Morgunblaðið - 04.10.1997, Side 2

Morgunblaðið - 04.10.1997, Side 2
2 LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ YR greiðir 22 til 23 millj- ónir króna til ASÍ og LÍV GREIÐSLUR Verslunarmannafé- lags Reykjavíkur til Landssam- bands íslenskra verslunarmanna og Alþýðusambands íslands nema 22-23 milljónum króna á hverju ári, en VR er stærsta verkalýðsfé- lag landsins. Ef til þess kæmi að VR gengi úr Landssambandi íslenskra verslunarmanna myndi það einnig þýða úrsögn úr Alþýðusambandi Is- lands. Þing Landssambands íslenskra verslunarmanna verður haldið um aðra helgi, dagana 10.-12. október, og þar verða ræddar breytingar á starfsemi Landssambandsins. VR Sjávarútvegsráðherra Kanada um umhverfísmerki Mál hags- muna- aðilanna ORRI Vigfússon, formaður N orður-Atlantshafslaxveiði- sjóðsins, fékk nýlega svarbréf frá David Anderson, sjávarút- vegsráðherra Kanada, við mála- leitan sinni um grænt umhverf- ismerki á fiskafurðir úr Norður- Atlantshafinu. Allir eru hagsmunaaðilar í bréfinu segir m.a. að þetta mál heyri undir hagsmunaaðila í sjávarútvegi og bendir hann Orra á að snúa sér til Ron Bul- mers, formanns kanadíska fisk- veiðiráðsins. „Ráðheri’ann segir í bréfinu að málið eigi að fara í gegnum hendur hagsmunaaðila í sjávar- útvegi. Mín skoðun er sú að all- ir séu hagsmunaaðilar á þessu sviði,“ segir Orri. Hugmynd hans er sú að til þess að fá grænt merki á afurð- imar þyrfti fiskurinn að koma úr Norður-Atlantshafi, vera veiddur með umhverfisvænum aðferðum, vera í hæsta gæða- flokki og falla undir sjálfbærar veiðar. Sé til hvemig málið þróast „Mönnum finnst hugmyndin góð en viðtökumar mættu þó vera betri. Ég kynnti hug- myndina í vor og ætla að sjá til hvemig málið þróast. Ég hef sent Ron Bulmer bréf og hlakka til að heyra viðtökur hans,“ sagði Orri. Gjaldheimtan í Reykjavík sam- einuð tollstjóra ÁKVEÐIÐ hefur verið að sameina Gjaldheimtuna í Reykjavík embætti tollstjóra frá og með næstu áramót- um. Áætlaður kostnaðarauki ríkis- sjóðs vegna breyttrar kostnaðar- skiptingar og endurskipulagningar embættisins er 48 milljónir kr. Sameiginlegur rekstur ríkis og sveitarfélaga á gjaldheimtum hefur verið til endurskoðunar um skeið. Hafa gjaldheimtur á Seltjamamesi, í Mosfellsbæ, Garðabæ og á Suður- nesjum þegar verið lagðar niður. Einnig hefur Reykjavíkurborg sagt upp samstarfssamningi um rekstur Gjaldheimtunnar í Reykjavík og var þá ákveðið að sameina hana rekstri tollstjórans í Reykjavík, að því er fram kemur í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. er langstærsta aðildarfélag sam- bandsins með um 70% af öllum fé- lögum þess, en rúmlega 13.600 full- gildir félagsmenn voru í VR um síð- ustu áramót. Landssambandið hef- ur einnig um 70% af tekjum sínum frá VR og nemur sú greiðsla um 7-8 milljónum á hverju ári. Til við- bótar greiðir VR um 15-16 milljón- ir á hverju ári til Alþýðusambands- Viðræður við landssambandið Magnús L. Sveinsson, formaður VR, sagði í samtali við Morgunblað- ið að viðræður stæðu yfir við full- K AFFIKERLIN GARN AR svoköll- uðu, sem eru hreyfanlegar auglýs- ingabrúður frá Ó. Johnson og Kaaber, og voru síðast í glugga raftækjadeildar fyrirtækisins í Hafnarstræti, eru komnar í sitt fínasta púss og aftur farnar að drekka kaffi, nú í útstillingar- glugga Heimilistækja í Sætúni. Kerlingarnar þrjár höfðu verið týndar í allmörg ár og jafnvel talið að þær væru endanlega glataðar en á liðnum vetri komu þær loks í leitimar og var þá ákveðið að dubba þær upp og laga í þeim mót- orinn þannig að þær gætu haldið HÆSTIRÉTTUR hefur hafnað kröfu tveggja bænda við Laxá í S- Þingeyjarsýslu um að ríkissjóður greiði bætur vegna þeirrar ákvörð- unar Náttúruverndarráðs að leyfa ekki gerð laxastiga í ánni. Héraðs- dómur komst að þeirri niðurstöðu að ríkinu bæri að greiða bætur. í svonefndum Laxársamningi frá árinu 1973 var kveðið á um að rík- issjóður kostaði gerð laxastiga framhjá Laxárvirkjun þannig að lax kæmist upp fyrir Brúarfoss í trúa Landssambandsins um skipu- lagsmál og starfshætti þess. í leið- ara í síðasta tölublaði VR-blaðsins segir Magnús að náist ekki sam- komulag um að breyta starfsemi LIV sé það aðeins tímaspursmál hvenær það líði undir lok. Hann sagði að ef ekki yrðu ein- hverjar breytingar á starfsemi Landssambandsins væri það sjálf- dautt. Það væri engin spuming að starfsemi þess þyrfti að færa sig að nútímanum. Mikið hefði skort á upplýsingagjöf og að vinna væri lögð í að samræma sjónarmið félaga innan Landssambandsins. VR legði Kerlingarnar komnar 1 sitt fínasta púss uppteknum hætti. Til verksins var fenginn Halldór Gunnlaugsson, sem er sérfræðingur í að gera upp gamla muni og listsmíð. Sitja úti í glugga og gæða sér á góðu kaffi „Þær eru orðnar ofsalega fínar og snurfusaðar og komnar í sam- Laxá. Byggingu laxastigans var lokið 1981, en hann kom aldrei að tilætluðum notum. Árið 1990 sam- þykkti Náttúruverndarráð að leggjast gegn frekari áformum um flutning á laxi upp fyrir virkjunina, en ráðið hafði 1975 samþykkt slíka ráðstöfun. Talið var að veruleg áhætta væri tekin með lífríki ofan Brúarfoss ef lax væri fluttur þang- að. Veiðiréttarhafar töldu að með þessari ákvörðun hefði Náttúru- áherslu á að þetta yrði lagað og hann gerði sér vonir um að það yrði niðurstaðan. Breyta þarf skattamálum ASÍ VR hefur einnig verið ósátt við breytingar sem gerðar voru á skattgreiðslum til Alþýðusam- bandsins á síðasta sambandsstjórn: arfundi þess. Telur VR að þing ASÍ geti eitt gert breytingar í skatta- málum Alþýðusambandsins og hef- ur innt af hendi greiðslur sínar til sambandsins í samræmi við fyrri reglur. band. Nú sifja þær úti í glugga og gæða sér á góðu kaffi og virðist bara líða vel,“ segir María John- son, markaðsstjóri hjá Heimilis- tækjum. Kerlingarnar eru komnar vel á áttræðisaldur en Ólafur Þ. Johnson forsljóri keypti þær í Þýskalandi einhvem tíma í kringum 1920. Þær vom lengi til sýnis í Skemmu- glugganum í Austurstræti, seinna í glugga Málarans í Bankastræti, þar sem Sólon íslandus er nú, og síðast í glugga raftækjadeildar Ó. Johnson og Kaaber í Hafnarstræti fram undir 1970. vemdarráð skapað ríkissjóði fé- bótaábyrgð. Hæstiréttur fellst ekki á þetta sjónarmið. Krafan feli í sér of víðtæka bótaábyrgð. Eðli- legt sé að líta svo á að sú lagagrein sem veiðiréttarhafar vitna til þýði að einungis skuli greiða bætur þegar eignatakmarkanir séu svo umfangsmiklar að jafngildi eignar- námi samkvæmt 72. grein stjóm- arskrárinnar. Málskostnaður var felldur niður. Einn dómari skilaði sératkvæði. Ríkisútvarpið Breyting- um lýkur í næstu viku NÚ SÉR fyrir endann á stj ómskipulagsbreytingum innan Ríkisútvarpsins og er búist við að gengið verði frá síðustu málunum í þeim efn- um í næstu viku. Ekki liggja fyrir upplýsingar um kostnað vegna skipulagsbreytinganna. Endurskipulagningin tekur til um tuttugu starfsmanna og fengu 19 þeirra send upp- sagnarbréf í júnímánuði síð- astliðnum. Fjórir farnir á biðlaun Samkvæmt upplýsingum Ríkisútvarpsins em fjórir farnir á biðlaun, tveir á þriggja mánaða biðlaun og tveir á níu mánaða biðlaun. Sex starfsmenn era hættir og fara ekki á biðlaun. Þar af hættu tveir strax, tveir hættu nú um mánaðamótin og tveir starfa samkvæmt verktaka- samningum. Þá hafa starfs- lokasamningar verið gerðir við tvo starfsmenn og óvíst er hvernig gengið verður frá málum tveggja starfsmanna til viðbótar og ræðst það í næstu viku hverjar lyktir þau mál fá. Aðrir þeir sem uppsagnirn- ar náðu til hafa verið endur- ráðnir til starfa á vegum Rík- isútvarpsins. Iþróttafélög Styrkir í stað slysa- trygginga? I heilbrigðisráðuneytinu er í undirbúningi könnun á kost- um þess að greiða styrki beint til íþróttafélaga í stað þess að félögin njóti slysatrygginga án þess að greiða fyrir það ið- gjald. Þetta kemur fram í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 1998. Bætur til íþróttamanna úr slysatryggingum nema 35-40 milljónum króna á ári. Sam- kvæmt fjáriagaframvarpinu er áætlað að útgjöld slysa- trygginga almannatrygginga lækki um 30 milljónir kr. á næsta ári, en þau hafa farið lækkandi frá árinu 1994 er trygging stjómenda aflvéla og bifreiða var flutt til al- mennra tryggingafélaga. Leitað til Júlíusar Vífíls KJÖRNEFND Sjálfstæðis- flokksins hefur komið að máli við Júlíus Vífil Ingvarsson, framkvæmdastjóra Bflheima hf., og leitað eftir því að hann gefi kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í næstu borgarstjórnarkosningum. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins hefur Júlíus Vífill ekki verið afhuga hugmynd- inni en ekki gefið svar ennþá. Kjömefndinni hefur þótt vanta á prófkjörslistann mann úr athafnalífinu og því leitaði hún til Júlíusar Vífils. Sam- kvæmt heimildum blaðsins hefur Júlíus Vífill rætt við marga um hugsanlegt fram- boð og er alvarlega að skoða það að taka þátt í prófkjörinu. Morgunblaðið/Árni Sæbcrg ÞÆR virðast nokkuð ernar, kerlingamar sem aftur eru famar að súpa kaffið frá Ó. Johnson og Kaaber eftir alllangt hlé, nú f glugga Heimilistækja f Sætúni. Ríkið sýknað af fé- kröfum Laxárbænda

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.