Morgunblaðið - 31.05.1997, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 31.05.1997, Qupperneq 32
32 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ SÖGUÞING Nútíminn ekki að öllu leyti kominn til Islands 28.-SI.HW/ !!I»T I FYRIR- LESTRI Sigríðar Dúnu Krist- mundsdóttur dós- ents, sem vegna forfalla hennar var fluttur af doktor Ingu Dóru Bjömsdóttur, kom fram að þrátt fyr- ir aukna menntun kvenna og sókn þeirra út á vinnumarkaðinn væri langt í frá að kvennabaráttan hefði náð markmiðum sínum. Konur hefðu ekki riðið feitum hesti frá þeirri orr- ustu sem rauðsokkur hefðu blásið til um 1970. Markaðurinn hefði brugðist við auknu framboði vinnuafls með því að lækka laun, heimilisstörfin hefðu hvflt eftir sem áður á herðum þeirra, og launamunur karla og kvenna væri enn, árið 1997, mjög mikill. „Það má halda því fram að nútíminn hafi hreinlega ekki enn haldið innreið sína í menningar- bundnar hugmyndir Islendinga um hefbundin kynhlutverk karla og kvenna, að á því sviði séum við enn stödd í eða nálægt tíma bændasamfé- lagsins." Hófst nútíminn með knattspyrnuleik? Heimir Þorleifsson sagnfræðingur rakti upphaf nútímans til togara- útgerðar og upphafs stéttabaráttu. Hann benti þó á að margt annað mætti tengja við upphaf nútíma, til dæmis komu fyrsta gufuknúna póst- skipsins til íslands um miðja 19. öld, sem vakti að vísu litla athygli í eina blaði Reykjavíkur, nema fyrir það að með skipinu barst farmur af kláða- lyfjum. Heimir sagði að einhveijum gæti jafnvel dottið í hug að tengja innreið nútímans við fyrstu beinu sjónvarpsútsendinguna á íslandi, 13. mars 1983, sem var frá knattspymu- leik. Guðrún Ólafsdóttir, dósent í landa- fræði, benti á að aðrir þættir hefðu borið nútímann inn í sveitirnar heldur en í sjávarþorpin og annað þéttbýli. Mesta byltingin í sveitunum hefði verið þegar þrenningin bíll, traktor og skurðgrafa kom fram á sjónarsvið- ið. Borgvæðing sveitanna Guðrún gerði einnig að umtalsefni kenningar sænskra fræðimanna um svonefnda borgvæðingu sveitanna, að munurinn milli sveita og borga sé að hverfa því að dæmigerð borgar- störf verði æ algengari í sveitunum, vinnutilhögun, lífsstfll og viðhorf séu Innreið nútímans hefur farið fram í mörgum áföngum á íslandi, og sumum þáttum nútíma- þróunar hefur enn ekki verið náð. Stjórnkerfíð og kynjahlutverkin sitja að hluta föst í fortíðinni en löggjöfin hefur náð mikilvægum áföngum á síðustu árum. Helgi Þorsteinsson fylgdist með umræðum fræði- manna á þriðja degi söguþings en Auðunn Arnórsson ræddi við Gunnar Harðarson heimspeking. orðin líkari og samskiptin milli sveita og borga aukist. Stefán Ólafsson, prófessor í félags- fræði, rakti hvenær slysa-, sjúkra- og lífeyristryggingar hefðu komið til sögunnar á Islandi og bar það saman við sömu þætti í riágrannalöndum. Hann sagði að þó íslendingar hefðu verið seinir að tileinka sér ýmsa aðra þætti nútímaþróunar, hefðu þeir að þessu leyti verið samstíga flestum nágrönnum sínum. Sigurður Líndal, prófessor í lög- fræði, sagði að innreið nútímans í íslenskri lagagerð hefði farið fram í mörgum áföngum. „Einn stærsti áfanginn í átt til nútímans var þó afnám Alþingis og stofnun Landsyfír- réttarins. Með þeirri ráðstöfun fékk æðsta dómsvaldið innanlands sjálf- stæði,“ sagði Sigurður. Það tímabil sem helst mætti kenna við innreið nútímans í íslenska laga- gerð taldi Sigurður síðari helming síðustu aldar og fyrri helming hinnar tuttugustu og nefndi hann fjölmg- arga mikilvæga lagabálka sem þá voru samþykktir. Lagasetningunni fylgdi efling ríkisvalds sem var nauð- synleg til að framfylgja lögunum, en hafði í för með sér átök við bændur. „Hitt er svo annað mál hvort ríkis- valdinu hafí nokkru sinni tekist til fulis að ná tökum á þjóðfélaginu. Hafa ekki þrýstihópar þess tekið við þar sem uppreisnargjamir bændur létu undan síga?“ Söguleg tímamót í löggjöf með EES Sigurður telur einnig að tímamót hafi orðjð í þessari sögu á síðustu árum. „Árið 1992 markar ef til vill nokkur tímamót í innreið nútímans í íslenska lagagerð. Með formlegum aðskilnaði dómsvalds og fram- kvæmdavalds má segja að einveldi væri formlega afnumið á íslandi. Öllu meiri tímamót markar þó aðild íslendinga að Evrópska efnahags- svæðinu. Ef til vill lifum við þessa dagana hröðustu innreið nútímans í íslenska lagagerð frá upphafi lands- byggðar." Nútími umhverfismála hófst 1970 Þorsteinn Vilhjálmsson, prófessor í vísindasögu, sagði að til nútímaþró- unar gæti talist aukning þekkingar og menntunar, aukið vald manna yfir náttúrunni, friður í samfélaginu og áhersla á einstaklinginn og auk- inn rétt hans. Annað einkenni væri að vísindi og tækniþekking umlykja allt, en hinn almenni borgari skilur lítið í þeim. Hann ræddi einnig um það hvernig samtími okkar og síð- ustu áratugir yrðu skilgreindir í framtíðinni. Hann sagði líklegt að nútími umhverfismála yrði látin hefj- ast um 1970 með Laxárdeilunni, en um 1985-1990 hæfist upplýsinga- byltingin. Jón Torfi Jónasson prófessor rakti fjölgun stúdenta sem hlutfall af hveijum árgangi pilta frá miðri 19. öld til nútímans til að gefa mynd af þróun menntastefnunnar, enda sagði hann stúdentsprófíð hafa verið „drottnara" annars náms. Veldis- vöxtur verður í fjöldanum frá fyrri hluta þessarar aldar, en Jón Torfí taldi að hann hefði getað verið stöð- ugur frá miðri 19. öld ef ekki hefði komið til mikil aukning í framboði á starfsgreinanámi í lok þeirrar ald- ar. Rætur menntakerfisins nútímans sagði Jón liggja í upphafi þessarar aldar þegar þessi þróun hefst en lagasetning og aðrar breytingar eft- Morgunblaðið/Geir BRESKI prófessorinn Arthur Marwick, heiðursgestur sögu- þings, heilsar Olafi Ragnari Grímssyni, forseta Islands, á Bessa- stöðum í gær. ir það hefðu engin áhrif haft á hana. Varðandi upphaf nútímans í mennta- kerfinu mætti þó einnig líta aftur til miðrar síðustu aldar þegar Bessa- staðaskóli var fluttur til Reykjavík- ur. Um það leyti hefði Prestaskólinn verið stofnaður, sem væri fyrst dæmi um flutning starfsmenntunar á há- skólastigið. Listina skorti hefð til að andæfa Auður Ólafsdóttir listfræðingur fjallaði um nútímann og íslenska list- sköpun og sagði að finna mætti mismunandi nútíma eftir því hvaða aðferðafræði væri beitt. Hún sagði upphaf allra róttækra listastefna liggja í andófi gegn ríkjandi hefð, en hér á landi hefði framan af öld- inni ekki verið nein hefð til að gera uppreisn gegn. Útlitsleg einkenni stíítegunda hefðu borist til landsins en hugmyndafræðin sem þeim fylgdi síður og mun seinna. Fyrstu átök milli þess sem kalla mætti nútíma- sjónarmið og hefðar hefðu orðið á fímmta áratugnum þegar abstrakt- listin barst hingað til lands. Svanur Kristjánsson, prófessor í stjórnmálafærði, sagði nútímalega stjórnarhætti aðeins að hluta hafa verið innleiddir á íslandi. Almennur kosningaréttur hefði verið innleiddur tiltölulega snemma en raunveruleg þrískipting ríkisvalds væri enn ekki komin til sögunnar. Svanur sagði að Jónas frá Hriflu hefði haft mótandi áhrif á stjórn- málakerfið á íslandi og að hugmynd- ir hans samræmdust á margan hátt núverandi stjórnarháttum á Islandi. Hann hefði haft góðan skilning á fulltrúalýðræði og flokkakerfi, en þrískipting ríkisvalds hefði ekki ver- ið honum ofarlega í huga. Svipað væri farið með núverandi ríkisstjórn, sem liti á meirihluta sinn á Alþingi sem framlengingu af sjálfri sér. Jón- as hefði einnig stundað þá fyrirgre- iðslupólitík sem enn væri ríkjandi í íslenskum stjórnmálum. Svanur sagði að á margan hátt væri stjórnkerfið hér á landi líkari því sem gerðist í Suður-Evrópu held- ur en á Norðurlöndum. Að einu leyti væru þó íslendingar mun skemmra á veg komnir enn Suður-Evrópuríkin en það væri varðandi fjármögnun stjórnmálaflokka. Þeir byggðu á neð- anjarðarhagkerfi þannig að kjósend- ur vissu ekkert um hvaðan pening- arnir kæmu. Svanur sagði þetta hvergi annars staðar tíðkast, og jafn- framt væri íslensk kosningabarátta hlutfallslega dýrari en nokkurs stað- ar annars staðar. Magnús S. Magnússon hagsögu- fræðingur sagði nútímann hafa haf- ist á íslandi þegar félagsgerð bænda- samfélagsins leið undir lok og mark- aðsþjóðfélagið tók við, byggt á kapít- alískum framleiðsluháttum og at- hafnafrelsi einstaklinganna. Þessi breyting varð í nokkrum áföngum. Tímabilið 1880-1905 kallar hann forstig iðnvæðingar en 1905-1930 varð íslenska iðnbyltingin eða „salt- físköldin. Nútíminn, tímabilið eftir 1930, einkennist af styrkingu inn- viða hagkerfisins. Á söguþinginu í gær voru einnig haldnir fyrirlestrar um auð, vald og menningu 1550-1800 og ungir fræðimenn kynntu rannsóknir sínar. Síðdegis voru Bessastaðir heimsóttir og um kvöldið var móttaka í Ráðhús- inu á vegum Reykjavíkurborgar og fyrsta ísleriska leikritið, Sperðill, var leiklesið. í dag verður aðalefnið ís- land og umheimurinn, en einnig verða fyrirlestrar um kyn og sögu og byggðasögu og nokkrir stakir fyrirlestrar verða haldnir. Fyrirlestur Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra sem fyrirhugaður var fellur niður en i staðinn kemur fyrir- lestur Bandaríkjamannsins Jesse L. Byock sem nefnist „Egils saga and social memory" og verður hann á dagskrá klukkan níu. Fyrirlestur Ingu Huldar Hákonardóttur, sem vera átti klukkan níu, færist til klukkan 14.30. SJÁLFSMYND íslensku þjóðarinnar er að breytast, segir Ámar Guð- mundsson menningarfræðingur, en málsvarar gamla veiðimannasam- félagsins og unga fólkið takast á. Fjölmennir í hópi hinna fyrrnefndu virðast vera miðaldra karlmenn sem unnu hetjulega erfiðisvinnu í æsku, og sem telja sig ekki hafa þörf fyrir reglugerðarverk til hjálpar í barátt- unni við óblíða náttúru. „Mýtan um þjóðina byggist á ákveðnum hugmyndum sem fólk gerir sér um sjálft sig, sameiginleg- an uppruna og tengslin við söguna,“ segir Arnar. „Það er alltaf eitthvað að bætast við íslensku mýtuna, til dæmis þorskastríðin, baráttan fyrir menningarlegu sjálfstæði gegn Kanasjónvarpinu og alþjóðlegum fjölmiðlum og EES-samningurinn og þannig breytist hún.“ Arnar stundaði nám í menningar- fræðum, eða cultural studies, við Háskólann í Birmingham. Lokaverk- efni hans fjallaði um áhrif þjóðernis- hyggju á íslenska stjórnmálaum- ræðu, sérstaklega í ljósi EES- umræðunnar. „Ég skoðaði meðal þá fyrirvara sem Islendingar gerðu við samninginn og hvernig sérstaða þeirra var skýrð. Upp á síðkastið hef ég fylgst með því hvernig Islend- ingar hafa tekist á við að fullgilda og löggilda ýmsar alþjóðasamþykkt- ir varðandi réttindi launafólks." Islendingingsímynd- in er að breytast Arnar segir að að baki umræð- unni bæði um fyrirvara við EES- samninginn og vinnuvernd búi hug- myndin um veiðimannasamfélagið. „Meginrökin gegn því að við getum hér á Iandi fullgilt réttindi fyrir launafólk sem eru sambærileg því sem gerist erlendis eru þau að við séum veiðimenn, háð náttúrunni og eigum erfítt með að skipuleggja okkur. Það þýði ekki að búa til ein- hver réttindi, ef svo gefur á morgun og allir þurfa að fara að vinna og helst börnin með.“ Gjá milli ungs fólks og stjórnmálamanna Arnar telur að síbreikkandi gjá hafi myndast milli ungs fólks og stjórnmálamanna vegna mismun- andi þjóðarímyndar. „Unga fólkið upplifir sig ekki lengur sem veiði- menn eða að það sé ofurselt náttúr- unni. Þegar ég vann að rannsókn- inni á EES-umræðunnni talaði ég við nokkra stjórnmálamenn og þeir höfðu allir orð á því að þeim fyndist sem unga fólkið í dag stæði í öðruvísi tengsl- um við sögu þjóðarinnar og frumatvinnugrein- arnar en þeir sjálfir." Fiokkslínurnar eru að mati Arnars ekki ráðandi varðandi hug- myndir stjórnmála- manna um einkenni ís- lensku þjóðarinnar „Hugmyndin um veiði- mannasamfélagið er karlmannleg að ýmsu leyti og ég held að það séu einkum eldri karl- arnir á Alþingi sem halda henni á lofti og beita. Þingmaður sem tekið hafði þátt í um- ræðum í félagsmála- nefnd um vinnuvernd barna og unglinga sagði frá því á Alþingi að þær hefðu einkennst af því að karlarnir hefðu sagt hetjusögur ÍSLENSKI veiðimaðurinn í nútímasamfélaginu. af sjálfum sér við erfiðisvinnu í æsku. Vinnuverndin ógnar karl- mennskuhugmynd veiðimannsins, sem berst sjálfur í óblíðri náttúru, og þarf ekkert reglugerðarverk sér til verndar." Sagnfræðingar breyta þjóðarímyndinni Arnar segir að sagnfræðingar eigi hlut í því að breyta þjóðarímyndinni, með því að endurmeta söguna, og nefnir í því sambandi til dæmis Guð- mund Hálfdanarson og Gísla Gunn- arsson. „Nýja söguskoðunin var mik- ilvæg í umræðunni um EES og var þar notuð bæði með beinum og óbein- um tilvísunum til nýrra sagnfræði- rannsókna. Aukin alþjóðleg sam- vinna hefur líka kallað á endurskoð- un á sögunni. Nú er verið að draga fram að í sjálfstæðisbaráttunni hafí ekki eingöngu verið barist fyrir frelsi og framförum öllum til handa. Ákveðinn hluti þjóðarinnar vildi jafn- vel halda samfélaginu óbreyttu af því að það tryggði valdastöðu hans. Kannski var það ekki svo einhlítt að Islendingar hafi verið að beijast fyr- ir frelsi og framförum og útlending- ar hafi reynt að kúga þá. Við vorum ekki bara íslendingar af því að við vorum einangraðir, heldur vorum við líka íslendingar vegna þess að við stóðum í alls kyns samskiptum, bæði hugmyndatengslum og viðskiptum."
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.