Morgunblaðið - 04.07.1997, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 04.07.1997, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ 4 + Þórir Þorgeirs- son fæddist á Hlemmiskeiði á Skeiðum 14. júlí 1917. Hann andaðist á heimili sínu að Reykjum á Laugar- vatni að kvöldi 25. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru Þorgeir Þorsteins- son bóndi og smið- ur, á Hlemmiskeiði, (f. 16.3. 1885, d. 20.8. 1943), og Vil- borg Jónsdóttir kennari, á Hlemmi- skeiði, (f. 9.5. 1887, d. 2.4. 1970) Systkin hans eru í aldursröð: 1) Unnur Þorgeirsdóttir (f. 15.5. 1915) kennari í Reykjavík, maki Sigurður Eyjólfsson, f.v. skóla- stjóri á Selfossi. 2) Hörður Þor- geirsson smiður í Reykjavík, (f. 15.7. 1917), maki Unnur Guð- mundsdóttir frá Túni. 3) Inga Þorgeirsdóttir (f. 2.2. 1920), kennari í Reykjavík, f.v. maki Ingólfur Guðbrandsson. 4) Jón Þorgeirsson (f. 29.5. 1922), raf- virki í Reykjavík, f.v. maki Krístín Klara Ólafsdóttir. 5) Rósa Þorgeirsdóttir (f. 6.2.1924, d. 21.1. 1952), f.v. maki Karl Guðmundsson verkfræðingur. 6) Þorgerður Þorgeirsdóttir (f. 19.1. 1926) kennari Reykjavík, maki Gísli Magnússon píanóleik- ari. 7) Vilborg Þorgeirsdóttir (f. 21.7. 1929) kennari í Reykjavík, maki Einar Sverrisson við- skiptafræðingur. Þórir var íþróttakennari að mennt, nam í Iþróttaskóla Björns Jakobssonar á Laugar- vatni 1940-1941. Framhalds- nám stundaði hann árin 1949 og 1950 í Danmarks Hojskole for Legemsovelse í Kaup- mannahöfn, og Statens Gymna- stikkskole í Osló. Þórir var kennari við Hér- aðsskólann á Laugarvatni 1941- 1973, Hússtjórnarskóla Suður- lands 1943-1949, Barnaskóla Laugardals 1941-1948, Mennta- skólann að Laugarvatni 1953- 1969, íþróttaskóla Björns Jak- obssonar 1941-1943 og síðar Iþróttakennaraskóla Islands á Laugarvatni 1943-1983. Kennslu hætti hann alfarið 1983 og helgaði sig þá sveitar- stjórnarmálum, sem hann hafði þá sinnt samhliða kennslu í 13 ár. Hann var kosinn í hrepps- nefnd Laugardalshrepps 1970 og sat í henni sem oddviti alla tíð síðan eða alls tæp 27 ár. Einnig var hann hreppstjóri Laugardalshrepps frá 1972 til ársins 1987. Hann starfaði mikið að fé- lagsmálum og æskulýðsmálum. Samhliða kennslu vann hann til margra ára við þjálfun íþrótta- fólks Héraðssambandsins Skarphéðins og stýrði liði Skarphéðinsmanna á mörgum íþróttamótum. Auk þess stjórn- aði hann til margra ára sumar- búðum HSK á Laugarvatni Það verður allt annað en auðvelt að hugsa sér Laugarvatnsstað án Þóris Þorgeirssonar, svo margvís- lega hefur hann sett svip á hann — og helgað honum líf sitt og krafta í meira en hálfan sjötta áratug. Hann var reyndar nemandi héraðs- skólans 1936-38 og lauk prófí við íþróttakennaraskóla Björns Jakobs- sonar 1941. Sama ár réðst hann íþróttakennari að héraðsskólanum. Hann annaðist að mestu alla íþróttakennslu við þann skóla og einnig hússtjórnarskólann og menntaskólann til ársins 1972, er íþróttakennaraskólanum var falin þessi kennsla. Þórir kenndi þó miklu lengur eða allt til 1984. Hann er afar minnisstæður okkur nemend- um sínum sem hvetjandi kennari og ásamt fleirum, íþróttamótum, og var fulltrúi HSK á þingum ISI og UMFÍ. Þá sljórnaði hann iðulega leik- fimi- og glímusýn- ingum í tengslum við stórviðburði. Hann fór víða um land og kenndi sund við frumstæðustu aðstæður. Hann kenndi meðal ann- ars glímu, dans, fim- leika, fijálsar íþróttir, kennslu- fræði, hjálp í viðlögum og sund, og var meðal fyrstu manna hér- lendis að kenna körfuknattleik. Þórir var á tímabili flokks- foringi Skátafélagsins Dalbúa á Laugarvatni. Hann fór til Parísar árið 1947, ásamt flokki manna á alheimsmót skáta, Jamboree, eitt hið stærsta sem haldið hefur verið, og stjórnaði þar glímusýningu. Hann sat í stjórn íþróttamiðstöðvar ÍSÍ á Laugarvatni frá stofnun henn- ar, og sat í skólanefndum Hús- stjórnarskóla Suðurlands Laug- arvatni 1974-1986 og Héraðs- skólans á Laugarvatni 1978- 1991. Hann var umboðsmaður Happdrættis Háskóla Islands, SÍBS og DAS, og fulltrúi í Kaupfélagi Arnesinga um ára- bil. Hann var einn af stofnend- um Lionsklúbbs Laugardals, tvisvar formaður hans og til- nefndur Melvin Jones félagi 1992. Síðustu árin sat hann í stjórn Heilsugæslunnar í Laugarási, og í sóknarnefnd Miðdalssóknar. Hann sat í Sýslunefnd Arnessýslu og síðan í Héraðsnefnd Arnessýslu fram á síðasta dag. Hann var heið- ursfélagi Héraðssambandsins Skarphéðins og Körfuknatt- leikssambandsins, og var meðal annars sæmdur _ gullmerki Iþróttasambands _ Islands og Ungmennafélags Islands . Eftirlifandi eiginkona Þóris er Esther Matthildur Kristins- dóttir, (f. 22.2. 1932) íþrótta- kennari og húsmóðir, og hafa þau búið allan sinn búskap á Laugarvatni. Börn þeirra eru: 1) Rósa Þórisdóttir íþrótta- kennari, maki Kjartan Þorkels- son sýslumaður. Börn þeirra eru Matthildur og Inga Hrund og eru þau búsett á Blönduósi. 2) Hrönn Þórisdóttir kennari, maki Hrafn Arnarson kennari. Dóttir þeirra er Þórhildur. Þau eru búsett í Vestmanriaeyjum. 3) Gerður Þórisdóttir, kennari, maki Lars Hansen, dýralæknir. Börn þeirra eru Sara og Aron. Þau eru búsett á Hvolsvelli. 4) Þórir Þórisson, byggingaverk- fræðingur á Selfossi. 5) Hörður Þórisson, starfsmaður Laugar- dalshrepps. Útför Þóris fer fram frá Skálholtskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 14. Jarðsett verður á Laugarvatni. var með eindæmum laginn að efla sjálfstraust okkar. Allir fengu að njóta sín, fimleikasnillingurinn, þungstígasti hjassinn og allir þar á milli. Þess verður og lengi minnst að hann átti líklega ríkastan þátt í að kenna ungu fólki körfuknattleik sem nú áratugum saman hefur ver- ið ein ailra vinsælasta hópíþróttin hérlendis. Hér er reyndar komið að þætti í störfum Þóris sem miklu lengra gengur og víðar sér stað en venjulegt kennslustarf, þ.e. félags- málastörf hans og óþreytandi elja við að beina frístundaiðju í æskileg- an farveg. Hann ferðaðist um og aðstoðaði ungmennafélög við íþróttastörf, hreif og hvatti til hollr- ar líkamsræktar. Og hér á Laugar- vatni lagði hann félagslífi nemenda meira lið en talið verði og er þá ekki aðeins átt við íþróttaæfingar. Hann var manna fyrstur til að eign- ast kvikmyndavél og hafði árum saman kvikmyndasýningar á kvöld- in fyrir nemendur og aðra stað- arbúa. Þessi kvikmyndakvöld voru ætíð nefnd Þórisbíó og nutu mikilla vinsælda. En Þórir lét ekki þar við sitja. Hann eignaðist sjálfur kvik- myndatökuvéi og tók myndir árum saman við ýmis tækifæri, m.a. af skólalífi og -starfi, og eru þær myndir nú hreinasti fjársjóður vegna heimildagildis. Af framansögðu sést að Þórir var einn þeirra kennara er telja verður burðarása í þeirri uppbyggingu skólastarfs sem átti sér stað á Laug- arvatni og myndaði þar skólaþorp með hátt á annað hundrað íbúa. En þá er ótalin sú gifturíka og affara- sæla samfélagsþjónusta sem hann innti af hendi fyrir okkur Laugdæli sem sveitarstjórnarmaður og hrepps- nefndaroddviti frá 1970 til æviloka. Hreppstjóri okkar var hann einnig frá 1972 til ’87. Það yrði langt mál að telja þau framfara- og umbóta- mál sem hann hefur átt mestan þátt í að greiða fyrir á þessum tíma. Auk stuðnings við skólana og störf þeirra, sem aldrei brást af hans hendi, um- hverfismála og vegabóta margs kon- ar, er mér efst í huga heilsugæslusel- ið, ómetanleg samvinna við stöðina í Laugarási og föst staða hjúkrunar- fræðings. Enginn einn maður átti meiri þátt en Þórir í að koma heilsu- gæslunni í núverandi horf til stórum meira öryggis en áður fyrir sveit- arbúa, nemendur og allt aðkomufólk. Eins og oft hefur verið bent á mótar það samfélag okkar nokkuð hve rík- isumsvif með skólarekstri hér á Laugarvatni eru fyrirferðarmikil og veita dijúgan hluta allrar atvinnu. Kann þá stundum að verða vand- siglt í samskiptum ríkis og sveitarfé- iags. Ég tel óumdeilanlegt að í odd- vitatíð Þóris hafi þau samskipti þró- ast svo sem best varð á kosið af báðum aðilum. Fyrir hönd Menntaskólans að Laugarvatni leyfi ég mér að þakka Þóri Þorgeirssyni öll hans störf og stuðning frá fyrstu tíð. Auk alls annars vil ég geta þess að hann hafði svo frábæra rithönd að það kom eins og af sjálfu sér að hann skrifaði stúdentsprófsskírteini fyrir menntaskólann í fjölda ára. Og hann gerði ekki endasleppt. Síðast af mörgum vináttumerkjum hans við skólann var gjöf sem hann færði honum á þessu vori, myndband með kvikmyndum sem hann hafði tekið af ýmsum atburðum í skólalífí um og eftir stofnun skólans og hafa ómetanlegt gildi eins og ég gat um áður. Eiginkonu Þóris, Esther Kristins- dóttur, börnum þeirra öllum og ijöl- skyldum þeirra votta ég einlæga samúð. Kristinn Kristmundsson. Árla morguns 26. júní sl. barst mér sú harmafregn að Þórir Þor- geirsson, vinur minn og samstarfs- maður til margra ára, hefði látist kvöldið áður á heimili sínu hér á Laugarvatni. Þrátt fyrir allt kom fregnin mér á óvart og snerti mig mjög djúpt. Morgunninn var undurfagur. Him- inninn var heiður og blár og vatnið spegilslétt. Laugarvatnsstaður var baðaður í morgunsólinni og loftið ómaði af söng, - lofgjörð - nágranna okkar í mýrinni, - fuglanna sem komu að sunnan í vor til sumarheim- kynna sinn hér í norðrinu í þessa Paradís, sem Laugarvatn er. Slíkra stunda hafði Þórir notið hér í ríkum mæli, - þá rúmlega sex áratugi, sem hann hafði átt hér heima, - enda enginn meiri aðdáandi Laugarvatns en hann, sem þjónað hafði íbúum þessarar byggðar og nemendum svo lengi og átt svo stóran þátt í því að búa þá undir iífið. Kynni okkar Þóris hófust haustið 1943, en þá var hann íþróttakennari við Héraðs- skólann á Laugarvatni, en ég nem- andi í yngri deild skólans. Ég hreifst strax af kennslu hans og viðmóti öllu. Með okkur tókst góður kunn- ingsskapur sem leiddi til vináttu. Vafalaust átti hann, ásamt skóla- stjórum og þeim kennurum sem störfuðu á Laugarvatni, stóran þátt í því að móta hug minn til þess starfs sem ég valdi mér. Þórir Þorgeirsson lauk prófí frá Héraðsskólanum á Laugarvatni 1938, íþróttakennaraprófí frá íþróttaskóla Björns Jakobssonar vorið 1941. Síðar eða árið 1949- 1950 var Þórir við nám í Danmarks Hojskole for Legemsovelser og Stat- ens Gymnastikkskole í Oslo og sótti íþróttakennaranámskeið í Dan- mörku og Svíþjóð, auk íjölmargra slíkra námskeiða hér heima. Þórir Þorgeirsson var íþrótta- kennari við skólana á Laugarvatni, fastráðinn kennari við héraðsskól- ann 1941 og jafnframt stundakenn- ari við barnaskólann, húsmæðra- skólann, menntaskólann og íþrótta- kennaraskólann. 1972 var hann fastráðinn kennari við íþrótta- kennaraskóla íslands, en gegndi áfram stundakennslu við hina skól- ana á Laugarvatni. 1984 lét Þórir af kennslustörfum fyrir aldurs sakir. Þórir var árum saman virtur þjálfari og skipuleggjandi að fjöl- þættu íþróttastarfi innan Héraðs- sambandsins Skarphéðins. Þórir átti tvímælalaust ákveðna fyrirmynd að íþróttakennslunni. Fyrirmyndin var Björn Jakobsson og leikfími hans, sem Þórir útfærði á sinn hátt og með sínum áherslum. Þórir var maður æskunnar og unga fólksins. Hann vísaði veginn og varðaði hann. Hvatti til bindind- is á tóbak og áfengi og boðaði heilsusamlegt og heilbrigt lífemi. Hollusta Þóris, trúmennska hans og samviskusemi var einstök að hvetju sem hann gekk. Hann var eindreginn stuðningsmaður Laug- arvatns sem skólaseturs og nú hin síðari árin bar hann mjög fyrir bijósti hag grunnskólans, mennta- skólans og íþróttakennaraskólans og gerði sér grein fyrir því að Laug- arvatn mátti ekki við því að tapa nokkrum þeirra, - nógur var missir- inn staðnum er hússtjórnarskólinn og héraðsskólinn hættu starfsemi sinni. Þórir var mikill félagsmálamaður og nutum við þess, félagar hans í Lionsklúbbi Laugardals. Eftir að Þórir Þorgeirsson hætti kennslustarfi, sneri hann sér alfarið að sveitarstjórnarmálum, þar sem hann vann þrekvirki fyrir sveitarfé- lagið, oft við erfiðar aðstæður sem lengi mun í minni haft. Þórir var gæfumaður í einkalífi sínu. Heimilið bar þess merki. Eig- inkona hans Esther Kristinsdóttir stóð við hlið hans í blíðu og stríðu og studdi hann í öllu. Dætur þeirra þijár, Rósa, Hrönn og Gerður og synirnir tveir, Þórir og Hörður, eru samvalið myndarfólk, sem bera for- eldrunum fagurt vitni. Að þeim er kveðinn sár harmur. Huggun gegn þeim harmi er sú trú og vissa, að þeir sem eru sofnaðir vakna á ný er dagur rennur og sól rís. Ég þakka öll störf Þóris við íþróttakennaraskóla íslands og stuðning við skólana alla tíð. Ég kveð kæran starfsfélaga og vin okkar allra og þakka samfylgd- ina. Guð blessi og styrki Esther, börn- in þeirra öll og fjölskyldur þeirra. Blessuð sé minning Þóris Þor- geirssonar. _ Árni Guðmundsson. Það fer ekki hjá því, að maður hrekkur við þegar þekktir samtíðar- menn, góðir vinir og samverkamenn hverfa af sviðinu, menn sem alla sína æfi hafa unnið uppbyggileg þjónustustörf í þágu samfélagsins. Einn þessara manna er Þórir Þorgeirsson íþróttakennari og sveit- arstjórnarmaður, Reykjum á Laug- arvatni, en Þórir lést á heimili sínu miðvikudaginn 25. júní sl. tæpra 80 ára að aldri. Ég mun ekki í þessum fáu kveðju- orðum mínum fara út í ættfræði honum tengda, til þess þekkja aðrir betur en ég. Með Þóri Þorgeirssyni er fallinn einn af litríkustu íþróttaleiðtogum Skarphéðinsmanna um langt ára- bil, og virtur og vel látinn íþrótta- kennari við skólana á Laugarvatni, ekki síst Iþróttakennaraskóla ís- lands. Á þeim vettvangi, þ.e.a.s. á sviði íþrótta- og æskulýðsstarfs átt- um við samleið um alllangt árabil og margar að ég vil segja eftirminni- legar og árangursríkar stundir. Við undurbúning og framkvæmd Þjórsármóta, við starfrækslu ung- mennabúða á Laugarvatni, í undir- búningi, þátttöku og framkvæmd Landsmóta UMFL Við stofnun íþróttamiðstöðvar íslands á Laug- arvatni, uppbyggingu íþróttamann- virkja á staðnum o.m.fl. Þóri var sem íþróttaleiðtoga og þjálfara afar sýnt um að hrífa ung- menni með sér og að fá þau tii að æfa og sömuleiðis að setja metnað sinn í að ná árangri til þess m.a. að vinna til stiga á mikilsverðum mótum fyrir HSK. Hér fyrr á árum var hann fyrsti vorboðinn í sveitum Suðurlands, þegar hann fór á milli félaganna og hvatti ungmennin til að heíja íþróttaæfingar. Aðstaðan var víða bágborin, en það settu menn ekki fyrir sig og komu sér upp æfíngaaðstöðu á sléttum bala og þar var hlaupið, kastað og stokk- ið, undir leiðsögn og hvatningarorð- um hins virta leiðtoga. Á þessum árum átti Þórir Þor- geirsson með góðum stuðningi margra samverkamanna sinna, mestan þátt í því að gera Skarphéð- in að stórveldi á íþróttasviðinu innan UMFI. Við eigum því mikið að þakka þessum látna vini og raunar allir þeir sem tengdust þeim ung- mennum sem hér áttu hlut að máli og nutu leiðsagnar hans og hvatn- ingar til íþrótta- og félagsstarfs. Og nú þegar leiðtoginn er allur fylkja Skarphéðinsmenn iiði til þátt- töku í 22. Landsmóti UMFÍ, sem haldið verður í Borgarnesi um helg- ina. í hinni hörðu keppni landsmótsins munu Skarphéðinsmenn örugglega koma til með að standa sig og sem fyrr halda uppi heiðri Sunnlendinga um leið og þeir heiðra minningu látins leiðtoga með framgöngu sinni og afrekum. Síðustu áratugi hefur Þórir Þor- geirsson verið einn af mikilvirkustu sveitarstjórnarmönnum Árnesinga. Hann var hreppstjóri Laugardals- hrepps um langt skeið eða þar til hann 70 ára hætti störfurn fyrir aldurssakir. Sat í Sýslunefnd Árnes- sýslu og síðar Héraðsnefnd í ára- tugi allt til dauðadags. Ég hygg að hann hafi setið leng- ur í sveitarstjórn Laugardalshrepps en nokkur annar fyrr og síðar og um áratuga skeið sem oddviti og sveitarstjóri, eða þar til hann lést. Það verður erfitt fyrst í stað að hugsa sér Laugarvatn án Þóris Þor- geirssonar. Án þess að kasta rýrð á störf annarra hefur hann átt stór- an þátt í uppbyggingunni á staðn- um, og sveitarfélagsins í heild, þar með talin sumarhúsabyggðin og þjónusta við okkur sumarhúsaeig- endur. Snyrtimennska, lagfæring lóða og fegrun umhverfisins voru hans hjartans mál og allir sem til þekkja hafa séð árangurinn á Laugarvatni og i'agna því. Ég minnist þess frá sveitarstjórn- arárum mínum á Selfossi, að félag- arnir vítt og breitt um héraðið vitn- uðu oft í góða fjárhagsstöðu Laug- ardalshrepps og að bókhaldið hjá Þóri væri eins og „koparstunga". og ársuppgjör jafnan fyrr á ferðinni en hjá mörgum öðrum. Þannig var Þórir, einstaklega samviskusamur og vandvirkur að hveiju sem hann gekk og virtur af öllum sem með honum unnu og til hans þurftu að leita. Hann tók það mjög nærri sér ef einhver misklíð var í gangi og var alltaf tilbúinn að leita leiða til sátta og lagði sig raunar fram í þeim efn- um. Samningamál sveitarstjórnar Laugardalshrepps við ríkið og Sei- fossbæ um jarðnæði og alla aðstöðu á Laugarvatni tóku langan tíma og voru erfið. Þóri tókst af einskærri hógværð og ljúfmennsku og með stuðningi góðra manna að Ijúka þeim áður en hann varð allur. Þeir sem nú taka við forustu ÞORIR ÞORGEIRSSON :: i í L t ( I c i i i ( i i ( ( ( I I I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.