Morgunblaðið - 04.10.1997, Side 24

Morgunblaðið - 04.10.1997, Side 24
24 LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Hlin fra ttíJvum frabæru synaargæludyr fylgja fritt með ollum jm og prenturum í dag á meðan birgðir endast! Nýjasta útgáfan af Microsoft Flight Simulator á sérstöku kynningarveröi aðeins í dag! kr. 4.900 Opið til kl. 16:00 alla laugardaga! .Tölvukjör íolvu.- verslun heimilanna Faiaftni 5 - Slml 533 2323 totvukJor@ttn.it Vilja held- ur Stolten- berg en Jagland GAGNRÝNISRÖDDUM á Thorbjem Jagland, leiðtoga Verkamannaflokksins og frá- farandi forsætisráðherra Nor- egs, hefur fjölgað dag frá degi. Það sem úrslitum virðist hafa ráðið er sú ákvörðun Jaglands að setja sér að ná 36,9% at- kvæða í þingkosningunum sem fram fóru um miðjan septem- ber, eða fara frá ella. Nú sýpur Verkamannaflokkurinn og Jag- land seyðið af því en í skoðana- könnun sem Scan-Fact gerði fyrir dagblaðið VG kemur í ljós að næstum því helmingi fleiri kjósendur flokksins vilja að Jens Stoltenberg fjármálaráð- herra myndi ríkisstjóm, komist Verkamannaflokkurinn aftur til' valda. I skoðanakönnuninni kváðust 63% stuðningsmanna Verka- mannaflokksins vilja að Stolt- enberg leiddi nýja stjóm flokksins, kæmi til þess, en 37% telja Jagland betur til þess fall- inn. Jagland segist í viðtali við NTB-fréttastofuna vera von- svikinn yfir úrslitum kosning- anna en Verkamannaflokkurinn hlaut rétt rúmlega 36% fylgi og fer ríkisstjómin frá 13. október nk. Jagland stendur hins vegar fast við að ákvörðun sín um að setja rnarkið við 36,9% hafi ver- ið rétt. í VG sagði í gær að staðfest væri að forsætisráð- herrann hefði ekki haft samráð við aðra ráðherra í ríkisstjóm- inni eða næstráðendur í flokkn- um áður en hann tilkynnti um ákvörðun sína. Jagland bendir á að hefði stjóm Verkamannaflokksins setið áfram við völd, hefði hún orðið að reiða sig á stuðning miðjuflokkanna og slíkt væri óviðunandi. Hann útilokar hins vegar ekki að Verkamanna- flokkurinn komi aftur til valda, verði viðhorfsbreyting innan annarra flokkanna hvað varðar aðgerðir í efnahagsmálum. Stjörn Italíu riðar til falls vegna fjárlagadeilu Kosið verðj 30. nóv- ember falli stjórnin Róm. Reuter. MASSIMO D’Alema, leiðtogi Lýð- ræðislega vinstriflokksins (PDS), hefur lagt til að efnt verði til þing- kosninga á Italíu 30. nóvember verði ekki hægt að leysa deilu stjómarinnar og Kommúnískrar endurreisnar um fjárlög næsta árs. Stjómin riðar nú til falls vegna kröfu Kommúnískrar endurreisnar um að hún falli frá fjárlagafrum- varpi sínu og áformum um að skerða verulega framlög til vel- ferðar- og lífeyriskerfisins. Án stuðnings flokksins hefur stjómin ekki meirihluta á þinginu. D’Alema sagði í viðtali við Corri- ere della Sera að ef PDS, stærsti flokkur samsteypustjómarinnar, næði ekki samkomulagi við Komm- úníska endurreisn þyrfti að efna til kosninga 30. nóvember. Aðspurður kvaðst hann ekki útiloka viðræður við flokkinn en bætti við að ekki kæmi til greina að verða við kröfu hans um að breyta efnahagsstefnu stjómarinnar. Takist ekki að leysa deiluna mun forsetinn taka lokaákvörðun um hvort boðað verður til nýrra kosn- inga. Oscar Luigi Scalfaro forseti er sagður andvígur því að ítalir gangi að kjörborði þremur og hálfu ári áður en kjörtímabilinu lýkur. Hann er sagður tregur til að fallast á þingrof þar sem það myndi verða til þess að þingið gæti ekki hafið umræðu um veigamiklar breyting- ar á stjómarskránni fyrir árslok eins og stefnt er að. Flestir andvígir kosningum Samkvæmt skoðanakönnunum, sem vora birtar í gær, vilja flestir Italir að stjórnin haldi velÖ. I einni þeirra sögðust 73% ekki vilja að stjómin félli en 20% vildu að hún segði af sér. Ónnur könnun bendir til þess að verði kosið strax myndi Lýðræðis- legi vinstriflokkurinn fá ívið meira fylgi en í kosningunum fyrir 17 mánuðum. Fylgi Kommúnískrar endurreisnar myndi aukast vera- lega, eða úr 8,6% í 12,3%. „Eintómur fyrirsláttur“ Harðlínumenn úr ítalska komm- únistaflokknum stofnuðu Kommún- íska endurreisn árið 1991 þegar marxistaflokkurinn tók upp jafnað- arstefnu og nafnið Lýðræðislegi vinstriflokkurinn. Fréttaskýrendur segja að deilumar snúist ekki að- eins um fjárlögin því Kommúnískri endurreisn sé mjög í mun að marka sér sérstöðu og auka áhrif sín í ítölskum stjómmálum. Flokkurinn er einnig andvígur nýjum tillögum um breytingar á stjómarskránni, sem myndu skerða áhrif hans og annarra smáflokka veralega. „Fjárlögin era eintómur fyrir- sláttur," sagði Renato Mann- heimer, stjómmálafræðingur við Genúa-háskóla. „Þeir vilja endur- heimta pólitíska ímynd sína og vora ólmir í pólitískan slag.“ Rússlandsforseti og stjórnarandstaðan deila Segir þolinmæði sína á þrotum Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti réðst í gær harkalega að rússnesku stjómarandstöðunni og kvaðst orð- inn þreyttur á andstöðu hennar við umbætur. Sagði hann að þolin- mæði sín og þjóðarinnar væri ekki takmarkalaus og gaf til kynna að hann íhugaði að leysa upp þingið. Andstæðingar hans úr Kommún- istaflokknum svöraðu forsetanum fullum hálsi og sögðu umbótasinn- aða stjórn hans samsafn hug- myndafræðilega gjaldþrota fjár- kúgara. Jeltsín lét þessi orð falla í út- varpsávarpi í gær en þá vora fjög- ur ár liðin frá því að hann sendi skriðdrekasveitir til að brjóta á bak aftur uppreisnartilraun þing- manna í Moskvu. Gaf hann til kynna að hann kynni að leysa upp dúmuna er hann sagði hana verða að starfa í þágu Rússlands. Komm- únistar era stærsti flokkurinn á þingi og hafa lagst af þunga gegn ýmsum framvörpum ríkisstjómar- innar. Sakaði forsetinn þingmenn um óábyrga afstöðu er þeir stæðu í vegi fyrir umbótum í málum er varðaði eignarhald á landi, félags- tryggingamálum, baráttunni gegn glæpum og utanríkismálum. „Ef marka má stemmninguna í dúmunni stöndum við frammi fyrir enn einu dæminu um átök á milli dúmunnar og íramkvæmdavalds- ins... Þeir [stjómarandstæðing- amir] litu greinilega á tilraunir mínar til samstarfs sem veikleika- merki.“ Gennadí Zjúgjanov, formaður Kommúnistaflokksins, svaraði árásum forsetans með því að saka hann um að hafa ekki staðið við eitt einasta kosningaloforð frá síðasta ári. „Stjóm hans er algerlega gjaldþrota, - fjármálalega og hug- myndafræðilega." Sagði Zjúgjanov að kommúnistar myndu ekki greiða fjárlagafrumvarpinu at- kvæði sitt, það væri fjárkúgun. Þingmenn væra beittir þrýstingi til að samþykkja illa undirbúið frum- varpið. Þá kenndi hann Jeltsín um mikla pólitíska kreppu sem ríkti og sakaði forsetann um að hafa sett „umdeilanlega afarkosti“. Sjö ár frá sameiningu MEÐLIMIR þjóðræknifélags í Berlín ganga í skrúðgöngu í gegn um Brandenborgarhliðið íklæddir hermannabúningum úr tíð Friðriks mikla Prússakonungs. Skrúðgang- an var liður i hátíðahöldum i tilefni af því að sjö ár voru liðin í gær frá sameiningu Þýzkalands eftir 41 árs skiptingu i tvö ríki. Fólk alis staðar að úr Þýzkalandi tók þátt í hátíða- höldunum í þýzku höfuðborginni, en sameiningardagsins var minnzt með ýmsum hætti um allt landið. George Bush, sem var forseti Bandaríkjanna þegar Berlínarmúr- inn féll, var heiðursgestur í Berlín í gær. Hann sagði almenning Mið- og Austur-Evrópu, ekki ríkisstjórnir, eiga heiðurinn að niðurrifí járn- tjaldsins. Reuter LEIÐTOGAR Verkamannaflokksins fagna lokum flokksinsins í Brighton ásamt eiginkonum sfnum. F.v.: Cherie og Tony Blair, John Prescott og eiginkona hans, Pauline. Flokksþingi lokið TONY Blair, leiðtogi Verkamanna- flokksins, og næstráðandi hans, John Prescott, vöraðu flokksfélaga sína í gær við því að framundan væri umbrotatímabil og vonuðust eftir einingu í flokknum, svo hann mætti vera við völd næsta áratug- inn. Var þetta inntak lokaræðna þeirra á þingi flokksins sem staðið hefur í eina viku í Brighton. í ræðu sinni sagði Prescott nauð- synlegt að Verkamannaflokkurinn sæti við völd í tvö kjörtímabil ef honum ætti að takast að breyta Bretlandi í nútímalegt, réttlátt og árangursríkt samfélag. Því væri mikilvægt að viðhalda einingu innan flokksins. Blair varaði flokksmenn hins vegar við því að framundan væra margar óvinsælar ákvarðanir. Blair hefur skipað Frank Field í embætti aðstoðarfélagsmálaráð- herra og er fullyrt í The Times að Field sé í þann mund að leggja fram áætlun sem skyldi alla launþega til að greiða í sjóð til að fjármagna sí- vaxandi kostnað af umönnun aldr- aðra. Þá segir blaðið að Bretar kunni að verða skyldaðir til að leggja fé í eftirlaunasjóði sem bæt- ast við núverandi lífeyrissjóðakerfi. Ræðum Prescotts og Blairs var að vonum vel tekið en þó vora fagn- aðarlætin einna mest er vinstrisinn- ar í flokknum ræddu mál á borð við kjamorkuafvopnun. Kvaðst Blair engu að síður þess fullviss að meiri- hluti flokksin's stýddi sig.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.