Morgunblaðið - 04.10.1997, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 04.10.1997, Blaðsíða 58
58 LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Gftarielkarinn Magnús Elrfksson hltar upp f verslunlnnl Rfn Iman orðið fyrir barðinu á fordómum * Braggablús á Hótel Islandi „Gaman að hitta fólk og ná sambandiu BRAGGABLÚS Magnúsar Eiríkssonar hljómar á Hótel Islandi í kvöld eftir nokkurra mánaða hlé. Akveðið hefur verið að kalla saman tónlistarfólkið sem tók þátt í uppfærslunni enda átti sýningin miklum vinsældum að fagna síðasta vetur. Magnús Eiríksson var tekinn tali í tilefni dagsins. „Við höfum ekkert rætt hvað þetta verða margar sýningar en við fengum mjög góðar viðtökur síð- asta vetur. Pær verða að minnsta kosti tvær,“ sagði Magnús sem auk þess að vera höfundur allra laganna tekur sjálfur þátt í sýning- unni. „Petta er svo nýtilkomið að ég ætl- aði að fara að gera annað. Við tökum æf- ingu í dag og komust þá að því hvort við erum búin að gleyma þessu eða ekki,“ sagði Magnús um samstarfshópinn sem öðlaðist talsverða samhæfmgu síðasta vetur. Magnús er viðloðandi tónlist allan daginn í versl- uninni Rín og hefur tónlistarbakteríuna ennþá í sér. „Ég er alltaf leynt og ljóst að vinna að plötu og semja svolítið fyrir aðra. Ég er að dunda í einu og einu lagi,“ sagði Magnús. Hann segist í raun ekki hugsa um eigin tónlistarstíl eða hvort hann eigi að breyta til. „Ég sem bara lög og texta og hugsa ekkert út í stílinn." Magnús er að öllu jöfnu ekki áberandi í dans- leikjahaldi landsmanna og eflaust fagna því „Er Ijóst og leynt að vinna að plötu“ margir að geta hlýtt á hann flytja eigin lög í góðra manna hópi. „Það er mjög skemmtilegt að vinna með öðrum höfundum eins og til dæmis KK. Það er öðruvísi og ágætt að skipta um félagsskap. Á sýn- ingunni er mjög gaman að hitta fólk og ná sam- bandi en ég er orðinn alltof gamall til að ferðast um landið og spila. Ég er búinn með minn skammt af því enda hef ég verið að spila í danshljómsveitum síðan ég var 17 ára gamall,“ sagði Magnús um tón- ________ leikaferðir. „Ég hef aldrei fundið fyrir því að ein- hver ákveðinn aldurshópur hlusti á lögin mín. En þegar maður á unglinga sjálfur, eins og í dag, þá stendur maður sig að því að hljóma eins og eigin foreldrar og segja krökkunum að slökkva á þessu gargi og er allt í einu hættur að skilja það sem er í gangi núna. Mér fínnst margt af þessu vera bara lélegur hávaði og ómerkilegar lagasmiðar. Það eru viss ellimörk,“ sagði Magnús að lokum. Það er stjórhljómsveit Gunnars Þórðarsonar sem spilar í Braggablús en auk Magnúsar Eiríkssonar sjá Pálmi Gunnarsson, Ellen Kristjánsdóttir, íris Guðmundsdóttir og Bjarni Arason um sönginn. Söngkonan Guðrún Gunnarsdóttir sem hefur áður leyst Elleni af mun að öllum líkindum fylla hennar skarð ef viðtökur verða góðar og sýningum verður haldið áfram. ► FYRIRSÆTAN Iman, eiginkona Da- vid Bowie, segist, í viðtali við Daily Telegraph, ítrekað hafa orðið fyrir kynþáttamismunun. „Ef ég reyni að fá leigubíl í efri borgarhluta New York vill enginn taka mig upp í. Það halda allir að ég sé að fara til Harlem. Um daginn verslaði ég í apóteki og af- greiðslumaðurinn sagði við mig: „Þú gerir þér grein fyrir að þetta kostar 25 dollara." Hann gerði sjálfkrafa ráð fyr- ir að ég væri ekki borgunarmaður fyr- ir því.“ Iman heldur áfram: „Stundum þegar ég fer með lyftu tek ég eftir því að gömul hvít kona grípur fast um hand- töskuna sína.“ Hún segist einnig hafa orðið fyrir mismunun á fyrirsætuferli sínum. „Versta ár ferils míns var árið 1982. Þá þénaði ég 2 milljónir dollara. Sumir myndu sætta sig við það, en það sem skiptir máli er að fá jafn mikið og aðrir. Ég fékk minna. Hvítar konur í sömu verkefnum voru að fá 8 milljón- IMAN er í kynningarherferð á nýjum snyrtivörum í henn- ar nafni sem ætlaðar eru hörundsdökku fólki. Hér sést hún í búðarglugga Selfridges í London. Þá ásakar Iman tískutímaritin fyrir að ýta undir heróín- tísku með því að birta myndir af fyrirsætum sem Iíta út fyrir að vera illa á sig komnar eftir slika neyslu. Tilefnið er að Amy Wesson, sem er 19 ára fyrirsæta, stendur frammi fyrir því að umboðsskrifstofa hennar höfði mál gegn henni og krefjist 5 milljóna dollara í skaðabætur. Heldur skrifstofan því fram að Wesson hafí brotið samn- inga og valdið fjárhagslegu tjóni með því að ánetjast eitur- lyQum. „Stúlkurnar í tímaritunum eru látnar líta út fyrir að þær séu á heróíni. Þótt það sé ef til vill ekki raunin skapa tímaritin slæma fyrirmynd fyrir unglinga." Handunnin húsgögn fró Pakistan og vetrarleðurflíkur, ekta pelsar og margf fleira. Opið frá 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. Verið velkomin. m & BJARNI Arason, íris Guðmundsdóttir, Pálmi Gunnarsson og Ellen Kristjánsdóttir á Hótel íslandi síðasta vetur. Morgunblaðið/Halldór Við rýmum fyrir nýjum vörum LAGERÚTSALA á fatnaði fyrir alla fjölskylduna, aðeins í tvo daga, laugardag og sunnudag, 4. og 5. október, kl. 12—17. Nærfót, sokkar, gallabuxur, skyrtur, peysur, skíðagallar, úlpur o.fl. á ótrúlegu verði. LAGERUTSALAN er á Hverfisgötu 6 í bakhúsinu. HrÍA^on G.dLJnAonF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.