Morgunblaðið - 31.05.1997, Side 22
22 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Lokasprettur kosningabaráttunnar í Frakklandi
Kjörsókn og atkvæði Þjóð-
fylkingar sögð ráða mestu
París. Reuter.
Reuter
LIONEL Jospin, leiðtogi franskra sósíalista, umkringdur fréttamönnum á lokaspretti
kosningabaráttunnar í París.
KJÖRSÓKN og atkvæði stuðningsmanna Þjóð-
fylkingar Jean Marie Le Pen, munu ráða mestu
um úrslit seinni umferðar frönsku kosninganna,
sem fram fara á sunnudag, að mati stjómmála-
skýrenda. Vinstri menn unnu óvæntan sigur í
fyrri umferð kosninganna um síðustu helgi og
samkvæmt nýjustu skoðanakönnun virðast þeir
einnig ætla að sigra í þeirri síðari.
Stjórnmálaskýrendur segja að bragðið geti til
beggja vona, en flestir spá vinstrimönnum sigri.
Þó geti hinir nýju leiðtogar mið- og hægriflokk-
anna, Philippe Seguin og Alain Madelin, breytt
nokkra þar um, svo og góð kjörsókn, sem stjórn-
málaskýrendur telja að muni fyrst og fremst
koma stjómarflokkunum til góða. Kjörsókn var
dræm í fyrri umferð kosninganna, um 68%.
Erfiðara er að átta sig á hvar atkvæði stuðn-
ingsmanna Le Pens falla, í þeim kjördæmum
þar sem flokkurinn náði ekki að komast í aðra
umferð. Tæp 15% Frakka greiddu honum at-
kvæði í fyrri umferðinni svo ljóst er að stuðning-
ur þeirra getur skipt sköpum. Þrátt fyrir að
Þjóðfylkingin sé langt til hægri, kann svo að
fara að fjöldi kjósenda flokksins greiði vinstri-
mönnum atkvæði að ráði Le Pens, sem vill allt
fremur en að stjóm hægrimanna haldi velli.
Til að komast í seinni umferð kosninganna,
þarf flokkur að ná 12,5% fylgi og tókst Þjóðfylk-
ingunni það í 132 kjördæmum af 577. Á loka-
spretti kosningabaráttunnar í gær var eggjum
kastað í formanninn, Le Pen, í úthverfi Parísar,
auk þess sem hann var sakaður um að hafa lent
í handalögmálum við einn frambjóðenda sósíal-
ista. Frambjóðandinn var fluttur á sjúkrahús,
svo og einn stuðningsmanna Le Pens, en tals-
menn hans neita því að hann hafí lúskrað á
sósíalistanum.
Brjóta lög um bann við skoðanakönnunum
Samkvæmt frönskum lögum er bannað að
birta skoðanakannanir viku fyrir kosningar en
þau vora brotin enn einu sinni í gær er dagblað-
ið Le Parísien birti niðurstöður könnunar sem
svissneskt dagblað lét gera. Á það yfir höfði sér
500.000 franka sekt, rúmlega 6,1 milljón ísl.
kr. vegna þessa, en ritstjórinn kvaðst brjóta lög-
in í nafni rit- og upplýsingafrelsis. Skoðanakann-
anir hafa hins vegar ekki reynst sannspáar hing-
að til, en þær spáðu stjórnarflokkunum sigri í
fýrri umferðinni.
Verði sigurinn í kosningunum, hvort heldur
er vinstri- eða hægrimanna, mjög naumur, getur
það valdið miklum töfum á þingstörfum og við
myndum ríkisstjórnar, þar sem hver sá sem tek-
ur sæti í ríkisstjórn, missir atkvæðisrétt sem
þingmaður.
Delors „ofurráðherra“?
Lionel Jospin, leiðtogi franskra sósíalista, hef-
ur í kosningabaráttunni fyrir þingkosningarnar
í Frakklandi um helgina lagt áherslu á atvinnu-
leysi og gagnrýnt stjórnina fyrir sinnuleysi og
virðist með því hafa tekist að ná til kjósenda.
Afleiðingin er sú að nú er talið sennilegast að
Jospin verði næsti forsætisráðherra Frakklands.
Þegar er farið að tala um ráðherra í stjórn
vinstrimanna. Jacques Delors, fyrrverandi for-
seti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins,
hafði verið orðaður við ráðherraembætti, en sam-
kvæmt áreiðanlegum heimildum mun hann verða
sérlegur ráðgjafí Jospins sigri sósíalistar. í dag-
blaðinu Liberation sagði að ýmsir vildu að Del-
ors, sem var fjármálaráðherra í stjórn sósíalista
á síðasta áratug, yrði nokkurs konar „ofurráð-
herra“ með utanríkis- og Evrópumál á sinni
könnu. Delors, sem er orðinn 71 árs gamall,
sagði að hér væru aðeins „vangaveltur blaða-
manns“ á ferð.
Fjall-
göngu-
menn vilja
fleiri tinda
Kathmandu. Reuter.
FJALLGÖNGUMENN hvöttu
í gær stjómvöld í Nepal til að
leyfa göngur á fleiri fjöll og
tinda en nú er, til að létta álag-
inu af hlíðum Everest og
freista fleiri fjallgöngumanna
til að leggja leið sína til Nepal.
„Fólk vill komast til
óþekktra svæða. Það hefur
ekki áhuga á þekktum tindum
við þekktar leiðir,“ segir Ian
McNaugt-Davies, formaður
Alþjóðasambands Alpaklúbba,
sem hefur aðsetur í Bern en
hann er einn ræðumanna á
alþjóðlegri ráðstefnu fjall-
göngumanna í Kathmandu.
Á ráðstefnunni hafa margir
göngumenn lýst yfir áhyggj-
um sínum vegna þess mikla
fjölda sem leggur leið sína á
Everest og mengunar og sóða-
skapar sem fylgi. Telja þeir
að með því að leyfa íjallgöngu-
mönnum að leggja á fleiri
tinda jafnist álagið.
Nepölsk stjórnvöld hafa
veitt leyfí til þess að 142 tind-
ar í Himalayafjöllum séu klifn-
ir og era fimm klifurtímabil á
hverjq ári. Alls eru um T.300
tindar yfir 6.000 metra háir í
Himalaya. Árið 1995 greiddu
fjallgöngumenn og aðstoðar-
fólk um 117 milljónir dala, um
8,3 milljarða ísl. króna, í leyfi
og gjöld og nemur sú upphæð
um 18% af erlendum tekjum.
Málaferli í Danmörku vegna
Maastricht-samningsins
Dregst staðfesting
ESB-sáttmála?
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
MÁLAFERLI ellefu danskra borg-
ara gegn forsætisráðherranum til
að fá úr því skorið hvort Maas-
tricht- sáttmálinn stangist á við
stjórnarskrána era nú á loka-
spretti og búist er við dómi í sum-
ar. Ósennilegt er borgararnir vinni
málið, enda tíðkast það ekki að
dómstólar felli dóm er gangi gegn
vilja þingsins. Með málaferlin í
huga er hins vegar vafasamt að
Danir geti staðfest nýjan ESB-
sáttmála fyrr en í árslok 1998.
Málaferlunum lýkur að öllum
líkindum um miðjan júní og síðan
gæti það tekið dómarana 1-2 vikur
að komast að niðurstöðu. Hvernig
sem dómurinn verður er enginn
efi á honum verður áfrýjað til
Hæstaréttar, sem varla kveður upp
dóm fyrr en í fyrsta lagi síðari
hluta næsta árs. Fyrr getur danska
stjómin heldur varla staðfest þann
ESB-sáttmála, sem verður niður-
staða ríkjaráðstefnunnar.
Þj óðaratkvæðagreiðsla
vorið 1998
En málaferlin eru ekki eina
deiluefnið um hvort ESB- sam-
starfið brjóti í bág við stjómar-
skrána. í gær varð uppi fótur og
fit í þinginu, þegar Hjalte Ras-
mussen lagaprófessor lýsti því yfír
að ný lög um samstarf innan
EVROPA^
Europol brytu í bága við stjómar-
skrána. Þingmenn hlynntir ESB
hugleiddu hvort rétt væri að at-
huga málið betur og fresta af-
greiðslu laganna, en Frank Jensen
dómsmálaráðherra stóð á því
fastar en fótunum að lögin væra
í samræmi við stjórnarskrána og
á endanum vora þau afgreidd.
í útvarpsviðtali í gærmorgun
sagði Nyrup Rasmussen forsætis-
ráðherra að hann sæi fyrir sér að
ríkjaráðstefnunni lyki á leiðtoga-
fundinum í Amsterdam, eins og
áætlað hefði verið. Næsta haust
myndi danska þingið svo taka nýja
sáttmálann til umræðu og huga
að. frágangi laga um hann. Fyrri
þjóðaratkvæðagreiðslur um ESB
sýndu að ekki væri hægt að troða
nýjum sáttmála upp á fólki í
skyndi, heldur þyrfti að ætla góðan
tíma í umræðu. Ef koma þyrfti til
þjóðaratkvæðagreiðslu væri vorið
1998 líklegur tími.
„Ofboðsleg
áróðursher-
ferð“ Noregs
SAMKOMULAG Norðmanna við
Sir Leon Brittan um útflutnings-
toll á norskan lax var árangur
„umfangsmestu áróðursaðgerð,
sem sézt hefur í Brussel" að sögn
skozka blaðsins The Herald.
Blaðið greinir frá því að skozk-
ir stjórnmálamenn hafi sakað Sir
Leon um að láta undan „ofboðs-
legri áróðursherferð Noregs“
þegar hann hætti við að leggja
refsitoll á norskan lax. Skozkir
laxeldismenn eru æfir vegna
sinnaskipta framkvæmdastjórn-
armannsins.
Forsætisráðherra, utanríkis-
ráðherra og sjávarútvegsráðherra
Noregs hafa allir farið til Brussel
nýlega. Þeir báðu um fundi með
öllum tuttugu meðlimum fram-
kvæmdasljórnar Evrópusam-
bandsins, auk þess sem norskir
sendimenn ráku áróður fyrir mál-
stað Noregs i höfuðborg hvers
einasta aðildarrikis ESB.
-----♦ ♦ 4-----
Ungir læknar
undir vinnutíma-
reglur
PADRAIG Flynn, félagsmálastjóri
Evrópusambandsins, mun að öllum
likindum leggja fram „hvítbók" á
næstunni, með tillögum um nýja við-
auka við vinnutímatilskipun ESB,
sem einnig gildir hér á landi.
Ætlunin er að útvíkka gildissvið
tilskipunarinnar til starfshópa, sem
nú eru undanþegnir ákvæðum henn-
ar, en þar á meðal eru flutninga-
menn og ungir læknar.
Friðar-
gæsluliðar
skotnir
í Gólan
TVEIR austurrískir friðar-
gæsluliðar vora skotnir í Gól-
anhæðum í gær. Ekki er vitað
hveijir myrtu mennina, sem
voru fótgangandi í eftirlits-
ferð. Um 400 austurrískir frið-
argæsluliðar eru í Gólanhæð-
um. ísraelski herinn fullyrti í
gær að Austurríkismennirnir
hefðu verið Sýrlandsmegin
landamæranna.
Westendorp
arftaki Bildts
SPÁNVERJINN Carlos West-
endorp var í gær skipaður eft-
irmaður Carls Bildts, sem stýrt
hefur uppbyggingarstarfi í
Bosníu frá því að Dayton-sam-
komulagið var undirritað í des-
ember 1995. Westendorp er
fyrrverandi utanríkisráðherra
Spánar og tekur við starfinu
20. júní. Bandaríkjamenn og
Frakkar höfðu náð samkomu-
lagi um skipun hans og hún
var endanlega samþykkt er
ítalir féllust á hana í gær.
Nálgast sam-
komulag í
Hong Kong
BRETAR og Kínveijar komust
í gær að samkomulagi um að
ekki yrðu gerðar breytingar á
um 200 sáttmálum Hong Kong
við útlönd, auk þess sem þjóð-
imar lögðu blessun sína yfír
lokaundirbúning athafnarinn-
ar sem fram fer er Bretar af-
henda Kínveijum yfírráð yfir
Hong Kong. Hins vegar era
ýmis mál óleyst varðandi
valdaskiptin, sem fram fara
um mánaðamótin júní-júlí.
Rússar og
Frakkar
semja
RÚSSAR og Frakkar hafa
sett niður ýmis gömul deilumál
og kröfur á hendur hvorir öðr-
um, sem sum hver stafa frá
tímum keisaraveldsins. Um er
ræða m.a. skuldabréf o.fl. en
í samningnum falla ríkin frá
kröfum sem era frá því fýrir
lok heimsstyijaldarinnar síð-
ari. Samningurinn gerir Rúss-
um ennfremur mögulegt að
ganga í Parísarklúbbinn, sem
þeir vona að geri þeim auð-
Veldara að innheimta útistand-
andi skuldir.
Blökkumanna-
leiðtogi fær
endurupptöku
ELMER „Geronimo" Pratt,
fyrrverandi leiðtogi Svörtu
pardusanna, baráttuhreyfing-
ar blökkumanna, hefur fengið
endurupptöku máls síns fyrir
dómstól í Kalifomíu en hann
var dæmdur fyrir morð fýrir
25 árum, morð sem hann seg-
ist saklaus af. Amnesty Inter-
national hafa lýst hann sam-
viskufanga og nú hefur dóm-
stóll í Orange-sýslu fallist á
að sakfellingin hafi verið
byggð á veikum rökum; orðum
uppljóstrara alríkislögreglunn-
ar.