Morgunblaðið - 07.10.1997, Page 10

Morgunblaðið - 07.10.1997, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Stj órnarandstaðan segir að tekjur og gjöld séu vanáætluð í fjárlagafrumvarpinu 7 mílljarða útgjöld ekki færð til gjalda Morgunblaðið/Árni Sæberg FULLTRUAR stjórnarandstöðunnar í fjárlaganefnd gerðu fjölmiðlum grein fyrir afstöðu sinni til fjárlagafrumvarpsins. F.v. Gísli Einarsson, Kristín Halldórsdóttir, Kristinn H. Gunnarsson og Sigríð- ur Jóhannesdóttir. FULLTRÚAR stjórnarandstöð- unnar í fjárlaganefnd gagnrýna að 7 milljarða útgjöld vegna lífeyr- isskuldbindinga og hafnarmála skuli ekki vera færð til gjalda í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 1998. Stjórnarandstaðan gagnrýnir einn- ig skuldasöfnun ríkissjóðs og full- yrðir að skuldir hins opinbera hafi aldrei verið meiri. Kristinn H. Gunnarsson alþing- ismaður sagði að 255 milljóna króna fjárveiting ársins til hafnar- mála væri ekki færð til gjalda. Rök fjármálaráðuneytisins væru þau að um væri að ræða framkvæmdir fyrri ára, en þetta þýddi hins veg- ar að þessi fjárhæð yrði aldrei færð til gjalda í fjárlögum. Sama ætti við um 6,7 milljarða hækkun lífeyrisskuldbindinga. Þarna væri á ferðinni endurmat eldri skuld- bindinga vegna launa- og verðlags- breytinga og samkvæmt öllum venjulegum bókhaldsreglum ætti að færa þetta til gjalda núna þeg- ar það lægi fyrir að ríkið skuldaði þessa upphæð. Þessi 7 milljarða útgjöld hefðu ekki verið gjaldfærð og yrðu samkvæmt áformum fjár- málaráðuneytisins aldrei gjald- færð. Fyrirvarar við gengisstefnuna Kristinn sagði að þó að það væri uppgangur í efnahagslífinu væru ýmis hættumerki framund- an. Hagvöxturinn væri að mestu borinn uppi af einkaneyslu og verulegur halli væri á viðskiptum við útlönd. Innflutningur hefði aukist um 26% á síðustu tveimur árum, en útflutningur hefði á sama tíma aukist um 14%. Hann sagðist hafa verulegar efasemdir um þá gengisstefnu sem fylgt hefði verið að undanförnu. Gengi krónunnar hefði hækkað að und- anförnu sem hefði leitt til þess að tekjur útflutningsatvinnuvega hefðu rýrnað. Hækkandi ger.gi ætti sinn þátt í skuldasöfnun er- lendis. Kristinn sagði að minnihlutinn í fjárlaganefnd væri þeirrar skoð- unar að tekjur ríkissjóðs væru vanáætlaðar og það myndi vænt- anlega koma betur í ljós þegar liði á umræðuna um fjárlagafrumvarp- ið. Hann benti á að á þessu kjör- tímabili hefði tekjuáætlun minni- hlutans staðist betur en áætlun fjármálaráðherra. Hins vegar byggði þetta frumvarp á forsend- um um tekjuaukningu í sjávarút- vegi og áliðnaði sem væru hæpn- ar. Það væri hæpið að gera ráð fyrir 50% aukningu á tekjum í ál- iðnaði á þessu ári og 18% tekju- aukningu af rækjuveiðum. Þörf á aðgerðum til að stemma stigu við ofbeldi Kristín Halldórsdóttir alþingis- maður gagnrýndi að ekki skuli í fjárlagafrumvarpinu gert ráð fyrir auknum fjárveitingum til að stemma stigu við vaxandi ofbeldi í samfélaginu. Það væri nauðsyn- legt að tryggja betur öryggi íbú- anna. Þá væri ekki gert ráð fyrir auknum fjárveitingum til baráttu gegn fíkniefnum. Sigríður Jóhannesdóttir alþing- ismaður sagði að í þessu frum- varpi sæi þess ekki stað að ríkis- stjómin meinti eitthvað með yfir- lýsingum um aukna áherslu á menntamálin. Hún gagnrýndi sér- staklega skólagjöld og svokallaðan fallskatt og sagðist hafa lagt fram frumvarp á Alþingi sem bannaði stjórnvöldum að leggja á fallskatt. Ljóst væri að íjárveitingar til stóru sjúkrahúsanna þýddu að þau yrði rekin með hundraða milljóna halla. Skuldirnar aukast Gísli Einarsson alþingismaður sagði að þrátt fyrir allt góðærið hefðu erlendar skuldir hins opin- bera aldrei verið meiri eða 263 milljarðar. Ríkissjóður kæmi til með að greiða 16 milljarða í vexti á næsta ári, en fyrir þá upphæð væri hægt að byggja fern Hval- fjarðargöng. Áætlanir fjármála- ráðherra að reka ríkissjóð með hagnaði yrði að skoða í ljósi þess að áætlað væri að selja eignir ríkis- ins fyrir 4,3 milljarða. Þá væri rúmum milljarður tekinn úr vega- sjóði inn í ríkissjóð. Gísli gagnrýndi stjórnarflokk- ana fyrir að vera ekki tilbúna að ræða um að leggja á veiðileyfa- gjald og breyta þar með tekjuöflun- arkerfi ríkissjóðs. Gísli benti enn- fremur á að framlög til mennta- mála, sem hlutfall af þjóðarfram- leiðslu, væru lægri í dag en þau hefðu verið fyrir 10 árum. Þetta væri umhugsunarvert, ekki síst í ljósi viðvarana OECD. Inga Jóna Þórðardóttir borgarfulltrúi Er ekki að ala á sundrungu „ÞAÐ hefur verið látið að því liggja að framboð mitt sé til þess fallið að ala á sundrungu innan flokksins og að verið sé að efna til óvinafagnaðar,“ sagði Inga Jóna Þórðardóttir, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokks, en hún gefur kost á sér í fyrsta sæti á framboðslista flokks- ins í prófkjöri sem fram fer dagana 24.-25. október. „í nafni samstöðunnar eigi því að hafna mér. Þetta snýst ekki um að vera á móti sam- stöðu, þetta snýst um að vera með lýðræðinu." Spurning um Iýðræði Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son, borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, lýsti því yfir í síðustu viku að hann styddi Árna Sigfússon í fyrsta sæti listans en sjálfur hefur hann setið í öðru sæti og hefur óskað eftir áframhaldandi stuðningi í það sæti. „Próf- kjör er lýðræðislegasta að- ferðin sem við höfum til að stilla upp framboðslista," sagði Inga Jóna. „Og eina leiðin í raun sem flokksmenn hafa til að hafa bein áhrif. Að halda því fram að það sé vísasta leiðin til sundrungar þegar fleiri en einn sækjast eftir sama sæti á listanum sýnir að skilning skortir á þeirri lýðræðishugsun sem að baki prófkjörinu býr og um leið virðingarleysi við kjósendur. Þykir mönnum það ekki kyndugt að efna til prófkjörs en vilja um leið vísa mönnum til sætis á listanum. Það að kjósa á milli manna í forystusveit er eðilegt innan Sjálfstæðisflokksins og eru fjölmörg dæmi um það í borgarstjórn og annars stað- ar.“ Inga Jóna benti á að í próf- kjöri, sem haldið var þegar Sjálfstæðisflokkurinn var síðast í minnihluta í borgar- stjórn, hafi baráttan verið mjög tvísýn milli frambjóð- enda á listanum. Stúdentaráð telur Lánasjóð íslenskra námsmanna ekki virða vandaða stj órnsýsluhætti LÍN setur strangari skilyrði en Háskólinn STÚDENTARÁÐ Háskóla ís- lands telur að verið sé að tak- marka aðgang stúdenta að klás- usgreinum, þ.e. þeim sem tak- marka þarf aðgang að, með þeirri ákvörðun Lánasjóðs íslenskra námsmanna í síðustu viku að nemendur í klásusgreinum fái aðeins eitt tækifæri á námslánum til að reyna við klásusgreinar en ekki tvö eins og verið hefur. Sérstaðan afnumin Haraldur Guðni Eiðsson, for- maður Stúdentaráðs, segir að klásusnemar hafi lengi fengið að njóta nokkurrar sérstöðu sem nú sé afnumin. „Okkur finnst þessi ákvörðun sem slík gagnrýni verð og ekki síður framkvæmd hennar. Þetta er tilkynnt þegar stúdentar hafa þegar skráð sig í læknis- fræði eða hjúkrunarfræði og þeir sem ætla að taka lán hafa sótt um og væntanlega tekið fram- færslulán í banka. Þeir eru að segja þessu fólki nú að það hafi aðeins eitt tæki- færi en ekki tvö ef þess þarf með,“ segir Haraldur Guðni í samtali við Morgunblaðið og sagði hann fulltrúa námsmanna í stjórn LÍN hafa mótmælt þessari ákvörðun harðlega á fundinum 2. október sl. „Þess vegna teljum við þetta afturvirkt og ljóst að það sam- rýmist ekki góðum stjórnsýslu- háttum,“ segir Haraldur og segir hér verið að skerða réttindi stúd- enta. „Þetta þýðir í raun að sá námsmaður sem þarf á lánum að halda til að framfleyta sér og nær öllum prófum á fyrra árinu en ekki gegnum klásus, hann á ekki annað tækifæri, hann getur ekki skráð sig á ný í læknisfræði eða hjúkrunarfræði ef hann þarf á lánum að halda. Þarna er því LÍN farinn að setja strangari skilyrði en Háskólinn." í frétt frá SHÍ er vísað til álits umboðsmanns nr. 652/1993 þar sem segir: „Þegar breytt er stjórnsýsluframkvæmd, sem al- mennt er kunn, án þess að til komi breyting á réttarreglum, verður í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti að gera þá kröfu til stjórnvalda, að þau kynni breytinguna fyrirfram, þannig að þeir aðilar, sem málið snertir, geti brugðist við og gætt hags- muna sinna.“ Viðbrögð við úrskurði umboðsmanns Steingrímur Ari Arason, vara- formaður stjórnar LÍN, segir að aðdragandann að breytingunni megi rekja til úrskurðar umboðs- manns Alþingis í máli hjúkrunar- nema. Gekk hann út á það að þrátt fyrir að menn komist ekki milli ára beri lánasjóðnum að lána út á minna en 100% námsárang- ur, allt niður í 75% árangur. Almennu regluna segir Stein- grímur hafa verið þá að ekki sé lánað nema einu sinni út á sama námið. Undanþága hafi hins veg- ar verið veitt til að lána í annað sinn þeim sem ekki komust áfram vegna fjöldatakmarkana þrátt fyrir fullnægjandi árangur. „Það er samdóma álit meiri- hluta fulltrúa í stjórn LÍN og full- trúa námsmanna að þessi úr- skurður hafi áhrif á þessa undan- þágureglu. Ef ætti að viðhafa hana áfram ætti að lána tvisvar út á sama námið, ekki aðeins við 100% árangur heldur líka við 75% árangur. Þar með eru viðbrögð við þessum úrskurði óhjákvæmi- leg en við treystum okkur ekki til, á grundvelli jafnræðisreglunn- ar, að víkka þessa reglu enn frek- ar.“ Steingrímur sagði þessa breyt- ingu ekki aftui-virka, þ.e. hún næði ekki til þeirra sem nú væru þegar byijaðir nám í annað sinn í þessum tilteknu greinum. Hún tæki til þeirra sem væru að hefja nám í haust og myndu kannski lenda í því að þurfa að reyna aft- ur, þetta myndi því ekki hafa áhrif fyrr en að ári og myndi ef til vill skerða rétt manna þá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.