Morgunblaðið - 31.05.1997, Page 18
18 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Um 360 unglingar úr
Reykjavík með breið-
þotu til Akureyrar
Halli á rekstri FSA í fyrra tæpar 14 milljónir króna
Mikil aukning í starf-
semi sjúkrahússins
Poppmessa
haldin í
flugskýli
POPPMESSA verður haldin í
flugskýli Flugfélags Norður-
iands á Akureyrarflugvelli næst-
komandi sunnudag, 1. júní og
hefst hún kl. 15.
Lockheed-Tristar breiðþota
flugfélagsins Atlanta lendir á
Akureyrarflugvelli um kl. 15
með um 360 unglinga úr æsku-
lýðsfélögum kirkjunnar á
Reykjavíkursvæðinu, en Atlanta
lánar Æskulýðssambandi kirkj-
unnar í Reykjavíkurprófasts-
dæmum vélina endurgjaldslaust.
Félagar úr æskulýðsfélögum
kirknanna á Akureyri og ná-
grenni taka á móti unglingum.
Jöklaskoðunarferð
á leiðinni suður
í poppmessunni þjóna prestar
úr Eyjafjarðarprófastsdæmi fyr-
ir altari og sr. Jóna Lísa Þor-
steinsdóttir fræðslufulltrúi kirlg-
unnar í Hólastifti prédikar. Fjöl-
breytt tónlist verður í messunni
og þar koma m.a. við sögu Nýir
menn, hornaflokkur úr Tónlist-
arskólanum á Akureyri og Björn
Steinar Sólbergsson organisti
Akureyrarkirkju. Unglingar að-
stoða við messugjörðina.
Aður en Sunnlendingar hefja
sig til flugs á nýjan leik eftir
messu verður boðið upp á flat-
bökur frá Pizza 67 og hinn anná-
laða svaladrykk Frissa fríska. A
leiðinni suður aftur verður farið
í jöklaskoðunarferð ef veður
leyfir en þar verður efnið „Nátt-
úran sem kennslustofa Guðs“ til
íhugunar.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ á
Akureyri var rekið með 13,8 milljóna
króna halla á síðasta ári, sem jafn-
gildir 0,95%_ af heildarrekstrargjöld-
um ársins. I skýrslu Halldórs Jóns-
sonar, framkvæmdastjóra á ársfundi
FSA kom fram að í áætlunum ársins
hafi verið gert ráð fyrir að umfang
starfseminnar yrði svipað og árið á
undan og var gert ráð fyrir um
tveggja milljóna króna halla á
rekstrinum.
Mikil aukning varð hins vegar í
starfsemi sjúkrahússins á mörgum
sviðum. Innlögðum sjúklingum fjölg-
aði um 7,9% milli ára en legudögum
fækkaði um 1,8%. Kostnaður á hvern
sjúkling lækkaði um 4,8% en kostn-
aður á hvern legudag hækkaði um
4,6%. Skurðaðgerðum fjölgaði á
FSA um 13,8% í fyrra miðað við
árið á undan, þar af fjölgaði gervil-
iðaaðgerðum úr 87 í 103 eða um
18,4% Komum á slysadeild fjölgaði
um 8,8% og almennum rannsóknum
um 13,2%.
Stöndum frammi fyrir
fjárvöntun
í skýrslu Halldórs kom einnig fram
að hallarekstur fyrstu þijá mánuði
þessa árs var um 18 milljónir króna
en á sama tímabili í fyrra var sam-
bærileg tala 4,4 milljónir króna. Ekki
var gert ráð fyrir að starfsemin myndi
áfram aukast eins og á síðasta ári
og frekar minnka og að þannig
næðist ásættanlegt jafnvægi í rekstr-
inum. Miðað við starfsemistölur
fyrstu fjóra mánuði ársins kemur
hins í ljós að flestar deildir sjúkra-
hússins veita meiri þjónustu en áður.
Halldór segir ljóst að sjúkrahúsið
standi frammi fyrir ijárvöntun. Sú
starfsemi sem nú þegar er rekin og
áframhaldandi þiýstingur á enn
aukna starfsemi kalli á aukið fé. „Ef
slíkt er ekki mögulegt verður að tak-
marka enn frekar eða hætta ákveð-
inni starfsemi á sjúkrahúsinu. Það
væri mikil afturför og yrði ekki gert
án uppsagnar á starfsfólki. Ég tel
mikilvægast að tryggja stöðu þessa
sjúkrahúss í heilbrigðisþjónustunni,
efla samstarf og samvinnu við aðrar
sjúkrastofnanir á Norður- og Austur-
iandi og einnig við stóru sjúkrahúsin
í Reykjavík og styrkja á þann hátt
heilbrigðisþjónustuna á þessu svæði,“
sagði Halldór.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Búi Ólafsson
ÞÆR Katrín, Elísa og Dagný skemmtu sér hið besta.
Stíll yfir
kveðjupartíi
sjöundu-
bekkinga
NU í haust verða skólarnir tveir
á syðri Brekkunni, Barnaskóli
Akureyrar og Gagnfræðaskóli
Akureyrar sameinaðir í einn 10
bekkja hverfisskóla. Nemendur í
7. bekk Barnaskólans kvöddu
skólann sinn með eftirminnileg-
um hætti en þau fengu að gista
í skólanum eina nótt i vikunni
og eins og vera ber var glatt á
hjalla, þau horfðu m.a. á bíó-
myndir og gerðu flatbökum góð
skil.
Falleg sumarblóm,
matjurtir, skrautrunnar
og rósir, jjölœr blóm og
skógarplöntur, pottablóm
í sólstojur og sóbkála.
Munið vinsœlu
gjafakortin okkar.
Opiðfrá kl. 09-20
virka daga,
kL 10-18 laugard.
og sunnud.
Verið velkomin.
Gsröyrkjusfcööin
GRÍSARÁ
Eyjafjarðarsveit
Sími 463 1129 Fax 463 1322
Heimasiða: http:www.nett.is/grisar
póstfang: grisara@nett.is
Messur
AKUREYRARKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11 á morg-
un. Víðir Benediktsson stýri-
maður prédikar og sjómenn
aðastoða. Kór Akureyrar-
kirkju syngur og Kór Hafnar-
fjarðarkirkju tekur þátt í
messunni. Fermingarguðs-
þjónusta verður kl. 13.30. á
sunnudag. Fermd verður Ey-
dís Ólafsdóttir, Dalsgerði 5d.
Poppmessa í flugskýli FN á
Akureyrarflugvelli.
GLERÁRKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11 á morgun, sr.
Helgi Hróbjartsson prédikar.
HJALPRÆÐISHERINN:
Skemmtiferð sunnudagaskól-
ans á sunnudag kl. 11. Al-
menn samkoma kl. 20 á morg-
un. Unglingaklúbbur eftir
samkomu.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Opið hús í dag, laugardag frá
kl. 14 til 16, vöfflukaffi og
lifandi tónlist. Safnaðarsam-
koma kl. 11 á sunnudag,
ræðumaður Jóhann Pálsson.
Almenn samkoma kl. 20,
ræðumaður G. Theodór Birg-
isson. Dagskránni útvarpað á
FM 89,7. Bænastund á
morgnana.
KFUM og K: Kristniboðssam-
komur í kvöld og annað kvöld
kl. 20.30. Ræðumaður Helgi
Hróbjartsson, kristniboði.
Bænastundir kl. 20.
ÓLAFSFJARÐARKIRKJA:
Mæting við Hafnarvog kl.10,
gengið fylktu liði til kirkju kl.
10.15. Sjómannamessa verður
í Ólafsfjarðarkirkju þegar
gangan kemur að, u. þ.b. kl.
10.30.
Héraðsdómur Norðurlands eystra
Fangelsisvist fyr-
ir kynferðisbrot
RÚMLEGA fertugur karlmaður
búsettur á Dalvík hefur í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra verið
dæmdur í 12 mánaða fangelsi, þar
af 9 mánuði skilorðsbundið, fyrir
kynferðisbrot gegn þremur stúlku-
börnum. Þá ber honum að greiða
foreldrum vegna ófjárráða dóttur
sinnar 200 þúsund krónur og 20
þúsund króna lögmannsþóknum.
Þá er honum gert að greiða allan
sakarkostnað.
Manninum var gefið að sök að
hafa tvívegis með stuttu millibili
sumarið 1992 eða 1993 sýnt systr-
um fæddum 1982 og 1984 sem og
dóttur sinni sem þá var 10 ára
kynferðislega áreitni á heimili sínu.
Maðurinn var handtekinn í nóv-
ember síðastliðnum og játaði hann
við skýrslutökur og fyrir dómi ský-
laust háttsemi' sína.
Stórnauti slátrað hjá sláturhúsi KEA
Morgunblaðið/Stefán Vilhjálmsson
Skrokkurinn
um hálft tonn
HJÁ Sláturhúsi Kaupfélags
Eyfirðinga var í vikunni slátr-
að rúmlega 30 mánaða gömlu
nauti og var skrokkur skepn-
unnar 486 kg að þyngd. Þetta
er stærsta naut sem komið
hefur til slátrunar í Sláturhúsi
KE A og þar á bæ er talað um
óopinbert Islandsmet. Nautið
kom frá bænum Djúpárbakka
í Glæsibæjarhreppi. Á mynd-
inni er Páll Hjálmarsson, kjöt-
matsmaður hjá KEA, við
skrokkinn stóra.
Stærsta naut sem áður hafði
komið til slátrunar hjá KEA
var einnig frá Djúpárbakka.
Milljón
í verk-
fallssjóð
AÐALFUNDUR Verka-
lýðsfélagsins Einingar, sem
haldinn var á Akureyri í fyrra-
kvöld, samþykkti að senda
einnar milljóna króna framlag
í verkfallssjóð verkalýðsfélag-
anna á Vestfjörðum. Jafn-
framt lýsti fundurinn yfir
stuðningi við aðgerðir verka-
lýðsfélaganna á Vestfjörðum
og skorar á allt verkafólk í
landinu að ganga ekki í störf
þeirra sem eru í verkfalli.
Aðeins einn framboðslisti
barst til stjórnarkjörs og var
hann sjálfkjörinn. í skýrslu
Bjöms Snæbjömssonar, for-
manns Einingar, kom fram
að heildarniðurstaða af
rekstri allra sjóða félagsins á
síðasta ári var jákvæð um
25,6 milljónir króna. Þar kem-
ur til hagstæð sala á hluta-
bréfum félagsins í Útgerðar-
félagi Akureyringa hf.
Morgunblaðið/Guðmundur Þór
Fram af
bakka o g út í
Kálfsá
Ólafsfirði. Morgunblaðið.
MESTA mildi var að enginn
slasaðist þegar bíll lenti út
af veginum við bæinn Kálfsá
í Ólafsfirði og ofan í sam-
nefnda á. Fjórir voru í bílnum,
tveir fullorðnir og tvö börn,
og sluppu allir ómeiddir.
Fólkið var á leið frá Siglu-
firði og ætlaði á knattspyrnu-
leik Leifturs og Fram sem
leikinn var á Dalvík. Lét það
óhappið ekki á sig fá og hélt
áfram för sinni.
Slysið varð með þeim hætti
að ökumaður missti stjórn á
bifreiðinni og lenti hann neð-
an við veginn, var honum
ekið þar á um 60 metra kafia
meðfram veginum, þar sem
hann fór meðal annars yfir
stóran stein. Því næst fór bíll-
inn fram af háum bakka og
út í ána.
Svalbarðs-
kirkja fjöru-
tíu ára
FJÖRUTÍU ár voru í gær lið-
in frá því Svalbarðskirkja á
Svalbarðsströnd var vígð, en
það var herra Ásmundur Guð-
mundsson þávarandi biskup
sem vígði kirkjuna 30. maí
1957.
Á Svalbarði, þar sem kirkj-
an er, hefur staðið kirkja frá
fyrstu öldum kristni á ís-
landi, en kirkjan sem þar var
áður en núverandi kirkja var
reist stendur nú í Fjörunni á
Akureyri og kallast gjarnan
Minjasafnskirkjan.
Vígsluafmælisins verður
minnst með hátíðarguðsþjón-
ustu í kirkjunni á morgun kl.
14. Sr. Bolli Gústavsson
vígslubiskup á Hólum prédik-
ar.