Morgunblaðið - 04.07.1997, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.07.1997, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1997 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Mjólkursamlag- Kaup- félags Þingeyinga Yiðurkenn- ing fyrir Gámes- kerfi SÉÐ yfir íþróttavöllinn á Grundarfirði. Nýr íþróttavöllur vígður í Grundarfirði Grundarfirði - Mikil gleði var í Grundarfirði sunnudaginn 29. júni þegar nýr íþróttavöll- ur var vígður. Það var fyrir fjórum árum að ákveðið var að gera nýjan og fullkominn íþróttavöll með hlaupabrautum, kasthring, stökkgryfju og fleiru. Sveit- arfélagið og Ungmennafélagið gerðu með sér samning um verkið og er því nú lokið. Skipuð var sérstök nefnd sem hafði umsjón og eftirlit með verkinu og í henni voru Guðni Hallgrímsson formaður, Eiður Björnssson byggingar- fulltrúi, Geirmundur Vil- hjálmsson, Árni Halldórsson, Pétur Guðráður Pétursson og Haraldur Guðmundsson. Fjöldi fyrirtækja og ein- staklinga hefur fært gjafir og styrki í þessa framkvæmd meðan á henni stóð, t.d. með láni á vinnutækum, vinnu- framlagi, efnisframlagi svo sem þakefni, sandi og fleiru. Almenn og góð samstaða er meðal Grundfirðinga þegar slík verk eru unnin. Hátíð haldin í glaða sólskini Dagskráin á sunnudaginn hófst með því að gengið var frá Grunnskólanum á íþrótta- völlinn þar sem Guðni Hall- grímsson, oddviti í Grundar- firði og formaður byggingar- nefndar vallarins, gerði grein fyrir framkvæmdinni og gangi hennar og í framhaldi af því blessaði sóknarprestur staðar- ins, sr. Karl V. Matthíasson, völlinn og þá sem komu til að vera við þessa hátíð í glaða sólskini og góðu veðri. Næst fóru fram ýmsir leikir sem margir tóku þátt í, eink- um yngri kynslóðin sem var ófeimin við að prófa hlaupa- brautir, stökkgryfjuna og boltavöllinn. Þess má geta að meðal gesta voru tveir þingmenn Vestur- lands, þeir Sturla Böðvarsson og Magnús Stefánsson sem reyndar var sveitarstjóri hér þegar ákveðið var að ráðast í þessar miklu framkvæmdir. Morgunblaðið/Atli Vigfússon ÞORKELL Björnsson, heilbrigðisfulltrúi Norðurlands eystra, af- hendir Kristínu Halldórsdóttur, gæðastjóra MSKÞ, viðurkenning- arskjal fyrir Gámes-kerfi. Hjá þeim standa Hlífar Karlsson, sam- lagsstjóri t.v. og Jón Ingi Guðmundsson, mjólkurfræðingur. Styrkveitmgar úr Menningar- sjóði Sparisjóðs Ólafsvíkur Ólafsvík - Nýlega var veittur styrkur úr Menningarsjóði Spari- sjóðs Ólafsvíkur. Sjóðnum, sem stofnaður var fyrir ári með 500.000 kr. framlagi frá stjórn Sparisjóðsins, er ætlað að styrkja menningar- og framfaramál í byggðarlaginu. Sparisjóðurinn hefur verið með þess konar óformlega styrki, en nú er þetta gert formlega og auglýst var eftir umsóknum um styrki. Uthlutað var úr sjóðnum í fyrsta skipti nú nýlega. Þeir sem hlutu styrk eru: Björgunarsveit- in Sæbjörg, Ólafsvík, kr. 140.000, til kaupa á snjóflóðabíl- um; Golfklúbburinn Jökull, Ól- afsvík, kr. 50.000, til endurbóta á golfvellinum; Ungmennafélag Staðarsveitar, kr. 50.000, til efl- ingar leiklistar í Staðarsveit; Sjómannablað Snæfellsbæjar, kr. 80.000, til efnisöflunar á komandi árum; Félag um eflingu Snæfellsbæjar, kr. 80.000, til útgáfuleiðarlýsinga á göngu- leiðum o.fl.; Snær, Lúðrasveit Snæfellsbæjar, kr. 50.000, til kaupa á yfirhöfnum; sr. Ólafur Jens Sigurðsson, kr. 50.000, til ritunar sögu fyrirtækja, stofn- ana, félaga og sögustaða í hinum forna Neshreppi. Morgunblaðið/Guðlaugur Wium STYRKÞEGAR úr Menningarsjóði Sparisjóðs Ólafsvíkur ásamt stjórnarformanni SPÓ, Bjarna Ólafssyni. Laxamýri - Heilbrigðisfulltrúi Norðurlands eystra, Þorkell Björns- son, afhenti fyrir helgina starfsfólki Mjólkursamlags Kaupfélags Þing- eyinga viðurkenningarskjal fyrir að hafa tekið í notkun Gámes-kerfi sem er innra eftirlit með vinnslu afurða og stenst 3. og 4. grein reglugerðar um matvælaeftirlit og hollustuhætti við framleiðslu og dreifingu afurða. Gámes-kerfið nær til allra fram- leiðsluþátta, allt frá móttöku hráefn- is til afhendingar vörunnar. Áhættu- þættir eru greindir og mikilvægir eftirlitsstaðir ákvarðaðir. Allir þættir kerfisins eru skráðir og skjalfestir og komið á fót innri úttekt. Starfs- menn og stjórnendur hafa skýra ábyrgð og fá þjálfun og hverri vöru er lýst með tilliti til samsetningar. Vörueftirlit er strangt og sýnatökur og mælingar gerðar fljótvirkari þannig að ekki þurfi að hafna vör- unni á seinni stigum. Reglulega fer fram innri úttekt og kerfið er aðlag- að nýjungum og breyttum aðstæð- um. Við afhendinguna lýsti samlags- stjóri, Hlífar Karlsson, yfir ánægju sinni með Gámes-kerfið en Mjólkur- samlag Kaupfélags Þingeyinga er fimmta samlagið sem fær þessa vott- un. Morgunblaðið/KVM ÞAÐ voru jafnt háir sem lág- ir sem mættu til vígslunnar. Að lokum var boðið upp á grillaðar pylsur og ávaxtasafa sem allir þáðu með þökkum. Landssamtök félags skógar- eigenda stofnað Geitagerði - Stofnfundur Landssamtaka félags skógareig- enda að Hallormsstað var hald- inn laugardaginn 28. júní. For- maður Félags skógarbænda á Fljótsdalshéraði Þorsteinn Pét- ursson setti fundinn. Að setningu lokinni flutti land- búnaðarráðherra Guðmundur Bjarnason ávarp og kom inná ýmislegt s.s. viðhorfsbreytingar almennings til skógræktar. Einnig þær breytingar sem skóg- argróður hefði á loftslag þ.e. gróðurhúsaáhrif og sagði að lok- um að skógræktin væri „komin til að vera“. Þá kynnti formaður Félags skógarbænda á Suður- landi, Gunnar Sverrisson, drög að samþykktum fyrir hin nýju samtök. í stjórn voru kjörin: Edda Björnsdóttir, Miðhúsum, frá Fé- lagi skógarbænda á Fljótsdals- héraði, formaður, Davíð Guð- mundsson, Glæsibæ Eyjafirði og Sigurður Jónsson, Ásgerði, Fiúð- um. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Maríuerla Ber nafn Guðs- móður Blönduósi - Maríuerlan er al- gengur fugl á íslandi og auð- þekkt á blágráum, hvítum og svörtum lit og löngu, sikviku stéli. Þorvaldur Björnsson á Náttúrufræðistofnun sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði heyrt að nafn sitt hefði fuglinn frá Maríu mey. Maríuerlan væri nunnuleg í út- liti, hrein og fín og svipurinn fallegur. Fleiri útgáfur eru til á nafni þessa fugls og má þar nefna máríatla og márjatla.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.