Morgunblaðið - 27.08.1997, Síða 45
MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1997 45
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK FRETTUM
Kajakferð
um Vestfírði
SIGRÍÐUR leitar
gjarna uppi framandi
og skemmtilega hluti,
en því er hún vön úr
starfi sínu. Sigríður
tók strax vel í þá
beiðni að mæla með
hinum ýmsum hlutum sem hefðu
menningar- og/eða afþreyingar-
gildi.
Kaffi
Lefólí
„Á Eyrarbakka er Kaffi Lefólí. Þar
er boðið upp á frábæran mat og er
fiskurinn sérstaklega góður. Þenn-
an stað er gaman að heimsækja
hvort sem er í hádeginu, kaffinu
eða á kvöldin. Auk þess er leiðin
þangað frá Reykjavík
skemmti-
legur
bíltúr og
ekki of
langur.
Þú getur
verið viss
um að
þekkja eng-
an á staðn
um, þar er
mjög heimilis-
legt, þjónustan
er þægileg,
verðið er gott
og vínin
ágæt. Sjálf
fer ég um
það bil 3-4
sinnum út að
borða í mánuði,
og oftar þegar ég
er löt eða í útlönd
um. Annars finnst
mér gaman að elda
sjálf og veit fátt betra en
góða máltíð með góðu víni
í góðum félags
í HÁVEGUM
hjá Sigríði
Sigurjónsdóttur
listakonu
Uuderground
„Geisladiskurinn sem
ég mæli með heitir
Underground og er
tónlistin úr sam-
nefndri kvikmynd eft-
ir Emir Kusturica.
Myndin vann gullpálmann á kvik-
myndahátíðinni í Cannes 1995. Tón-
listin er eftir Goran Bregovic og er
aðallega flutt af hljómsveit sem
heitir Tzigane Brass Orchestra.
Tónlistin er byggð á hefðbundinni
danstónlist frá héraðinu Cocek í
fyrrverandi Júgóslavíu.“
Sigríður mælir
með tónlist
sem er byggð
á hefðbund-
inni danstón-
list frá hérað-
inu Cocek í
fyrrverandi
Júgóslavíu.
skap.“
Fjölnir
„Það er alltaf
gaman að lesa
góð tímarit og
ekld síst ef þau
koma út á ís-
lensku. Fjölnir
er tímarit sem
ég er sjálf að
lesa í augnablik-
inu. Þar er meðal annars fjallað um
eðlisfræði, Fjölnismenn, ljóð, ís-
lenska menningarbyltingu, mynd-
list og þjóðarsálina svo eitthvað sé
nefnt. Þetta er heilmikil, skemmti-
leg og fróðleg lesning. Annað tíma-
rit sem mér finnst sérstaklega vel
unnið og gott er Colours og er gef-
ið út af Benetton-fyrirtækinu. Það
samanstendur aðallega af ljós-
myndum og er ætlað fólki sem gef-
ur sér lítinn tíma til að lesa (þver-
öfugt við Fjölni) og vill fá allt beint
í æð. Ritstjóri blaðsins heldur því
fram að flest fólk í dag gefi sér
ekki tíma til að lesa heldur sé það
matað af bíómyndum, sjónvarpi og
auglýsingum. Blaðið er því hannað
með það í huga.“
Kajakferðir
„I sumar fór ég ásamt unnusta
mínum og nokkrum vinum í kajak-
ferð um Vestfirði, og get ég mælt
með þessu frekar en nokkru öðru.
Hægt er að leigja kajaka í Flóka-
lundi og leiðsögumann ef þess er
óskað. Þetta er góð æfing, auk
þess sem friðurinn, nálægðin við
náttúruna, ferska loftið og dýralíf-
ið er í einu orði sagt himneskt. Þó
svo að farið sé í nokkra daga ferð,
er hægt að hafa með sér góðan
mat því nóg pláss er í bátunum.
Við erum svo heppin að eiga báta,
en ég veit að það er hægt að leigja
báta bæði í Reykjavík og á Stokks-
eyri ef fólk hefur áhuga á að fara i
styttri ferðir.“
Hjálpar
þér að:
/ Vcrða hæfari
í starfi.
V Ödlast meiri
eldmóð.
/ Verða betri í
mannlegum
samskiptum.
/ Losna við
áhyggjur og
kvíða
/ Setja þér
markmið
MYNDBÖND
Að berjast
fyrir sínu
Kýlum á það
(Set it Off)
Mínar innilegustu þakkirfœri ég öllum þeim, sem
heimsóttu mig, sendu mér símskeyti, fœrðu mér gjafir
ogglöddu mig á 80 ára afmœli mínu 19. ágúst sl.
Sérstakar þakkir til barna minna og allra sem unnu
að því að gera mér daginn sem ánœgjulegastan.
Guð blessi ykkur öll.
Laufey Valgeirsdóttir
frá Bjarnarhöfn.
Spennumynd
irk
Framleiðandi: Peak. Leikstjóri: E.
Gary Gray. Handritshöfundar:
Takashi Bufford og Kate Lanier.
Kvikmyndataka: Marc Reshovsky.
Tónlist: Christopher Young. Aðal-
hlutverk: Jada Pinkett, Queen
Latifah, Vivica A. Fox og Kimberly
Elise. 100 mín. Bandaríkin. New Line
Cinema/Myndform 1997. Myndin er
bönnuð börnum innan 16 ára.
FJÓRAR bestu vinkonur aldar upp
í úthverfum Los Angeles, standa á
barmi örvæntingar eftir að flestir í
þeirra umhverfi
hafa bæði traðk-
að á þeim og
svikið þær. Til að
koma sér út úr
mestu vandræð-
unum ræna þær
banka.
Þessi mynd er
frekar furðuleg.
Hér er verið að
fjalla um mjög
raunsæ og átakanleg mál, en útlits-
hönnuður myndarinnar virðist ekki
vita af því, og vill hafa „glamúr“ yf-
ir öllu. Það gerir myndina frekar
ótrúverðuga. Handritið á góða
spretti, en inn á milli rekast þar inn
hinar ótrúlegustu klisjur, sem
verða enn meira áberandi í höndum
óvanra leikkvenna. Þær lifa sig
reyndar það mikið inn í hlutverkin
sín að það bætir upp hæfileikaleys-
ið. Myndin byrjar því ekkert sér-
staklega vel, en ef áhorfandi gefst
ekki upp á hann sjálfsagt efir að
finna til með stelpuskjátunum, og
myndin verður bæði átakanleg og
spennandi uppfrá því.
Hildur Loftsdóttir
Innilega þakka égykkur öllum sem glöddu mig með
margvíslegum hœtti oggerðu daginn 16. ágúst ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Kristjánsdóttir,
Víðilundi 6, Akureyri.
Til sölu Range Rover 2.5 DSE
Bifreiðin er nýhlaðin aukabúnaði, þ.ám. fullkomin
Pioneer hljómflutningstæki og leðurinnrétting.
Verð 5.650.000.- Ath. skipti á ódýrari.
Upplýsingar gefur Bílasalan Höfði,
sími 567 3131.
- kjarni málsins!
Við byggjum
UPP fÓlk ogfólkið
byggir upp fyrirtœkin
„Mér finnst mest um vert að geta staöið upp sagt
meiningu mína, geta unniö skipulega og á þann hátt bsett
samskiptin við aöra".
Ingibjörg Siguröardóttir,
Aðstoðar verslunarstjóri
„Þegar ég kom á Dale Carnegie® námskeiö var sjálfsmat
mitt vægast sagt lágt. Ég haföi nýlega fengið
ábyrgðarmikla stöðu hjá stóru fyrirtæki, sjálfur skyldi ég
ekki af hverju þeir völdu mig og ekki haföi ég stóra trú á
að ég kláraði starfiö. Á námskeiöinu öðlaðist ég fljótt
þann eldmóö, kjark og þá sjálfsviröingu sem ég þurtti á
aö halda til að ná érangri, virðingu og vellfðan sem mér
finnst nauösyntegt jafnt I starfi sem og einkalífi".
Einar Berg,
Rekstrarstjúri
“Ég fór á Dale Camegie® námskeið siöastliðinn vetur.
Takmark mitt var að öðlast öryggi til að standa upp og
segja það sem mér bjó í brjósti og það tókst. Aö auki
læröi ég margt annaö um mannleg samskipti, sjálfa mig,
að nýta tímann betur og vera jákvæð. Þetta hefur hjálpaö
mér mjög mikiö I leik og starfi, heima og að heiman”.
Guðrún Barbara Tryggvadóttlr
Framkvæmdastjórí
KYNNINGARFUNDUR
FIMMTUDAGINN 28. ÁGÚST 1997 KL. 20:30 AÐ SOGAVEGI 69,108 REYKJAVIK
STJÓRNUNARSKÓLINN ' r'
Konrdð Adolphsson — Einkaumboð áíslandi
Dale Carnegie®
Þjálfun
Fólk-Árangur-Hagnaður
FJÁRFESTING í MENNTUN
SKILAR ÞÉR ARÐIÆFILANGT !
„Skipulegri vinnubrögö, stjórn á áhyggjum, og aukinn
eldmóður er það sem stendur upp úr hjá mór eftir
Dale Carnegie® námskeið. Fyrir vikið hef ég öölast
ánægjulegra og betra líf. Þaö hafa allir gott af að fara
á þetta námskeiö og láta minna sig á og kenna sér
einhverjar bestu lífsreglur sem hægt er að fara eftir".
Berglind Snæland,
Sölufulltrúl
„Dale Carnegie® námskeiöið hefur fyrst og fremst
bætt hæfileika mína í mannlegum samskiptum í
vinnunni og í fjölskyldulífinu. Um leið hafa hugmyndir
mínar hlotiö meira fylgi og hef ég þjálfaö upp hæfi-
leika til að halda frjálslegar og aflsappaöar kynningar
fyrir framan hóp manna".
Sævar Freyr Þráinsson,
Viösklptafræöingut
„Ég hef alltaf taliö mig vera glaða, hamingjusama og
ánægöa og að ég þyrfti ekki á sjálfstyrkingarnám-
skeiði að halda. En í Dale Carnegie® námskeiðinu
komst óg að því aö einhversstaöar inni í mér var
falinn meiri kraftur, þor og lífsgleði. Nú veit ég aö það
er hægt að lifa áhyggjulausu lífi og láta sér líöa vel
alla daga".
G. Ósk Friðriksdóttir
Veitingastjóri
581-2411