Morgunblaðið - 04.10.1997, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ
56 LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1997
Meiriháttar
m
í kvöld:
Stórhljómsveitin
Aggi Slæ og Tamlasveitin
Frábær skemmtun:
Ríó tríó, KK og Bubbi Morthens
Uppselt áþýningu í kvöld.
Aukasýning 24. okt.
Verð: 3.500 kr. með mat,
1.800 kr. skemmtun
Hin óviðjafnanlega
skemmtidagskrá:
Uppselt á fyrstu sýningar 11. og 18. okt.
Miðasala hafin á skemmtun 25. okt.
Raggi Bjarna og Stefán Jökuisson
syngja, spauga og sprella
á Mímisbar
.v %
-þín saga!
5° I
o §§
= I
\
FOLK I FRETTUM
, , ^ Morgunblaðið/Þorkell
SOLRUN Bragaddttir, Ingveldur Ýr Jónsddttir, Loftur Erlingsson, Björn Jdnsson, Þdra Einarsdóttir og Berg-
þdr Pálsson eru í aðalhlutverkum óperunnar Svona eru þær allar. Þau sungu er nýr matseðill og fordrykkur
voru kynnt á Sdloni Islandusi um helgina.
Svona eru þær allar
ÓPERAN „Cosi Fan Tutte“ eða
Svona eru þær allar eftir Mozart
verður frumsýnd í Islensku óper-
unni 10. október næstkomandi.
Opnað hefur verið á milli Óper-
unnar og efri hæðarinnar á Sóloni
Islandusi.
Þar verður óperugestum boðið
upp á sérstakan óperumatseðil
með fordrykknum Cosi, bæði óá-
fengum og áfengum, sem búinn
var til fyrir þetta tilefni.
Óperan verður ekki með hefð-
bundnu sniði heldur fá gestir að
sleikja sólina á ströndinni á Ítalíu.
Flutt hafa verið sex tonn af gulln-
um sandi á sviðið og elskendurnir
koma til með að syngja á bíkini og
sundbuxum.
Að sögn Bergþórs Pálssonar,
sem fer með eitt aðalhlutverkið í
óperunni, er verkið gamanleikur í
bland við harmleik. „Það virkar
alltaf best saman,“ segir hann.
„Óperan hefur verið færð yfír á
nútímann, enda fjallar hún um af-
brýðisemi sem er sígilt viðfangs-
efni og á við á öllum tímum.“
Nýr Schwarz-
enegger
► ARNOLD Schwarzenegger og
Maria Shriver eignuðust son síðasta
laugardag. Nýjasti meðlimur fjöl-
skyldunnar var rúm fjögur kfld að
þyngd og kom í heiminn síðdegis á
spítala í Los Angeles. Að sögn
kynningarfulltrúans, Catherine
Olim, heilsast móður og barni vel
og hvfldust þau eftir erfiðið. Hún
sagði að allir væru í sjöunda himni
og bætti því við að
Schwarzenegger hefði verið við-
staddur fæðinguna. Ekki fylgdi
með fréttinni hvað bamið á að
heita en Maria og Amold eiga nú
tvær dætur og tvo syni. Hér sést
Arnold Schwarzenegger ásamt
Danny DeVito og Emmu Thompson
í myndinni „Junior“ þar sem vöðva-
búntið leikur óléttan karlmann.
Dansleikur að lokinni
sýningu til kl. 03:00.
Husið opnarkl. 19:01
Matargestir, vinsam
mætið tímanlegK
Söngbók
Magnósar
Eiríkssonar
SÝNING
ÍKVÖLD
laugardag
Söngvarar:
Magnús Eiriksson. Pálmi
Gunnarsson. EHen Kristjáns-
dóttir, íris Guðmundsdóttir,
BjarniArason.
Simi
Sýningin hefst kl. 22:00.
Verð með kvöldverði kr. 4.900.
Verð á sýningu kr. 2.200.
I/erð á dansleik erkr. 950.