjá íshúsfélaginu. BJÖRN Finnbogason vörubílsyóri. 300 eru í Baldri en 40 til 60 í hinum félögunum sex. | Olafur Baldursson og Rögnvaldur Ólafsson voru á útleið eftir að hafa ' greitt atkvæði. „Við vonum að þetta I sé að leysast en það er þó erfítt að segja nokkuð um það. Það sem kem- ur á óvart er að ekki skuli hafa ver- ið hægt að ræða almennilega um málin. Vinnuveitendur eru hér með nýtt fólk sem ekki virðast vera heima í samningatækni og tilfinning okkar er sú að Reykjavíkurvaldið hafi bara alltof sterkt tök á þessu. Hingað til | hefur varla verið rætt um annað en krónur og tíkalla og engin raunveru- 1 leg skref stigin í umræðunum,“ sögðu þeir félagar sem starfa við höfnina og olíudreifingu. Og þeir voru ómyrkir í máli um eina helstu ástæðuna fyrir þessum hörðu átök- um: „Kvótakerfið hefur farið þannig með landsbyggðina að þar er um að ræða eina mestu eignaupptöku sem hér hefur orðið frá landnámi," og sögðu bæði kvóta og skip sífellt fc vera að hverfa úr fjórðungnum. „Sex vikna verkfall er orðið mjög t alvarlegt og það verður að fara að höggva á þetta. Við sjáum hins veg- ar að reiknimeistararnir í Reykjavík hafa stjórn á málinu og jafnvel þótt vinnuveitendur hér vildu nálgast okkur meira er augljóst að þeir méga það ekki fyrir þeim fyrir sunn- an. Hin verkalýðsfélögin voru of fljót á sér að semja og fulltrúar þeirra hafa bara verið of hræddir við að r standa harðar á kröfunum." Verður að fara að ljúka Pétur Guðjónsson vatt sér inn í félagsheimilið í Súðavík þar sem kjör um miðlunartillöguna fór fram en hann starfar á lyftara hjá Frosta. „Þessu verður að fara að ljúka því annars fer maður bara á hausinn," sagði hann og taldi útlokað að ná kröfunum í þessu verkfalli. „Það hefði átt að fara milliveginn, reyna r við kannski 80 þúsund því nú er verkfallið er orðið alltof langt og menn eru farnir að gefast upp. ^ Nokkrir vinir mínir eru farnir annað og það er ekki beint þægilegt," seg- ir Pétur en með honum var Rúna Esradóttir, kærasta hans sem lauk í vor stúdentsprófí á ísafirði og hugðist fara beint í vinnu hjá Frosta. „Ég hef unnið þar á sumrin í mörg ár en ekki verið í verkalýðsfélaginu meðan ég er í skóla og fæ því ekki ^ bætur," sagði hún. Pétur segist fá 12.410 kr. á viku | í verkfallsbætur en kaupið hafí verið ^ um 34 þúsund á viku og því sé aug- (jóst að eitthvað verði að skera nið- ur. „Ætli utanlandsferðin 20. júní verði ekki annaðhvort endurskoðuð eða afturkölluð því svo koma áfram afborganir af skuldabréfum og greiðslukortareikningum þannig að allir sem eru í verkfalli verða að spara við sig,“ segja þau að lokum. g Þegar litið var inn hjá Kaupfélagi Súðavíkur var Óskar Elíasson að taka (; upp vörur og sagði hann fólk orðið á nokkuð þreytt: „Þetta er orðin svo illvíg deila að mér sýnist hún vera á byrjunarreit ef tillagan verður felld núna og þá er ekkert annað að gera en að fá ríkisstjómina til að grípa inn í,“ segir hann og telur að verulega hærri samningur á Vestfjörðum myndi sprengja alla aðra samninga sem gerðir hafa verið víðs vegar um . landið. „Ég sé ekki að menn nálgist nema með utanaðkomandi áhrifum | og þótt kaupkröfurnar séu kannski j ekki nema réttlátar er ljóst að þetta verður að vera í samhengi."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.