Morgunblaðið - 04.10.1997, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 04.10.1997, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1997 53 I DAG BRIDS llmsjón Guðmundur l'áll Arnarson FIMM efstu þjóðirnar á Evrópumótinu í vor eru meðal 18 þátttökuþjóða í keppninni um Bermuda- skálina, sem hefst innan tíðar í Túnis. Allar eru þær líklegar til að blanda sér í toppbaráttuna, ásamt bandarísku sveitunum. ít- alir unnu Evrópumótið með nokkrum yfirburðum, en Pólland, Noregur, Dan- mörk og Frakkland sigldu í kjölfarið í þessari röð. Það er athyglisvert að Norð- menn stóðu sig langbest gegn 10 efstu þjóðunum, en Ítalir héldu aðeins sjó á móti hörðustu andstæðing- unum og tóku flest sín stig gegn veikari þjóðum. Kannski er það vísbending um gang mála í Túnis, þar sem síðari umferðin ein- kennist af löngum útslátt- arleikjum milli sterkustu þjóðanna. En eitt er þó víst: arftakar Bláu sveitarinnar kunna að nýta sér tækifær- in þegar þau gefast. Hér er dæmi úr leik ítala og Slóvena á Evrópumótinu: Norður gefur; AV á hættu. Norður ♦ ÁKG92 V D10 ♦ 104 ♦ 10763 Vestur Austur ♦ 108764 ♦ 3 : ;s* ii: ♦ ÁDG4 ♦ 2 Suður ♦ D5 V K ♦ ÁKDG86 ♦ K985 Á öðru borðinu spiluðu Slóvenarnir 5 lauf dobluð í NS, sem fóru óhjákvæmi- lega þijá niður: 500 í AV. Hinum megin spilaði Alf- redo Versace 5 tígla, sem einnig voru doblaðir. Með hjarta út upp á ás og laufi í gegn, fer sá samningur strax tvo niður, en vestur sá ástæðu til að vera snið- ugur og byijaði á spaða- áttu! Sem er reyndar óþægilega lúmskt spil. Versace tók slaginn heima og síðan fjórum sinnum tromp. Vestur henti tveimur hjörtum og laufi. í þessari stöðu spilaði Versace fimmta trompinu: Norður ♦ ÁKG9 ♦ D10 ♦ - ♦ 107 ÁRA afmæli. 1 dag, laugardaginn 4. október, verður níræður Ingvar Þórðarson, fyrrv. starfsmaður Olís, Neðsta- leiti 4, Reykjavík. Eigin- kona hans er Ingibjörg Svava Helgadóttir frá Hlíðarenda í Fljótshlíð. Þau hjónin taka á móti gestum á afmælisdaginn í Stapaseli 13, Reykjavík, frá kl. 16-19. í dag, laugardaginn 4. október, er fimm- tugur Guðmundur Ósk- arsson, endurskoðandi, Glitvangi 15, Hafnarfirði. Eiginkona Guðmundar, Ólöf Guðjónsdóttir, starfsmaður Sparisjóðs Hafnarfjarðar, varð fimm- tug 23. september sl. og hafa þau opið hús laugar- daginn 4. október á milli kl. 16 og 19 í Frímúrara- húsinu í Hafnarfirði og von- ast eftir sem flestum í heim- sókn. SPURTER... IHingað til lands kom í þessari viku fyrrver- andi forseti Litháens og núverandi forseti lithá- íska þingsins. Hvað heitir hann? 2Á tónleikum Sinfón- íuhljómsveitar ís- lands á fimmtudag var frumflutt nýtt verk eftir íslenskt tónskáld og nefn- ist það „Krossfesting". Sagði í gagnrýni í Morg- unblaðinu að með þessu verki hefði tónskáldið „skapað sér stöðu meðal bestu tónskálda núdags- ins“. Hvað heitir maður- inn? 3Hann var frá bænum Alcala de Henares, sem er skammt fyrir utan Madríd. Hann skrifaði söguna um „Don Kíkóta frá Mancha“ og hafa fáar bækur haft jafn mikil áhrif. Hvað hét höfundur- inn? Hver orti? Sannleikurinn er sá að sannleikurinn á vissu stigi er verri en lygi. 7Sherlock Holmes er sennilega þekktasti leynilögreglumaður bók- menntanna. Ásamt að- stoðarmanni sínum, Wat- son lækni, leysti hann ótrúlegustu gátur. Höf- undur sagnanna um Hol- mes sést hér á mynd. Hvað hét hann? 8Einn þekktasti mál- ari Bandaríkjanna og einn af frumkvöðlum popplistarinnar lést í vik- unni. Hann var meðal annars þekktur fyrir að nota fyrirmyndir úr teiknimyndasögum og hasarblöðum í verkum sínum. Hvað hét hann? Vestur Austur ♦ 10764 ♦ - V 8 ♦ - iii: í°,,œ + ÁDG * 2 Suður ♦ 5 ♦ K ♦ 86 * K985 Vestur kaus að henda síðasta hjartanu, en í blind- um fór lauf. Næst tók Versace ÁK í spaða og henti hjartakóng heima. Síðan lét hann lítið lauf ganga til vesturs, sem gat svo ekkert fengið nema laufásinn í viðbót. Ef vestur hendir öðru laufi í fimmta trompið, kemur sjötta trompið og setur á hann meiri þrýst- ing. Fari vestur niður á laufás blankan, hendir sagnhafi spaða úr borði og spilar hjartakóng. Vörnin fær bara einn á lauf og einn á hjarta. 5Úr hvaða leikriti Will- iams Shakespeares eru eftirfarandi orð: „Burt, djöfuls blettur! burt, segi’ég! - Eitt; tvö. Nú Jiá er stund til starfa. - I Víti er myrkur! - Svei minn herra, svei! hermaður, og hræddur? Hvað þurfum við að hræðast, hver sem veit það, þegar enginn getur krafið vald okkar reikn- ingsskapar? - En hver hefði grunað gamla manninn um að luma á svona miklu blóði? 6Keppni í íslandsmót- inu í knattspyrnu lauk fyrir viku. Úrslit voru reyndar ráðin fyrir síðustu umferðina. Hveijir urðu íslands- meistarar? 9Áldraður poppari gaf nýverið út plötu með nýju efni og hefur henni verið vel tekið. Tónlistar- maður þessi fæddist árið 1941, flutti tónlist í þjóð- lagastíl, en reitti aðdá- endur sína til mikillar reiði þegar hann stakk gítarnum sínum í sam- band og hóf að leika raf- magnaða tónlist. Nýja platan hans hefur vakið nokkra athygli, en senni- lega tóku fleiri eftir því að maðurinn stóð fyrir viku á sama sviði og páf- inn. Hvað heitir poppar- inn? SVOR: *itb|Aq qoQ ‘6 •uiojsuajqDia Xojj *8 ’aI^°a uuuo^ jnqjjv 'L ’Aai '9 Jliasiu poqjfBW !PJBl ‘»»l?®q5PIW“ ’S Mæi«dnfa yjj uyfjsij>j v 'sojuuajo^ op [diröityi •£ •uossiuuii||uji IPILTBH •siSjoqspuuQ sujnujXA • i STJÖRNUSPÁ cltir Frances Drakc VOG Afmælisbarn dagsins: Þú ert næmurá tilfinn- ingar annarra og átt gott með að eignast trún- aðarvini. Þú ert fylginn þér og kemst langt með réttu lagi. Hrútur (21. mars -19. apríl) Þú getur gert ýmislegt til að bæta líkamlega og and- lega líðan þína. Farðu samt varlega og leitaðu þér upp- iýsinga um málin. Naut (20. apríl - 20. maí) Það eru engin vandamál svo flókin að þau megi ekki leysa með réttu hugarfari. Gættu þín að ganga ekki á hlut annarra. Tvíburar (21. mai - 20. júni) Mundu að erfiðleikarnir eru bara til að sigrast á þeim. Nýjungagimi þín gæti leitt þig í gönur. Krabbi (21. júní - 22. júií) HI0 Einhveijir örðugleikar kunna að verða á vegi þín- um. Láttu samt ekki hugfall- ast heldur hertu upp hugann og ryddu erfíðleikunum úr vegi. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þú ert hjálpsamur og ráða- góður en mundu samt að einhver kann að vilja mis- nota þessa eiginleika þína. Meyja (23. ágúst - 22. september) Atj Öll reynsla er góð ef maður vill draga af henni réttar ályktanir. Mundu að morg- unstund gefur gull í mund. Vog (23. sept. - 22. október) Láttu þér ekki bregða þótt einhveijir reyni að fara á bak við þig. Haltu þínu striki og þá mun þér vel farnast. Sporódreki (23. okt.-21.nóvember) ^jjj^ Gættu þess að fjármálin komist ekki upp á miili þín og þeirra sem þér þykir vænt um. Sýndu öðrum til- litssemi. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) $0 Þér virðist ætla að ganga allt í haginnn á fjármálasvið- inu ef þú gætir þess að vera ekki of djarftækur. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Einhveijir hnökrar verða á starfi þínu ef þú heldur ekki ró þinni. Kvöldið er heppi- legt til vinafagnaðar. Vatnsberi (20.janúar-18. febrúar) tfft, Nú eru varasamir tímar í viðskiptum. Farðu þér hægt og mundu að skjótfenginn gróði getur breyst í tap á einu andartaki. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Þú sinnir starfi þínu af kost- gæfni og það skilar sér fyrr en jafnvel þú áttir sjálfur von á. Mundu samt að sinna þínum nánustu. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vísindalegra staðreynda. ..í KOLAPORTINU ALLAR HELGAR Á 2800 fermetrum hjá 200 seljendum er að finna mikið úrval af notaðri og nýrri vöru ásamt matvöru á góðu verði. fciKVIiWI STORSYNING A ÍSLENSKU HANDVERKI OC HUGVITI veröur dagana 17.-19. október á stóru piássi á markaðstorginu í Kolaportinu. ..og margt fleira JÆMAPORTiÐ Opið laugardaga og sunnudaga kl. 11-17 JSýjar vörur í dag Kápur - stuttar, síðar heílsársúlpur, ullarjakkar, hattar, alpahúfur (tvær stærðir). Opið laugardaga 10-16. Ao^Hl/ISID Mörkinni 6 ■ sími 588 5518 Fyrir 15 árum síðan fckk ég slæm útbrot í lófann. Þau lýstu sér á þann hátt að fyrst mynduðust litlar graftarblöðrur, síðan flagnaði allt skinnið af og það komu djúpar sprungur í holdið sem vessaði úr. Þrátt fyrir að hafa prófað ótelj- andi krem eftir ráðum frá læknum, náttúrulæknum og óteljandi kunningjum, fann ég aldrei neitt sem virkaði þar til fyrir 2 árum að ég byrjaði að nota Tea Tree kremið frá Allison of Denmark. í dag Hður langt á milli þess að ég fái útbrot og þegar það gerist verða þau aldrei eins slæm né langvarandi og áður, því þá nota ég Tea Trec kremið frá Allison, sem fjölskyldan notar einnig sem allra meina bót. Kristín Björnsdóttir. Allison hár- og húðvörurnar eru gæðavörur. Ég hef notað þær í 8 ár, með mjög góðum árangri við mínum húðvandamálum, þ.e. psoriasis, og get mælt full- komlega með þeim. Anna Dóra Hermannsdóttir. Sem lærður snyrtifræðingur frá Leone Pieper Institut fúr Med. Kosmetik mit anerkannter Fachschulc, Hamburg-Blankenese í Þýskalandi, vann ég hér áður fyrr bæði í Svíþjóð, Þýskalandi og á Islandi með margar ólíkar snyrtivörur. Ég hef sjálf mjög viðkvæma hús, með ofnæmi fyrir mörgum ilmefnum og krem- um með ilmefnum í. En fyrir nokkrum árum kynntist ég náttúruvörunum Allison of Denmark sem henta minni húð einstaklega vcl, og nota ég ekki önnur krem síðan, enda gera þau húð minni mjög gott. Gerður Gunnarsdóttir. Ég hef notað Allison náttúruvörumar í nokkur ár og er reynsla mín af þeim einstaklega góð. Mest hef ég notað shampó, hámæringu og svitaeyðir (roll- on). Mildari vörur fyrir húð og hár hef ég ekki kynnst. Ég vil því benda ykkur á sem eruð með viðkvæma húð eða þurfið að baða ykkur oft vegna vinnu eða við íþróttaiðkanir, að prófa þessar góðu náttúmvörur. Ég gef þcim min bestu meðmæli. Hálfdán örlygsson SMustaðin Mitt í Náttúrunni, Laugavegi 53b...................sími 552 3070 Stúdío Dan, Hafnarstræti 20,400 ísafírði...........sími 456 4022 Heilsuhornið, Skipagötu 6, 600 Akureyri............sími 462 1889 Hjá AHý, Kirkjubraut 2, 300 Akranesi...............síini 431 2575 Hollt & gott, Fellsbraut 2, Skagaströnd............sími 452 2655 Búðin okkar (Yoga Stúdíó), Hátúni 6a, Rcykjavík....sími 511 3100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.