Morgunblaðið - 07.10.1997, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Kúbverjar for-
dæma bandaríska
Cohiba vindla
Havana. Reuter.
BANDARÍSKT fyrirtæki hyggst
bjóða bandarískum reykinga-
mönnum nýja Cohiba vindla, en
hefur sætt gagnrýni ríkisfyrir-
tækis á Kúbu, sem annast vind-
laútflutning.
General Cigars Co. í New York
setur á markað í vikunni nýjan
Cohiba vindil, sem verður seldur
víðar en áður. Fyrirtækið hefur
haft rétt á vörumerkinu í Banda-
ríkjunum i tæp 20 ár.
I Havana hefur vindlaútflutn-
ingsfyrirtækið Habanos SA sent
frá sér „viðvörun til kunnáttu-
manna um vindla" á þá leið að
ekki sé hægt að líkja eftir virt-
ustu vindlategund Kúbu.
„ Aðeins er til einn ósvikinn
Habano Cohiba - og það er kúb-
verskur Cohiba, framleiddur á
Kúbu úr 100% kúbversku hrá-
efni,“ sagði fyrirtækið í tilkynn-
ingu.
„Ekki blekking“
Talsmaður General Cigar,
Ross Wollen, segir að banda-
ríska fyrirtækið hafi alls ekki í
hyggju að telja viðskiptavinum
sínum trú um að þeir séu að
kaupa kúbverska Cohibas
vindla. „Greinilega er tekið fram
að vindillinn er framleiddur i
Dóminíkanska lýðveldinu,"
sagði Wollen. „Umbúðirnar eru
öðruvísi og allir sem lesa auglýs-
ingar okkar sjá greinilega að
þetta er ekki kúbverskur Co-
hiba.“
Fyrirtækið hefur framleitt
vindla með Cohiba-vörumerki í
verksmiðju í Dóminíkanska lýð-
veldinu í 20 ár.
Habanos SA minntist þess í
marz að 30 ár voru liðin síðan
framleiðsla hinna frægu Cohiba
vindla hófst.
Kúbverska vindla má ekki
selja í Bandaríkjunum vegna 35
ára viðskiptabanns á Kúbu.
Bandarískir reykingamenn
greiða hátt verð fyrir vindla frá
Kúbu, sem eru fluttir inn um eitt-
hvert þriðja land, eins og
Kanada.
í
Hádegisverðarfundur
MA
Hótel Sögu, Skálanum, 2. hæð
fimmtudaginn 9. október kl. 12-13.30
Verðstríð í
innanlandsflugi!
Eitt helsta umfjöllunarefni fjölmiðla á þessu ári
hefur verið fargjaldastríðið milli Flugfélags íslands
og íslandsflugs. Viðskiptavinir félaganna eru
himinlifandi - en hverjar verða afleiðingar
verðstríðsins fyrir fyrirtækin í greininni?
Á fundinum munu fulltrúar frá íslandsflugi og
Flugfélagi íslands ræða afleiðingar og áhrif
verðstríðsins á neytendur og fyrirtækin.
Ræðumenn
• Páll Halldórsson, framkvæmdastj. Flugfélags íslands
• Ómar Benediktsson, framkvæmdastj. íslandsflugs
• Friðrik Eysteinsson, forstöðum. markaðsrannsókna
og vöruþróunar Vífilfells hf.
Fundarstjóri
• Sigríður Sigurðardóttir, markaðstjóri Frjálsrar
fjölmiðlunar.
MARK
Þátttökugjald er 1.500 kr. fyrir þá sem hafa greitt
félagsgjöld ÍMARK en 2.500 kr. fyrir aðra.
Innifalinn er léttur hádegisverður og kaffi.
THPft
/sEgJ
Margt smátt
FLUGLEIÐIRá
OPIN KERFl HF
M Landsl
íslandi
Isbanki
Framleiddi eitt sinn
Trabant - býður nú
eftirsótt hlutabréf
Frankfurt. Reuter.
HLUTABRÉF í fyrrverandi fram-
leiðanda hins klunnalega Trabants í
Austur-Þýzkalandi, Sachsenring
Automobiltechnik AG, eru til sölu í
Frankfurt og eftirspurn er mikil.
Nafnvirði bréfanna er fimm mörk,
en ásóknin er svo mikil að verðið
hefur verið að nálgast 25 mörk að
sögn Dresdner Bank.
Bæði þýzkir fjárfestar og erlendir
fjárfestingarsjóðir sækjast eftir
bréfum í Sachsenring, sem mun afla
58 milljóna marka með þessari
fyrstu reynslu sinni á þessu sviði.
Fyrirtækið, sem hefur verið í
einkaeign í innan við fjögur ár, bauð
almenningi 2,33 milljónir hlutabréfa,
eða tæplega 30% hlutafjár síns.
Hlutabréfin eru í flokki með bréfum
í fyrirtækjum, sem eru í vexti, og
hagkvæmt er talið að íjárfesta í.
Mikill vöxtur hefur verið í Sachs-
enring síðan bræðurnir Ulf og Ernst-
Wilhelm Rittinghaus tóku við þess-
um leifum eins mesta risa kommún-
istablokkarinnar á árum áður í árs-
lok 1993.
Vakti hlátur en vinsældir
Áður fyrr framleiddi fyrirtækið
glertrefjabílinn „Trabi“ - sem hlegið
var að á Vesturlöndum, en naut
feiknavinsælda í áratugi í fyrrver-
andi kommúnistaríkjum. Nú fram-
leiðir fyrirtækið parta í úrvalsgerðir
bíla eins og Mercedes-Benz, BMW
og Volkswagen og hagnast á því að
nú færist í vöxt að fá utanaðkom-
andi aðila til að annast hluta fram-
leiðslunnar.
Hjá Sachsenring er unnið við
pantanir upp á meira en einn millj-
arð marka. Starfsmenn Sachsenring
eru 1.000 og er talið að söluverð-
mæti muni nema um 270 milljónum
marka á þessu ári og að hagnaður
verði 8,8 milljónir marka miðað við
3,7 milljóna marka tap 1996.
Árið 1993, síðasta árið sem
Sachsenring var í höndum Treu-
hand-ríkiseinkavæðingarinnar voru
starfsmenn fyrirtækisins 330 og
salan nam 36 milljónum marka.
Selja á um 27,7% hlutabréfa í
Sachsenring almenningi og sameig-
inlegur meirihluti Rittinghausbræðra
mun minnka í 43,6%. Hlutur upp á
9,4% í eigu stjórnarmannsins Júrgens
Rabe minnkar í 7,1% þannig að
stjómin mun hafa örlítinn meirihluta.
Tveir hlutir fyrirtækja í tengslum
við Deutsche Bank og Commerzbank
mun minnka úr 14,5% hvor í 10,77%
hvor.
Vörusljórnun '97
Skilvirk neytendasvörun*ECR
(Efficient Consumer Response)
Námstefna:
Fimmtudaginn 9. október kl. 12:30-17:15
Hótel Loftleióum
Hvers vegna er
svörun neytencla mikilvæg?
Námstefna um vörustjórnun og skilvirka
neytendasvörun verður haldin í tengslum við
verkefnið Vörustjórnun '97. Námstefnan er
ætluð iðnfyrirtækjum sem og fyrirtækjum í
starfsemi tengdri verslun.
Skilvirk neytendasvörun (ECR) er aðferðafræði
sem sprottin er upp úr rekstrarumhverfi, þar sem
aukin áhersla er lögð á viðskiptavininn og þarfir
hans. Hugmyndirnar byggja á hefðbundinni vöru-
stjórnun, þar sem sérstök áhersla er lögð á sam-
vinnu fyrirtækja og skilvirkara upplýsingaflæði
þeirra á milli.
Fyrirlesarar á námstefnunni hafa allir látið
sig vörustjórnun varða á undanförnum árum. Þeir
eru: Bragi Hannesson, Iðnlánasjóði, Páll Kr. Pálsson,
Ólafur Kjartansson, Samtökum iðnaðarins, Ágúst
Magnússon, Húsgögnum og innréttingum hf.,
Snorri Sigurðsson, Sól-Víking hf., Ingi Þór
Hermannsson, EAN á íslandi, Kristján M. Ólafison,
Iðntæknistofnun og Lárus Árnason, Vífilfelli.
Námstefnustjóri er Thomas Möller, Olís.
Á námstefnunni verður auk ECR fjallað um nýtt verkefni í vörustjórnun fyrir íslensk iðnfyrirtæki.
Verkefnið er samstarfsverkefni Iðnlánasjóðs, Samtaka iðnaðarins og Iðntæknistofnunan Sérstök áhersla
verður lögð á eftirfarandi þætti:
• Lækkun birgðakostnaðar
• Aukið upplýsingaflæði í vöruferlinu
• Hagnýtingu nýjustu tölvutækni við stjórnun vöruflæðis
• Styttingu gegnumstreymistíma í framleiðslu
• Styttingu afgreiðslutíma og aukið afhendingaröryggi til viðskiptavina
• Aukinn veltuhraða fjármagns
• Aukið samstarf við birgja
Umsóknarfrestur í verkefninu er til 10. október 1997. Bæklingur og skráningarblöð liggja frammi á
Iðntæknistofnun.
Frestur til að skró sig ó námstefnuna er til 7. október.
Skráning í sima: 570 7100
Námskeiðsgjald kr. 4.000:-
Iðnlánasjóður Iðntæknistofnun Samtök iðnaðarins