Morgunblaðið - 04.07.1997, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.07.1997, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Metviðskipti á Verðbréfaþingi í gær Veltan nam um 2,9 milljörðum króna VIÐSKIPTI á Verðbréfaþingi ís- lands námu alls tæpum 2,9 millj- örðum í gær, sem er nýtt met á einum degi. Næstmestu viðskipti urðu 7. febrúar sl., en þá nam veltan á þinginu liðlega 1,9 millj- örðum. Um helmingur viðskipt- anna var með ríkisvíxla, en tals- verð viðskipti urðu einnig með húsbréf og spariskírteini. Ávöxtun- arkrafa húsbréfa hækkaði í gær úr 5,40% í 5,45%, en ávöxtun ríkis- víxla lækkaði. „Þessi mikla velta á verðbréfa- markaðnum í dag sýnir fyrst og fremst hina miklu og öru framþró- un sem hefur átt sér stað síðustu vikur og mánuði," segir Árni Odd- ur Þórðarson, forstöðumaður hjá Búnaðarbankanum Verðbréfum. „Markaðurinn hefur breikkað og dýpkað eða með öðrum orðum það er í dag mun auðveldara að selja eða kaupa mikið magn verðbréfa án þess að hreyfa verulega við verði bréfanna. Annað ánægjulegt sem hefur gerst er að ijárfestar á borð við lífeyrissjóði kaupa ekki skuldabréf og hlutabréf endilega til að eiga til eilífðarnóns eins og áður fyrr heldur fylgjast með markaðnum og taka ákvörðun um kaup eða sölu eftir afstöðu til verðs bréfa hverju sinni. Eftir mikla lækkun ávöxtunarkröfu síðustu daga og þar með hækkun á gengi skulda- bréfa voru einhverjir ijárfestar að selja skuldabréf og þar með að innleysa gengishagnað. Aðrir fjár- festar voru að festa kaup á þessum skuldabréfum og hafa því trú á að þau séu góð fjárfesting. Sú trú byggist á því að vextir muni lækka hér á landi einkum vegna minni lánsfjáreftirspurnar opinberra að- ila og mikils vaxtamunar við út- lönd.“ Viðskiptavakt á gjaldeyrismarkaði Búist við meiri sveifl- um á gengi krónunnar TÖLUVERÐAR breytingar á fyrir- komulagi gjaldeyrisviðskipta og gengisskráningar krónunnar munu taka gildi þann 8. júlí nk. Þá verður hætt að halda daglega skráning- arfundi hjá Seðlabankanum og kom- ið á samfelldum markaði yfir daginn með viðskiptavakt af hálfu markaðs- aðila. Þar með verða íslendingar komnir með sambærilegt kerfí í þessum efnum og víðast hvar í ná- grannalöndunum, að sögn Yngva Arnar Kristinssonar, framkvæmda- stjóra hjá Seðlabankanum. „Aðilar að gjaldeyrismarkaðnum, sem í upphafí verða bankarnir fjórir auk Seðlabanka, munu gefa upp tvíhliða gengi á dollar fyrir að lág- marki hálfa milljón. Seðlabankinn mun hins vegar eftir sem áður ákveða hið opinbera viðmiðunar- gengi krónunnar, en það verður í meginatriðum gert á grundvelli kaup- og sölutilboða sem bankarnir munu setja fram í Reuter-upplýs- ingakerfinu. Reyndar getum við haft áhrif á gengisskráninguna með því að grípa inn í markaðinn með við- skiptum," sagði hann. Trúverðugri gengisskráning Skráningarfundirnir hafa verið aðalvettvangur gjaldeyrisviðskipta milli bankanna og Seðlabankans. Eftir að fundirnir hafa verið aflagð- ir má búast við að meira af viðskipt- unum fari fram á milli bankanna en verið hefur þar sem Seðlabankinn mun eingöngu eiga viðskipti af eigin frumkvæði. „Við eigum von á því að það verði meiri sveiflur á genginu á milli daga heldur en áður var. Bankarnir geta hnikað til verði eftir því hvort þeir vilja kaupa eða selja. Áhrifin verða fyrst og fremst þau að gengisskráningin ætti að verða ennþá trúverðugri og ennþá meiri hreyfingar á gengi frá degi til dags. Það er reynsla nágrannalandanna þegar þau hurfu frá því kerfí að halda daglega skráningarfundi," sagði Yngvi Orn. j r—i mest seldu fólksbíla- k l*egUn.dÍr"aQrQí, Br.frá fl^ij/|an.-jum 1997 fyrra ári Fjöldi % % 1. Toyota 786 15,2 -4,3 2. Subaru 593 11,5 +122,9 3. Volkswagen 521 10,1 +1,8 4. Mitsubishi 513 9,9 +58,3 5. Hvundai 415 8,0 +24,6 6. Nissan 408 7,9 -6,2 7. Opel 341 6,6 +31,2 8. Suzuki 293 5,7 +12,3 9. Ford 241 4,7 +15,3 1(1. Renault 227 4,4 +24,7 11 Honda 141 2,7 +51j6 19 Peuaeot 98 1,9 +113,0 13 Ssanavona 91 1,8 +911,1 14. Volvo 89 1,7 +6,0 1fi Mazda 75 1,5 -13,8 Aðrar teg. 334 6,5 -12,8 Samtals 5.166 100,0 +20,0 Bifreiða- innflutn. í janúar til júní 1996 og 1997 VORU-, SENDI- og HÓPFERÐA- BÍLAR, nýir 439 505 1996 1997 1996 1997 Bílainnflutningur eykst um 20% Alls voru fluttar inn 5.166 fólksbifreiðar til landsins fyrstu sex mánuði ársins sem er 20% aukning frá sama tímabili í fyrra en þá voru fluttar inn 4.305 fólksbifreiðar. Líkt og í fyrra þá skipar Toyota efsta sætið með 786 bifreiðar en það er 4,3% samdráttur frá 1996. í öðru sæti er Subaru með 593 bifreiðar sem er 122,9% aukning frá því í fyrra. Innflutningur á Mazda bifreiðum hefur dregist saman um 13,8%, úr 87 á síðasta ári í 75 fyrstu sex mánuði ársins. Norðvesturbanda- lagið stefnir á Verðbréfaþing STOFNFUNDUR félags um slátrun við Húnaflóa og Breiðafjörð sem borið hefur vinnuheitið „Norðvest- urbandalagið" var haldinn á Hvammstanga þriðjudaginn 1. júli. Félagið mun annast rekstur slát- urhúsa og skylda starfsemi, kaup og leiga fasteigna og lánastarf- semi. Markmiðið er að tryggja arð- semi hlutafjáreigenda félagsins, en jafnframt að tryggja hagræðingu í rekstri sláturhúsa á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra, líkt og segir í frétt frá félaginu. Heimili félagsins verður á Hvamms- tanga. Félagið stefnir að skráningu á Verðbréfaþingi íslands og mun kappkosta að uppfylla skilyrði þar að lútandi sem allra fyrst. Jafn- framt ætlar félagið að uppfylla skil- yrði laga um tekju- og einkaskatt, svo einstaklingar í hópi hluthafa geti nýtt sér afslátt vegna hlutafjár- kaupa. Félagið mun yfírtaka sláturhúsa- rekstur Kaupfélags V-Húnvetninga á Hvammstanga, Kaupfélags Hrút- firðinga Borðeyri, Kaupfélags Steingrímsfjarðar Hólmavík og Af- urðastöðvarinnar í Búðardal. Þessir aðilar eru jafnframt aðaleigendur nýja félagsins. Aðrir stofnfélagar eru Búnaðarsamband Dalamanna, Búnaðarsamband Strandamanna, Búnaðarsamband Vestfjarða, Bún- aðarsamband Vestur-Húnavatns- sýslu, Byggðastofnun, Dalur hf., Kjötumboðið hf., Olíufélagið hf., Samvinnulífeyrissjóðurinn, Sam- vinnusjóður Islands, Skinnaiðnaður hf. og Vátryggingafélag íslands hf. Hlutafé er kr. 270,5 milljónir. Kaupfélag Vestur-Húnvetninga er stærsti hluthafinn með 49% hluta- fjár. Slátrun á Borðeyri hætt Félagið mun starfrækja þtjú slát- urhús ásamt kjötvinnslu, á Hvamms- tanga, Búðardal og Hólmavík. Slátr- un á Borðeyri verður hætt. Áætluð ársvelta er um 600 milljónir króna, en starfsemin hefst í ágúst. Félagið á að skila strax á fyrsta ári arði til eigenda sinna og vera til hagsbóta fýrir eigendur, framleiðendur og neytendur. í beinu framhaldi af stofnun félagsins verður bændum og öðrum á svæðinu boðið að gerast hluthafar, segir ennfremur. Stjórn félagsins skipa: Gunnar V. Sigurðsson, Hvammstanga, for- maður, Jón E. Alfreðsson, Hólma- vík, varaformaður, Georg Jón Jóns- son, Kjöreyri 2 Bæjarhreppi ritari, Ólafur Sveinsson, Búðardal og Helgi Óskar Óskarsson, Kópavogi. í varastjórn eru: Sigurbjörn Gunn- arsson, Reykjavík, Guðmundur Karlsson, Mýrum 3, Ytri-Torfu- staðahreppi og Guðmundur Steinar Björgmundsson, Kirkjubóli 2, ísafirði. Tölvu- og rafeindaþjónusta Suðurlands Tæknival kaupir 30% TÆKNIVAL hf. hefur keypt 30% hlut í Tölvu- og rafeindaþjónustu Suðurlands hf. Ákvörðun um kaup- in var tekin til þess að treysta nánar það samstarf sem fyrirtækin hafa haft með sér. • í frétt kemur fram að Tölvu- og rafeindaþjónusta Suðurlands var stofnuð í október 1995 af Gunnari B. Þorsteinssyni, Júlíusi M. Pálssyni og Páli Gestssyni. Allt frá stofnun hefur fyrirtækið lagt áherslu á sölu, uppsetningu og þjónustu á tölvum og tölvubúnaði. „Hlutdeild Tæknivals í fyrirtækinu styrkir stöðu þess á markaðnum og felst sá styrkur m.a. í því að fyrirtækið hefur nú greiðan að- gang að fjölmörgum sérfræðingum Tæknivals. Það tryggir viðskipta- vinum bestu fáanlegu þjónustu hveiju sinni og fyrirtækið verður betur í stakk búið að bjóða heildar- lausnir og veita öflugri þjónustu," segir ennfremur í fréttinni. Starfsmenn Tölvu- og rafeinda- þjónustu Suðurlands eru fjórir en fyrirtækið er á Selfossi. Samkeppnisráð úrskurðar um innkaupareglur ÁTVR Skraut má fylgja flösku SAMKEPPNISRÁÐ hefur úrskurðað að ATVR sé óheimilt að krefjast þess að vara sem sett er í sölu áfengisverslana sé óbreytt að því er varðar stærð og útlit umbúða og gerð sölueiningar nema sannanleg, hlutlæg og málefnaleg rök leiði til annarrar niðurstöðu. Lögmaður Samtaka verslunarinnar, Félags ís- lenskra stórkaupmanna, leitaði til Samkeppnis- stofnunar í lok síðasta árs fyrir hönd umbjóðanda síns, Júlíusar P. Guðjónssonar, vegna þess að ÁTVR vildi ekki taka við Bailey’s flöskum af Júlíusi P. Guðjónssyni ehf., dreifingaraðila Bai- ley’s líkjörs hér á landi, fyrir síðustu jól því að lítið hús fylgdi með hverri flösku. Síðan tók ÁTVR við flöskunum en fjarlægði skrautið af þeim. Ástæðan sem gefín var fyrir því að húsin voru fjarlægð var sú að samkvæmt áfengislögum séu auglýsingar á áfengi bannaðar og í innkauparegl- um ÁTVR segir að „vara sem ÁTVR kaupir skal vera óbreytt að gerð samningstímann nema ÁTVR samþykki annað. Það telst breyting á vöru fái hún nýtt efnainnihald, þ.m.t. vínandastyrkleika, breytta gerilsneyðingu, stærð og útlit umbúða og gerð sölueiningar." Ekki um auglýsingu að ræða í niðurstöðu samkeppnisráðs er þessu hafnað þar sem ráðið fær ekki séð hvernig ÁTVR geti sett reglur sem ganga lengra en landslög leyfa að öðru leyti. Eins er túlkun ÁTVR að um auglýs- ingu sé að ræða alfarið hafnað. Ennfremur segir þar að ÁTVR sé markaðsráðandi í skilningi sam- keppnislaga. „Um markaðsráðandi stöðu er að ræða þegar fyrirtæki hefur þann efnahagslega styrkleika að geta hindrað virka samkeppni á þeim markaði sem máli skiptir og það getur að verulegu leyti starfað án þess að taka tillit til keppinauta sinna sbr. 4. gr. samkeppnislaga. Sökum yfírburðastöðu sinnar hvílir, að mati sam- keppnisráðs, sérstaklega rík skylda á ÁTVR og fjármálaráðherra að gæta þess að athafnir fyrir- tækisins hafí ekki skaðleg áhrif á samkeppni á markaðnum eða feli í sér óeðlilega viðskipta- hætti. Hafa ber í huga að ýmsir viðskiptahættir og hegðun á markaði, sem telst eðlileg og sam- keppnishvetjandi ef lítil fyrirtæki eiga í hlut, geta haft skaðleg áhrif á viðkomandi markaði ef um markaðsráðandi fyrirtæki er að ræða.“ Samkeppnisráð telur því að reglur ÁTVR hvað varðar breytingar á stærð, útliti umbúða og gerð sölueiningar hafi í för með sér samkeppnisham- landi áhrif og brjóti gegn markmiði samkeppni- slaga. Samkeppnisráð beinir því þeim fyrirmælum til ÁTVR að leggja af beitingu þessara ákvæða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.