Morgunblaðið - 31.05.1997, Síða 44

Morgunblaðið - 31.05.1997, Síða 44
44 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Hreinn Erlends- son var fæddur í Grindavík 4. des- ember 1935. Hann varð bráðkvaddur á leið frá Dalsmynni 21. maí sl. Hann var sonur Erlendar Gíslasonar _ sjó- manns frá Úthlíð i Biskupstungum Guðmundssonar bónda þar og konu j** hans Sigríðar Ing- varsdóttur. Bróðir Gísla var Bjarni faðir Eiríks harm- oníkuleikara, tónskálds og hót- elhaldara í Hveragerði, og Sig- rúnar, húsfreyju í Haukadal, konu Sigurðar Greipssonar. Móðir Hreins, kona Erlendar, var Guðrún Guðmundsdóttir Hjartarsonar frá Austurhlíð í Biskupstungum og Sigrúnar Eiríksdóttur frá Miðbæli á Skeiðum. Þau bjuggu á Gljúfri í Ölfusi, í Úthlíð og á Laug í Biskupstungum en fluttust til Ameríku (Steep Rock Man. Can.) árið 1912 að Guðrúnu nýfæddri og er ætt hennar þar. Einar í Brattholti var hálfbróð- ir hennar og albróðir H(jörtur lögregluþjónn í Reykjavík, síð- ar umsjónarmaður kirkjugarð- anna. Hreinn var ókvæntur og barnlaus. Systkini hans eru: Eyvindur, listamaður og rithöf- undur, Hátúni í Ölfusi, kona Sjöfn Halldórsdóttir, blóma- kaupmaður, eiga flmm böm. Óm, trésmiður í Rvík, kona Gígja Friðgeirsdóttir, nuddari, ^ eiga þijá syni. Sigrún, húsmóðir í Kópavogi, maður Einar Þor- bjömsson, bifvélavirki, eiga þijú böra. Edda Ragnhildur, tryggingafulltrúi, maður Agúst Jónsson, lögfræðingur, skrif- stofusljóri hjá Reykjavíkurborg, eiga tvö böm. Með Elvari fyrri manni sínum á hún tvö böm. Fyrstu þijú árin var Hreinn í Grindavík, á stríðsámnum í Reykjavík, eitt ár á Syðri-Brú í Grímsnesi en síðan í Dalsmynni í Biskupstungum sem hann taldi „glaður og reifur skyli gumna hver, ** unz sinn bíður bana.“ Ofanskráð hending úr Hávamál- um kom mér í hug þegar mér bár- ust þau óvæntu tíðindi að Hreinn Erlendsson væri látinn. Hreini kynntist ég fyrst lítillega sem nemanda við öldungadeild Fjöl- brautaskóla Suðurlands. Þá var hann, tæplega fímmtugur, að hefja skólagöngu sem lauk með magist- ersprófi í sagnfræði árið 1994. Kynni okkar urðu nánari þegar ég fyrir sjö árum varð skjalavörður við Héraðsskjalasafn Ámesinga á Sel- fossi. Þar var Hreinn hinn þaul- sætni gestur sem stundaði fræðin af óþijótandi elju og áhuga. Því var einboðið að fá hann þar í hlutastarf þegar fjárhagur safnsins leyfði. Þá hafði hann einnig skotið sínum fyrri lærimeistara ref fyrir rass bæði í þekkingu og prófgráðum. Héraðs- skjalasafninu reyndist hann happa- fengur, þjónustulipurð hans við gesti einstök svo og samviskusemi og haldgóð þekking á sögu héraðs- ins. Hann var góður vinnufélagi og ávallt reiðubúinn að vera á öndverð- um meiði við viðmælanda sinn en sú var aðferð hans til þess að halda uppi líflegum skoðanaskiptum. I tómstundum stundaði Hreinn fræði sín á safninu eftir sem áður. Hann varð öðrum betri í að ráða torræða skrift gamalla handrita og þess nutu gestir safnsins og fleiri. Fræðileg eigingimi var honum víðs fjarri, til hans var gott að leita og hann sparaði sig hvergi við að svara sem best fyrirspurnum sem til hans * var beint. Hann var stjórnarmaður ætíð sitt heima. Hreinn lauk lands- prófi á Laugarvatni 1952 en hætti þá skólagöngu. Vann á veðurstofu á Kefla- víkurfiugvelli nokk- ur ár og síðan verkamannavinnu í Reykjavík. Þá vinnumaður á búi föður síns í Dals- mynni, átti þar eigin bústofn og búshlut fram yfir 1970 er hann flutti á Sel- foss. Vann hjá Slát- urfélagi Suðurlands og frá 1984 stundaði hann jafnframt nám við öldungadeild FSu (Fjöl- brautaskóla Suðurlands) og lauk stúdentsprófi í desember 1988. BA^próf í sagnfræði við Háskóla íslands 1992 og MA- próf árið 1994. Frá þeim tíma vann Hreinn á bókasafni FSu og frá ágúst 1995 einnig í hluta- starfi á Héraðsskjalasafni Ár- nesinga. BA-ritgerð Hreins er „Vinnubrögð bænda í Araes- sýslu á árunum 1940-50“ og MA-ritgerðin „Um landsins rýmun og betmn. - Umhverf- issaga Biskupstungna, - sveitin og afréttur hennar." I Árnes- ingi, riti Sögufélags Áraesinga, birtust þijár ritgerðir eftir Hrein: „Þorlákssaga helga“, „Herra Jón Gerreksson biskup í Skálholti" og „Náttból og alf- araleiðir. - Um leifar mann- vistar og mannaferða á Bisk- upstungnaafrétti." Þá átti hann nokkrar ritgerðir nær fullbún- ar s.s. um Torfastaðapresta, biskupa í Skálholti og ýmsar um ættfræði. Hann vann mikið að félagsmálum einkum fyrir Alþýðuflokkinn, Verkalýðsfé- lagið Þór, Héraðssambandið Skarphéðin, Glímusamband ís- lands og Sögufélag Árnesinga. Hreinn varð bráðkvaddur á leið frá Dalsmynni um miðnætti 21. maí sl. Útför Hreins verður gerð frá Skálholtskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 14.00. í Sögufélagi Árnesinga og ritaði fræðigreinar í rit þess, Ámesing. Þar átti félagið ódeigan liðsmann og skarð hans er vandfyllt. Sagnfræðin var Hreini lífsnautn og framfarir hans á því sviði með ólikindum þegar þess er gætt hversu roskinn hann byijaði að eija þann akur. Sárt er til þess að hugsa hversu skamma stund hann fékk til þess að nýta hæfileika sina á þeim nýja vettvangi. Þeim sem þetta ritar má öðrum fremur vera ljóst hversu mikið áfall sögurann- sóknum í Ámesþingi fráfall Hreins er. Á Héraðsskjalasafni Ámesinga er hans nú saknað en hans verður einnig gott að minnast. Að leiðarlokum þakka ég Hreini samskiptin á liðnum árum og störf hans í þágu Sögufélags og Héraðs- skjalasafns Ámesinga. Föður hans, systkinum og öðrum aðstandendum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Bjöm Pálsson. Fennir í fótspor feðranna, svo í heimahaga sem í hágöngum, Fljótt í sum seinna í önnur, loks í allra eins. Samt er samfylgd sumra manna andblær friðar án yfirlætis, áhrif góðvildar, inntak hamingju þeim er njóta nær. (G.B.) í stuttri ferð upp í Tungur að líta eftir landi sínu á gömlu æsku- stöðvunum lauk lífsgöngu Hreins frænda. Hann lést úr hjartaslagi á leið til baka. Ungur að árum flutti hann með fjölskyldu sinni að Hlíðinni, þar sem báðir foreldrar hans ólust upp og afi og amma okkar bjuggu. Foreldrar hans hófu búskap suð- ur með sjó en keyptu síðan býlið sem þau nefndu Dalsmynni, en bærinn stendur í mynni dalsins sem liggur upp með Bjarnarfelli. Það var spennandi að fá þetta nýja frændfólk í heimsókn og enn man ég fyrstu leiki okkar frænd- systkinanna meðan fullorðna fólkið gladdist yfir endurfundunum. Fjöl- skyldur okkar bjuggu síðan í ná- býli með mikilli samvinnu í meira en 30 ár. Þetta var eiginlega stór- Qölskylda Úthlíðar- og Dals- mynnisfólksins með afa og ömmu á milli sín í Hrauntúni. Hreinn var snemma mikill spekingur og yfír- vegaðri í tali og leikjum en hinir krakkarnir og átti létt með nám. Hann lauk prófi frá Laugarvatns- skólanum og stundaði síðan bústörf í Dalsmynni þar til hann söðlaði um og flutti til Selfoss þar sem hann átti heima til æfiloka. Þar tók hann upp þráðinn að nýju og sett- ist á skólabekk í Fjölbrautaskóla Suðurlands. Eftir stúdentspróf hóf hann nám í sagnfræði við Háskóla íslands og lauk því með mastergr- áðu. Þá fannst mér hann vera kom- inn á rétta hillu í lífinu. Hann var með afbrigðum fróðleiksfús og minnugur og var jafn eðlilegt að fletta upp í kirkjubókum og öðrum gömlum heimildum og okkur hinum að fletta dagblaði. Nýlega sendi hann mér vandlega frágengna ætt- artölu okkar sem hann hafði rakið aftur til fornmanna. Þá áttum við langt símtal þar sem margt bar á góma. Þar kom m.a. fram hve annt honum var um unga fólkið sem hann var að aðstoða í fjölbrauta- skólanum og hvernig hann fylgdist með námi þess og gladdist yfir áhugasömum og leitandi nemend- um. Hann undi sér vel á bökkum Ölfusár en átti sterkar rætur í Biskupstungum. Einhver sagnar- andi hefur hvíslað að honum að ekki væri seinna vænna að skreppa þangað og fá sér göngu frá Sölvagili og inn á dal. Líta enn Breiðutungurnar, anda að sér ilm- inum af birkinu sem nú er óðum að laufgast og heyra niðinn í Dimmufossi. Við systkinin frá Úthlíð sendum Linda móðurbróður okkar og öllum ástvinum innilegar samúðarkveðj- ur. Sigrún. Enn einn samferðamaðurinn er nú farinn á undan mér. Hreinn Erlendsson frá Dalsmynni í Bisk- upstungum er liðinn langt um ald- ur fram. Leiðir okkar lágu fyrst saman fyrir langa löngu á héraðs- mótum HSK á Þjórsártúni þar sem báðir héldu sig nokkra íþrótta- menn þótt til lítilla afreka værum. Ekki minnist ég þess að við höfum att kappi saman, en urðum fljótt málkunnugir, báðir sveitamenn sem leituðum sannleikans á ýmsan hátt og vorum kannski ekki á ná- kvæmlega sömu bylgjulengd og flestir jafnaldrar okkar. Fundum við fljótt að við áttum allvel skap saman þótt langt væri frá því að við værum sammála um þau mál sem um var rætt hverju sinni og kannski var það orsök samstöðu okkar að við vorum sjaldan sam- mála. Við skrifuðumst á árum saman meðan hann var í Dals- mynni og féllu þar mörg „gullkorn- in“ á milli okkar. Á árinu 1957 urðum við svo ferðafélagar í fræki- legri ferð til Moskvu og kynnt- umst þá enn betur. Hreinn komst þá inn í Sovétríkin án vegabréfs, látið var nægja að hann gæti sýnt inngangskort að Keflavíkurflug- velli, - ótrúlegt þegar kalda stríð- ið stóð sem hæst en kannski bar hann með sér að hann var bara íslendingur. Ég minnist þess að við fórum saman í stórum hópi fólks frá mörgum þjóðlöndum í grafhýsi það sem hýsti lík þeirra Leníns og Stalíns. Biðin að komast inn í grafhýsið var löng, en veðrið gott svo margt var spjallað í blíð- unni þar til kom að okkur að ganga inn í „helgidóminn". Þegar við Hreinn komum þarna inn urðum við að hemja nokkuð stráksskap okkar því í flestum hornum stóðu hermenn með brugðna byssustingi og var ekki frítt við að okkur stæði nokkur ógn af þeim. Þó slepptum við ekki tækifærinu að skoða nokkuð grannt þá kumpánana og komumst að þeirri sameiginlegu niðurstöðu að Stalín hefði tekið i vinstri nösina því hún var sýnilega nokkru stærri en sú hægri. Hreinn var vel undir ferð þessa búinn og hafði í fórum sínum tóbakspontu sem við neyttum af um leið og við gengum framhjá glerkistunum. Hreinn var þjóðlegur í háttum og gætti þess t.d. í sambandi við neftóbak að fara eftir þeim reglum sem hann taldi að við ættu. Ætíð skyldi sá er bauð öðrum í nefið taka fyrst sjálfur og rétta síðan næsta manni pontuna þegjandi og mátti sá er þáði ekki þakka fyrir. Slíkir menn eru ómetanlegir fyrir þjóðmenninguna. Fyrir alllöngu snérist Hreinn til ásatrúar og áttum við oft orðastað um það enda ósammála. Ég tel ásatrúna eins gagnslausa og aðra trú, þ.á m. kristindóminn, og vart hægt að telja það annað en að fara úr öskunni í eldinn að skipta þannig. Hreinn taldi að ásatrúin ætti þann sess sem henni var bú- inn hér á landnámsöld og að það teldist til tryggðar við land og þjóð að aðhyllast hana. Sannur íslend- ingur Hreinn Erlendsson. Hreinn sinnti búskap með foreldrum sín- um langt fram eftir árum en flutt- ist að Selfossi þar sem honum gafst tækifæri til að nema við öld- ungadeild Fjölbrautaskóla Suður- lands þar sem hann tók stúdents- próf og nam síðan við Háskóla Islands. Hann var næmur og dug- legur námsmaður sem tókst á full- orðinsárum að ná þeirri námsgr- áðu sem hugur hans mun snemma hafa stefnt að en aðstæður höml- uðu. Nú skilja leiðir, ég þakka vináttu og votta aðstandendum samúð. Ég vona að við munum síðar sitja sam- an til borðs í Valhöll og taka upp þráðinn þar sem frá var horfið. Hergeir Kristgeirsson. Að morgni 21. maí sátum við Hreinn á Bollastöðum, kaffistofu starfsfólks Fjölbrautaskóla Suður- lands, ásamt öðrum starfsmönnum, eins og svo oft áður, og drukkum „ofuriítinn volgan sopa“ eins og Hreinn var vanur að segja. Við fórum að ræða um Búkollu, um ævintýrið, um ljóðin eftir Jóhannes úr Kötlum og Halldór Laxness. Ekki mundum við hvar kvæði Lax- ness var að finna. Hreinn taldi þó að líklega væri það í smásögu Lax- ness frá Nýja-íslandi. Þetta er kvæðið um Búkollu mína bububu. Nokkru seinna um morguninn kom Hreinn færandi hendi til mín með ævintýrið um Búkollu og strákinn og ævintýrið um Búkollu og stelp- una og ljóð Jóhannesar, og síðast en ekki síst ljóð Laxness: „Barna- gæla frá Nýja-íslandi“ Búkolla min bububu, Búkolla í fjósinu, hún er með stóru homin sín, hún er með stóra augun sín, blessuð ver ún Búkolla og ún Búkolla mín. Hreinn var fljótur að finna það sem um var beðið á safninu, hann þekkti það mjög vel. Um hádegis- bil mætti ég Hreini með hattinn, hann var að fara í mat. Hann tók ofan fyrir mér og ég bukkaði mig og beygði. Þennan leik lékum við oft. Hreinn sagði að fyrir þjóðhöfð- ingjum ætti að hneigja sig í 30 gráður. Síðan ekki meir. Um mið- nætti var Hreinn allur. HREINN ERLENDSSON Hreini kynntist ég fyrst er hann hóf nám í öldungadeild Fjölbrauta- skólans. Það var haustið 1984. Þá var Hreinn 49 ára. Hann stundaði námið af miklum dugnaði með fullri vinnu hjá Sláturfélagi Suðurlands og lauk stúdentsprófi í desember 1988. í íslensku og sögu hlaut hann hæstu einkunn í öllum áföng- um. Haustið 1989 hóf hann nám í sagnfræði við Háskóla íslands og lauk BA-prófi í febrúar 1992 á aðeins tveimur og hálfu ári. BA-rit- gerð hans fjallaði um vinnubrögð bænda í Árnessýslu 1940-50. í október 1994 lauk hann síðan meistaraprófi í sagnfræði og skrif- aði þá ritgerð um Biskupstungurn- ar, heimasveit sína. Enn hafði hann sýnt mikinn dugnað með því að vera í vinnu og námi á sama tíma. Haustið 1992 hóf Hreinn störf á bókasafni Fjölbrautaskólans og starfaði þar til dauðadags. Það starf átti mjög vel við hann. Honum leið vel innan um bækumar, allan fróðleikinn, hann var samvisku- samur og góður starfsmaður og natinn við bækurnar. Hann hafði einnig gaman af að umgangast unga fólkið í skólanum, miðla því af þekkingu sinni og segja sögur. Hann var mjög alúðlegur við nem- endur og hjálpfús og þeim þótti' vænt um hann. Það sýna ummæli eins nemandans, ungrar stúlku, þegar hún var að ræða við mig um að nú væri Hreinn dáinn. Hún spurði: „Átti Hreinn enga konu?“ „Nei“, svaraði ég. „Hann átti okkur öll“, sagði hún þá. Hann kunni ótal sögur og sagði vel frá, á kaffistofunni var rætt um allt milli himins og jarðar. Stundum var rætt um stjórnmál og þá gerðum við starfsfélagar Hreins stundum harða hríð að Al- þýðuflokknum og krötum, töluðum ekki vel um Jón Baldvin og reynd- um að æsa Hrein upp. Hann tók öllu vel og svaraði vel fyrir sig en var þó viðkvæmur ef honum fannst við ósanngjörn í garð síns flokks. Stundum ræddum við á kaffístof- unni íþóttir, einkum glímu, eða þjóðlegan fróðleik. Alltaf var létt yfir Hreini. Hann var góður dreng- ur. Við starfsfólk Fjölbrautaskóla Suðurlands kveðjum Hrein með söknuði og þökkum honum samver- una. Föður hans, systkinum og öðrum aðstandendum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Orlygur Karlsson, skólameistari. Kveðja frá Glímudómara- félagi íslands. Hreinn Erlendsson var mikill áhugamaður um íþróttir og ætíð boðinn og búinn til að ljá liðsinni sitt þegar aðstoðar var þörf, hvort sem varðaði skipulagningu íþrótta- keppni eða dómgæslu. Það voru ekki síst ftjálsar íþróttir sem nutu þeirra starfskrafta hans, og þannig man ég einna fyrst eftir honum. En hann var einnig mikill áhuga- maður um þjóðaríþróttina og það kom fram á margan veg. Þannig var hann meðal þeirra sem einna fyrst tóku dómarapróf í glímu eftir stofnun Glímusambands íslands. Hann var síðan alla tíð meðal þeirra sem ætíð voru boðnir og búnir til starfa fyrir glímuna. Hreinn var ekki síst viljugur til verka þegar þörf var á að fá menn til dómgæslu á mótum í öðrum landshlutum, og frá slíkum ferðum er.margs að minnast, enda maður- inn margspakur og óljúgfróður, svo vitnað sé í Ara fróða, léttur í skapi og með eindæmum ánægjulegur ferðafélagi. Við þessi tækifæri voru oft málin tekin til fjörugrar um- ræðu, hvort sem rabbað var um þjóðaríþróttina eða landsmálin, eða léttara hjalið látið duga. Honum var flestum öðrum betur lagið að segja hressilega frá mönnum og málefnum. Hreins Erlendssonar er sárt saknað, bæði sem ötuls starfs-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.