Morgunblaðið - 31.05.1997, Side 29

Morgunblaðið - 31.05.1997, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997 29 lega út í, alls ekki með buslugangi, til að ná lengra út. Sjáist lax stökkva er næsta víst að legustaður hans er 3-5 metrum neðan við stökkstað- inn, nema um sé að ræða lax í göngu. Ég hef fylgst með laxatorfu í vatnssjónauka í nokkra stund og séð hvernig það voru sömu laxarnir sem stukku alltaf með vissu millibili. Þá taka þeir sig upp af árbotninum eins og tundm-skeyti upp úr vatninu og beygja um leið og þeir snerta það aftur og sekúndu seinna eru þeir komnir að sínum gamla stað. Það er líka alveg ótrálegt hve laxinn er ró- legur, ef menn fara varlega að hon- um. Sérstaklega á þetta við er farið er að líða á sumarið og laxinn búinn að velja sér bólstað og para sig. Sl. sumar lenti ég í ævintýri neðst á Hvararhylsbroti með Bjarna I. Árnasyni. Við vor- um að vaða yfir ána öxl í öxl, sem er öruggasta leiðin til að vaða hvort sem er í miklu eða litlu vatni, vegna þess að þegar menn halda um axl- irnar yfir herðarnar hvor á öðrum eru þeir eins og fjórfættir og alltaf tveir fætur á árbotninum í einu. Ef annar hrasar virkar hinn eins og stytta. Við voium sem sé á leið yfir frá vesturbakkanum og ætluðum í Hræsvelg. Allt í einu stansar Bjarni í miðri ánni og bendir. Hann er einn af þessum örfáu mönnum sem sjá jafnvel í vatni og lofti. Við höfðum hreinlega labbað inn í laxatorfu á göngu,sem var að kasta mæðinni á stalli fyrir neðan breiðan stein. Ég kom mér fyrir á steininum úti í miðri á og Bjarni landaði fjórum eða fimm löxum í fangið á sér, sem við þræddum upp á snærisspotta, sem ómissandi er í öllum veiðiferðum. Svo var eins og hendi væri veifað og torfan var horfin. Svona tilviljanir sitja eftir í minningunni. Við höfðum heppnina með okkur, fengum 22 laxa á stöngina á þremur dögum og vorum hæstir og talsvert ánægðir með okkur. En við minntum hvor annan á að það eru ekki nema örfá ár frá því að við urðum ekki varir í túrnum fyrir síðasta klukkutímann síðasta morguninn. Þannig eru sveiflurnar í veiði- skapnum og sannur veiði- maður er sá sem skilur þær og lætur ekki koma sér úr jafnvægi. Ekkert er jafn dapurlegt í góðum veiðitúr og maður sem er fúll og ergilegur yfir litlum afla og lætur bitna á öllu og öllum í kringum sig. Laxveiðar sem og annar veiðiskapur eru fyrst og fremst þolinmæðisvinna sem auðvitað verður léttari eftir því sem safnast í reynslusjóð. En mest- um árangri nær sá, sem umgengst náttúruna af umhyggju og umburð- arlyndi og ekki síður veiðifélaga sína. Og þegar áin er þér gjöful og leggur að fótum þínum spegilfagran og nýgenginn lax, mundu eftir að blóðg | ann, þvo | ann og kæl | ann sem fyrst. Þannig meðhöndlaður verður hann sannkallaður náttúrudemantur þegar þú berð hann á veisluborð og minningin um veiðiferðina góðu lifn- ar í huganum. eru óþekktar, hann getur byrjað skyndilega og morgunstirðleiki er oftast áberandi. Þessum sjúkdómi fylgir venjulega hækkað sökk, lystarleysi, sótthiti, almennur slappleiki og stundum slagæða- bólgur í höfði. Þessar slagæða- bólgur eru til staðar í allt að 20% þeirra sem hafa fjölvöðvagigt og þær lýsa sér með höfuðverk, sjón- truflunum og verkjum í kjálka. I sjaldgæfum tilfellum getur slag- æðabólgan valdið heilablóðfalli. Meðferð við fjölvöðvagigt af þess- ári tegund, með eða án æðabólgu, felst í gjöf stera á töfluformi og þarf sú meðferð oftast að standa í a.m.k. 1 -2 ár. Arangur slíkrar meðferðai- er oftast góður en sjúk- dómurinn tekur sig stundum upp aftur og þarf þá að endurtaka meðferðina. •Lesendlir Mor/runblaúsiils geta spurt ækninn um það sem þeini ligfpir á lijarta. Tekið er á nwti spumingum á virkum dögum milli klukkan 10 og 17 ( sfma 569 1100 og brefum eða s/mbrefum merkt: Vikulok, Fax 5691222. tr íífinu L T HARPA Lind á Það er mjög gott að vera úti á bekju, sérstaklega í blaðamennsku, sagði gam- algróinn blaðamaður eitt sinn við fvar Pál Jónsson. Þess vegna taldi hann frammistöðu sína ágæta begar hann sp.jallaði við Hörpu Lind Harðardóttur nýkjörna fegurðardrottn- ingu Islands. KLIÐUR fer um salinn þegar Harpa gengur tígulegum skrefum í átt að borði blaðamannsins. Það er ekki laust við að hann sé svolítið upp með sér, enda ekki á hverjum degi sem sessunauturinn er fegursta kona landsins. „Ég gleymdi beiðninni,“ er með þvi fyrsta sem hann segir. „Ég trái því ekki,“ svarar hún í samúðar- og vorkunnartón. Hann þarf að yf- irgefa borðið, hringja upp á Morgunblað og fá senda beiðni upp á mat fyrir tvo. Hún situr við borðið á meðan, ein. Þvílík frammistaða. Nokkrum mínútum seinna kemur hann aft- ur og uppgötvar að hann er pennalaus. Þjónn- inn bjargar því fljótlega. „Kemstu í mynda- töku í fyrramálið?" spyr hann, enda hafði hann (í einfeldni sinni) gert ráð fyrir að það yrði auðsótt mál. „Nei, því miður, það er bara ekki nokkur möguleiki á því. Ég er að byrja að vinna hjá Flugleiðum í Keflavík í fyrramál- ið, tólf tíma vakt.“ Þar fór það. Hann þarf því að hringja aftur upp á Mogga til að bjarga málunum. En hann nær ekki í ljósmyndara. Hann afræður að hætta öllum taugatitringi, taka viðtalið og hugsa um myndskreytingar seinna. IMú er það Renault Hann spyr hvort hún sé á sama bíl og Sól- veig Lilja fyrrum ungfrú Island hlaut afnot af í fyrra. „Nei, það var Peugeot, ég fékk Renault. Hann er reyndar núna hjá þeim í B&L, þeir eru að setja númeraplötu og geisla- spilara í hann.“ Sú hugsun læðist að honum að henni þyki miður skemmtilegt að fara allra sinna ferða í merktum bfl. „Jú, það er svolítið óþægilegt að bfllinn skuli vera merktur fegurðardrottningu Islands. Að minnsta kosti breyttist rúnturinn í Njarðvík töluvert á laugai-daginn. Skyndilega lá hann framhjá húsinu mínu.“ Harpa segist aðspurð sennilega hafa verið kölluð „tvítug Njarðvíkurmær" í keppninni. Hún segist, eins og von er, hafa haft hreint brjálað að gera síðustu mánuðina. „Undirbún- ingurinn hófst í lok janúar og þetta er búið að vera rosalegt puð.“ Því er ekki að undra að hún vaknaði ekki til að horfa á leik Islendinga og Norðmanna sem fór fram kl. 4 um morgun- inn. „Nei, ég er búin að fá nóg af svefnleysi í bili.“ Framtíáin er / myndlistinni Dagskráin er þétt skipuð hjá ungfrú Island næsta árið. „Nú er ég að fara að búa mig und- ir keppnina um ungfrú Evrópu, sem fer fram í Ungverjalandi 5. september. Síðan tek ég væntanlega þátt í keppninni um ungfrú al- heim eftir eitt ár eða svo.“ Harpa var í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í vetur og hyggur á myndlistarnám við Fjöl- braut í Breiðholti næsta vetur. Þegar því lýk- ur ætlar hún í nám til Bandaríkjanna. Ætlar hún ekki að fást við fyrirsætu- og sýningarstörf? „Jú jú, líka.“ Það verður greinilega nóg hjá henni að gera næstu árin. Er það henni eðlis- lægt, finnst henni gott að hafa nóg fyrir stafni? „Já, ég er bara þannig. Ég hef alltaf unnið með skólanum og ég byrjaði tólf ára á kerrunum hjá Flugleiðum.“ Hún á brjálaúan hött Harpa hefur mikinn áhuga á myndlist, enda hyggur hún á nám í henni, sem fyrr segir. Hún segist líka vera áhugamanneskja um dýr. „Ég á brjálaðan kött,“ segir hún og hlær. Hún er alæta á tónlist og hefur gaman af mat- reiðslu. „Það er samt mest gaman að borða það sem maður matbýr." Dagm* er að kveldi kominn og blaðamanni hefur ekki enn tekist að ná í ljósmyndara. Þau ákveða því að hún aki honum upp á Morgun- blað, þar sem ljósmyndari hljóti að vera á vappi. Svo reynist ekki vera, en eftir hringing- ar fram og til baka nær hann í einn slíkan, sem kemur og myndar drottninguna. Hún missir af níu bíó, en það er allt í lagi. Hún fer bara klukkan ellefu. Tengi elif mun ásamt Ifö SanitarAB og Mora Armatur AB Svíþjóð kynna nýjungar í Perlunni, laugardaginn 31- maí og sunnudaginn 1. júní '97 frá kl. 13-17 báða dagana. Á sýningunni verður ún al blöndunartækja, hreinlætistækja, stumiklefa og stálvaska. mora n mwii wrFiwi Hreinlætis- og blöndunartækjasýning í Perlunni!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.