Morgunblaðið - 04.07.1997, Page 6

Morgunblaðið - 04.07.1997, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR UNGT fólk á hjólabrett- um er algeng sjón í miðbæ Reykjavíkur. Ingólfstorg er vinsæll verustaður hjólabretta- kappa sem bókstaflega fljúga um torgið og vekja athygli vegfar- enda. Ekki eru allir á eitt sáttir og fólk hefur ýmist lýst ánægju sinni eða vanþóknun á veru hjólabrettafólks á torg- inu. Til að kanna málið nánar fór Rakel Þor- bergsdóttir niður á Ing- ólfstorg og kynnti sér hinar ólíku hliðar máls- ins. Sumarið er tími úti- veru og algengt er að fólk safnist saman á torgum miðbæja. Ing- ólfstorg, í hjarta Reykjavíkur, hefur undanfarin ár verið samkomustaður ungs fólks á hjólabrettum sem rennir sér á handr- iðum og stekkur niður tröppur torgsins. Hrafn Gunnarsson, 14 ára, var á Ingólfstorgi með vinum sínum en þeir komu til að fylgj- ast með eldri hjólabrettastrák- um og til að leika sér á eigin brettum. Hrafn sagði að sér- staklega gott væri að renna sér á marmaranum á torginu og þess vegna væru þeir komnir þangað. Hann sagðist eiga vin sem fyrir skömmu hafi slitið liðband og handleggsbrotið sig á hjólabretti á Seltjarnarnesi. Þeir vinirnir noti hvorki hlífar né hjálma en séu þrátt fyrir það óhræddir. Thorvaldsensbasar stendur við Ingólfstorgið og starfs- menn verslunarinnar segja það mjög slæmt þegar unglingar á hjólabrettum fari sjálfum sér að voða og meiði jafnvel aðra. „Auðvitað verða unglingarnir að vera einhvers staðar en það er eins og allir standi ráðalaus- ir,“ sagði starfsmaður verslun- arinnar. Unglingarnir séu hjálma- og hlífðarlausir og gjarnan sjáist til þeirra þegar þeir detti og meiði sig. Starfsmenn Hlöllabáta við Ingólfstorg segja að eldra fólk- VIKTOR Gunnlaugsson og Anton Gunnarsson hafa verið á hjólabrettum í sex ár og segja Ingólfstorg vera besta staðinn fyrir þau. HRAFN Gunnarsson, 14 ára, kom með hjólabrettið ásamt vinum sínum af Seltjarnamesi. Morgunblaðið/Árni Sæberg HJÓLABRETTASTÖKK niður tröppurnar á Ing- ólfstorgi er algeng sjón. FEÐGININ Dagbjört Hauksdóttir og Haukur Andrésson nutu sólarinnar við torgið. ANNA María Atania með börnum sínum á Ingólfstorgi. ið í borginni leggi ekki leið sína á torgið. Þeir segja að fólk taki fremur sveig en að ganga út á torgið. Viðskipti séu minni því mikið af fólki komi ekki á svæð- ið. Að þeirra sögn væri allt öðruvísi umhorfs á torginu ef hjólabrettafólk væri þar ekki öllum stundum. Viktor Gunnlaugsson og An- ton Gunnarsson eru tæplega tvítugir og hafa verið á hjóla- brettum í um sex ár. Þeir segja að fólk sem búi eða starfi í kringum torgið sé helst að kvarta undan þeim en lögregl- an sé lítið að skipta sér af. Að þeirra sögn er bæði hall- ærislegt og heftandi að vera með hlífar í miðbænum. Þeir hafa tognað, marist og bólgnað en ekki lent í alvarlegri óhöpp- um. Viktor segist einu sinni hafa rekist á mann á torginu en sá var líka á hjólabretti og því teljist það ekki með. „Við erum ekki viljandi að ógna fólki, fólk heldur að við keyrum beint á það en við vitum hvert við erum að fara,“ sögðu Anton og Viktor. Þeir segja að fólk gæti barnanna sinna og láti þau ekki hlaupa um og í veg fyrir hjólabrettafólk. „Okkur hefur verið kennt um ótrúlegustu hluti. Við erum ekki að skemma eða krota á marmarann," sögðu þeir vinir. „Eldra fólkið gerir allt of mikið úr þessu. Við erum ekkert slæmir.“ Aðstaða fyrir hjólabretti hef- ur verið sett upp á ýmsum stöð- um í borginni en Anton og Vikt- or segja að skemmtilegast sé að renna sér á bretti í miðbæn- um. Þar sé allt sem þurfi til að gera hjólabrettaiðkun skemmtilega. Dagbjört Hauksdóttir sat með pabba sínum, Hauki Apdr- ésssyni, á Ingólfstorgi og sagð- ist stundum verða hrædd við hjólabrettafólkið. „Þeir eru stundum næstum því búnir að slasa einhveija,“ sagði Dag- björt sem er tíu ára. Henni finnst gaman að vera á torginu en langar ekki til að leika sér á hjólabretti. „Það er gaman að sjá flinka stráka sýna listir sínar,“ sagði Haukur, pabbi Dagbjartar, og sagðist óhrædd- ur við að vera á torginu. Anna María Atania var með börnin sín tvö á Ingólfstorgi og sagðist koma þangað stund- um. Hún sagðist ekki verða fyrir óþægindum af hálfu hjóla- brettafólksins og hefði ekkert út á það að selja. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík kvarta verslunareig- endur við Ingólfstorg af og til vegna unglinga á hjólabrettum. Þá hefur lögreglan venjulega farið á torgið og talað við ungl- ingana og reynt að fá þá til að hafa hægar um sig. í raun sé ekki hægt að banna unglingun- um að vera á torginu og ekki er vitað um að slys á fólki hafi orðið vegna þeirra. Hjólabretti á Ingólfstorgi Ekki allir á eitt sáttir .augavegi 18 • Sími 515 2500 • Síðumúla 7 • Slmi 510 2500 4> FORLAGIÐ Nauðsynleg áhugafólki um garðrækt • Jafnt fyrir byrjendur sem vana garðyrkjumenn. • 550 blaðsíður í stóru broti. • 3.000 litmyndir og skýringarteikningar. GSM-símtöl í útlöndum Reynt verður að fá erlend- an vsk. endurgreiddan VIRÐISAUKASKATTUR verður innheimtur af GSM-símtölum, sem íslenskir símnotendur hringja er- lendis, skv. breyttum lögum um virðisaukaskatt sem tóku gildi 1. júlí sl., eins og sagt var frá í blað- inu í gær. Að sögn Guðjóns Jónssonar, markaðsstjóra samkeppnissviðs Pósts & síma, hefur fyrirkomulag- ið verið þannig hingað til að erlend símafyrirtæki hafa sent Pósti & síma reikninga vegna símtala ís- lenskra GSM-símanotenda erlend- is. Póstur & sími hefur innheimt þessa reikninga að viðbættu 15% umsýsluálagi og af því hefur verið innheimtur virðisaukaskattur. Með breytingunni verður inn- heimtur virðisaukaskattur af er- lendu upphæðinni einnig. í einhverjum tilfellum eru er- lendir reikningar með virðisauka- skatti og yrði því um tvöfalda álagningu að ræða. Að sögn Guð- jóns er misjafnt eftir löndum hvort virðisaukaskattur er innheimtur eða ekki og nefndi hann Finnland sem dæmi um land sem aldrei hefði innheimt virðisaukaskatt af þessum símtölum. Hann sagði að reynt yrði að fá erlendan virðisaukaskatt endur- greiddan en það kostaði viðræður við skattyfírvöld í hveiju landi fyr- ir sig. Það ætti eftir að koma í ljós hversu Pósts- & símamönnum yrði ágengt í þeim efnum en fyrstu reikningar þar sem innheimt verð- ur eftir nýjum reglum, verða send- ir út í september. Þótt lögin hefðu þegar tekið gildi væri enn nokkur tími til stefnu og reynt yrði að minnka áhrif þessarar álagningar eins og hægt væri. Guðjón sagðist telja að þessi breyting væri í samræmi við fyrir- komulag í öðrum Evrópulöndum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.