Morgunblaðið - 04.10.1997, Side 33

Morgunblaðið - 04.10.1997, Side 33
32 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 33 STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. STEFNURÆÐA FORSÆTISRÁÐ- HERRA STEFNURÆÐA Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra, á Al- þingi í fyrrakvöld endurspeglaði annars vegar sterka efnahags- stöðu lands og þjóðar og hins vegar sterka pólitíska vígstöðu ríkis- stjómarinnar og stjómarflokkanna um þessar mundir. Segja má, að þjóðin búi við velgengni á flestum sviðum. Jafnframt sýndu umræður um stefnuræðu forsætisráð- herra, að stjórnarandstaðan á í erfiðleikum með að fóta sig við gjörbreyttar aðstæður í efnahags- og atvinnulífi. Stjórn- arandstöðuflokkarnir hafa enn ekki náð pólitískri fótfestu, þótt komið sé fram yfir mitt kjörtímabil. í stefnuræðu Davíðs Oddssonar vakti einna mesta athygli sú yfirlýsing hans, að til álita kæmi að setja reglur, sem komi í veg fyrir að of miklar aflaheimildir færist á fárra hendur. Þó vakti það furðu, að á þennan þátt í ræðu ráðherrans var að öðru leyti ekki minnzt í umræðunum. Hvað veldur? Á fundi ríkisstjórnarinnar í gær kynnti Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra, frumvarp um þetta efni, þar sem gert er ráð fyrir, að samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu ein- stakra aðila eða tengdra aðila megi ekki nema meira en 8% af heildarverðmæti aflahlutdeildar allra tegunda. Þó er gert ráð fyrir, að þetta hámark verði 10%, þegar um er að ræða félög með dreifðri eignaraðild, þar sem enginn einn aðili á meira en 20%. Þessar hugmyndir ríkisstjórnarinnar eru ekki mikilvægar vegna efnis frumvarpsins. Samkvæmt þeim gætu 10-12 fyrir- tæki í sjávarútvegi eignazt allan kvótann á íslandsmiðum og miðað við þróunina undanfarin ár er það raunhæfur mögu- leiki að það gæti gerzt. Hugmyndirnar eru hins vegar mikil- vægar vegna hins, að þær eru ákveðin vísbending um, að ríkis- stjórninni og stjórnarflokkunum, sem hafa staðið fast saman um óbreytta stefnu í fiskveiðistjórnun, sé ljóst að nú verði að nema staðar og ekki verði lengra haldið á þessari braut. Ef þetta væntanlega frumvarp ríkisstjórnarinnar er undan- fari þess að hún grípi á næstu mánuðum og misserum til frek- ari aðgerða til þess að beina fiskveiðistefnunni í nýjan farveg er hér um að ræða einhverja mikilvægustu yfirlýsingu stjórn- valda um árabil. Það verður aldrei sátt meðal þjóðarinnar um kerfi, sem fært hefur tugi og jafnvel hundruð milljarða endurgjaldslaust frá fólkinu í landinu til tiltölulega fámenns hóps. NIÐURGREIÐSLA SKULDA HAFIN FJÁRLAGAFRUMVARPIÐ fyrir 1998 sýnir ljóslega þá uppsveiflu, sem er í efnahagslífinu. Búizt er við, að hag- vöxtur verði 3,5% í framhaldi af 4,5% aukningu landsfram- leiðslu á þessu ári. Kaupmáttaraukning er áætluð 5,2% til viðbótar 4,5% aukningu í ár. Atvinnuleysi minnkar í 3,6% samkvæmt spám. Verðbólga eykst hins vegar nokkuð og verð- ur 3% í stað 2% á þessu ári. Gert er ráð fyrir, að tekjur ríkis- sjóðs aukist um 7 milljarða króna, þrátt fyrir 1,9% lækkun tekjuskatts einstaklinga um áramót. Framlög til heilbrigðis- og tryggingamála hækka umtalsvert, svo og til skólamála. Tekjuafgangur á fjárlögum 1998 er áætlaður 3,2 milljarðar (520 milljónir skv. nýrri framsetningu fjárlagafrumvarps) og er það annað árið í röð, sem tekjuafgangur verður. Heildartekjur ríkissjóðs 1998 lækka um 0,6% af landsfram- leiðslu og heildarútgjöldin lækka um 1,6%. Lækkun útgjalda skýrist fyrst og fremst af 30% lækkun vaxtagreiðslna milli ára, eða 4,7 milljarða króna. Lánsfjárþörf ríkissjóðs dregst verulega saman og verða 5 milljarðar króna til ráðstöfunar til lækkunar skulda. Þar með er lokið þeirri gífurlegu skulda- söfnun ríkissjóðs, sem rekja má að mestu til halla ríkissjóðs á samdráttarskeiðinu í efnahagslífinu. Mikilvæg og gleðileg þáttaskil eru því orðin í ríkisfjármálum. Þessum árangri er m.a. náð með sölu ríkiseigna fyrir 6,2 milljarða, en 1,9 millj- arða kr. hagnaður af sölunni kemur fram sem tekjur í fjárlaga- frumvarpinu. Mikilvæg afleiðing tekjuafgangs á ríkissjóði eru jákvæð áhrif á peningamarkaðinn, sem mun stuðla að lækkun vaxta. Ríkisstjórnin verður að standa fast við mótaða stefnu sína í ríkisfjármálum, því Alþingi á eftir að fjalla um fjárlagafrum- varpið. í góðærinu heyrast kröfur úr öllum áttum um aukin framlög úr ríkissjóði og þingmenn eru þar engir eftirbátar annarra landsmanna. Ekki má hvika frá settu marki í efna- hagsstjórninni, því annað getur valdið trúnaðarbresti milli ríkisstjórnar og viðskiptalífs. UNDIR HVALFIRÐI ÞAÐ nötraði allt í göngunum þegar Halldór Blöndal samgönguráðherra sprengdi síðasta haftið, Morgunblaðið/Golli UM klukkutíma tók að moka grjótinu úr síðasta haftinu úr göngunum, en síðan var leiðin greið. UM 400 gestir voru viðstaddir þegar leiðin undir Hvalfjörð var opnuð. Síðasta haftið í Hvalfjarð- argöngnm sprengt Stj ómarformaður Spalar segir að gerð Hvalfjarðarganga hafí gengið betur en bjartsýnustu menn þorðu að vona. Egill —ar--—----------— Olafsson var viðstaddur þegar síðasta haftið var sprengt. Stefnt er að því að opna göngin fyrir umferð í fyrri hluta júlí nk., átta mánuðum á undan áætlun. Fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir að síðasta haftið yrði sprengt í þeim mánuði. ÞAÐ fór vel á með Gísla Gíslasyni^ stjórnarformanni Spalar, Páli BYGGINGU gangamunna við syðri enda ganganna miðar vel áfram og er áætlað að framkvæmdum ljúki Sigurjónssyni, framkvæmdastjóra ístaks, Halldóri Blöndal, sam- í þessum mánuði. Verkinu öllu hefur miðað hreint ótrúlega vel áfram á framkvæmdatímanum, enda er gönguráðherra, og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarsljóra. nú stefnt að því að opnað verði fyrir umferð um göngin heilu ári á undan áætlun. HALLDÓR Blöndal sam- gönguráðherra sprengdi síðasta haftið í Hvalfjarð- argöngum í gær. Haftið var sprengt níu mánuðum á undan upphaflegri áætlun. Nú er stefnt að því að opna göngin formlega fyrir umferð í fyrri hluta júlí á næsta ári. Framkvæmdir við byggingu jarð- ganga undir Hvalfjörð hafa gengið betur en jafnvel bjartsýnustu menn þorðu að vona þegar framkvæmdir hófust. í upphaflegri áætlun var gert ráð fyrir að síðasta haftið yrði sprengt í júlí 1998 og göngin yrðu opnuð fyr- ir umferð í febrúar 1999. Nú er hins vegar stefnt að því að opna göngin fyrir umferð í júlí á næsta ári. Ýmsar ástæður eru fyrir því hvers vegna framkvæmdum hefur miðað svo vel áfram. í fyrsta lagi var berg- ið gott og lítið var um leka í því og þess vegna var minna um tímafrekar bergþéttingar en gert var ráð fyrir. í öðru lagi ákvað verktakinn fljótlega eftir að framkvæmdir hófust, að láta vinna á vöktum allan sólarhringinn beggja vegna fjarðarins, alla daga vikunnar. I þriðja lagi var tæknibún- aði borvagnsins breytt þannig að hægt var að sprengja 5 metra í hvert sinn í stað 4,3 metra eins og gert var í Vestfjarðagöngum. Auk þess bjuggu starfsmenn Fossvirkis yfir mikilli reynslu frá borun í Vestljarðagöngum og mjög lítið var um bilanir eða óhöpp. 80-100 manns vinna í göngunum í vetur Hermann Sigurðsson, staðarverk- fræðingur Fossvirkis, sagði að meg- ináhættuþættir við gerð ganganna væru að bak; og segja mætti að leið- in lægi bein og greið framundan. Mikil vinna væri þó óunnin áður en hægt væri að hleypa umferð á göng- in. Eftir væri að styrkja bergið á nokkrum stöðum og bæta steypuhúð- un. Þar sem væri leki þyrfti að klæða bergið af. Setja þyrfti upp lýsingu, viftur og öryggiskerfi. Hermann sagði að 80-100 manns myndu vinna við göngin í vetur. Djassað undir miðjum Hvalfirði Lagningu vega að göngunum miðar vel áfram og gera áætlanir ráð fyrir að gerð þeirra ljúki 1. júlí nk. Bygg- ingu gangamunna við syðri enda ganganna lýkur í þessum mánuði og verður mótunum þá ekið í gegnum göngin og bygging gangamunna norðanmegin hafin. Syðri munninn verður 220 metra langur en sá nyrðri 60 metrar. Samgönguráðherra og aðrir gestir sem skoðuðu göngin í gær óku fyrir Hvalfjörð áður en síðasta haftið í göngunum var sprengt. Það var mjög vont veður á leiðinni og sagði Haildór Blöndal að þetta væri gott veður til að opna göngin. Veðrið minnti okkur á þýðingu ganganna. Eftir að samgönguráðherra hafði sprengt síðasta haftið í Hvalfjarðar- göngum fóru gestir niður í göngin og skoðuðu hvernig til tókst. Páll Sigur- jónsson, framkvænidastjóri ístaks, benti gestum á að það sæist varla að menn hefðu borað hveijir úr sinni áttinni. Borflokkamir hefðu hist ná- kvæmlega á réttum stað. „Það roðar fyrir nýrri öld hér í göngunum," sagði Halldór Blöndal eftir að hafa sprengt haftið. „Við getum ekki á þessari stundu séð fyrir hvaða áhrif þau munu hafa fyrir byggðaþróun, fyrir samstarf sveitar- félaganna og fyrir fólkið sunnan og norðan fjarðarins. Við vitum hins veg- ar að möguleikarnir eru óþrjótandi,“ sagði Halldór. Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar, vitnaði í upphaf Landnáma- bókar og sagði að enn væri verið að nema land á Islandi. Starfsmenn, sem unnið hefðu að gangagerðinni, væru hinir nýju landnámsmenn íslands. Hann sagði að það hefði þurft þraut- seigju og þijósku til að ráðast í gerð Hvalfjarðarganga. Það hefðu ekki all- ir haft trú á þessari framkvæmd. Stjórn Spalar hefði alla tíð verið bjart- sýn, en framkvæmdir hefðu hins veg- ar farið fram úr björtustu vonum manna. Gísli lýsti því yfir í lok ræðu sinnar að stefnt væri að því að opna göngin í fyrri hluta júlímánaðar á næsta ári eða eftir 285 daga. Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigð- isráðherra og fyrsti þingmaður Vest- urlands, sagðist vera bergnumin. Göngin væru glæsilegt mannvirki. Hún minnti hins vegar á að það hefði þurft mikinn dug og þor til að leggja í þessa framkvæmd. Páll Siguijónsson tók undir þetta og sagði að það hefði tekið tvö og hálft ár að gera samninga um alla verkþætti eða álíka langan tíma og það tekur að byggja göngin. Hann sagði að þessi framkvæmd hefði haft í för með sér áhættu, en sem betur fer hefðu menn haft þor til að leggja út í framkvæmdina. Að ávörpum loknum þáðu nokkur hundruð gestir veitingar í göngunum, um 165 metra undir yfirborði sjávar. Djasshljómsveit Ólafs Stephensen lék fyrir gesti og mun þetta vera í fyrsta skipti á íslandi sem djass er leikinn undir hafsbotni. Fjármagnskostnaður verður minni Áætlað er að kostnaður við bygg- ingu Hvalfjarðarganga verði rúmlega 4,6 milljarðar. Þar af kostar bygging ganganna 3,3 milljarða, undirbúning- ur og eftirlit 630 milljónir og áætlað var að vaxtakostnaður yrði 700 millj- ónir. Vegna þess hvað framkvæmdir hafa gengið vel eru horfur á að fjár- magnskostnaður verði minni en gert var ráð fyrir og kemur það Fossvirki til góða sem fjármagnar göngin, byggir þau og rekur fyrstu þijá mán- uðina. Spölur hefur hins vegar hag af því að fá göngin fyrr í notkun. Það getur t.d. munað talsverðu fýrir félag- ið að fá hluta af sumarumferð næsta árs í gegnum göngin. Kostnaður Spal- ar við göngin mun að öðru leyti verða í samræmi við gerða samninga þrátt fyrir að framkvæmdunum hafi verið hraðað svo sem raun ber vitni. Hvalfjarðargöng eru 5.484 metra löng. Þau stytta leiðina milli Akraness og Reykjavíkur um 60 km og leiðin milli Borgarness og Reykjavíkur stytt— ist um 42 km.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.