Morgunblaðið - 31.05.1997, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997 19
Afkoma Vinnslustöðvarínnar versnar til muna fyrstu átta mánuði rekstrarársins
Hagnaður
nam 6 millj-
ónum króna
UM 6 milljóna króna hagnaður varð
hjá Vinnslustöðinni hf. í Vestmanna-
eyjum fyrstu átta mánuði rekstrar-
árins sem hófst þann 1. september
sl. Þetta eru mikil umskipti til hins
verra í afkomunni, því á sama tíma-
bili á fyrra rekstrarári nam hagnað-
urinn um 330 milljónum króna. Hins
vegar hefur orðið góður viðsnúning-
ur frá sex mánaða uppgjöri sem
sýndi um 122 milljóna tap.
Heildartekjur félagsins á tímabil-
inu námu 3.049 milljónum borið
saman við 2.610 milljónir á sama
tímabili á fyrra ári. Rekstrartekjur
að frádregnum afla til eigin vinnslu
námu nú 2.526 milljónum, en voru
2.313 milljónir á fyrra ári. Hagnaður
fyrir afskriftir og fjármagnsgjöld
nam alls 322 milljónum en var 386
milljónir á fyrra ári, en nánari upp-
lýsingar um afkomuna er að finna
á meðfylgjandi yfirliti.
í frétt frá Vinnslustöðinni segir
m.a. að lakari afkoma skýrist eink-
um af lakari afkomu af loðnufryst-
ingu, en einnig tapi í bolfiskvinnslu
og veiðum. Einnig aukist afskriftir
um 105 milljónir frá fyrra ári sem
vegi þungi í afkomu tímabilsins.
Kostnaður við sameiningu við Meit-
ilinn hafi einnig orðið umtalsvert
meiri en búist hafi verið við og sé
þess að vænta að samlegðaráhrif af
sameiningu fari að skila sér undir
lok ársins.
Gott útlit í rekstri
Um horfur í rekstri segir m.a. að
útlitið sé gott. „Samlegðaráhrif eru
smátt og smátt að skila sér í bættum
rekstri. Síldveiðarnar hafa gengið
þokkalega í sumar og er ljóst að
skip félagsins munu afla um 5 þús-
und tonna meira af síld en á fyrra
ári, auk þess sem fiskimjölsverk-
smiðjan mun fá meira af síld til
bræðslu en á sama tíma í fyrra.
Úthafskarfavertíðin hefur byijað
*
Aréttmg
HRAÐFRYSTIHÚS Eskifjarðar hef-
ur óskað eftir að fréttatilkynning
félagsins vegna aðalfundar þess á
fímmtudag verði birt í heild sinn í
blaðinu.
„Hagnaður Hraðfrystihúss Eski-
fjarðar hf. fyrir skatta fyrstu fjóra
mánuði ársins var um 151 milljón
króna. Reiknaðir skattar tímabilsins
eru um 48 milljónir króna og hagn-
aður tímabilsins samkvæmt rekstr-
arreikningi því 103 milljónir króna.
Velta félagsins þessa fyrstu fjóra
mánuði ársins var 1.555 milljónir,
en var 1.507 milljónir á sama tíma-
bili árið 1996. Heildarvelta ársins
1996 var 3.847 milljónir og hagnað-
ur félagsins fyrir skatta árið 1996
var 438 milljónir. Bókfært eigið fé
í lok tímabilsins er 969 milljónir og
hefur aukist um 14,7% frá áramót-
um.
Á aðalfundi Hraðfrystihúss Eski-
fjarðar hf., sem haidinn var 29.
maí, var samþykkt að greiða 10%
arð til hluthafa og gefa út jöfnunar-
hlutabréf, 10% af heildarhlutafé í
félaginu. Hlutafé félagsins fyrir út-
gáfu jöfnunarhlutabréfa er 348,1
milljón króna. Hluthafar í félaginu
eru nú um 440.
Á aðalfundinum voru eftirtaldir
kosnir í stjórn félagsins: Magnús
Bjarnason, stjórnarformaður, Þor-
steinn Kristjánsson, Kristinn Aðal-
steinsson, Haukur Björnsson og
Emil Thorarensen."
ágætlega og hafa samningar náðst
við önnur skip um að landa talsverðu
magni til vinnslu hjá fyrirtækinu.
Humarvertíðin hefur farið betur af
stað en menn þorðu að vona og er
fyrirtækið með um 20% af heildar-
kvótanum í humri til ráðstöfunar.
Tillögur Hafrannsóknastofnunar-
innar um kvóta fyrir komandi fisk-
veiðiár lofa góðu, hlutdeild Vinnslu-
stöðvarinnar hf. í þorski fer út tæp-
um 3.300 tonnum í tæp 3.800 tonn
á komandi fiskveiðiári. Heimildir
fyrirtækisins í loðnu og síld munu
minnka nokkuð frá fyrra ári ef farið
verður að tillögum Hafró, en skip
félagsins náðu ekki að veiða allan
loðnukvóta félagsins á síðasta ári.“
Vinnslustöðin hf. ÉriÉfci
Milliuppgjör 30. apríl 1997 (Átta mánuðir) ^
1/9 '96- 30/4 '97 1/9 '95- 30/4 '96
Rekstrarreikningur Miiijónir króna Breyting
Rekstrartekjur 2.526,0 2.313,2 +9,2%
Rekstrargjöld 2.204,2 1.926,8 +14,4%
Rekstrarhagn. f. afskriftir og fjárm.liði 321,8 386,4 -16,7%
Afskrlftir (287,0) (182,8) +57,0%
Fjármunatekjur og (jármagnsgjöld) (148,9) (117,8) +26,4%
Hagnaður (tap) af reglulegri starfsemi (114,2) 85,8 -
Hagnaður af sölu eigna og aðrar tekjur 120,2 243,8 -50,7%
Hagnaður tímabilsins 6.0 329,5 -98,2%
Efnahagsreikningur Miiijónir króna 30/4 '97 30/4 '96 Breyting
| Bignir: 1
Veltufjármunir 1.280,9 1.015,5 +26,1%
Fastafjármunir 6.138,6 3.254,2 +88,6%
Eignir samtals 7.419,5 4.269,7 +73,8%
1 Skuidir oti eipiö fé: \
Skammtímaskuldir 1.362,8 1.081,7 +26,0%
Langtímaskuldir 3.616,9 2.483,2 +45,6%
Eigið fé 2.439,9 704,8 +246,2%
Þar af hlutafé 1.324.9 594,2 +123.0%
Skuldir og eigið fé samtals 7.419,5 4.269,7 +73,8%
Sióðstrevmi Milljónir króna 1/9 '96- 30/4 '97 1/9 '95- 30/4'96
Veltufé frá rekstri Milljónír króna 121,8 206,3 -41,0%
Marel tekur200 milljóna
króna lán hjá NIB
MAREL hf. hefur tekið lán hjá Norræna fjárfestingarbankanum að
fjárhæð 18,4 milljónir danskra króna eða sem jafngildir um 200
milljónum íslenskra króna. Lánstími er allt að 9 ár og eru fyrstu
þijú árin afborgunarlaus. Vextir eru breytilegir og tengdir 6 mánaða
millibankavöxtum í dönskum krónum. Lánssamningurinn var undirrit-
aður í gær af þeim Geir A. Gunnlaugssyni, forstjóra Marels hf., Jóni
Sigurðssyni, aðalbankastjóra NIB, og Guðmundi Kr. Tómassyni. Lán-
ið er veitt í samvinnu við viðskiptabanka félagsins, Búnaðarbanka
íslands, og er tryggt með veði í hlutabréfaeign Marels í öðrum félög-
um, auk tryggingar í vörumerki félagsins.
Morgunblaðið/Halldór
F.V. ERU þeir Geir A. Gunnlaugsson, forstjóri Marels hf., Jón Sig-
urðsson, aðaibankastjóri Norræna fjárfestingarbankans, og Guð-
mundur Kr. Tómasson við undirritun samninga um lán Marels.
Lánsfénu verður varið til að fjár-
magna að hluta kaup Marels á danska
fyrirtækinu Camitech A/S, en Marel
hefur einnig aflað íjármagns til kaup-
anna með útboði á nýju hlutafé að
söluvirði um 550 milljónir. í frétt frá
Marel segir að með kaupum á Cam-
itech sé stofnað til eins stærsta fyrir-
tækis í heiminum í framleiðslu á
tækjabúnaði og vinnslukerfum í fisk-
vinnslu og verður fyrirtækið þar með
leiðandi á mörgum lykilmörkuðum,
þar sem veiðar og vinnsla er stund-
uð. Einnig er gert ráð fyrir að fyrir-
tækjunum gangi betur að markaðs-
setja framleiðsluvörur sínar sameigin-
lega í kjötiðnaði.
Þetta er í fyrsta sinn sem Norræni
fjárfestingarbankinn veitir lán til ís-
lensks fyrirtækis vegna kaupa á öðra
fyrirtæki yfír landamæri á Norður-
löndum. NIB hefur langa reynslu í
fjármögnun íjárfestinga þar sem nor-
rænt fyrirtæki kaupir fyrirtæki í öðra
norrænu landi að hluta til eða í heild
til að stuðla að endurskipulagningu
og efla samkeppnisstöðu á alþjóða-
vettvangi. Frá árinu 1986 fram til
þessa nema lánveitingar banka til
þessa málaflokks alls ECU 2.045
milljónum eða jafnvirði 166 milljarða
íslenskra króna. Sú fjárhæð er um
28% af nýjum útlánum bankans til
Norðurlanda á sama tímabili.
Fv. forstjóri Nomura
handtekinn í svikamáli
Tókýó. Reuter.
FYRRVERANDl forstjóri Nomura
verðbréfafyrirtækisins, Hideo Sak-
amaki, hefur verið handtekinn vegna
fjárkúgunarhneykslis, sem þar með
hefur færzt á nýtt stig.
Um leið hafa japanskir leiðtogar
heitið því að hreinsa til í fjármála-
geiranum og endurvekja tiltrú heima
og erlendis.
Japanskt viðskiptalíf hefur beðið
álitshnekki og hagnaður Nomura
hefur rýrnað. Málið er einnig próf-
steinn á vilja yfírvalda til að refsa
fyrir misgerðir og herða eftirlit með
því að reglur séu virtar.
„Stjórnin vill hlutlausa og víð-
tæka rannsókn á hneykslinu til að
endurvekja traust almennings á öll-
um verðbréfageiranum," sagði Sei-
roku Kajiyama ríkisráðsritari. „Við
viljum að handtakan leiði til traustr-
ar stjórnar í verðbréfagreininni."
Ryutaro Hashimoto forsætisráð-
herra sagði að handtaka Sakamaki
mundi hafa alvarleg áhrif á verð-
bréfageira Japana. „Það sem máli
skiptir er að yfirmaður fyrirtækis í
fremstu röð hefur valdið vanda á
við þennan,“ sagði hann.
Annað hneykslið á sex árum
Hneykslið er hið annað í röðinni,
sem Nomura hefur verið viðriðið.
Nomura er stærsta verðbréfafyrir-
tæki Japana og einn stærsti banki
landsins, Dai-Ichi Kangyo Bank Ltd,
hefur flækzt í málið og sætir rann-
sókn.
Sakamaki varð forstjóri þegar
hneykslismál 1991 neyddu fyrir-
rennara hans til að segja af sér.
Málið er sérstaklega mikið áfall fyr-
ir Nomura vegna þess að fyrirtækið
hafði sagt að einu yfirmenn þess,
sem hefðu verið viðriðnir málið,
hefðu verið tveir framkvæmdastjór-
ar, sem voru handteknir fyrr í þess-
um mánuði.
Junichi Ujiie, sem tók við forstjó-
rastarfi Nomura 1. maí, hefur viður-
kennt að handtaka Sakamaki veki
grunsemdir um fyrirtækið sjálft hafi
gegnt hlutverki í hneykslinu, þótt
hann bætti því við að ekki væru all-
ir framkvæmdastjórar Nomura við-
riðnir málið.
LVMH
ámóti
Guiness-
samruna
London. Reuter.
FRANSKA drykkjar- og lúx-
usvörafyrirtækið LVMH kann
að tefja fyrirhugaðan 23 millj-
arða punda samruna Grand
Metropolitan í Bretlandi og
drykkjarvörafyrirtækisins Gu-
inness og spilla fyrir samran-
anum að sögn sérfræðinga.
Hlutabréf í Guinness og
GrandMet lækkuðu í verði þeg-
ar LVMH, sem á um 14,2% í
Guinness, sagði að fyrirtækið
mundi notfæra sér rétt til að
kaupa allan eignarhluta Guin-
ness í sameignarfyrirtækjum
þeirra, ef Guiness gerði alvöru
úr því að sameinast GrandMet.
Guiness dregur í efa þennan
rétt LVMH, sem framleiðir
Moet & Chandon-kampavín og
Hennessy-koníak.
Sérfræðingar telja að afleið-
ingin verði sú að samruninn
muni dragast vegna langvinnra
réttarhalda.
Minni olía úr
Norðursjó
London. Reuter.
TEKJUR Breta af olíu og gasi
í apríl vora minni en þær höfðu
verið í níu mánuði og dró úr
hráolíuframleiðslu fimmta
mánuðinn í röð að sögn Royal
Bank of Scotland.
GM nær ekki
marki
Detroit.
GENERAL MOTORS miðar
nokkuð áfram í baráttu sinni
fyrir því að fá nýja kaupendur
vörubifreiða og fólksbíla, en
verkföll munu sennilega koma
í veg fyrir að fyrirtækið nái því
takmarki tryggja sér 33% af
bandaríska markaðnum að
sögn Jacks Smiths stjórnar-
formanns.
Fylgi við
EMUjókst
Brtissel.
ALMENNINGUR tekur já-
kvæðari afstöðu til myntbanda-
lags í öllum löndum Evrópu-
sambandsins nema Frakklandi,
Finnlandi og Bretlandi sam-
kvæmt skoðanakönnun.
„Síðan nafn nýs, evrópsks
gjaldmiðils var gert opinbert í
desember 1995 hefur opinber
umræða um að hann verði tek-
inn upp aukist," sagði í grein-
argerð með könnuninni, sem
var gerð í október og nóvember
síðastliðinn.
7 Asíuríki
jafnrík G7
Singapore. Reuter.
SJO auðugustu lönd Asíu eiga
eins mikinn varagjaldeyris-
forða og sjö helztu iðnríki
heims — G7 — að því er fjár-
málaráðherra Singapore, Ric-
hard Hu, skýrði frá á ráðstefnu.
• •
Orgjörvi á
hálfvirði
New York. Reuter.
CYRIX, hinn kunni
tölvukubbaframleiðandi,
hyggst kynna síðustu ógnun
sína við Intel Cor - örgjörva,
sem mun keppa við Pentium
II á hálfvirði.