Morgunblaðið - 07.10.1997, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Úrskurður skipulagsstjóra ríkisins
Ekki fallist á nýtt vegar-
stæði yfir Jökuldalsheiði
EKKI liggja fyrir fullnægjandi upp-
lýsingar um fyrirhugaða lagningu
Hringvegar úr Langadal á Jökuldals-
heiði að Ármótaseli að mati skipu-
lagsstjóra ríkisins eða samanburður
á kostum varðandi staðarval og til-
högun framkvæmda til þess að unnt
sé að fallast á framkvæmdina. í
samræmi við reglugerð um mat á
umhverfisáhrifum skal ráðast í frek-
ara mat á lagningu hringvegarins í
Norður-Múlasýslu.
Skipulagsstjóri kemst meðal ann-
ars að þeirri niðurstöðu að ef af lagn-
ingu vegarins verður, verða mann-
virkjabeltin um svæðið þtjú, þ.e.
núverandi hringvegur, línuleið
Byggðalínu og fyrirhugaðrar Fljóts-
dalslínu 1, með tilheyrandi slóða og
nýr Hringvegur frá Langadal að
Ármótaseli. Fram kemur að fyr-
irhugaður vegur mun skerða tengsl
tveggja ferðaþjónustustaða við
Hringveginn, Möðrudal og Sænauta-
sel. Vegurinn mun ekki stytta vega-
lengdina milli Norður- og Aust-
urlands en hann mun stytta leiðina
milli Vopnafjarðar og Egilsstaða úr
Nýr vegur um
Jökuldalsheiði
Möðrudalúr
Fyrirhuguð K
1 Fljóstdalslína 1 [
176 km í 152 km. Fyrirhugaður Stór hluti vegarsvæðisins er gróinn
vegur mun liggja nærri eða fara og fer vegurinn á nokkrum stöðum
yfir 35 þekktar menningarminjar. yfir votlendissvæði.
Enn fremur fer vegurinn um svæði í úrskurði skipulagsstjóra segir
sem nýtt er til beitar og veiðar og að ekki sé sýnt fram á að slíkur
liggur nærri varpsvæði heiðagæsa. ávinningur sé af framkvæmdinni,
eins og hún er kynnt af Vegagerð-
inni, að umhverfísáhrif hennar verði
viðunandi,
Fram kemur að í frekara mati
skuli koma fram samanburður á
uppbyggingu núverandi vegar um
Möðrudalsfjallgarða, vegar um
Sauðár- og Gestreiðarstaðaskarð
meðfram Byggðalínu Landsvirkjun-
ar og vegar frá Langadal að Ár-
mótaseli sem kynntur var við frum-
athugun. Gera þarf grein fyrir kost-
um þessara framkvæmda með tilliti
til legu, lengdar, landhalla,
beygjukrappa, vegsýnar, efnisþarf-
ar, kostnaðar og veðurfars og áhrif-
um þeirra á umferðaröryggi, land-
notkun, menningarminjar, gróður,
dýralíf, jarðmyndanir og landslag.
Einnig verði gerð frekari grein fyr-
ir þeim kosti að vegtenging milli
Norðurlands og Austurlands verði
um Fjöllin, Vopnafjörð og Hlíðar-
fjöll með jarðgöngum undir Hellis-
heiði.
Úrskurð skipulagsstjóra má kæra
til umhverfisráðherra og er kæru-
frestur til 12. nóvember 1997.
Lauslegt
fauká
Siglufirði
VERSTA veður var á Siglufírði fyrri
hluta dags í gær og fuku gámur,
bátur, bíll og þakplötur um bæinn.
Kennsla féll þó ekki niður en skóla-
bömum var ekið leiðar sinnar.
Lögreglan á Siglufírði segir að
austan 10 vindstig hafí mælst á veð-
urathugunarstöðinni á Sauðanesvita
og hvassara hafí verið 5 hviðum. í
fírðinum var misvindasamt og mjög
hvasst og vöknuðu menn á sjöunda
tímanum við veðrið. Um klukkan ell-
efu fóru lauslegir hlutir að fjúka, svo
og einstaka þakplötur.
Hjálparsveitir voru kallaðar út og
höfðu I nógu að snúast því útköll
þeirra skiptu tugum, segir lögregla.
Bátur sem stóð á þurru fauk um
koll. Björgunarbátur fauk á haf út.
20 feta tómur gámur tókst á loft í
sviptivindi og fauk út í höfn og sökk.
Fiat Uno fólksbíll lyftist og fauk yfír
götu en kom niður á hjólin og er þá
fátt eitt talið.
Geysileg rigning fylgdi veðrinu og
voru bæjarstarfsmenn og vegagerðar-
menn önnum kafnir við að losa stíflur
úr ræsum auk þess sem gijót hrundi
á veginn við bæinn.
Siglfírðingar héldu áfram skóla-
haldi en böm voru keyrð í og úr skóla
í bílum lögreglu og björgunarsveita.
Eftir hádegi var rúta fengin til að
flytja böm úr íþróttahúsi bæjarins á
milli.
Morgunblaðið/Kristinn
Andlát
HALLBJORG
BJARNADÓTTIR
Rok og rigning
TALSVERÐUR strekkingur
var í miðborg Reykjavíkur í
gær þegar ein haustlægðin
fór þjá og vænar rigningar-
dembur gengu yfir réttláta
sem rangláta. Þá var líka ág-
ætt að vera vel dúðaður með-
an beðið var á rauðu Ijósi.
Hallbjörg Bjarnadótt-
ir söngkona er látin
82 ára að aldri. Útför-
in hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Hallbjörg fæddist
11. apríl árið 1915 á
Brimnisvöllum við Ól-
afsvík en fimm ára
fluttist hún til
Reykjavíkur og þaðan
uppá Akranes. Ung
missti hún föður sinn
og var hún skömmu
síðar sett í fóstur hjá
hjónunum Kristínu
Jónsdóttur og Jóni Ólafssyni á
Brunnastöðum á Akranesi. Sextán
ára hélt Hallbjörg til Kaupmanna-
hafnar til að nema ópemsöng en
sneri sér fljótlega að djassi og kom
víða fram á tónleikum og skemmt-
unum í Danmörku.
Á ámnum 1939-1945 dvaldi hún
á íslandi og hélt þar söngskemmt-
anir en að stríði loknu
fluttist hún ásamt manni
sínum, Jens Jörgen
Fischer-Nielsen, til Dan-
merkur á ný, þar sem
þau komu fram á
skemmtunum og í söng-
leikjum auk þess sem
Hallbjörg kom fram í
útvarpi og sjónvarpi á
Norðurlöndum, Englandi
og í Þýskalandi. Árið
1959 fluttu þau til
Bandaríkjanna, þar sem
þau bjuggu til ársins
1983 og kom Hallbjörg
víða fram á tónleikum.
Til íslands fluttu þau hjónin á ný
árið 1992 og hafa búið hér síðan.
í viðtali í Morgunblaðinu við heim-
komuna var haft eftir Hallbjörgu
að hún væri ánægð með að vera
loksins komin heim þvi hún hefði
alla tíð liðið af heimþrá. Eftirlifandi
eiginmaður Hallbjargar er Jens
Jörgen Fischer-Nielsen.
Reglugerð um örygg-
isfræðslu sjómanna
Fundað um
réttinda-
málin á
morgun
Á MORGUN verður haldinn fundur
fulltrúa samtaka útgerðarmanna,
sjómanna og ríkisins þar sem rætt
verður hvernig bregðast eigi við því
að 5-600 sjómenn verða réttinda-
lausir þegar reglur um öryggis-
fræðsiu taka gildi um næstu ára-
mót. Með reglugerðinni verður öllum
áhöfnum skipa, sem krafíst er lög-
skráningar á, gert skylt að hafa lok-
ið námskeiði í öryggisfræðslu hjá
Slysavamaskóla sjómanna. Gildis-
töku reglugerðarinnar hefur verið
frestað tvisvar sinnum.
„Við höfum verið með fullbókað á
námskeiðin í tvö ár, en fyrir þann
tíma vorum við að berjast við að
halda úti námskeiðunum vegna fá-
mennis," segir Hilmar Snorrason,
skólastjóri Slysavarnaskóla sjó-
manna. „Það var ekki fyrr en kom
að fyrstu frestuninni á reglugerðinni
að menn fóru að taka af alvöru við
sér.“ Aðspurður segir Hilmar að sjó-
menn geti í og með kennt sjálfum
sér um hvernig komið sé.
Getum ekki horft á það að
flotinn komist ekki á sjó
„Við stóðum í þeirri trú á sínum
tíma að það hefðist að allir kæmust
S gegnum þessi námskeið sem þyrftu |
að gera það,“ segir Hólmgeir Jóns- ,
son, framkvæmdastjóri Sjómanna-
sambandsins. „Ég veit ekki annað ]
en að skólinn hafi verið fullsetinn
og sé fullbókaður fram á næsta vor.
Það er ekkert hægt að segja um við-
brögð okkar á þessu stigi, en menn
geta ekki staðið og horft á það að
flotinn komist ekki á sjó vegna þess
að menn hafi ekki lokið tilskildum
námskeiðum. Það er ráðuneytisins
að svara því hvað verður gert, en ,
sjálfsagt verður að vera með ein-
hverjar undanþágur meðan þetta er I
að komast I lag.“ |
Benedikt Valsson, framkvæmda-
stjóri Farmanna- og fískimannasam-
bandsins, segir að erfitt verði að fall-
ast á að menn verði réttindalausir
vegna reglugerðarinnar. „Það var.
vitað mál að það yrði erfítt að láta
þetta ganga upp eins og upphaflega
var ráðgert. Við vitum ekki nákvæm-
lega hvort það eru skipstjórnarmenn, .
vélstjórar eða hásetar sem ekki hafa i
lokið námskeiðunum en þau eru hluti
af námi skipstjórnarmanna í dag.“
Ragnheildur Hjaltadóttir, skrif-.
stofustjóri í samg-önguráðuneytinu,-
segir að málið sé til umræðu í ráðuJ
neytinu en að ekki hafi enn verið
tekin ákvörðun um til hvaða ráða
verði gripið.
------» ♦ ♦------
Sjö handtekn-
ir með fíkni-
efni á Húsavík
SJO manns, flestir í kringum tví-
tugt, voru handteknir á Húsavík á
sunnudagskvöld grunaðir um kaup,
vörslu eða neyslu ólöglegra fíkniefna.
Við húsleit í fjórum íbúðarhúsum
í bænum fundust fíkniefni og ýmis
áhöld til neyslu þeirra. Einnig fund-
ust efni á fólkinu við handtökuna.
Alls var lagt hald á um 8-10 grömm
af amfetamíni, nokkur grömm af
hassi og maríúana, auk smáræðis
af tóbaki blönduðu hassi.
Yfirheyrslur og rannsókn stóðu
yfir fram á mánudagsmorgun. Málin
voru tvö, en tengdust þó að hluta til
innbyrðis. Játningar hinna grunuðu
um kaup, vörslu eða neyslu efnanna
liggja fyrir og teljast málin að fullu
upplýst. Að sögn lögreglu á Húsavík
var einungis um eigin neyslu að
ræða, ekki sölu. Hluti hópsins hefur
komið við sögxi lögreglu áður vegna
fíkniefnamála.