Morgunblaðið - 04.07.1997, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Tvö af stærstu knattspyrnumótum landsins á Akureyri
Um 1.300 keppend-
ur á félagssvæð-
um Þórs og KA
TVÖ af stærstu knattspyrnumót-
um landsins fara fram á Akureyri
þessa dagana. Ungu strákarnir í
5. flokki etja kappi á ESSO-mótinu
á félagssvæði KA og á félags-
svæði Þórs reyna knattspyrnu-
menn 30 ára og eldri fyrir sér á
Pollamóti Þórs. Reikna má með
að um 2.000 manns tengist þess-
um tveimur mótum á einn eða
annan hátt.
ESSO-mótið var sett við hátíða-
lega athöfn í fyrrakvöldi en sjálf
keppnin hófst af fullum krafti í
gærmorgun. Til leiks mættu lið frá
25 félögum víðs vegar af landinu
og eru langflest þeirra með í
keppni a-, b-, c- og d-liða. Þátttak-
endur eru um 740 talsins og alls
um 820 ef fararstjórar, liðstjórar
og þjálfarar eru taldir með. Þá
fylgir strákunum stór hópur for-
eldra og systkina og því er óhætt
að fullyrða að um 1.000 manns
tengist mótinu á KA-svæðinu.
Keppni á ESSO-mótinu verður
fram haldið í dag en úrslitaleikirn-
ir fara fram á morgun, laugardag.
Keppni lýkur um kl. 19 á morgun
og skömmu síðar hefst lokahóf
mótsins sem fram fer í íþróttahúsi
KA.
Á sjötta hundrað
„gamlir" spilarar
Pollamót Þórs hefst í dag en
þar eru 56 lið frá um 40 félögum
úr öllum landshlutum skráð til
leiks. Keppt er í tveimur flokkum,
30-40 ára og 40 ára og eldri.
Keppendur eru á sjötta hundrað
og verða spilaðir alls um 150 leik-
ir í dag og á morgun. Mótinu tengj-
ast um 1.000 manns því mjög
margir þátttakenda eru með fjöl-
skyldu sína með í för. í kvöld fer
fram grillveisla við Hamar og
mótinu lýkur annað kvöld með
lokahófi í Sjallanum.
Á Pollamótinu verður í gangi
leikmannamarkaður og geta þeir
sem vilja skráð sig á markaðinn
hjá mótsstjórn. Komi til þess að
leikmann vanti í lið getur móts-
stjórn gefið leikmanni á markaðn-
um sérstakt keppnisleyfi.
Morgunblaðið/Björn Gíslason
KEPPNI á ESSO-móti 5. flokks í knattspyrnu var í fullum gangi
í gær og er þessi mynd úr leik KA og Þróttar frá Reykjavík. Móts-
dagana verða spilaðir á þriðja hundrað leikir á félagssvæði KA.
Sumar-
sýning
lista-
safnsins
SUMARSÝNING Listasafns-
ins á Akureyri verður opnuð
kl. 16 laugardaginn 5. júlí. í
austur- og miðsal er sýning á
málverkum eftir Finn Jónsson
og í vestursal eru sýnd mál-
verk eftir Kötu saumakonu,
(Katrínu Jónsdóttur) sem
safnið hefur fengið að gjöf.
Á sýningunni í listasafninu
eru verk frá ýmsum skeiðum
á ferii Finns Jónssonar og
ýmsum myndflokkum í list
hans. Sýningin kemur frá
Listasafni íslands og eru mál-
verkin öil úr eigu þess.
Málverk Kötu á þessari sýn-
ingu eru úrval úr höfðinglegri
gjöf sem Listasafninu á Akur-
eyri var færð af syni hennar,
Sverri Ragnarssyni árið 1994.
Markmiðið með sýningunni
er að gefa almenningi tæki-
færi á að sjá úrval úr gjöfinni
og safna jafnframt upplýsing-
um um þau og höfundinn.
Verkin eru lítið merkt, nafn
listakonunnar kemur þó stund-
um fyrir en aðrar upplýsingar
ekki.
Morgunblaðið/Guðmundur Þór
Fyrsta loðnan
til Ólafsfjarðar
ÓlafsQörður. Morgunblaðið.
FYRSTA loðnan á nýhafinni
vertíð barst til Ólafsfjarðar á
miðvikudag þegar Guðmundur
Ólafur ÓF landaði fullfermi eða
um 800 tonnum til loðnuverk-
smiðju Krossaness. Loðnuna
fengu skipveijar djúpt norð-
austur af Langanesi og tók sigl-
ingin til heimahafnar um 19
klukkustundir. Guðmundur Ól-
afur hélt slrax til veiða eftir
löndum.
Gunnar Jónas-
son sýnir
í Hrísey
GUNNAR Kr. Jónasson opnar
myndlistarsýningu í félagsheimil-
inu í Hrísey laugardaginn 5. júlí
kl. 14.
Gunnar sýnir um 20 vatnslita-
myndir og stendur sýningin til
sunnudagins 13. júlí.
Sólveig sýnir
í Mývatnssveit
SÓLVEIG Illugadóttir, hjúkrunar-
fræðingur opnaði myndlistarsýn-
ingu í nýju íþróttamiðstöðinni í
Reykjahlíð í Mývatnssveit sl.
fimmtudag.
Þetta er sjöunda einkasýning
Sólveigar og stendur hún til 10.
ágúst. Húnsýnir 15 olíuverk og eru
þau flest til sölu. Sýningin er opin
alla daga frá kl. 10-22.
Vinnslu í frystihúsi UA hætt í 4 vikur
Umfangsmiklar breyt-
ingar á landvinnslunni
VINNSLU í frystihúsi Útgerðarfé-
lags Akureyringa hf. var hætt í
gær og mun landvinnslan liggja
niðri næstu fjórar vikur. Á meðan
tekur starfsfólkið sitt sumarfrí.
Guðbrandur Sigurðsson, forstjóri
ÚA segir að á þeim tíma verði
unnið við umfangsmiklar breyting-
ar á allri landvinnslu félagsins.
„Við stefnum að því að hefja
vinnslu á ný fyrstu vikuna í ágúst.“
ÚA og Verkalýðsfélagið Eining
hafa gert tveggja mánaða reynslu-
samning um vinnufyrirkomulag
eftir að vinnslan fer í gang á ný.
Guðbrandur segir að um verði að
ræða tvær vinnulotur, um 100
manns verði í vinnu frá kl. 7-15.10
og um 40-45 manns frá kl.
15.10-19. Hann sagði þetta jafn-
framt þýða að starfsfólki mundi
fækka um 17.
Heildarkostnaður
rúmar 200 milljónir
Skipt verður um allar gömlu
vinnslulínumar, sem einnig kallar
á töluverðar breytingar á hús-
næðinu en heildarkostnaður við
framkvæmdina er upp á rúmlega
200 milljónir króna en einnig verð-
ur farið í breytingar á starfs-
mannaaðstöðu.
Óskað var eftir altilboði í breyt-
ingar á vinnslunni og var samið
við Marel um verkið. Samningur-
NYTT DAGBLAÐ A
ITERNETINU
* www.:
inn hljóðar upp á um 85 milljónir
króna og segir Guðbrandur þetta
stærsta einstaka samning Marels
við sjávarútvegsfyrirtæki hér á
landi. Það sem að ÚA snýr er að
hafa húsnæðið klárt og að koma
öllum nauðsynlegum tengingum á
ákveðna staði í húsinu.
Afkastamiklar
vélar
„Við breytum mötun inn á hefð-
bundnar bolfiskvélar, þ.e. fyrir
þorsk, ýsu og ufsa, verðum með
vigtarflokkun inn á flökunarvélar
og stærðarflokkun á karfa inn á
karfavélar. í flökunarsal endurröð-
um við flökunarvélum og tökum
út allar gömul karfavélamar og
bætum við nýrri mjög fullkominni
karfaflökunarvél. Sú vél er mun
afkastameiri og kallar á færra
starfsfólk en þurfti við gömlu vél-
amar. Vélin sparar 5 manns í vinnu
og skilar samt sem áður betri nýt-
ingu.“
Kvótastaðan
góð
Guðbrandur sagði ráðgert að
taka allan þann karfa sem hægt
væri í hraðsnyrtingu og í stað
þess að nota hefðbundin færibönd
við að færa karfann um húsið,
yrði notuð vacuumdæling.
í tengslum við bolfiskvinnsluna
verða settar upp tvær snyrtilínur,
annars vegar sérhæfð bitavinnslu-
lína og hins vegar lína fyrir hefð-
bundnar pakkningar. Guðbrandur
segir að búnaðinum fylgi mikil
sjálfvirkni og um leið fáist mun
betri upplýsingar um gang vinnsl-
unnar hverju sinni.
ísfisktogarar félagsins munu
halda áfram á veiðum þrátt fyrir
lokun frystihússins og reyna við
grálúðu og eitthvað við karfa. Og
Guðbrandur segir að kvótastaðan
sé mjög góð núna miðað við sama
tíma i fyrra.
Islenskur
fjárhundur
bestur
ÁRLEG hundasýning Hunda-
ræktarfélags Islands og svæð-
afélags HRFÍ á Norðurlandi var
haldin í íþróttahöllinni á Akur-
eyri um helgina.
Keppt var í 9 tegundahópum
og tóku um 190 hundar af 32
tegundum þátt í sýningunni.
Líkt og á sýningunni á Akureyri
í fyrra varð íslenskur fjárhund-
ur valinn besti hundur sýningar-
innar.
Sá heitir Tanga-Sómi en eig-
andi hans er Snorri Dal Sveins-
son úr Reykjavík.
Morgunblaðið/Kristján
BESTI hundur sýningarinnar.